Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 13
.6891 51.-IH I/íI líAd. .81 áíDt)Á(fMð'JVÍ»
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989.
Uppáhaldsmatur á sunnudegi
Auður Haralds danskennari býður upp á tiskufiskinn lúðu sem virðist njóta mikilla vinsælda um þessar mundir.
DV-myndGVA
'w ' \_, ré é_,
Luourettur
dansarans
- að hætti Auðar Haralds danskennara
„Ég hef hafl svo mikið að gera
undanfarið að matargerð hefur al-
veg setíö á hakanum," sagði Auður
Haralds danskennari er DV bað
hana um uppáhaldsuppskrift. Auð-
ur er að setja í gang dansskólann
en hún er sú eina sem kennir nýjan
tískudans, lambada, sem er að fara
sigurför um heiminn um þessar
mundir.
„Þessi dans er frá Puerto Rico og
kemur upphaflega frá sýningar-
floktó þaöan sem ferðast hefur víöa
um Evrópu og sýnt hana Lambada
hefur vatóð mikla athygli og sam-
nefnt lag er spiiað undir," sagði
Auður. Hún sagöi að mitóll áhugi
væri að grípa ura sig hér á landi á
lambada.
,JÞað er kannstó erfitt að lýsa
dansinum," sagði Auöur ennfrem-
ur. „Karl og kona dansa saman og
hún situr Wofvega á iæri hans. Siö-
an leggur herrann dömuna aftur
fyrir sig í brú. Þó að erfitt sé aö
lýsa dansinum er engu að síður
auðveit læra hann,“ sagði Auður.
Þessum nýja tískudansi fylgir
stutt hringskorin pils sem daman
klæðist og herrann klæðist hné-
buxum (hjólabuxum). Lambada er
tiskudans en það gætí allt eins ver-
ið tískuréttur sem Auður lét okkur
hafa þvi hún valdi lúðu fyrir les-
endur DV. Lúöa hefúr nokkuð oft
komið upp sem uppáhaldsréttur í
þessum dáltó svo greinilegt er aö
hún er vinsæl og auövelt er aö
matreiða hana á margan hátt Hér
kemur uppskriftin hennar Auðar.
Lúðafyrirsex
1 kg smálúða
250 g rækjur
'A dós ananas
1 dós sýrður rjómi
2 bollar af ósoðnum hrísgrjónum
Aðferðm
Smyijið eldfast mót vel aö innan.
Sjóðið hrísgrjónin og skiptið síöan
tíl helminga. Sefiið annar helming-
inn í botn mótsins og raðíð smátt
skorinni lúöunni ofan á. Bætið
ræklum og ananasbitum ofan á
lúöuna. Hrærið safanum af anan-
asinura saman viö eina dós af sýrð-
um ijóraa og kryddiö sósuna með
salö, pipar og paprikudufti. Hellið
sósunni yfir lúöuna, rækjumar,
ananasinn og hrísgijónin og stráið
rifnum osti yfir. Bakið réttinn í ofni
í 30 mín. við 175“ C hita.
Gott er aö bera réttínn fram með
fersku saiati og hvitlauksbrauði.
Ekki sakar að hafa Chablishvítvín
með. -ELA
O
13
Staða fulltrúa
hjá Veðurstofu íslands
er laus til umsóknar. Góð kunnátta í íslensku, ensku
og vélritun nauðsynleg. Kunnátta í einu Norður-
landamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist samgönguráðuneytinu fyrir 29.
sept. 1989.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Veðurstofu
íslands.
Veðurstofa íslands
SKÍÐADEILD FRAM
Skíócrfólki 12 ára og yngra, sem œtlar aó
hefja skíóaœfingar, er boóió aó koma á
fund um vetrarstarf deildarinnar í félags-
heimili Fram vió Safamýri þriójudagskvöldió
19. september kl. 20.
Innritun nýrra félaga á fundarstaó og í síma
20052.
HRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi:
RARIK-89005 33 kV Switchgear Cubicles „RIMAKOT".
Opnunardagur: Þriðjudagur 31. október 1989 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð
á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna rikisins,
Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með þriðjudegi 19. septemb-
er 1989 og kosta kr. 300,00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
T/EKNIDEILD
Útboð
Stjórn verkamannabústaða Seyluhrepps óskar hér með eftir
tilboðum í byggingu tveggja hæða tvíbýlishúss úr stein-
steypu, verk nr. x.04.01, úr teikningasafni tæknideildar
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 172,6 m2.
Brúttórúmmál húss 530 m3.
Húsið verður byggt við götuna Laugavegur nr. 13, Varma-
hlíð, Seyluhreppi, Skagafjarðarsýslu, og skal skila fullfrá-
gengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Seyluhrepps, Félags-
heimilinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, og hjá tæknideild Hús-
næðisstofnunar ríkisins, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykja-
vík, frá þriðjudeginum 19. september 1989 gegn 10.000
kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn
3. október 1989 kl. 11.00 og verða þau þá opnuð að við-
stöddum þjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
Tæknideild H.R.
n HUSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVIK ■ SIMI -696900