Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989. ...................................................................ií‘ uv Útlönd Barátta yfirvalda í Kólumbíu gegn eiturlyfiabarónunum: A bratlann að sækia Kólumbiskur hermaður í viðbragðsstöðu við skyndiárás hersins á heimili grunaðs leigumorðingja eiturlytja- smyglara í borginni Medellin fyrr í mánuðinum. Lögregla og her i Kólumbíu hafa hert mjög aðgerðir sínar i kjöl- far striðsyfirlýsingar eiturlyfjabaróna á hendur stjórnvöldum í síðasta mánuði. Simamynd Reuter Bogota, höfuðborg Kólumbíu, var eitt sinn köllutf'Aþena Rómönsku Ameríku. Heimaborg nóbelsverö- launaskáldsins Gabríel García Már- quez var þekkt fyrir menntasetur sín og menningarsöfn. En nú ríkir ótti meðal íbúa borgar- innar sem og landsins alls. Vegna stríðsyfirlýsingar eiturlyfiabaróna á hendur stjómvöldum er Kólumbía nú stríðshijáð land, Líbanon Róm- önsku Ameríku Stríðsyfirlýsing Fyrr á árinu heimilaði VirgUio Barco Vargas, forseti Kólumbíu, lög- reglu og her að framkvæma skyndi- árásir á höfuðstöðvar grunaðra eit- urlyfjabaróna. Og þann 19. ágúst, aðeins örfáum klukkustundum eftir að Carlos Luis Galán, einn forseta- fi-ambjóðendanna í fyrirhuguðum kosningum, var myrtur, tiikynnti Vargas um áætlun og neyðarráðstaf- anir í baráttunni gegn eiturlyfjabar- ónum. Samkvæmt þeim er her og lögreglu heimilt að gera eignir grun- aðra eiturlyfj asmyglara upptækar og framselja þá til Bandaríkjanna. Barónamir bragðust illir viö og í síðasta mánuði lýstu þeir yfir stríði á hendur stjómvöldum. Forsetinn, sem að öllu jöfiiu er talinn hæglátur maður sem heldur sig utan skarkala stjómmálanna, tók þá af skariö og stríðið hófst fyrir alvöru. Síöan hafa tólf þúsund manns verið handteknir og tugir flugvéla, báta og annarra eigna margra forsprakka smygl- aranna gerðar upptækar. Sprengjuregn Fyrstu vikuna eftir stríðsyfirlýs- ingu eiturlyfjabarónanna sprungu sautján sprengjur í borginni Medell- in, höfuðstöðvum verslunar með eit- urlyf í Kólumbíu. Hálfgert neyðar- ástand ríkir í þessari tveggja milljóna manna borg. Rúmlega 2.300 morð vora framin þar fyrstu sex mánuði þessa árs en til samanburðar má geta þess að í Washington-borg í Banda- ríkjunum hafa verið framin rúmlega þrjú hundmð morð það sem af er árinu. Rúmlega fimm hundrað kólumb- ískir dómarar lögðu fram uppsagn- arbréf sín af ótta um líf sitt strax og stríð eiturlyfjabarónanna og stjóra- valda hófst Og í síðustu viku ítrek- uðu dómaramir uppsagnir sínar vegna þess að þeir telja öryggisráð- stafanir stjómvalda ónógar. Rúmlega fiórir tugir kólumbískra dómara hafa verið myrtir á síðustu tíu árum. Margir dómarar, sem eru ofarlega á dauðalista eiturlyijabar- ónanna, hafa þegar fengið hótanir um líflát. Hundruö annarra Kólumb- íumanna hafa og fallið fjnjr leigu- morðingjum eiturlyfjasalanna. Enn hafa helstu leiðtogar eitur- lyfjasmyglaranna ekki verið hand- teknir og litlar líkur á að lát verði á ofbeldinu í bráð. Spilling Margir óttast að eiturlyfjabarón- amir reyni að seilast til áhrifa í póli- tík. Þingkosningar fara fram í Kól- umbíu innan sjö mánaða og tveimur mánuðum síðar fara fram forseta- kosningar. í síðasta mánuði var stofnaður nýr stjómmálaflokkur í landinu. Forystumenn hans segja flokkinn munu beita sér fyrir bætt- um lífskjörum. En stjómvöld vara við að eiturlyfjabarónar séu að baki flokknum. Forseti Kólumbíu á erfitt uppdrátt- ar í baráttunni gegn eiturlyfjabarón- unum. Tahð er að gífurleg spilling ríki innan lögreglu og hers landsins, sem og meðal margra ríkisstarfs- manna. Eiturlyfjabarónar Kólumbíu em í hópi ríkustu manna landsins Virgilio Barco Vargas, forseti Kól- umbíu, á erfitt uppdráttar f baráttu sinni gegn síauknu ofbeldi eiturlyfja- smyglara. og hafa safnað þvílíkum auði og völd- um að slíkt hefur ekki þekkst áður. Talið er að margir meðlima eitur- lyfjasmyglhringanna hafi flúið land. Margir, þar á meðal sumir banda- rískir embættismenn, halda því fram að kólumbískir lögreglu- og hermenn hafi varað þá við. Öryggissérfræðingar Kólumbíu segja að takist Barco ekki að hreinsa til í her og lögreglu geti honum reynst erfitt að halda til streitu áætí- im sinni. Venjulegir lögreglumenn í Kólumbíu fá um 130 dollara í laun á mánuði. Einn fyrrum lögreglumaður sagði að í sumum héraðmn landsins fengju lögreglumenn „aukafaun" hjá eiturlyfjasmyglurum, frá 225 dollur- um upp í 5.000 dollara. Lögregluyfirvöld vilja að laun verði hækkuð og að komið verði á sérsveit lögreglu og hermanna sem sett yrði til höfuðs eiturlyfjasmyglur- -unum. Mismunandi afstaða íbúanna Skoðanakannanir sýna aö mikill meirihluti íbúa Kólumbíu, allt að 75 prósent, styður stefnu forsetans. En óljóst er hvort þeir em reiðubúnir til langs og blóðugs stríðs. Þá eru margir ekki sáttir við þá ákvörðun að senda eftirlýsta eiturlyfjasala til Bandarikjanna. Segja þeir það líkjast viðurkenningu á að dómskerfið í landinu ráði ekki við vandann. Einnig era sumir ósáttir við þá við- leitni að loka snögglega fyrir eitur- lyfiasöluna. Bæði sfjómvöld og hag- fræðingar segja að verði salan stöðv- uð snögglega geti komið til kreppu í efnahagslífi. Tekjur af sölu eiturlyfja á síðasta ári námu 4 milljörðum dollara og telja hagfræðingar að 1,5 milljarðar dollara hafi verið í umferö. Til sam- anburðar má geta þess að útflutning- ur á kaffi gaf í fyrra af sér 1,2 millj- arða dollara. Sfjómvöld vísa því á bug að efna- hagslegar forsendur skipti máh í sambandi við aðgerðir þeirra. For- setinn er harðákveðinn í aö halda baráttunni gegn eiturlyfjasölunum til streitu, sagði kólumbískur emb- ættismaður nýlega. Stuðningur Bandaríkjanna Virgiho Barco nýtur stuðnings Bandaríkjasfjómar í baráttu sinni gegn eiturlyfjabarónunum. Bush Bandaríkjaforseti ákvað í ágúst að senda hergögn, m.a flugvélar, þyrlur og vopn, að verðmæti 65 milljónir dollara, til Kólumbíu, sem og ráð- gjafa til aðstoðar ríkissfjóminni. Bush kynnti tæplega átta mihjarða dohara áætíun sína gegn fíkniefnum snemma í þessum mánuði. Megninu af fénu verður varið gegn síauknu eiturlyfjasmygli bæði í Bandaríkjun- um og í Rómönsku Ameríku. AUt að áttatíu prósent aUs þess kókaíns sem neytt er í Bandaríkjun- um er unnið í Kólumbíu og tahð er að eiturlyfjasamtök, sem kenna sig við MedeUin, standi að baki stórum hluta aUs þess kókaíns sem smyglað er til Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur segja að árangur áætlunar Bandaríkjaforseta sé að miklu leyti kominn undir áfram- haldandi vUja Barco til að beita eitur- lyfjabarónana hörku. Mistakist Barco ætlunarverk sitt minnka tölu- vert líkur Bandaríkjastjómar á aö fá eftirlýsta eiturlyfjasmyglara fram- selda til Bandaríkjanna. Framsal Eduardo Martínez Ro- mero, háttsetts meðlims MedeUin- samtakanna, til Bandaríkjanna ný- verið var sigur fyrir stefnu Barco. En prófsteinninn á aðgerðir kólumb- ísku ríkisstjómarinnar kemur síðar í þessum mánuði. Þá mun hæstirétt- ur landsins endurskoða neyðarráð- stafanir forsetans með tilhti til laga- legrar stöðu þeirra. Reuter, International Herald Tribune o.H. m FORSALA ÍSLAND - TYRKLAND Heimsmeistarakeppnin 20. september kl. 17.30 Landsbyggðarfólk, athugið! Fyrir þennan leik veröur hægt að panta miða á landsleikinn í síma 91-84444 sunnudaginn 17. sept. frá kl. 14.00-18.00. Sækja verður pantanir fyrir lokun forsölu kl. 18.00 þriðjudaginn 19. sept. FORSALA AÐGÖNGUMIÐA VERÐUR SEM HÉR SEGIR: Mánudaginn 18. sept. kl. 12.00-1 8.00 í Austurstræti og á Laug- ardalsvelli. Þriðjudaginn 19. sept. kl. 12.00-18.00 í Austurstræti og á Laug- ardalsvelli. Keppnisdag, 20. sept., kl. 10.00-17.30 á Laugardalsvelli. Miðaverð: Stúka kr. l.OOO, stæði kr. 600, böm kr. 200. ...ergóð FLJUGLEIÐIR íþróttir byggja upp - áfengi brýtur niður KN ATTSP YRNUS AM B AND ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.