Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. Erlend bóksjá Illur andi Leikur bama í landi prestsset- urs í Suffolk á Englandi fær bráö- an og óvæntan endi þegar eitt barnanna gengur fram á beina- grind af manni. Lögreglan er kvödd á vettvang en hefur nánast enga þræöi að fylgja viö rann- sókn málsins, aðra en þá að allt bendir til þess aö maðurinn hafl verið myrtur. Quantrill lögregluforingi fær hins vegar fljótlega á tilfmning- una að prestshjónin leyni hann einhverju - að þau hafi vitneskju um af hverjum beinagrindin sé. Honum tekst smátt og smátt að raða-saman brotum og þá kemur í ljós að ekki hefur allt verið sem sýnist á prestssetrinu. Þetta er sannferðug og spenn- andi sakamálasaga, ein af mörg- um sem Sheila Radley hefur sam- ið um Quantrill, hæglátan lög- regluforingja sem kemst á leiðar- enda án bægslagangs. Að þessu sinni tekst henni sérlega vel með skúrkinn sem vinnur sitt illa verk af lævísi og hefur unun af að eyðileggja hamingju annarra. A TALENT FOR DESTRUCTION. Höfundur: Sheila Radley. Penguin Books, 1989. DAVIDLODGE Ólíkir heimar Enski rithöfundurinn David Lodge er löngu kunnur af skáld- sögum sínum sem gjaman gerast meðal háskólakennara - en hann kenndi sjálfur enskar bókmennt- ir viö háskólann í Birmingham um árabil. í þessari nýju skáldsögu sinni lætur Lodge tvær sögupersónur, karl og konu, sem starfa í mjög ólíkum greinum ensks atvinnu- lífs, mætast. Annars vegar er framkvæmdastjóri iðnfyrirtækis, Vic, sem lifir í heimi framleiðslu og fjármála, hins vegar Robyn, háskólakennari, sem hefur sér- hæft sig í enskum atvinnulífs- skáldsögum og lifir í heimi þar sem bókmenntafræði og háskóla- pólitík skiptir öllu máli. Kynni þeirra hafa þegar fram í sækir veruleg áhrif á líf þeirra, einkum þó Vics sem verður brátt yfir sig ástfanginn af Robyn og fer í fyrsta sinn á ævinni að lesa sí- gildar bókmenntir. Lodge dregur upp nákvæma og skemmtilega mynd af þeim gjörólíka veru- leika, sem Vic og Robyn hrærast í, og þeim breytingum sem kynni þeirra og samskipti hafa á fyrrum afmarkað líf þéirra og viðhorf. Nice Work er svo sannarlega skáldsaga sem hægt er að mæla meö. NICE WORK. Höfundur: David Lodge. Penguin Books, 1989. Skyggnst á bak við töfraljós Bergmans Fremur er sjaldgæft að höfundar sjálfsævisagna gangi í skrokk á sjálf- um sér, kryfji líf sitt, tilfmningar, hugsanir og athafnir miskunnar- laust til mergjar. Sænski kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergman hefur hins vegar alla tíð farið ótroðnar slóðir í lifi og starfi. Það á einnig við um sjálfsævi- sögu hans sem nú er komin út í enskri þýðingu. Þar gerist hann afar nærgöngull sjálfum sér og sínum nánustu er hann kafar ofan í djúp oft sársaukafullra minninga. Sterkt ímyndunarafl Bergman fæddist í Uppsölum árið 1918. Móöir hans haföi spönsku veik- ina og sjálfur þjáðist hann af ýmsum kvillum á yngri árum. Þær aðstæður urðu vafalítið til þess að magna innra með honum kraft ímyndunaraflsins - orkustöðvar frjórrar listsköpunar á langri ævi. Fjölskyldan fluttist fljótlega til Stokkhólms, þar sem faðir hans var prestur. Samskipti þeirra feðganna voru mjög stirð og erfiö, eins og rak- ið er tæpitungulaust í sjálfsævisög- unni. Svo fór að Ingmar flutti að heiman eftir hörð átök og sá ekki fjöl- skyldu sína aftur fyrr en mörgum árum síðar. Byrjaði sem rithöfundur Fyrstu árin á listabrautinni reynd- ust Bergman erfið. Hann reyndi fyrst fyrir sér sem rithöfundur, en með fremur dræmum árangri. Hann kynntist leikhúsinu smám saman og síðar kvikmyndagerð. Árið 1944 var fyrsta handrit hans tekið til kvikmyndunar. Fljótlega upp frá því vann hann jöfnum höndum að gerð kvikmynda og uppsetningu verka í leikhúsinu. A báðum sviðum var hann umdeildur. Það voru kvikmyndir Bergmans sem áunnu honum brátt frægð, ekki INGMAR BERGMAN His Autobiograpby T11 E XÖAGIC L A N T E R N \\ carittg hfífík tsboui a very parlkuhr nuis. f yon tu i'UXÍ íf' — D f K ii lí 0 (» A K I) X Ingmar Bergman á yngri árum í leikhúsinu. síst erlendis. Viðurkenningunni fylgdu hins vegar ekki umtalsverðir fjármunir fyrr en miklu síðar. Bergman rekur nokkuð gerð ýmissa kvikmynda sinna í sjálfsævi- sögunni og tengir þær gjarnan við- burðum úr eigin lífi. Einnig fjallar hann ítarlega um hinn mikla þátt leikhússins í lífi sínu en hann var um árabil leikhússtjóri, meðal ann- ars við Dramaten. Flóknir innviðir En forvitnilegustu hlutar bókar- innar fjalla þó um flókna innviði Bergmans sjálfs og samskipti hans við sína nánustu. Hreinskilni hans er aðdáunarverö og augljós einlægur vilji til þess að skilja og skilgreina tilfinningar sínar og ástvina sinna. Kannski kemur einna mest á óvart að kynnast póhtískri fortíð Berg- mans. Hér má lesa um dvöl hans í Þýskalandi árið 1934 og aðdáun hans á Hitler og nasistum allt fram til þess tíma er vitneskjan um glæpi þeirra var óumflýjanleg staðreynd að stríð- inu loknu. Viöbrögð hans viö þeirri reynslu var að forðast pólitík eins og heitan eldinn. Þá er ekki síður áhrifamikil frá- sögn hans af þeim ótrúlegu atburð- um þegar hann var handtekinn á æfingu í Dramaten fyrir grun um skattsvik og þau alvarlegu áhrif sem sá atburður hafði á líf hans. Bergman fékk taugaáfall og var lagður inn á geðdeild. Hann fór síöan í eins konar útlegð og starfaði utan Svíþjóðar í mörg ár eftir þann atburð, einkum í Munchen. Þetta er óvenjuleg sjálfsævisaga vegna þess hversu höfundurinn hleypir lesandanum nærri innsta kjarna lífs síns, sálu sinni. Lesið hana. THE MAGIC LANTERN. Höfundur: Ingmar Bergman. Penguin Books 1989. Metsölubækur Bretland Söluhæstu kiljurnar: 1. Jeffrey Archer: A TWIST IN THE TALE. 2. James Herbert: HAUNTED. 3. David Lodge: NICE WORK. 4. Rosamunde Pilcher: THE SHELL SEEKERS. 5. Elisabeth Gage: A GLIMPSE OF STOCKING. 6. Barbara Taylor Bradford: TO BE THE BEST. 7. Cralg Shaw: BATMAN. 8. Ben Elfon: STARK. 9. William Horwood: DUNCTON QUEST. 10. Jilly Cooper: RIVALS. Rít almenns eðlis: 1. Rosemary Conley: COMPLETE HIP & THIGH DIET. 2. Callan Pinckney: CALLANETICS. 3. Paul Theroux: RIDING THE IRON ROOSTER. 4. John Marriott: BATMAN: THE OFFICIAL MOVIE BOOK. 5. Rosemary Conley: HIP & THIGH DIET. 6. Gambaccini &Rice: GUINNESS BOOK OF BRITISH HIT SINGLES. 7. Clive James: SNAKECHARMERS IN TEXAS. 8. Elkington & Hailes: THE GREEN CONSUMER GUIDE. 9. Heathcote Wiiliams: SACRED ELEPHANT. 10. Frank Miiler: BATMAN: THE DARK KNIGHT RETURNS. (Byafl' * The Sunday Ttmes) Bandaríkin Metsölukiljur: 1. Erich Segal: DOCTORS. 2. Tom Clancy: THE CARDINAL OF THE KREMLIN. 3. Susan Isaacs: SHINING THROUGH. 4. Rosamunde Pllcher: THE SHELL SEEKERS. 5. Danielle Steel: ZOYA. 6. Maeve Binchy: FIREFLY SUMMER. 7. Harold Coyle: SWORD POINT. 8. Victorla Hoit THE INDIA FAN. 9. Stephen Klng: THE DARK TOWER - THE GUNSLINGER. 10. Terry Brooks: WIZARD AT LARGE. 11. Thomas Harris: THE SILENCE OF THE LAMBS. 12. James A. Michener: ALASKA. 13. Gabriel Garcia Márquez: LOVE IN THE TIME OF CHOLERA. 14. Línda Lay Shuler: SHE WHO REMEMBERS. 15. Tom Wolfe: THE BONFIRE OF THE VANITIES. Rit almenns eðlis: 1. Kirk Dougfas: THE RAGMAN’S SON. 2. C. McGuire, C. Norton: PERFECT VICTIM. 3. Leo Damore: SENATORIAL PRIVILEDGE. 4. Whltley Strleber: TRANSFORMATION. 5. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELED. 6. Bernie S. Siegel: LOVE, MEDICINE & MIRACLES. 7. Charles Higham: THE DUCHESS OF WINDSOR. 8. David Brinkiey: WASHINGTON GOES TO WAR. 9. Hunter S. Thompson: GENERATION OF SWINE. 10. Jerry Bledsoe: BITTER BLOOD. (Bysgt á New Vork Ttmej Book Revtew) Danmörk Metsölukiljur: 1. Antoine de Saint-Exupéry: BLÆSTEN, SANDET OG STJERNERNE. 2. Jean M. Auel: HULEBJ0RNENS KLAN. 3. Jean M. Auel: HESTENES OAL. 4. Jean M. Auei: MAMMUTJÆGERENE. 5. isabel Allende: ANDERNES HUS. 6. Helle Stangerup: CHRISTINE. 7. Martln A. Hansen: ORM OG TYR. 8. Bo Green Jensen: DANSEN GENNEM SOMMEREN. 9. Réglne Deforges: PIGEN MED DEN BLÁ CYKEL. 10. Pat Conroy: SAVANNAH. (Byggt á Potitiken Sondog) Umsjón: Elías Snæland Jónsson í furöuheimum vísindaskáldsagna Dr. James Owens Mega, próf- essor í verkfræði, varð það á að semja vísindaskáldsögu og fá hana útgefna. Honum er boðiö að kynna verk sitt á ráðstefnu sem haldin er um þessa tegund bókménnta og þá leiki sem búnir hafa verið til í kringum þekktar sögupersónur. Hann fer með hálfum hug og dvelur nokkra daga í furðuheimi þar sem veruleiki heilbrigðs mannlífs er jafnfjarri og á geð- veikrahæli. Ráðstefnugestir búa sig til dæmis flestir í gervi eftir- lætis sögupersóna sinna, enda þekkja þeir oft betur til í heimi vísindaskáldsagnanna en í raun- veruleikanum. Mega hefur þó ekki mikinn tíma til að njóta þessa sérstæða mannlífs því bráðlega er heiöurs- gestur ráðstefnunnar, frægur og afar ógeðfelldur vísindasagna- höfundur, myrtur. Sharyn McCrumb tekst ágæt- lega að lýsa kostulegum uppá- tækjum ráðstefnugesta í þessari gamansömu sakamálasögu. Og prófessorinn fær að sjálfsögðu að leysa morðgátuna í lokin. BIMBOS OF THE DEATH SUN. Höfundur: Sharyn McCrumb. Penguin Books, 1989. Fræðimaður og ljóðskáld A. E. Housman, sem fæddist árið 1859 en andaöist fyrir rúm- lega hálfri öld, var í senn virtur og dáður sérfræöingur í grískum og rómverskum fræðum og af- bragðs ljóðskáld. Sjálfur leit hann á sig sem fræðimann og kennara og ritaði mikið um foman skáld- skap, enda að mati T.S. Eliots einn besti höfundur óbundins máls á Englandi á þessari öld. Hins vegar fór Housman hálf- partinn í felur með ljóð sín. Hann leyfði þannig í lifanda lífi einung- is útgáfu tveggja ljóðabóka - þeirrar fyrri árið 1896 en hinnar síðari 1922. Hann orti þó mun fleiri ljóð sem birt voru að honum látnum. í þessari bók hefur öllum ljóð- um Housmans verið safnað sam- an og eins úrvali ritgerða hans og bréfa. Þar á meðal er merkileg- ur fyrirlestur um ljóðagerð, sem hann flutti árið 1933 í Cambridge og vakti mikla athygli, og for- vitnilegar umsagnir um verk ýmissa höfuðskálda hinna fomu Grikkja og Rómverja. COLLECTED POEMS AND SELECTED PROSE. Höfundur: A. E. Housman. Penguin Books, 1989.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.