Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 17
,17 LAUGAJiDAGUR 9. SEfrEMRER 1989. Gottfóik!... Allternúvit- laust að verða vestur í Banda- ríkjunum út af Rolling Stones eina ferðina enn. Þeir eru nefni- lega lagðir upp i eina tónleika- ferðina enn og mega menn vart vatni halda vestra yfir pessu. Rollingarnir byrjuðu tónleikaferðina á því að halda nokkurs konar leynitónleika á litlum skemmtistað í New Haven i Conneticut. Ákaflega fáir vissu af þessu og gestir hússins áttu ekki von á öðru en að heyra í hljómsveitinni Sons of Bob sem auglýst var. Því má nærri geta að menn misstu andlitið oní súpuna þegar eigandi staðarins gekk upp á svið og sagði í mestu rólegheitum: Herrar mínirog frúr, má ég kynna Rolling Sto- nes! Og svo hófust einhverjir ódýrustu Rolling Stones tón- leikar sögunnar því aðgangs- eyrir að veitingahúsinu hijóð- aði upp á litlar 180 krónur íslenskar... Tónleikaferð Rolling Stones um Bandarikin mun standa út októbermánuð og 26. og 28. október spila Rollingarnir á Shea Stadium leikvanginum i New York. Verða það fyrstu tónleikarnir á þessum sögufræga tónleika- stað I sex ár... Nýju stjörn- urnar De La Soui hafa verið ákærðar fyrir hugverkaþjófnað og hljómsveitin og aðstand- endur hennar krafnir um ná- iægt hundrað milljónum is- ienskra króna í skaðabætur. Málshöfðendur eru félagarnir Flo & Eddy sem eitt sinn voru í hljómsveitinni Turtles. Þeir halda þvi fram að lag De La Soul, Transmitting Live From Mars, sé skrumskæld útgáfa af lagi þeirra, You Showed Me, sem var vinsælt 1969... Jon Bon Jovi, söngvari og leiðtogi hljómsveitarinnar Bon Jovi, er orðinn sterkrí kur maður eftir mikla veigengni hljómsveitar sinnar undanfar- in ár. Dg ekki er hægt að segja annað en að hann sé gjafmiidur maður þvi þegar hann var ekki alls fyrir löngu beðinn um að gefa eitthvað i verðlaun hjá MTV sjónvarps- stöðinni gaf hann húsið sitt!!.. .góðarstundir... -SþS- pv____________________Nýjarplötur Deacon Blue-When the World Knows Your Name: Heimsfrægðin bíður um sinn Skoska hljómsveitin Deacon Blue fer ekki beint ótroðnar slóðir í tón- list sinni heldur rær á svipuð mið og þekktar hljómsveitir á borð við Aztec Camera og Prefab Sprout. Þar er auðvitað ekki leiðum að líkj- ast en lögmálið segir að eftirlíkingin geti aldrei orðið betri en fyrirmynd- in. Vissulega er samt ekki hægt að halda því fram að Deacon Blue sé vísvitandi að stæla aðrar hljómsveit- ir en þegar farið er inn á sömu braut- ir og aðrir hafa markaö komast menn ekki hjá því að lenda í samlíkingum. En þaö er að sjálfsögðu allt annað að vera auvirðileg eftirhermuhljóm- sveit en sjálfstæð skapandi hljóm- sveit eins og Deacon Blue. Þetta fólk semur sína tónlist og texta sjálft og gerir það bara býsna vel. Sá sem á stærstan þátt í lagasmíð- unum er söngvarinn Ricky Ros en hljómborðsleikarinn Jim Prime kemur líka nokkuð við sögu. Lögin eru melódískt rokk með frekar mjúkri áferð og hafa þegar ein tvö lög af þessari plötu náð vinsældum, Real Gone Kid og Fergus Sings the Blues. Ég efa að Deacon Blue sé orðið heimsþekkt nafn en hún hefur alia buröi til þess að ná þvi marki. -SþS- Neville Brothers - Yellow Moon Hæfileikabræður Yeliow Moon er plata sem maður hættir ekki svo auöveldlega að hlusta á eftir að hafa sett hana á fóninn. Þessi klukkutímalanga plata er vel úr garði gerð og skemmtileg og þótt lítið hafi farið fyrir Neville bræðrun- um hingað til eiga þeir skilið athygli þeirra sem vilja vandaöa og íjöl- breytta tónlist. NeVille bræðumir eru íjórir; Aaron og Art, sem báðir eru söngvarar og hljómborðsleikarar, Cyril sem lemur húðir og syngur og saxófónleikarinn Charles sem setur sterkan svip á Yellow Moon með sérstökum og skemmtilegum saxófónleik. Lögin á Yellow Moon eru tólf og tekur það rúman klukkutíma að hlusta á þau eins og áður sagði. Flest laganna eru samin af þeim bræðrum og í tónlist þeirra gætir vissra afrískra áhrifa, þótt yfirborðið sé blús, rokk og nokkrar aðrar tónlist- arstefnur. Óhætt er að segja að ekkert lag á plötunni líkist öðru og það sem kom fyrst á óvart var hversu breiður tón- listarsmekkur þeirra bræðra er. Bestu lög bræðranna eru titillagið Yellow Moon sem er flutt af mikilli leikgleði og Voo Doo sem þvert á móti er dularfullt og spennandi. Þótt þessi lög séu nefnd þá eru önnur sem vekja mikla athygli strax við fyrstu hlustun. Það er helst að Sister Rosa dragi niður í gæðunum - ruglingslegt lag og samhengislaust. Ekki hafa bræðurnir samið öll lög- in á plötunni. Tvö lög hafa þeir feng- ið að láni hjá Bob Dylan, The Bailad of Hollis Brown og With God on Our Side. Og sjaldan hef ég heyrt jafn-vel farið með lög meistarans af öðrum en honum sjálfum. Blúsinn í Hollis Brown er nákvæmlega eins og text- inn gefur tilefni til og þegar hlustað er á With God on Our Side er maður kominn í allt annað andrúmsloft. Gæti verið sungið af írskum þjóð- lagasöngvara. Þá er mjög góð útgáfa af lagi eftir Sam Cooke, A Change Is Gonna Come. Þótt lögin á Yellow Moon séu hvert öðru ólík og útsetningar ekki síður þá er neisti sem tengir þetta allt sam- an og gerir plötuna að heild sem virkilega gaman er aö hlusta á. -HK Ja,hver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur í kvöld! Þreföld ástæða til að vera með! Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 BEYGJA A Á MALARVEGI!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.