Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989. LífsstOl Reynsla notenda af bifreiðum: 24,5% eiga tvo bíla en 69,3% einn í könnun, sem Neytendablaðið gerði á reynslu notenda af bifreiðum og náði til 2.850 manna í Reykjavík, á Suðumesjum og Suðurlandi, kom í ljós að 87,2% aðspurðra áttu bíl en 12,8% áttu engan bíl. 24,5% áttu tvo bíla, 5,3% áttu 3 bíla og 0,7% áttu fjóra bíla. Á 59,6% heimilanna voru tveir með bílpróf en á 16,3% heimila var aðeins einn með próf og á 17,2% heimila voru þrír með bílpróf. Meirihluti bdanna var 4 ára og yngri eða um 55,6%. Flestir bílar komu fram af árgerð 1987 eða 446 bílar, 17,9% af heildinni. 55,3% bíl- anna voru keyptir notaðir en 44,7% þeirra keyptir nýir. Þriðjungur farinn að ryðga Þriðjungur bílanna í könnuninni er farinn að ryðga. Ryðmyndun eykst ört við 3-5 ára aidur og nær hámarki Neytendur upp úr 10 ára aldri en þá er ryð áber- andi í meira en 80% bifreiðanna. Samkvæmt niðurstöðunum ryðga bílar af gerðunum Fiat, Daihatsu, Lada og Skoda einna mest en minnst var sagt bera á ryði í AMC Jeep, Saab, Mercedes-Benz, Range Rover, BMW og Volvo. Toyotur, Lödur og Mözdur algengastar Samkvæmt könnun þessari er Toy- ota algengasti bíllinn á íslandi en 291 bíll af þeirri tegund kom fram í könn- uninni. í öðru sæti var Lada með 229 bíla en Mazda í þriðja sæti með 209 bíla. Hæsti meðalaldur mældist á Land Rover og Rang Rover eða tæp 13 ár og AMC Jeep kom næstur með 9 ára meðalaldur. Lægstan meðalaldur hafði Skoda, tæp 3 ár, Mitsubishi mældist með 3,2 Alagning kaupmanna á mjólk er nú 13,8% en verður trúlega lækkuð eftir helgina um 1%. Kaupmenn segja að álagningin þyrfti að vera 19,8% Álagning á mjólk: Álagning á mjólkurvörur þyrfti að vera 19,8% í stað 13,8% eins og nú er til þess að standa undir beinum og sameiginlegum kostnaði og skila 1% framlegð til ávöxtunar á eigin fé. Þetta kemur fram í úttekt sem Jón Sævar Jónsson rekstrarverkfræð- ingur vann fyrir Kaupmannasam- tökin 1988. „Þessi skýrsla er nokkurs konar meðaltal. Það er hægt að gera hlutina öðruvísi," sagði Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, í samtali við DV. Bónus selur eins og fleiri verslanir mjólk með um 8% álagningu. „Það hafa ýmsar forsendur breyst síðan skýrslan var gerð,“ sagði Jóhannes. „Til dæmis eru plastpokar nú seldir en umbúðakostnaður vegur þungt þegar mjólk er annars vegar.“ Leyfð álagning á mjólk er nú 13,8% og var leyfð 1% hækkun á henni 1. septemb- er. Flest bendir til þess að sú ákvörð- un Verðlagsráðs aö leyfa þessa hækkun verði dregin til baka til þess að auðvelda lækkun á mjólk og álagningin verði þá 12,8% eins og var áður. í skýrslu Jóns Sævars er ítarlega farið í forsendur þess hver álagning á landbúnaðarvörum þurfi að vera og eru flestar tölur, sem settar eru fram í skýrslunni um nauðsynlega álagningu, talsvert miklu hærri en raunveruleg álagning er. Þannig segir um kjötvöru í skýrsl- unni: „Meðalálagning á Kjötvörum er samkvæmt könnuninni 20,7% en þyrfti að vera 37,8%.“ Fram kemur að meðalálagning á landbúnaðarvör- um yfirleitt er 17,2% en í skýrslunni er komist að þeirri niðurstöðu að álagning á landbúnaðarvörum þyrfti að meðaltali að vera 31,3%. Þær skila versluninni 34% af álagningarteKj- um hennar og eru 40,7% af veltu. -Pá Samkvæmt niðurstöðum könnunar Neytendabiaðsins voru Fiat bifreiðar mest ryðgaðar. ára meðalaldur, Subaru með 3,4 ára og Lada með 3,5 ára meðalaldur. Mjög fáir bíleigendur virðast kjósa að leita til umboðanna þegar gera þarf við bifreiðina eða aðeins 26,5% að meðaltali. Flestir Citroen eigend- ur eða 85,7% sögðust vera ánægðir með þá þjónustu sem umboðið veitti. Eigendur Range Rover, Chrysler og Chevrolet voru einna óánægðastir með þjónustu umboðsins. Þannig voru 32,7% Chevrolet eigenda óán- ægðir og var það hæsta hlutfall sem mældist. Meirihlutinn ók á nagladekkjum Það kom einnig fram í könnun þessari að 59,4% aðspurðra óku á nagladekkjum allan veturinn þrátt fyrir áróður embættis gatnamála- stjóra um hið gagnstæöa. 23,3% not- uðu ónegld snjódekk, 13% notuðu heilsársdekk og 4,3% bíleigenda óku á sumardekkjum allan síðastliðinn vetur. Þátttakendur voru einnig spurðir um hvaða tegund af bensíni þeir not- uðu og kom í ljós að 53,2% þeirra notuðu 98 oktana kraftbensín en 41,2% notuðu blýlaust bensín og 5,6% notuðu báðar tegundimar jöfnum höndum. -Pá Sólargeislinn á 11,50 krónur Nýlega birtust niöurstöður verð- könnimar Verðlagsstofnunar um verðlag á sólbaðsstofum. Þar kom fram að miðað við 30 mínútna tíma var Sólargeislinn á Hverfisgötu einna dýrastur. Jóna Marvinsdóttir, eigandi Sólar- geislans, hafði samband við DV og vildi benda á að ekki væri rétt að miða við 30 mínútur þvi þeir tímar væm lítið notaðir en 20 mínútna tímar væm hins vegar það sem flest- ir tækju. Við athugun kom í ljós að sé verð á 10 tíma korti, hver tími 20 mín., reiknað yfir í verð á mínútu þá verða niðurstöður aörar. Þannig kostar mínútan í Sólargeislanum 11,50 krónur. Lægsta verð, sem fékkst miðað við þessar forsendur, var 10 krónur á mínútu hjá Kolbrúnu á Grettisgötu. Hæsta verð samkvaémt þessu reyndist 15,50 krónur í Betri stofunniviðHólmasel. -Pá Ný sveppabók Komin er út hjá Almenna bókafé- laginu bók sem heitir Villtir mat- sveppir á íslandi og er eftir Ásu Margréti Ásgrímsdóttur og Guðrúnu Magnúsdóttur. Bókin, sem inniheld- ur fjölda htmynda, greinir frá helstu tegundum algengra matsveppa sem finnast á íslandi og skýrir frá hvar þeir vaxa, matreiðslu og meðhöndl- un. Hægt er að tína sveppi allt fram til septemberloka. Sveppategundir hér á landi skipta hundruðum og margir óætir sveppir eru algengir. Áhugi á sveppatínslu og nytjan sveppa hefur farið mjög vaxandi hér á landi und- anfarin ár og kemur því þessi bók í góðar þarfir. Hver sem hugar að sveppum finnur fljótlega marga sveppi sem ekki er getið í bókinni en þá er sennilega um að ræða sveppi sem eru óætir, e.t.v. eitraðir, bragð- vondir eða einskis virði til átu vegna smæðar. Þeir sem vilja nýta aðra sveppi en þá sem getið er í bókinni er eindreg- ið ráðlagt að afla sér meiri þekkingar í greiningu og skal einkum bent á Sveppakverið eftir Helga Hallgríms- son eða erlendar sveppabækur sem fást í bókabúðum. Villtir matsveppir á íslandi fæst í flestum bókabúðum og kostar 2.500 krónur. -Pá Kúalubbi er mjög algengur og þyklr ágætur matsveppur meðan hann er ungur og óskemmdur. Hann er 4-18 cm breiður, hvolflaga, flatur og holdug- ur. Liturinn er frá þvi að vera Ijósgrábrúnn niður I dökkbrúnt. Holdið er hvitt og þétt á ungum sveppum en svampkennt á þelm eldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.