Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989. 25 íþróttir íþróttir Svona endaði 1. deildin 14.00 - Flautað tU leiks í fjór- um leiRjum af finun i 1. deild. Einar Hjartarson eftirlitsdómari eykur taugastríðið með því aö láta færa sjónvarpsmyndavélar fjær hliöarlinu í Kaplakrika og leikmenn FH og Fylkis bíða í nokkrar minútur og berja sér tii hita í næðingnum. 14.07 - FlautaðtilleiksíKapla- krika og í sömu andrá skorar Pétur Ormslev fyrir Fram gegn Víkingi, 1-0. F'ramarar hóta að blanda sér í baráttuna. 14.09 - Guðmundur Valur Sig- urösson kemur FH-ingum yfir gegn Fylki. íslandsbikarinn er til staðar i Hafnarfiröi og virðist ekki þurfa flutning þaöan. 14.13 - KA-menn byija að teygja sig eftir bikamum þegar Öm Viðar Amarson skorar fyrir þá í Keflavík. 14.23 - ÖmValdimarssonjafn- ar fyrir Fylki í Kaplakrika. KA fær með því tak á íslandsbikam- um og tilvera Þórs og Keflavikur í 1. deild er veralega ógnað. 14.45 - Flautað til hálfleiks á fjórum stöðum, og í Hafnarfirði sjö mínútum sfðar. Samkvæmt hálfleikstölum er KA á toppnum en ÍBK og Fylkir í failsætum. Spennan er gifUrleg á hvoram tveggja vígstöðvum og greinilegt að hvert mark héöan i frá hefur úrshtaþýðingu. 15.08 - Þórsararkomaákveön- astir til síðari hálfleiks og taka forystu gegn ÍA með marki Sæv- ars Ámasonar. ÍBK og Fylkir eru þar með komin f erfiða stöðu og fallhætta Víkinga eykst nokkuð. 15.19 - Baldur Bragason skor- ar fýrir Val gegn KR og þar með eru vonir Vesturbæinga um Evr- ópusæti nánast að engu orðnar. 15.37 - Kristinn Tómasson kemur Fylki yfir gegn FH. Ljóst er að ísiandsbikarinn er að renna FH úr greipum og vonir Fylkis um áframhaldandi 1. deildar sæti vaxa til muna. 15.38 - Ellert B. Schram, for- maður KSÍ, ris úr sæti sínu í heið- ursstúkunni í Hafnarfirði og yfir- gefur völiinn. Hans bíður giæfra- leg ökuferð i iögregiufylgd til Keflavíkur meö íslandsbikarinn í farangursrýminu. 15.41 - Bojan Tanevski skorar gegn ÍA, 2-0, maric sem innsiglar örlög tveggja liöa. Það heldur Þórsurum í 1. deild en sendir Fylki i 2. deild. 15.42 - Akureyringarhafaekki undan að fagna - i Keflavík skor- ar Jón Kristjánsson maridð sem gulltryggir KA-mönnum íslands- meistaratitilinn í fyrsta skipti. Keflvíkingar sitja eftir með sárt ennið, 2. deildin er orðin aö bitr- um veruleika. 15.45 - Sigursteinn Gíslason skorar fyrir ÍA gegn Þór en þaö breytir engu úr því sem komið er. Um leið er flautað til leiksloka á fjórum stöðum og ijóst aö KA er meistari, FH hlýtur Evrópu- sæti og Fram brons, og Fylkir og Keflavík era fallin í 2. deild. 15.49 - Ólafur Sveinsson flaut- ar til leiksloka í Kaplakrika, og þar með f l. deild. Fylkismenn fagna tU að byrja með en þeim fallast fljótt hendur og bæði lið ganga hnípin af velli. Ótrúlegu Islandsmóti er lokiö, það eru Akureyríngar sem fagna manna mest. KA hefur hreppt titilinn og Þórsarar forðað sér firá falli. 16.17 - Ellert B. Schram er mættur með íslandsbikarinn til Keflavikur og þar tekur viö hon- um Eriingur Krisfjánsson, fyrir- liöi KA. Norðanmenn lyfta hon- um sigri hrósandi, og flýta sér sfðan til að ná flugi heim á lelð til frekari veisluhalda. -VS • Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA, stígur út úr flugvélinni á Akur- eyri með íslandsbikarinn. DV-mynd Tómas Lárus • Ormarr Örlygsson hvarf af velli í Keflavík 15 minútum fyrir leikslok til að ná flugi til Parísar! DV-mynd Ægir Már • Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, kyssir íslandsbikarinn eftirsótta. Guðjón handlék hann nokkrum sinnum sem leikmaður með ÍA. DV-mynd Ægir Már Kærkomið hjá KA-mönnum - íslandsmeistarar í fyrsta skipti eftir 0-2 sigur í Keflavík Ægir Már Karasan, DV, Suðumesjum: KA, Knattspyrnufélag Akureyrar, varð á laugardaginn Islandsmeistari í knattspyrnu og flutti með sér íslandsbikarinn í höfuðstað Norðurlands í fyrsta sinn. Til þess aö af þessu gæti orðið urðu KA-menn að sigra í Keflavík og treysta á að FH-ingar næðu ekki að leggja Fylki að velli í Hafnarfirði. Þetta gekk eftir, KA náði öllum þremur stigunum, sigraði 0-2, og fógnuður akureyrsku knattspyrnumannanna og fjölmargra stuðn- ingsmanna þeirra var mikill og innilegur þegar flautað var til leiksloka og ljóst hver lokaúrslitin yrðu. Viðureignin réð úrslitum á tvo vegu. Keflavík mátti láta sæti sitt eftir í kjöl- far tapsins og leikur þvi í 2. deild á næsta keppnistímabili eftir átta ára samfellda veru í þeirri fyrstu. Leikurinn einkenndist af mikilli bar- áttu þar sem um líf og dauða var nán- ast að tefla hjá báðum liðum, en auk þess markaðist viðureignin af miklum norðanvindi. KA skoraði snemma KA-menn léku á móti vindi í fyrri hálfleiknum en það kom ekki í veg fyrir að þeir næðu forystunni á 13. mínútu. Þá skoraði Öm Viðar Amarson mark eftir sendingu frá Bjarna Jónssyni en knötturinn haiði viðkomu í varnar- manni Keflvíkinga. Örn hitti knöttinn ekki mjög vel en hann var í góðri að- stöðu og fór boltinn í stöng og inn. Eftir þetta atvik hresstist lið heima- manna og sóttu þeir undan vindi. Færi vora hins vegar af skornum skammti. KA-menn voru hættulegir í skyndisókn- um á móti vindi og áttu dauðafæri und- ir lok hálfleiksins er Jón Grétar Jónsson stóð andspænis Þorsteini Bjamasyni en sá síðamefndi varði skotið mjög vel. Sláarskot Keflvíkinga í seinni hálfleik komu Keflvíkingar til leiks, staðráðnir í að halda velli í fyrstu deild. Þeir börðust mjög vel og spiluðu ágætlega saman en forsjónin var hins vegar ekki á þeirra bandi eins og svo oft áður í sumar. Þrátt fyrir ákafa sókn vildi knötturinn ekki inn í mark norðanmanna. Sluppu þeir sérlega vel er Freyr Sverrisson, þrumaði boltanum í þverslá KA-marks- ins. Skyndisókn og Jón skoraði Er nær dró lokum lögðu Keflvíkingar aRt í sölumar en þegar svo er vill oft brenna viö að liðið gleymi vörninni og fá síðan á sig mark. Þaö gerðist einmitt í Keflavík undir lok leiksins. Gauti Lax- dal átti þá sendingu frá vítateig inn á galopið svæði þar sem Jón Kristjánsson var eldfljótur að átta sig. Lék hann upp allan völlinn með Þorstein Bjamason einan gegn sér og gat því lagt á ráðin lengi hvemig hann ætti aö ljúka dæm- inu. Jón skaut fram hjá Þorsteini sem hálfvarði boltann en af honum fór sá hnöttótti í netiö. Markið kom á 87. mín- útu. Keflvíkingar játuðu sig sigraða er þetta henti, lögðust margir þeirra á grúfu í grasið enda blasti aðeins fallið við. Bestu menn Keflvíkinga vora þeir Valþór Sigþórsson og Ingvar Guð- mundsson. Þá átti Kjartan Einarsson góðan dag og Þorsteinn Bjarnason varði vel. í liði nýkrýndra íslandsmeistara var það liðsheiidin sem skóp sigurinn en það er einmitt hún sem hefur komið lið- inu í þá stöðu sem ljós varð í Keflavík í gær. Maður leiksins: Erlingur Kristjáns- son, fyrirliði KA. Dómari: Friðjón Eðvarðsson. Dæmdi þokkalega og fær tvær stjömur. • Akureyringar fjölmenntu á flugvöllinn, með Sigfús Jónsson bæjarstjóra j farar- broddi, til að taka á móti íslandsmeisturunum. DV-mynd Tómas Lárus • Antony Karl Gregory, markahæsti leikmaður KA, lyftir íslandsbikarnum og félagar hans fagna. DV-mynd Ægir Már • Aðdáendur KA, með Gunnar Kárason t broddi fylkingar, fagna sigrinum í Keflavík. DV-mynd Ægir Már Leikmenn KA fallast í faðma þegar þeim er Ijóst að titillinn er þeirra. DV-mynd Ægir Már Erlingur Kristjánsson fyrirliði og Guðjón Þórðarson þjálfari fengu væna blómvendi eins og aðrir KA-menn við komuna til Akureyrar. DV-mynd Tómas Lárus Það var tími til kominn“ „Þetta er æðisleg tilftnning aö vinna íslandsmótið,“ sagði Erlingur Kristj- ánsson, fyrirliði KA-manna, sem lék gnöarlega vel í Keflavík á laugardag. „Ég hef aldrei unnið svona titil áður og þetta er alveg ólýsanlegt. Þessi tími hefur verið frábær hjá KA og það var tími til kominn aö við ynnum titii.“ Erfitt utan vaiiar „Þaö var mjög erfltt að vera utan vallar en maður treysti á að strákarnir mýndu klára dæmið. Viö áttum þetta fyllilega skilið - við höftim ekki haft of mikla heppni með okkur í sumar," sagði Þorvaldur Örlygsson í samtali við DV en hann mátti fylgjast með fé- lögum sinum af áhorfendabekkjum. Hann tók út leikbann. Þorvaldur hefur verið einn burðar- ása í liði KA í sumar en hann mun nú búa sig undir landsleik gegn íyrkjum í vikunni. Þarvaldur fer síðan til Nott- ingham Forest í Englandi. Allt verió stórkostleg „Þetta er alveg frábært, ég hef unniö tvo titla með Val en aldrei upplifað aðra eins stemmningu,“ sagöi Jón Grétar Jónsson, fyrrum leikmaður með Val en núverandi framheiji hjá KA. „Þetta hefur verið mjög skemmtileg- ur og samstilltur hópur og þjálfarinn er frábær. Það hefur allt verið stór- kostlegt í kringum liðið. Ef ég á þess kost verð ég áfram hjá KA, maöur skiptir ekki úr besta liöinu,“ sagði Jón. Stóiuóum á Fylkismenn „Ég er varla búinn aö átta mig á þessu en fyrir leikinn kom ekkert ann- að en sigur tii greina. Við stóluöum á að Fylkismenn myndu sigra FH-inga þar sem þeir eru með gott lið. Sú varð raunin og ég er þess fúllviss að þeir eigi eftir að koma upp aftur,“ sagði Steingrímur Birgisson úr KA. „Árangurinn má fyrst og fremst þakka samheldni og einnig áhorfend- um og stuðningsmönnum sem haía verið frábærir. Dásamleg tilfinning „Þetta er dásamleg tilfinning að verða orðinn meistari á nýjan leik,“ sagði Gauti Laxdal við DV en hann varð íslandsmeistari meö Fram fýrir fáeinum árum. „Þessari tilflniúngu veröur einfald- lega ekki lýst. Síðustu þrjú árin hefur þetta allt verið á uppleið hjá liðinu. í fýrra höfiiuðum viö í flórða sæti, í sjötta sæti árið á undan en nú á toppn- um. Það var bara spuming hvenær að þessu kæmi hjá þessum samstillta hópi,“ sagði Gauti. Uppbygging að sklla sér „Tilfinningum mínum verður ekki lýst. Að fá bikarinn til Akureyrar eftir alla þessi bið er stórkostlegt. Upp- bygging okkar er aö skila sér núna,“ sagði Stefán Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar KA. „Við höfum verið mjög ánægöir með störf Guðjóns fajá félaginu. Viö mimum því vitanlega ræöa við hann sem allra fyrst. Hann hefur sýnt þaö og sannað að hann er mjög snjall þjálfari,“ sagði Stefán Gunnlaugsson. Stefán heftir verið 23 ár í herbúðum ar KA Þar af hefur Stefán verið í 6 ár formaöur deildarinnar. Ægir MKr Kárason, DV, Suðumasjum: Ormarrflaug tfl Parísar Nokkra athygli vakti er Ormarr Örlygsson, leikmaður KA, var tekhm af leikvelli er fimmtán mínútur vor u til leiksloka í Kefla- vík á laugardag. Ormaix hafði nefhilega spilaö mjög vel en ástæða þess aö hann vék af lei- kvelli var sú að hann þurfti að fljúga klukkan 16 til Parísar. Þurfti hann að sækja námskeið vegna vinnu sinnar og gat því ekki fagnað meistaratitlinum með félögum sínum. Hafði fór Ormars verið frestað ura einn sólarhring vegna hins þýðingarmikla leiks. Þess má geta að Þorvaldur, bróðír Orm- ars, lék ekki gegn Keflvíkingum á laugardag, þar sem hann tók út bann. Með á nótunum Áhorfendur í Keflavík í gær, sem fjölmargir voru á bandi KA- manna, fylgdust vel meö gangi mála. Fögnuöu þeir gífurlega er þau tíðindi bárust úr Hafnarfiröi að Fylkir hefði jafnað og síðan ætlaði allt um koll að keyra er sú fregn barst aö Árbæjarliðiö hefði tekið forystuna. Áhorfendur færðu tíðindln Er leikurinn var úti í Keflavík fögnuðu KA-menn vitanlega sigr- inum en þeim var þá ekki Hjóst að íslandsbikarinn væri þeirra. Áhorfendur, sem þustu inn á völlinn í kjölfar leiksins, bára þeim tiðindin um afrekið og stöð- una í stigatöfiunni. Er það ekki á hveijum degi sem slíkt gerist í íslenskri knattspymu en spenn- an var þrúgandi allan þann tíma sem leikimir stóðu yfir á laugar- dag, bæði í hópi leikmanna og áhorfenda. Fá KA-menn gervlgrasvðll? rTjri Tíðindamaöur DV I JO I fregnaði á laugardag I • j að félagið hygðist gera gervigrasvöll norðan heiða en þótt Akur- eyringar hafí ekki verið sam- keppnisfærir viö sunnanliðin hvað aðstöðu varðar þá hefur það ekki komiö niður á keppni þeirra í sjálfri knattspyrmmni. En engu að síður er ætlun ís- landsmeistaranna að setja upp gervigrasvöll svo að stunda megi íþróttina yfir vetrarmán- uðina á Akureyri. Ormarr varði titilinn Það voru tveir leikraenn í liði KA-manna í gær sem gengu til leiks sem íslandraeistarar, hvor í sinni íþróttinni Ormarr Örlygsson varð ís- landsmeistari með Fram í fyrra og blýtur nú þá nafnbót með sínu nýja félagi. Jón Kristjánsson varð hins veg- ar íslandsmeistari með Val í handknattieik á síðastliðnu vori. Þess má geta að hann mun nú snúa sér að þeirri íþrótt á nýjan leik á sama hátt og bróðir hans, Erlingur. Erlingur mun stjóma hði KA-manna í fyrstu deildinni í handknattleik í vetur. Verið ekki svona stressaðir Jámkarlinn Guðjón Þórðarson, þjálfari KA-manna, var í því að róa félaga sína á varamanna- bekknum á laugardag. „Veriði ekki svona stressaðir,“ sagði hann er tíöindin bárast á færi- bandi frá Hafnarfirði En um leið og kappinn með breiða bakið, eins og fýrrum Þær voru

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.