Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989.
Afmæli
Hólmfríður Guðmimdsdóttir
Hólmfriður Guðmundsdóttir hús-
móðir. Efstasundi 16 í Reykjavik. er
níræð í dag.
Hólmfríður er fædd á Skerðings-
stöðunt í Hvammssveit og ólst upp
í Dölunum. Unt tvítugt flutti hún til
Reykjavíkur og hefur búið þar fra
því. Fyrst eftir komuna til Reykja-
víkur vann hún alla almenna vinnu
en eftir að hún giftist hefur hún
veriö húsmóðir.
Foreldrar Hólmfriðar voru Magn-
ús Guðntundsson. sent bjó vtða í
Dalasýslu en lengst af i Belgsdal.
fæddur 14. desember 1870. látinn 9.
júni 1944. og kona hans. Ingibjörg
Kristfríður Björnsdóttir. fædd 20.
ágúst 1880. Hún er nú látin.
Magnús. faðir Hólmfríðar. var
sonur Guðmundar Jónssonar.
bónda í Hvammsdal i Dalasýslu. og
konu hans. Maríu Magnúsdóttur.
Ingibjörg. móðir Hólmfríðar. var
dóttir Björns Ólafssonar, bónda á
Ytra-Felli á Fellsströnd og konu
hans. Agnesar Guðfmnsdóttur.
Systkini Hólntfríðar vóru sex.
Hólmfríöur er elst eh Jóakim. bóndi
í Belgsdal. næstur í röðinni. Þá Guð-
mundur. Hanri drukknaöi með Val-
geiri móðurbróður sínum á
Hvammsfirði 14. desember 1935.
Hildur. húsntóðir í Reykjavik. er
tjórða í röðinni. þá María. húsmóðir
i Reykjavik. og yngst Lára Þóra sem
flutti til Svíþjóðar.
Hólmfríður giftist 11. janúar 1925
Guðntundi Gíslasyni bifreiðar-
stjóra. Hann er fæddur 23. júlí 1903
á Patreksfirði. sonur Gísla Guð-
ntundssonar, smiðs þar og síðar í
Reykjavík, og konu hans, Sigríðar
Pálsdóttur.
Hólmfríður og Guðmundur eign-
uöust tíu börn og eru níu þeirra á
lífi. Þau eru:
Magnús, vinnur hjá Flugleiðum í
Reykjavík. Kona hans er Sigurrós
Kristjánsdóttir húsmóðir og eiga
þau níu börn.
Gísli, vinnur ltjá Pípugerðinni í
Reykjavík. Kona hans er Dagbjört
Ólafsdóttir verkakona og eiga þau
fjögur börn.
Axel, verkantaður í Reykjavík.
Kona hans er Ólöf Sigurðardóttir
verkakona og eiga þau tvö börn.
Ingibjörg, húsmóðir í Reykjavík.
Maður hennar var Jón Sigurðsson
fiskmatsmaður og eiga þau þrjú
börn. Þau skildu.
Ástþór, bifreiðarstjóri í Reykjavík.
Kona hans er Kristín Högnadóttir
húsmóðir og eiga þau sex börn.
Fjóla, meðferðarfulltrúi í Reykja-
vík. Maður hennar er Sigurbjörn
Ólafsson stýrimaður og eiga þau
þrjú börn.
Þóra Sigrún, verkakona í Kefla-
vík. Maður hennar var Gestur
Kristjánsson tollþjónn og áttu þau
tvöbörn.
Skúli, verktaki í Reykjavík. Kona
hans er Björg Guðnadóttir með-
ferðarfulltrúi og eiga þau tvö börn.
Guðmundur, verkamaður í
Reykjavík. Hann er nú látinn. Kona
hans var Steinunn Sigurðardóttir
og áttu þau íjögur börn.
Jens, verktaki í Reykjavik. Kona
hans er Sigríður Stefánsdóttir og
eigaþauþrjúbörn.
I allt eru afkomendur Hólmfríðar
og Guðmundar orðnir um eitt
Hólmfríður Guðmundsdóttir.
hundrað.
Hólmfríður tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Langholtssóknar
eftir kl. 15 á afmælisdaginn.
Guðjon Jónsson
Guðjón Jónsson. fyrrverandi
frystihússtjóri á Hvolsvelli, Kirkju-
hvoli í Vestur-Landeyjum. verður
sjötiu og fimm ára á morgun.
Guðjón er fæddur á Torfastöðum
í Fljótshlíð og alinn þar upp.
Foreldrar Guðjóns voru Jón Guð-
mundsson, bóndi á Torfastöðum, og
Guðrún Guðmundsdóttir.
Jón var sonur Guömundar Jóns-
sonar á Langekru á Rangárvöllum
og Guðbjargar Ámadóttur, systur
Ólafs, afa Ingvars Vilhjálmssonar
útgerðarmanns og Kristins Vil-
hjálmssonar framkvæmdastjóra og
langafa Sveinbjarnar Dagfmnsson-
ar ráðuneytisstjóra, manns Pálínu
Hermannsdóttur, systur Steingríms
forsætisráðherra.
Guðrún, móðir Guðjóns, var dóttir
Guðmundar Guðmundssonar,
bónda á Skúfslæk í Villingaholts-
hreppi, og Valgerðar Tómasdóttur,
móður Túbals, fóður Ólafs Túbals
listmálara. Systir Guðrúnar var
Halldóra, móðir Jónasar Magnús-
sonar, alþingismanns á Strandar-
höfða.
Systir Guðjóns er Ingibjörg Jóns-
dóttir, fyrrum húsfreyja á Torfa-
stöðum í Fljótshlíð, fædd 17. mars
1909. Maður hennar var Kort Ey-
vindsson, bóndi á Torfastöðum.
Hálfsystir Guðjóns, samfeðra, var
Guðbjörg Jónsdóttir. Hún er nú lát-
in. Maður hennar var Magnús Guð-
mundsson, bóndi á Torfastöðum.
Guðjón kvæntist 12. janúar 1940
Kristbjörgu Lilju Árnadóttur,
fæddri 21. mars 1914. Hún lést 17.
jnaúar 1985. Kristbjörg var dóttir
Áma Sigfússonar, kaupmanns og
útgerðarmanns í Vestmannaeyjum,
og Ingibjargar Kristjánsdóttur frá
Auraseli í Fljótshhð.
Börn Guðjóns og Kristbjargar eru:
Rúnar, sýslumaður í Borgamesi,
fæddur 1. desember 1940. Kona hans
er Auður Svala Guöjónsdóttir og
eiga þau þrjú börn.
Ingi, deildarstjóri hjá Kaupfélagi
Rangæinga á Hvolsvelli, fæddur 4.
febrúar 1943. Kona hans var Dagný
Hermannsdóttir. Þau eru skilin en
Guðjón Jónsson.
eigafjögurbörn.
Erna Hanna, bankagjaldkeri í
Reykjavík, fædd 7. október 1952.
Hún á einn son.
Margrét, skrifstofustúlka í
Reykjavík, fædd 30. október 1956.
Sambýlismaður hennar er Kjartan
Óskarsson og eiga þau eina dóttur.
Guðmundur S.
Magnússon
Guömundur S. Magnússon, fyrr-
um vörubifreiðarstjóri, Langholts-
vegi 60, Reykjavík, verður áttatíu
og fimm ára á morgun.
Kona Guðmundar er Áslaug Sig-
urðardóttir.
Þau hjónin munu taka á móti gest-
um i sal Sparisjóðs vélstjóra, Borg-
artúni 18, Reykjavík, á morgun
klukkan 15.00.
Guðmundur S. Magnússon.
Til hamingju með
laugardaginn 9.9.
90ára
Sigurlaug Guðjónsdóttir,
Bergstaðastræti 72, Reykjavík.
80 ára
Gunnar Sigtryggsson,
Skarðshlíð 18B, Akureyri.
Inga Gestsdóttir,
Laugavegi 86B, ReyKjavík.
Hún verður að heiman á afmælis-
daginn.
Sigurjón Björnsson,
Kirkjuvegi 5, Mýrdalshreppi.
75 ára
Sigurður Elíasson,
Ljósheimum 12A, Reykjavík.
Bjarni Magnússon,
Tröð, Boiungarvík.
70 ára
Vilhjálmur Jónsson,
Skildinganesi 26, Reykjavík.
Þórunn Baldursdóttir,
Barmahliö 56, Reykjavík.
60 ára
Erla Pálsdóttir,
Reyni, Mýrdalshreppi.
Benný Sigurgeirsdóttir,
Suðurgötu 67, Akranesi.
Rósar Eggertsson,
Hvassaleiti 13, Reykjavík.
Jóhannes Sigmarsson,
Borgarvegi 20B, Njarðvíkum.
50 ára
María Hauksdóttir,
Hrauntungu 111, Kópavogi.
40 ára
Hulda Valtýsdóttir,
Núpskötlu H, Presthólahreppi.
Kjartan Erlendsson,
Dalatúni 19, Sauðárkróki.
Haukur Ásmundsson,
Furugerði 7, Reykjavík.
Kristján Sigurðsson,
Vallarási 5, Reykjavík.
Hjalti Gunnarsson,
Hverflsgötu 30, Hafnarflrði.
Björk Mýrdal,
Kirkjuvegi 26, Vestmannaeyjum.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælis böm og aðstandendur þeirra til að senda
því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum
fýrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Aldarminning
Guðlaug Sigurðardóttir
Guðlaug Sigurðardóttir, frá
Hrygg í Hraúngerðishreppi í Ámes-
sýslu, hefði orðið hundrað ára á
raorgun. Afkomendur hennar ætla
að minnast hennar við guðsþjón-
ustu í Selfosskirkju kl. 14 á morgun,
sunnudaginn 10. september. Guð-
laug lést 28. nóvember 1962.
Eiginmaður Guðlaugar var Ólafur
Helgason, fæddur í Skálholti 6. apríl
1873 og lést 18. október 1933. Guð-
laug og Ólafur gengu í bjónaband
1. desember árið 1922 og settust að
í Reykjavík. Þau eignuðust firam
böm.
Þegar Ólafur lést flutti Guölaug
með böm þeirra íjögur að Austur-
koti í Hraungerðishreppi og byggði
þar hús á jörð Guðmundar, bróður
síns. Elsti sonurinn fór í fóstur að
Álfsstööum á Skeiðum og síðar
næstelsti bróðirinn í fóstur i Aust-
urkoti.
Árið 1941 byggði Guðlaugsér hús
á Selfossi og kallaði HeiðarbóL Þar
bjó hún í fjögur ár þar til hún flutti
til sonar síns að Snælandi á Selfossi
og síðustu árin dvaldi hún á Sól-
vangi í Hafnariflrði.
Guðlaug var dóttir Sigurðar Jóns-
sonar frá Ölversholti i Hraungerðis-
hreþpi og Ástríðar Einarsdóttur frá
Efri-Brúnavöllum á Skeiðum. Sig-
urður var sonur Jóns Sigurðssonar,
bónda í Ölversholti, Erlendssonar á
Stóru-Reykjum og Guðlaugar Þór-
arinsdóttur.
Ástríður, móðir Guðlaugar, var
dóttir Einars Eggertssonar, bónda á
Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum, og
Vilborgar Ketilsdóttur frá Skálholti.
Einar var sonur Eggerts Einarsson-
ar, hreppstjóra á Litla-Fljóti í Bisk-
upstungum og Valgerðar Halldórs-
dóttur, prestsáTorfastöðum.
Ólafur Helgason, maöur Guðlaug-
ar, var sonur Helga Ólafssonar dg
Valgerðar Eyjólfsdóttur, búenda í
Skálholti. Helgi var sonur Ingiríöar
Einarsdóttur og seinni raanns henn-
ar, Ólafs Helgasonar frá Grafar-
bakka í HrunamanahreppL Bróöir
Ólafs var Gísli Helgason, afi Ás-
gríms Jónssonar listmálara.
Valgerður Eyjólfsdóttir var dóttir
Eyjólfs Gestssonar ogHelgu Þor-
láksdóítur, búenda í Vælugerði í
Flóa.
Bróðir Ólafs, manns Guðlaugar,
var Ketill Helgason. Meðal bama
hans var Ólafur Ketilsson, bifreiða-
stjóri á Laugarvatni og Sigurbjöm
Ketilsson skólastjóri, faðir Tryggva
rafmagnsverkfræöings.
Böm Guðlaugar og Ólafs eru
fimm. Þau eru:
Helgi, löggiltur fasteignasali í
Reykjavík, fæddur 27. júní 1924.
Fyrri kona hans var Anna Páls-
dóttir, fædd 7 .júní 1918, dáin 10.
maí 1961. Seinni kona Helga er
Kristín Einarsdóttir, fædd 1. maí
1924. Helgi á tvö börn.
Sigurður, mjólkurfræðingur á Sel-
fossi, feeddur 21. ágúst 1925. Kona
hans er Sigríður Einarsdóttir, fædd
8. janúar 1919. Þau eiga þtjú böm.
Valgerður, húsmóðiríReykjavík,
fædd 4. desember 1926. Maður henn-
ar er Kristján Laursen iðnverka-
maður, fæddur 23. nóvember 1912.
Þaueigatvöböm.
Ástráður, bifreiðastjóri hjáMjólk-
urbúi Flóamanna, fæddur 19. mars
Guðlaug Sigurðardóttir.
1929, Kona hans er Erla Þórhalls-
dóttir, fædd 8. nóvember 1933. Þau
eigafjögurböm.
Ólafur, fjármálafulltrúi hjá Sel-
fossbæ, fætldur 3. júlí 1930. Hann á
tvöböm.
Bamaböm Guölaugar og Ólafs
em 13 ogbamabarnabörnin em
orðin 19.