Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989. Akureyri: Glatt á hjalla Að sögn lögreglu á Akureyri var mikill fognuður yflr íslandsmeist- aratign KA-manna á laugardaginn. Voru skemmtistaðir yfirfullir og mikill gleðskapur í KA-heimilinu fram eftir nóttu. Vegna leiðindaveð- urs var ekki mikið af fólki á götum úti er leið á nóttina. Þeir sem skemmtu sér í heimahúsum voru svo ánægöir og glaðir að lögregla þurfti nánast engin afskipti að hafa af fólki. -hlh Sex á slysadeild Mjög harður árekstur varð milli - tveggja bíla á mótum Hringbrautar og Njarðargötu í gærmorgun. Voru sex fluttir á slysadeild en enginn mun vera alvarlega slasaður. BOarn- ir eru töluvert skemmdir. Ekki er vitað nákvæmlega um til- drög árekstursins en víst þykir að annar bílanna hefur verið á miklum hraða og annar hvor þeirra farið yfir á rauðu ljósi. -hlh Þrír 18 ára " drengir teknir á 152 km hraða Lögreglan tók þrjá drengi á Suður- landsveginum, austan Selfoss, á laugardagskvöld þar sem þeir óku hver sínum bílnum á 152 km hraða. Voru piltarnir, allir um 18 ára gaml- ir, sviptir ökuskírteini á staðnum og eiga ekki von á að sjá það aftur í bráð. Er einn þeirra grunaður um ölvun við akstur. Einhver piltanna mun hafa keyrt bíl félaga síns en tveir verið á eigin bílum. Aö sögn Selfosslögreglunnar er þessi uppá- koma meö því grófara sem gerst hef- ur lengi hvað hraðakstur varðar og flokkast undir hreina glæpa- mennsku. Fyrir utan þessa þrjá pilta stöðvaði lögregla nokkra ökumenn á 120 km hraða um helgina. Hraðakstur mun annars eitthvað hafa minnkað á þessumslóðumundanfarið. -hlh Jóhann með jafntefli Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Ivanchuk frá Sovétríkjunum í 3. umferð skákmótsins í Tilburg og er meö einn og hálfan vinning. í fyrstu umferð tapaði hann fyrir Kortsnoj en vann síðan Piket frá Hollandi. Kasparov og Kortsnoj eru efstir með "^2,5 vinninga. í næstu umferð mætir Jóhann Lubojevic frá Júgóslavíu. -SMJ LOKI Fær Þjóðviljinn þá fullvirðisrétt? Þýsk-íslenska áfrýjar úrskurði í lögtaksmálinu: Embættið blett- ur á íslensku réttarfari - segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður „Það er rétt að ég krafðist þess aö dómarinn viki sæti á þeim for- sendum að hann væri einkadómari Gjaldheimtunnar í Reykjavík. Hann dæmir eingöngu í málúm Gjaldheimtunnar gegn meintum gjaldendum. Rekstrarkostnaður embættisins er greiddur af inn- heimtufé Gjaldheimtunnar og hann var þar lengi til húsa. Hann er nú fluttur í næsta hús. Hann er í litlum tengslum við borgarfógeta- embættiö í Reykjavík. Ég krafðist þess aö hann viki sæti. Því var synjað. Það var kært til Hæstarétt- ar. Hæstiréttur staðfestisynjunina. Þetta embætti hefur gert fiölda lög- taka í Reykjavík í mörg ár. Mér er ekki kunnugt um að þess hafi veriö krafist áöur að dómarinn viki sæti. Það hefði yerið mikið mál að sam- þykkja að hann viki. Staða þessa dómara er þannig að hann upp- fyllir engan veginn alþjóðlegar kröfur um hlutleysi dómara. Það er deginum ljósara. Þetta fyrir- komulag er blettur á íslensku rétt- arfari," sagði Jón Steinar Gunn- laugsson, lögmaður Þýsk-íslenska. Jón Steinar Gunnlaugsson, lög- maður Þýsk-íslenska, hefur ákveð- ið að áfrýja úrskurði fógetaréttar um lögtak vegna skattskulda fyrir- tækisins frá árinu 1984. Páll Þor- steinsson borgarfógeti kvað upp úrskurðinn á fimmtudag. í dómkröfúnum var dráttarvaxta krafist frá 1. febrúar 1988. Krafan er því ekki á annað hundrað millj- ónir eins og kom fram í DV á laug- ardag. Þar sem dráttarvaxta er ekki krafist frá úrskurðardegi lækkar krafan um tugi milljóna. Krafan mun því vera innan viö 100 milljónir króna. Þar sem ákveðið hefur veriö að áfrýja úrskuröinum er raálið kom- ið til Hæstaréttar. Ekki er víst að dómur hans liggi fyrir í vetur. -sme Landsmenn létu af hendi rakna 10,1 milljón króna í beinum fjárframlögum til SEM-samtakanna á skemmtun sem samtökin gengust fyrir i samvinnu vió Stöð 2 i gærkvöldi. Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra, eins og hópurinn heitir, gekkst fyrir hjólastólaralli frá Reykjavik til Keflavikur til þess aö vekja athygli á málstaö samtakanna. Auk beinna fjárframlaga barst fjöldi framlaga frá fyrirtækjum sem vilja gefa húsbúnað, vinnu og þjónustu til húsbyggingar félagsins. DV-mynd GVA Veöriö á morgun: Vaxandi norðaustan- átt Á morgun verður vaxandi norðaustanátt um allt land, víða 6-8 vindstig og rigning á Norður- og Austurlandi. Hitinn veröur 2-7 stig. Breiðdalsvik: Tjón í ofviðri Sigursteinn Melsted, DV, Breiddalsvík: Stórviðri gekk yfir Breiðdalsvík og nágrenni aðfaranótt laugardags og á laugardag, rok og rigning. Pappi og einangrun fóru af mestum hluta þaks frystihússins, tvö gróður- hús við hús eyðilögðust, girðingar við lóðir fuku niður, tvær fánasteng- ur lögðust á hliðina, fiögurra til fimm metra tré fór um koll og allt lauslegt fauk út í buskann. Bátaeigendur höfðu nóg að gera við að hafa hemil á bátum sínum. Togar- inn Andri, sem var nýkominn úr veiðiferð, lá við ytri bryggjuna þar sem landað er úr honum. Um nóttina fóru landfestar að shtna - margir sverir kaðlar. Ræsa þurfti hóp manna út til að færa skipið aö ann- arri bryggju sem er í skjóli af hinni. Einhverjar skemmdir urðu á bryggj- unni. Lítið var sofið því að fólk þurfti að koma eigum sínum í skjól. Á sunnudag var veðrið gengiö niður. Þjóðviljmn: Ólafi H. Torfa- syni boðin rit- stjórastaða „Jú, það er rétt að ég hef verið beð- inn um að taka að mér ritstjórastarf á Þjóðviljanum. Ég er nú að ráða ráðum mínum,“ sagði Ólafur H. Torfason, blaðafulltrúi hjá Upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins, við DV í morgun. Samkvæmt heimildum DV hefur útgáfustjórn Þjóðviljans leitað til nokkurra aðila um að taka að sér ritstjórastarf á Þjóðviljanum á móti Árna Bergmann sem hefur gegnt því starfi einn frá því í vor, er ráðningar- timi Silju Aðalsteinsdóttur og Marð- ar Árnasonar rann út. Útgáfusfiórnin kom saman til fund- ar í gær til að ræða ráðningu nýs ritstjóra. í dag mun svo fram- kvæmdanefnd Alþýðubandalagsins funda og þar verður væntanlega tek- in endanleg ákvörðun um það hver sest í ritstjórastól á Þjóðviljanum. Þá eru fleiri breytingar í vændum á Þjóðviljanum því að Lúðvík Geirs- son fréttastjóri hefur sagt starfi sínu lausu. -JSS Sprengjumálin: Ekkert nýtt Mannanna, sem sprengdu dínamít- ið á Öldugötu og Bergþórugötu, er enn leitað. Eins hefur ekki tekist að hafa uppi á þeim sem tilkynntu um sprengju í bandaríska sendiráðinu. -sme ÞRDSTUR 68-50-60 VANIR MENN BÍLASPRAUTUN BÍLARÉTTINGAR Q BILASPRAUTUN Almálun og blettanir. A RÉTTINGAR og hvera konar boddivlðgerðir. Varmi Sími 44250

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.