Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Blaðsíða 4
4
íLAUGARBAGUR 16j SEPTEMBER 1986.
Fréttir
Versnandi hagur Sambandsins:
Helmingur eigin fjár tapast
og greiðslustaðan versnað
Á síöustu þremur árum hefur eigiö
fé Sambandsins rýrnaö um 1.900
milljónir eða rúmlega helming. Á
sama tíma hafa skuldir fyrirtækisins
vaxiö um 2.150 milljónir. Þá hefur
velta fyrirtækisins dregist saman um
2.660 milljónir á sama tima.
Þetta kemur fram þegar ársreikn-
ingar Sambandsins undanfarin ár
eru bornir saman. í árslok 1985 var/
svokallaö eiginfjárhlutfall Sam-
bandsins 32 prósent. Þetta hlutfall
gefur til kynna gjaldhæfni fyrirtæk-
isins eöa hversu mikið af fjármunum
þess megi tapast án þess að þaö bitni
á lánardrottnum þess. Áriö 1985 voru
Eimskipafélagið og Sambandið með
svipað eiginfiárhlutfall.
Um síðustu áramót var eiginfjár-
hlutfall -Sambandsins komið niður í
15 prósent. Eiginfjárhlutfall Eim-
skips var á sama tíma 37 prósent eða
örhtið betra en á árinu 1985.
Árið 1985 var eigið fé Sambandsins
helmingi meira en Eimskips. Um síö-
ustu áramót var eigiö fé Eimskips
um rúmlega 30 prósent meira en
Sambandsins.
Árið 1985 var svokailað veltufjár-
hlutfall Sambandsins 1,12. Veltufjár-
hlutfall gefur til kynna hæfni fyrir-
tækisins til að inna af hendi nauð-
synlegar greiðslur í nánustu framtíð.
Því hærra sem hlutfallið er þvi auð-
veldara á fyrirtækið með að standa
við skuldbindingar sínar. Ef þetta
hlutfall fer niður fyrir 1,00 má draga
þá ályktun að fyrirtækið muni þurfa
að grípa til sérstakra ráðstafana til
að standa við sínar skuldbingar. Um
síðustu áramót hafði veltufjárhlut-
fall Sambandsins hrapað niður í 0,83.
Þaö er því ljóst að það á í greiðsluerf-
iðleikum. -gse
Réttir Réttardagur
Skarðar. í Gönguskörðum Reynistaðar. í Staðarhr. sunnud. sunnud. 17. sapt. 17. sept. uppúr hád. síðdegis
Laufskálar. í Hjaltadal Hlíðarr. í Bólstaðarhlhr. laugard. sunnud. 30,sept. 24. sept. upp úr héd. upp úr hád.
Víöidalstungur. i Viðidal laugard. 30. sept. uppúr hád.
Fjárbændum fækkar:
Erfiðara að fá
menn í
Magnús Ólafssan, DV, A-Húnavatnssýslu:
Göngur hafa staðiö yfir í liðinni
viku í húnvetnsku afréttunum. Fjár-
bændum hefur fækkað á undanfóm-
um árum en afréttimar eru' eins víð-
lendar og áður. Því gerist erfiöara
meö hveiju ári að fa menn til allra
þeirra starfa sem þama þarf að sinna
og ef fjárbændum og fénaði. á að
fækka enn meir, eins og sumir vilja,
vaxa erfiðleikamir Viö að manna
þennan þátt búskaparins.
En flestum þykir gaman að fara í
göngur og margir burtfluttir sveita-
göngur
menn og kaupstaðabúar koma á
hverju hausti til þess að taka þátt í
göngum og réttum.
Sem dæmi um hvaða gangnaskil-
um menn þurfa að sinna þessa dag-
ana má nefna að 8 bændur í Sveins-
staðahreppi em með menn í undan-
reið en þær göngur taka 6 daga. Sjö
af þessum bændum þurfa einnig að
senda mann samtímis í fjögurra daga
göngur og nokkrir em með smærri
gangnaskil sömu daga. Réttarstörf
hefjast í Undirfellsrétt á hádegi fóstu-
daginn 16. sept.
Samdráttur Sambandsins
Erlendur
Velta
Velta Sambandsins
hefur dregist saman
úrl 8.927 millj. kr. í
16.267 millj. kr. á
þremurárum miðað
við verðlag ársins
1988.
Guðjón
31.12.1985 31.12.1988
DVJRJ
Jóhanni boðið á stórmót í janúar
Jóhann Hjartarson, sem nú teflir
á stórmótinu í Tilburg, verður
meðal þátttakenda á hinu árlega
Hoogovéns-stórmóti í Wijk aan Zee
f Holiandi en mótiö verður í byrjun
næsta árs, nánar tiltekið frá 12. til
28. janúar. Er greinilegt að Jóhann
er vinsæll meðal mótshaldara enda
frægur fyrir annaö en jafiitefii.
Jóhann teflir í A-flokki á mótinu
sem er óhemjusterkur enda í 14.
styrkleikaflokki. Þátttakendur era
- (elo-skákstig innan sviga): S. Ag-
destein frá Noregi (2605), V. Anand
frá Indlandi (2555), M. Dlugy frá
Bandaríkjunum (2530), Y. Dok-
hoian frá Sovétríkjunum (2570),
Jóhann (2555), V. Ivanchuk frá Sov-
étríkjunum (2660), V. Kortsnoj frá
Sviss (2655), R. Kuijf frá Hollandi
(2530), F. Nijboer frá Hollandi
(2475), J. Nunn frá Englandi (2540),
J. Piket frá Hollandi (2540), L. Port-
ish frá Ungvetjalandi (2600), N.
Short frá Englandi (2660) og J. Tim-
man frá Hollandi (2635).
-SMJ
Gangnamenn ýr Ás- og Sveinsstaðahreppum að leggja á Grimstunguheiði á þriðjudaginn. Þeir komu með féð
til rétta i gær. DV-mynd Magnús