Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 42
42
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989.
Fólk í fréttum
Lúðvík Jósepsson
Lúövík Jósepsson, bankaráðs-
maður í Landsbanka íslands, hefur
verið í fréttum DV vegna ádeilu
hans á kaup Landsbankans á Sam-
vinnubankanum.
Lúðvík er fæddur í Neskaupstað
16. júní 1914 og ólst þar upp. Hann
varð gagnfræðingur á Akureyri 1933
og eftir það kennari við Gagnfræða-
skólann í Neskaupstað 1934 til 1943.
Hann vann að útgerð í Neskaupstað
á árunum 1944 til 1948 og varð for-
stjóri Bæjarútgerðar Neskaupstað-
ar 1948 til 1952.
Lúðvík var alþingismaður fyrir
Sameiningarflokk alþýðu - Sósíal-
istaflokkinn og síðar Alþýðubanda-
lagið frá 1942 til 1979. Jafnframt var
hann bæjarfulltrúi í Neskaupstað
frá 1938 til 1970 og af þeim tíma for-
seti bæjarstjómar í ellefu ár.
Lúðvík var formaður Alþýðu-
bandalagsins 1977 til 1980. Hann var
einnig formaður þingflokks Al-
þýðubandalagsins 1961 tfl 1971 og
aftur 1975 tfl 1979.
Lúðvík var sjávarútvegs- og við-
skiptaráðherra 1956 tfl 1958 og aftur
1971 tfl 1974. Hann var fulltrúi á
hafréttarráðstefnum og hefur setið
í fjölmörgum opinberum nefndum.
Lúðvík hefur setið í bankaráði
Landsbankans frá árinu 1980 og var
áður í bankaráði Útvegsbankans á
árunum 1957 tfl 1971.
Lúðvík er sonur Jóseps Benedikts
Gestssonar, sjómanns í Neskaup-
stað og á Eskiíirði. Jósep var fæddur
13. október 1894 og lést 22. mars 1969.
Hann var sonur Gests Guðmunds-
sonar, sjómanns á Hrútseyri við
Fáskrúðsíjörð, og Katrínar Þor-
steinsdóttur.
Móðir Lúðvíks var Þórstína Elísa
Þorsteinsdóttir, dóttir Þorsteins
Bjarnasonar, bónda á Kirkjubóli í
Norðfirði. Þórstína var fædd 28.
ágúst 1880 og lést 1. ágúst 1944.
Fyrri maður Þórstínu var Jón
Hávarðsson. Þau skfldu. Þau áttu
þrjú böm: Guðjón, sjómann í Nes-
kaupstað; Ólöfu, sem bjó í Færeyj-
um, og Jón Hávarðsson, sjómann í
Neskaupstað.
Síðari maður Þórstínu var Einar
Brynjólfsson, sjómaður í Neskaup-
stað. Lúðvík ólst upp með honum
og móður sinni. Böm Þórstínu og
Einars:
Rafn, skipstjóri í Neskaupstað,
seinast á Bjarti NK, fæddur 6. ágúst
1919. Hann er nú látinn. Kona hans
var Anna Kristinsdóttir.
Oddný Sumarrós, húsfreyja í Ár-
nesi í Ámeshreppi á Ströndum,
fædd 22. aprfl 1922. Maður hennar
er Benedikt Valgeirsson, bóndi í
Ámesi.
Kona Lúðvíks er Fjóla Steindóttir,
fædd 15. október 1916. Hún er dóttir
Steins Snorrasonar og Steinunnar
ísaksdóttur, búenda í Steinskoti í
Hjaltadal í Skagafirði.
Lúðvík og Fjóla eiga einn son. Það
er Steinar íþróttakennari og nú
sundhallarforstjóri í Kópavogi,
Lúðvík Jósepsson.
fæddur 2. júní 1936. Kona hans var
Guðrún Helgadóttir en þau era skfl-
in. Dóttir þeirra er Elín námsmaður.
Afmæli
Ármann Snævarr
Ármann Snævarr, fyrrv. háskóla-
rektor og hæstaréttardómari, Ara-
götu 8, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Ármann fæddist á Nesi í Norðfirði
(Neskaupstað) og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA1938,
embættisprófi í lögfræði við HÍ1944
og stundaði framhaldsnám í lög-
fræði við háskólana í Uppsölum
1945-46, í Kaupmannahöfn 1946-47
og í Osló 1947-48. Auk þess stundaði
hann framhaldsnám viö Harvard
Law School 1954-55.
Starfsferill og trúnaðarstörf
Ármann var prófessor í lögum við
HÍ1948-72, rektor HÍ frá 1960-69,
gistiprófessor við Uppsalaháskóla
1969-70, við Ohio Northem Univers-
ity 1971 og ’72 og við McGeorge laga-
skólann í Sacramento í Kalifomíu
1976. Hann var hæstaréttardómari
frá 1972-84. Þá var hann stunda-
kennari við lagadefld HÍ frá 1973 og
viö guðfræðidefld 1967-79. Hann
hefur verið prófdómari við lagadeild
HÍ.
Armann var formaður Náttúra-
vemdamefndar Reykjavíkur
1957- 62, sat í stjóm Norræna húss-
ins 1965-76 og formaður þar 1965-68,
í stjóm norrænu lögfræðingaþing-
anna, íslandsdefldar frá 1951 og for-
maður þar síðan 1972, formaður
stjómar Lögfræðingafélags íslands
1958- 65 og Bandalags háskóla-
manna 1958-64, forseti Þjóðvinafé-
lagsins 1962-66, í stjóm Vísindasjóðs
1957-74, fulltrúi HÍ í háskóla- og vís-
indanefnd Evrópuráðsins 1961-69, í
fyrstu stjóm Samtaka háskólarekt-
ora frá Evrópulöndum í Göttingen
1964, í stjóm Handritastofnunar ís-
lands 1962-66, fulltrúi Sáttmála-
sjóðs, í stjórn Ámastofnunar í
Kaupmannahöfn 1969-73, formaður
stjómar Dómarafélags íslands
1977-84, formaður Félags Samein-
uðu þjóðanna á íslandi 1960-69, for-
maður hegningalaganefndar
1970-85 og sifjalaganefndar frá 1957.
Ármann hefur átt sæti í dómnefnd-
um varðandi prófessorsembætti, þ.
á m. við Árósarháskóla og Oslóar-
háskóla. Þá hefur hann verið and-
mælandi við doktorsvöm við laga-
defld HÍ1968,1971 og við Cambridge-
háskóla 1973. Hann hefur flutt fyrir-
lestra viö háskóla á öllum Norður-
löndunum og í Kanada, Þýskalandi
og í Rússlandi. Þá hefur hann samið
fjölmörg frumvörp tfl laga, einn eða
ásamtöðrum.
Ritstörf og viðurkenningar
Ármann hefur samið fjölda rita og
ritgerða um lögfræðfleg efni sem
sum hver hafa margsinnis verið
gefin út. Má t.d. nefna Almenna lög-
fræði, Þætti úr refsirétti, Fyrirlestra
í sifjarétti, Bamarétt og Fyrirlestra
í erfðarétti. Þá hefur hann setið 1
útgáfustjórnum, verið ritstjóri og
gefið út fjölda laga- og dómasafna.
Hann sat í útgáfustjóm Kulturhist-
orisk Leksikon 1961-80.
Ármann var sæmdur doktorsnafn-
bót í lögfræði við Uppsalaháskóla
1970, við Ohio Northen University
1973, Helsingforsháskóla 1980 og
Oslóar- og Kaupmannahafnarhá-
skóla 1986.
Hann hefur verið félagi í Vísindafé-
lagi íslendinga frá 1955 og var for-
seti þess 1962-65. Þá varð hann er-
lendur félagi í Finnsku vísindaaka-
demíunni 1971, Academy of Human
Rights frá 1964 og alþjóðasamtökum
háskólarektora 1964.
Ármann er heiðursfélagi í finnska
lögfræðingafélaginu, Juridiska För-
eningen í Finnlandi, í Islándska sáll-
skapet í Uppsölum, í Lögfræðingafé-
lagi íslands, Dómarafélagi íslands,
Orator, félagi laganema og í finnska
sakfræðingafélaginu.
Ármann var sæmdur stórriddara-
krossi fálkaorðunnar 1982 og hefur
veriö sæmdur flölda annarra orða
og heiðursmerkja, íslenskra og er-
lendra.
Fjölskylduhagir
Amiann kvæntist 11.11.1950 Val-
borgu Sigurðardóttur, uppeldis-
fræðingi og skólastjóra Fósturskóla
íslands. Hún er fædd 1.2.1922, dóttir
Sigurðar Þórólfssonar, skólastjóra
Lýðháskólans á Hvítárbakka í Borg-
aríirði, og seinni konu hans, Ásdísar
Margrétar Þorgrímsdóttur.
Böm Ármanns og Valborgar era
Sigríður Ásdís, f. 23.6.1952, M.A. í
alþjóðasamskiptum, sendiráðu-
nautur í Bonn, gift Kjartani Gunn-
arssyni, lögfræðingi og fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins;
Stefán Valdemar, f. 25.10.1953, ljóð-
skáld og magister í heimspeki og
hugmyndafræði; Sigurður Ármann,
f. 6.4.1955, M.Sc. í hagfræði og
starfsmaður Þjóðhagsstofnunnar í
Reykjavík, kvæntur Beru Nordal,
listfræðingi og forstöðumanni Lista-
safns íslands; Valborg Þóra, f. 10.8.
1960, fóstra og laganemi, og Ami
Þorvaldur, f. 4.3.1962, fréttamaður
hjá ríkissjónvarpinu.
Systkini
Systkini Ármanns: Ámi, verkfræð-
ingur og ráðuneytisstjóri í Reykja-
vík, sem nú er látinn, var kvæntur
Laufeyju Bjamadóttur og eignuðust
þau fjögur böm; Laufey, húsmóðir
í Reykjavík, gift Stefáni Péturssyni,
fyrrv. bifreiöastjóra, og eiga þau
fjögur böm; Stefán, fyrrv. prófastur
á Dalvík, nú búsettur á Selfjamar-
nesi, kvæntur Jónu Gunnlaugsdótt-
ur húsmóður og eiga þau þrjú böm,
og Guðrún, húsmóðir í Garðabæ,
gift Jóni Jónssyni jarðfræðingi og
eiga þau fjögur böm.
Ármann Snævarr.
Foreldrar
Foreldrar Ármanns vora Valdemar
Valvesson Snævarr, skólastjóri á
Húsavík og síðar í Neskaupstað, f.
22.8.1883, d. 18.7.1961, og kona hans,
Stefania Erlendsdóttir húsmóðir, f.
6.11.1883, d. 11.12.1970.
Föðurforeldrar Ármanns voru Val-
ves Finnbogason, b. og hákarla-
formaður á Þórisstöðum á Sval-
barðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu,
og kona hans, Rósa Guðrún Sigurð-
ardóttirhúsfreyja.
Móðurforeldrar Armanns vora Er-
lendur Árnason, b. og útgerðarmað-
ur í Hellisfirði, síðar á Ormsstöðum
og víðar á Norðfirði.
Ármann og Valborg taka á móti
gestum í Átthagasal Hótel Sögu í dag
klukkan 17-19.
Bjöm Kristmundsson
Bjöm Kristmundsson, fyrrver-
andi vörabifreiðarstjóri og síðast
gjaldkeri á Reykjalundi, er áttræður
ídag.
Bjöm Gísli er fæddur á Kolbeinsá
í Bæjarhreppi í Hrútafirði og ólst
upp þar og síðar á Borðeyri. Hann
sat í Samvinnuskólanum á Bifröst
veturinn 1928 til 1929 og hóf eftir það
útgerð vörabifreiðar í Strandasýslu,
þeirrar fyrstu þar um slóðir.
Árin 1947 tfl 1961 starfaði Bjöm í
Prentsmiöju Þjóðvfljans. Eftir það
gerðist hann gjaldkeri á Reykja-
lundi og gegndi því starfi tfl ársins
1979 þegar hann varð sjötugur.
Bjöm var í framboði fyrir Komm-
únistaflokkinn tfl Alþingis 1934 og
fyrir Sameiningarflokk alþýðu -
Sósíalistaflokkinn árið 1942.
Bjöm er sonur hjónanna Sigríðar
Ólafsdóttur og Kristmundar Jóns-
sonar, bónda að Litlu-Hvalsá í Bæj-
arhreppi, síðar kaupfélagsstjóra á
Borðeyri og síðast fulltrúa í dóms-
málaráðuneytinu.
Sigríöur var fædd 4. apríl 1885 aö
Reykjum í Miðfirði og lést 26. nóv-
ember 1935. Hún var dóttir Ólafs
Bjömssonar, bónda á Kolbeinsá í
Hrútafirði, og konu hans, Elísabetar
Stefánsdóttur, bónda á Þóreyjar-
núpi, Jónssonar, prófasts í Stein-
nesi, Péturssonar.
Ólafur Bjömsson, faðir Sigríðar,
var sonur Bjöms Sigurðssonar,
bónda í Belgsholti í Melasveit, og
konu hans, Ingibjargar Þorvalds-
dóttur, prests og skálds í Holti undir
Eyjafjöllum. Systir Ingibjargar var
Þuríður Þorvaldsdóttir, móðir séra
Þorvalds Jakobssonar, fóður Finn-
boga Rúts, föður Vigdísar Finn-
bogadótturforseta.
Kristmundur, faðir Bjöms, var
sonur Jóns Guðmundssonar, bónda
og söðlasmiðs á Litlu-Hvalsá, Andr-
éssonar, bónda í Guðlaugsvík í
Hrútafirði, og konu hans, Sigur-
rósar Kristjánsdóttur, dóttur Kristj-
áns Ögmundssonar, bónda á Fjarð-
arhomi í Hrútafirði.
Bjöm átti fimm systkini en þijú
þeirra era látin. Þau era:
Ólafur, sýsluskrifari á Selfossi,
stúdent frá MA1934, fæddur 1. júní
1912, dáinn 15. febrúar 1968. Kona
hans var Guðrún Guðlaugsdóttir frá
Selfossi. Hún er einnig látin.
Marta Guðrún, húsmóðir í
Reykjavík, fædd 3. desember 1917,
dáin 9. júní 1983. Maður hennar var
Guðmundur Vigfússon, bæjarfull-
trúi í Reykjavík. Hann er einnig lát-
Björn Kristmundsson.
inn.
Stefán Baldur, húsasmíðameistari
í Reykjavík, fæddur 25. maí 1920.
Kona hans er Unnur Magnúsdóttir
fráFlateyri.
Tvíburasystir Stefáns var Sigrún
en hún dó fárra mánaða gömul.
Þorvaldur, arkitekt í Reykjavík,
fæddur 8. september 1922. Kona
hans er Sólveig Gísladóttir frá Skóg-
argerðiíFellum.
Jón Skúli, bifreiðarstjóri í Reykja-
vík, fæddur 6. júlí 1926. Hann er nú
látinn. Kona hans var Bima Bjöms-
dóttir.
Bjöm tekur á móti gestum í Goð-
heimum, Sigtúni 3, í dag milli kl. 17
og 19.
Agnar K. Hreinsson,
Leifsgötu 14, Reykjavík.
Ólafur Ásmiuidssou,
Langagerði 78, Reykjavík.
Margrét S, Blöndal,
Kambsvegi ÍA, Reykjavík.
Guörún Árnadóttir,
Sæviöarsundi 7, Reykjavík.
Guörún Sigfúsdóttir
flrá Húsavík,
Efstalandi 24, Reykjavík.
Hún verður að heiman í dag.
Brynjólfur Sandholt,
Laugarásvegi 34, Reykjavik.
Gunnar Sæmundsson,
Broddadalsá 1, Fellshreppi.
Guðjón S. Öfjörð,
Fossheiði 48, Selfossi.
Jórunn Karkdóttir Thors,
Selbraut 20, Seltjamamesi.
Friðrik Jónsson,
Brekkutúni 22, KópavogL
Ólafia Hlifarsdóttir,
Boöagranda 7, Reykjavík,
Guðrún óiafsdóttir,
Brekkugötu 25, Akureyri.
Þórður G, Siguijónsson,
Kleppsvegi 46, Reykjavík.