Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989, 39 ' LífsstíU Ensk áhrif Bresk áhrif eru ríkjandi á Kýpur. Flestir íbúar eyjarinnar tala ensku og vegaskilti eru þar bæði á ensku og grísku. Vinstri handarumferð er þar að sið breskra og mörgum íbún- unum finnst það ómissandi þáttur í tilverunni að fá sér te síðdegis. Móöurmál Kýpur-Grikkja er gríska. Fáir þeirra sem tala grísku myndu hins vegar skilja þá grísku sem töluð er á eyjunni því í málinu er aragrúi af arabískum og tyrknesk- um tökuorðum. Margir Kýpverjar eru góðir tungu- málamenn og auk þess að tala móð- urmáiið grískuna, svo og ensku, er fjöldinn allur sem talar bæði þýsku og frönsku. Fagurt landslag Landslag er fjölbreytt, sléttur, dalir og há fjöll sem mörg hver eru skógi vaxinn upp í efstu hlíðar. Tveir stórir fjallgarðar eru á eyj- unni. Annar þeirra gengur eftir norðurhluta eyjarinnar en hinn Troödos fjallgarðurinn tekur yfir miðeyjuna. í homun er hæsti tindur Kýpur, Ólympus aö nafni 1951 m á hæð. Það sjóar í Troödos fjöllunum í jan- úar og febrúar og verður þá hið ákjósanlegatsa skíðafæri. Enda er á þeim slóðum að finna góða aðstöðu til skíðaiðkana. Sökum smæðar eyjarinnar er sama hvar fólk er statt það er aldrei lengra en eins til tveggja tíma ferðalag niður að sjó. Það er því sem best hægt að gera hvoru tveggja í senn yfir vetrar tímann; skreppa á skíði að morgni og sóla sig á ströndinni í eftirmiðdag- inn. Loftslag er mjög milt árið um kring og skín sólin að meðaltali í 340 daga á ári. Meðalhitinn yfir sumarmánuð- ina er um 30 gráður, en hitastigið í kaldasta mánuðinum febrúar fer niður í 14-16 gráður. . Ótalmargt að skoða Það þarf engum aö leiðast sem fer til Kýpur. Fáir staðir bjóða upp á jafnmarga og fjölbreytta möguleika fyrir ferðamenn og þessi sólskins- eyja. Þar er hægt að reika tímunum saman mn fom mannvirki og virða fyrir sér styttur og minnismerki frá hðnum tíma. Það er líka hægt að sóla sig á ströndinni og svamla í sjónum, þeir hörðustu skella sér í sjóinn allt árið um kring jafnvel þótt sjávarhitinn fari niður í 16 gráður í kaldasta mán: uðinum. Svo er hægt fara í bátsferð- ir, fara á sjóskíði og i veiðiferðir. Dýralífið, þó einkanlega fuglalífið, er fjölskrúðugt og víöa er hægt að vera einn með sjálfum sér við nátt- úruskoöun. Kýpur er eyja andstæðna þvi þeir sem era orðnir þreyttir á vestrænni menningu geta haldið til fjalla og leit- að uppi lítil sveitaþorp sem eru svo gott sem ósnortin af vestrænni menningu. Að vísu geta tjáskipti orð- ið vandamál á slíkum stöðum en á móti kemur að íbúamir eru mjög gestristnir og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að skilja gesti sína. Það sem er svo einstætt við Kýp- urbúa er að ferðalangurinn er oft leystur út með smágjöfum. Gjaman rétta þeir að honum ávöxt eöa köku- sneið til að narta í, eða þá þeir svala þorsta hans með vín- eðs bjórglasi. Svo er hann kvaddur með fyrirbæn- um um að honum gangi nú allt í haginn í framtíðinni. Næturlífið er fjörugt á stærstu ferðamannastöðunum og þar er sömuleiðis að fmna bestu hótehn. Um alla eyjuna er ab finna góða veitingastaði og það er eitt sem víst er að maturinn er ljúffengur. Sam- bland af grískum og tyrkneskum áhrifum era aðal matargerðarinnar. Sömuleiðis eru þau vín, sem eyja- skeggjar brugga sjálfir, ljúffeng. íslenskar ferðaskrifstofur munu bjóða upp á ferðir til Kýpur í haust og í vetur. Er ýmist flogið þangað í gegnum London eða Amsterdam. Það er því ekki úr vegi fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvert þeir eigi að fara í vetrarfríinu að skoða þennan ferðamöguleika. Fjömgt næturlif á stærstu ferða- mannastöðun- um. Þröng stræti sem gaman er að reika um. Á haustin þeysa veiðimenn út um allt land til að skjóta sér eitthvað í soðið. í haust eins og undanfarin haust selja bændur viða um land gæsa- og rjúpnaveiðileyfi. Ferðaþjónusta bænda: Boðið upp á íjúpna- og gæsaveiðar víða um land í haust líkt og undanfarin ár bjóða bændur, sem eru aðilar aö Ferðaþjónustu bænda, upp á gæsa- og ijúpnaveiðar. Alls eru það 15 bæir sem bjóða upp á þessa þjónustu og dreifast þeir hringinn í kringum landið. Þessi þjónusta hefur notið sívax- andi vinsælda og það eru margir veiðimenn sem eiga orðið sína uppáhaldsbæi sem þeir heimsækja haust eftir haust til að fá að skjóta sér eitthvað í soðið. Ferðaþjónustan gefur út viðmið- unarverð fyrir gæsaveiðileyfin og Ferðamál er það 800 til 1000 krónur fyrir leyf- ið. Það er þó ekki algilt verð því bændum er það í sjálfsvald sett hvort þeir nota viðmiðunarverðið eða ekki. Á öllum bæjunum er jafnframt seld gisting. Uppbúiö rúm kostar 1100 krónur og morgunverður 450 krónur. Á bæjunum Haugum, Hóh og Hrísum er boðið upp á gistingu í sumarhúsum og er leigan fyrir sól- arhringinn í sex manna húsi 3.600 krónur. Eftirtaldir bæir selja rjúpnaveiði- leyfi: Fljótstunga í Hvítársíðu, Stóra-Vatnsskarð í Vatnsskaröi, Syöri-Hagi á Árskógsströnd, Grýtubakki í Höfðahverfi og Haug- ar í Skriðdal. Bæirnir Staðarskáli í Hrútafiröi, Hunkubakkar á Síðu, Smáratún í Fljótshlíð og Brattholt í Biskups- tungum selja gæsaveiöileyfi. Á bæjunum- Efri-Brunná í Dala- sýslu, Geitaskarði í Langadal, Ytri-Vík á Árskógsströnd, Hrísum í Eyjafirði, Hóli í Kelduhverfi og Felli í Breiðdal eru seld bæði gæsa- og ijúpnaveiðileyfi. Veiðimenn geta annaðhvort bók- að veiðileyfi og gistingu í gegnuni Ferðaþjónustu bænda eða haft sambandviðbæinabeint. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.