Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989. Fréttir Deila Steingríms viö Seölabankann: Kjörnir fulltrúar ráði en ekki embættismenn - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra ítrekaði á fundi í gær þá skoðun sína að Seðlabanki Islands ætt að verða virkt sfjómtæki í hönd- um ríkisstjórnarinnar. Hann sagöi að kominn væri tími til að kjömir fulltrúar fólksins fengju að ráða í stað embættismanna. Steingrímur sagði að stjórn Seðla- bankans hefði ekki fylgt stefnu stjórnvalda. Þegar ríkisstjórnin hefði lagt á það áherslu á fundum með stjóm bankans að raunvextir í bankakerfinu yrðu lækkaðir í 6 til 7 prósent hefði bankinn framkvæmt það með þeim hætti að ráðleggja við- skiptabönkunum að taka upp kjör- vexti. Þetta hefði leitt til þess að þó að lægstu vextir í bankakerfinu væm nú um 7 prósent þá fengju engir lán á þessum kjömm. Jafnframt hefði Seðlabankinn ráðlagt bönkum að taka sérstakt 2 prósent álag vegna skuldbreytinga. Því þyrftu fyrirtæki í erfiðleikum að greiða um 9 prósent vexti í bankakerfmu. Steingrímur sagði aö ríkisstjómin stefndi að því að vextir yrðu svipaðir og þeir voru á árinu 1986. Þá vom meðaltalsútlánsvextir í bankakerf- inu um 5 prósent en inniánsvextir um 0,9 prósent. Það að útlánsvextir hefðu lækkað úr 10,3 prósentum í fyrra í um 8 prósent nú taldi Stein- grímur ekki nóg. Steingrímur vildi taka fram að gagnrýni hans á Seðlabankann væri ekki persónuieg. Deila hans og bankastjórnar byggðist á mismun- andi skoðunum. Hans skoðun, og fleiri í ríkisstjórninni, væri sú að bankinn ætti að framkvæma stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann sagði að rætt hefði verið um að færa bankann undir fj ármálaráðuneytið í þessum tilgartgi en engar tillögur þar um væru skýrt mótaðar. Hann benti á að með breytingum á lögum um Seðlabankann á síðasta þingi heföi verið sett inn ákvæði sem veitti bankanum völd til að setja hámarks- vexti. Það væri vilji ríkisstjómarinn- ar að þessu ákvæði yrði beitt. -gse Deilt um gjöld af Helguvíkurhöfn: Herinn vill ekki borga „Þetta er eina upphæöin sem við fáum af Heiguvíkurhöfn en við leggjum þama til landsvæðL Það er þvi ekki óeðlilegt aö viö fáum eitthvað í staöinn. Þetta er sams konar gjaldtaka og hefur tíðkast í Straurasvík,“ sagði Guðfinnur Sig- urvinsson, bæjarstióri í Keflavik, en deila hefur komið upp á raiMi bæjaryfirvaida í Keflavík og birgðadeildar bandaríska hersins. Hefúr herinn hreyft athugasemd- um vegna fyrirætlana Keflvíkinga um gjalttöku af Helguvíkurhöfn. Telur herinn sér ekki skylt að greiða vöragjald né önnur bafhar- gjöld af uppskipun í Helguvíkur- höfn en þar hefur eitt skip þegar skipað upp 27.000 tonnum af olíu. Sagði Guöfmnur að reikningar hefðu verið sendir vegna þess en vörugjald af þessari uppskipun er um 2,1 milijón króna. 77 krónur era teknar af hverfu tonni í vörugjald þannig aö hann áætlaöi að þessi gjaidtaka Keflvikinga gæti numið um 5 til 8 milijónum á ári. Einnig var sendur reikningur upp á 300.000 fyrir öðrum haöiargjöldum. Sagði Guðfinnur að engin athuga- semd hefði komið frá hemura vegna reikninganna þannig að menn eru að vona aö deilan sé leyst. Greinargerð hefur hins vegar verið send til varaarmáladeildar utanrikisráðuneytisins en Keflvík- ingar vitna í samning frá 21. apríl 1983. Að sögn Scotts Wilson, upplýs- ingafúiltrúa hersins, dregur herinn í efa réttmæti gjaldtökunnar og er upphæðin, sem hér um ræðir, 250.000 dollarar. Embættismenn firá Norfolk koma tfl Keflavíkur um helgina og munu þeir fara yfir máliö og er gert ráð fyrir niöur- stöðuínæstuviku. -SMJ Blýmengun í sandkössum: Bömum ekki hætta búin Niðurstöður rannsóknar Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur á blým- engun í sandi í sandkössum þriggja bamaheimila borgarinnar benda til að bömum sé ekki hætta búin af dvöl sinni á bamaheimilunum. Hins vegar leiða niðurstöðumar í ljós að um uppsöfnun á blýi í jarðvegi í Reykjavík geti veriö að ræða. Rannsóknin var framkvæmd vegna tilmæla Foreldrasamtakanna en þau höfðu kynnt sér niðurstöður svipaðrar rannsóknar í Kaupmanna- höfn. Sú rannsókn leiddi í ljós að mikið magn af blýi var í jarðvegi bamaheimila þar, allt að 470 millígrömm í hverju kilói jarðvegs. í rannsókninni hér vora sýni tekin úr sandkössum Valhallar við Suður- götu, Barónsborgar við Barónsstíg og Grænuborgar viö Eiríksgötu. Þessi barnaheimili vora valin þar sem þar var talin einna mest hætta á blýmengun vegna nálægðar við umferðargötur. Blýmagn í sandi á þessum barnaheimilum var langtum minna en niðurstöður rannsóknar- innar í Kaupmannahöfn leiddu í ljós. Blý hefur aðallega skaðleg áhrif á taugakerfið og blóðmyndandi vefi líkamans. Blý í meltingarvegi er hættulegast litlum bömum þar sem þau hafa ekki fullþroskað miðtauga- kerfi. Vegna vindasamrar veðráttu er talið hugsanleg aö vindur dreifi blýryki víða og því sé ekki verulegur munur á mengun jarðvegs nálægt umferðaræðum og fiær þeim. Er tal- in ástæða til að rannsaka blýmeng- unina nánar til að fá betri yfirsýn yfir hversu mikil hún er. Þess má geta að skipt er árlega um sand í sandkössum leikvallanna vegna mengunar af völdum katta. -hlh Stuömenn og söluskatturinn: Skattstjórinn sendi málið til Reykjavíkur „Jakob Frímann Magnússon og Stuðmenn héldu þessa hátíð og þar sem þeir eiga lögheimfli í Reykjavík hef ég sent skattstjóra Reykjavíkur gögn málsins,“ sagði Bogi' Sigur- bjömsson, skattstjóri í Norðurlands- umdæmi vestra. Bogi sagðist ekki hafa haft laga- heimfld tfl að kveða upp efnislegan úrskurð um hvort Stuðmönnum ber að greiða söluskatt af hátíðinni, sem haldin var í Húnaveri um versluanr- mannahelgina, eða ekki. Bogi sendi einnig gögn vegna sam- komu, sem Stuðmenn vora með í Varmahlíð, til skattstjóra Reykjavík- ur. Vitaö er að innheimtumenn ríkis- sjóðs víðar á landinu bíða þess að úrskuröur falli í þeim tveimur mál- um sem hér vora nefnd. Friðjón Guöröðarson, sýslumaöur í Rangárvallasýslu, hefur sagt í sam- tali við DV að hann bíði úrskurðarins þar sem Stuðmenn hafi verið með samkomu í sýslunni þar sem þeir greiddu ekki söluskatt. Friðjón sagði að hann væri ekki sáttur við það og að málinu yrði fylgt eftir. -sme Danski stórmeistarinn Bent Larsen er hér á gangi á Öldugötunni ásamt Þráni Guðmundssyni, fyrrverandi formanni Skáksambandsins, en Larsen er kominn hingað til lands í skákleiðangur. Mun hann dvelja hér við undir- búning að einvígi sínu við Margeir Pétursson og Jouni Yrjöla um sæti á millisvæðamóti. Á morgun ætlar Larsen að tefla fjöltefli á Akureyri en á þriðjudaginn verður hann í Kringlunni þar sem hann teflir við gesti og gangandi. DV-mynd GVA Umboðsmaöur Alþingis: Vill skýringar Ólafs Ragnars Umboösmaður Alþingis, Gaukur Jörundsson, hefur sent Olafi Ragnari Grímssyni fiármálaráðherra bréf þar sem hann óskar þess að ráðuneytið skýri viðhorf sín vegna lokunar fyr- irtækisins Steinar hf. Lögmaður Steina, Hróbjartur Jónatansson, kvartaði tfl umboðsmanns vegna lokunaraðgerðanna. í bréfi sínu til umboðsmanns sagði Hróbjartur meðal annars að um valdníðslu og mismunun hefði verið að ræða þegar fyrirtækinu var lokað. 20. júní átti aö fara fram uppboð vegna hins umdeilda söluskatts. Hró- bjartur ætiaði aö verjast uppboðinu í uppboðsrétti. 19. júní, eða daginn fyrir uppboðið, komu inheimtumenn og innsigluðu fyrirtækið. Neitaö var að taka við ávísunum eða banka- ábyrgð. Viku síðar var bankaábyrgð tekin gfld. í bréfi umboðsmanns Alþingis til fiármálaráðherra er óskað skýringa á þeim athugasemdum sem Hró- bjartur Jónatansson gerði við að- förina aö Steinum hf. -sme Fundu kjöt og vín um borð í m/s Val ÞóihaQur Aammdsson, DV, Sanðirkróki: Menn á tveim bflum voru að læðupokast við Sauðárkrókshöfú kvöld eitt í byrjun síðustu viku. Þeir koraust þó ekki upp með ólög- legt athæfi sitt þar sem þefvísar Krókslöggur uröu varar við grun- samlegan burð mannanna á vam- ingi úr flutningaskipi sem lá viö bryggjuna. I bflunum, sem stöðvaðir vom áöur en þeir koraust út af bryggj- unni, fundust á annað hundraö flöskur afáfengi og 65 kiló af land- búnaðarvörum, kjöti og mjólkur- vörum. Yfirheyrsiur leiddu í fiós aö gós- sið var í eigu tveggja skipverja á ms. Val sem lá við bryggjuna. Val- ur hafði verið tollskoöaöur viö komuna til Húsavfkur en ekkert fundist. Frá Sauöárkróki hélt skip- ið til Hafnarfiaröar þar sem fram fór umfangsmikil tolleit en ekkert fannst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.