Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
Útlönd
Liðan nóbelsverðiaunahafans móður Teresu var í gaer nógu góð til að
læknar leyfðu heimsókn aettingja. Simamynd neuter
Læknar við sjúkrahús í Calcutta á Indlandi segja að þeir hafi enn
áhyggjur af hjartaveilu nóbelsverðlaunahafans móður Teresu. I tilkynn-
ingu frá sjúkrahúsinu í gær var sagt aö hitinn hefði lækkað en að hún
þjáðist enn af verkjumfyrir brjósti og aðþað væri læknum áhyggjuefiú.
Móðir Teresa var fiutt á skyndi á sjúkrahús á Indlandi fyrir hálfum
mánuði Þar settu læknar í hana hjartagangráð til bráðabirgða til að
koma stjóm á óreglulegan hjartslátt Læknar segja að hún verði á sjúkra-
húsi í tvær til þrjár vikur.
í gær leyfðu læknar að móðir Teresa fengi heimsókn Agi Golda, frænku
sinnar. í síðustu viku heimsótti Rajiv Gandbi, forsætisætisráðherra Ind-
lands, hana.
Móðir Teresa fæddist í Júgóslaviu en fluttist til Indlands fyrir fjórum
áratugum. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1979 vegna starfa sinna
meðal hinna þurfandi.
Jettsin harðlega gagnrýndur
Málgagn sovéska kommúnistafiokksins, Pravda, birti í gær grein þar
sem framkoma Boris Jeltsin, hins umbótasinnaða þingmanns frá Moskvu,
í Bandaríkjunum var harölega gagnrýnd. „Ameríka er hátíð fyrir Jeltsin
og Jeltsin er nýtt, skemmtilegt leikfang í augum Bandaríkjamanna,“ seg-
ir í greininni sem var byggð á grein i ítalska blaðinu La Republica.
í greininni segir að Jeltsin, sem sagt er að hafi hlotið 25 þúsund dollara
í hvert sinn sem hann birtist opinberlega og hélt ræðu, hafi eytt svo
miklum peningum að ekkert verði eftir til að kosta rannsóknir á eyðni
í Sovétríkjunum en hann hafi heitiö því aö taka þátt í kostnaöi slíkra
rannsókna. Sagt er aö hann hafi keypt myndbandstæki, fatnað og skó.
Greinin birtist aðeins sólarhring áður en áætlað var að miðsfjóm so-
véska kommúnistaflokksins kæmi saman. Mim miðstjómin m.a. íjalla
um hvort Jeltsin hafi brotið gegn reglum flokksins þegar hann hvatti til
umræðu um fjölflokkakerfi í Sovétríkjunum.
Jeltsin, sem var rekinn úr miöstjóminni árið 1987, hefur mjög gagnrýnt
„seinagang“ framkvæmdar umbótastefiiu Gorbatsjovs Sovétleiðtoga.
Hann náði sér á strik pólitískt séö eftir brottreksturinn og í kosningum,
sem fram fóm í marsmánuði sföastliðnum, var hann kosinn á þing.
Fjölskyldu haldid í gfslmgu
Lögreglumaður faerir mönnum, sem haldíð hafa þríggja manna fjöl-
skyldu i gislingu frá þvi í gær, símtæki. Simamynd Reuter
Þrír vopnaðir menn hafa haldið belgískri konu og tveimur dætrum
hennar í gíslingu frá þvi í gær þegar bankaránstilraun þeirra fór út um
þúfur. Meöal ræningjanna er glæpamaöur sem eftirlýstur er í FrakklandL
Mennirnir réðust inn á heimili bankastarfsmanns á laugardag og ætluðu
að fá hann tii að hjálpa sér við að ræna bankann sem hann vinnur við.
Maöurinn náði að sleppa út á sunnudag og hringja á lögreglu. Eiginkona
hans og tvær dætur em enn í haldi ræningjanna.
Bush liggur ekkert á
Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að ekkert lægi á aö hann hitti að
máh Gorbatsjov Sovétforseta en orðrómur hefúr verið á kreiki um leið-
togafúnd stórveldanna í nánustu framtíð.
Aðspurður kvaöst Bush hafa heyrt ávæning af orðrómi um aö She-
vardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, munileggjafram nýjar, víð-
tækar afvopnunartillögur þegar hann ræðir vfð Baker, bandaríska utan-
rikisráðherrann, i næstu viku. Bush sagði að Bandaríkin væra reiðubúin
framfara í afvopnunarviðræðum og að sljóm sín væri að undirbúa af-
vopnunartihögur sem myndu falla í góðan jarðveg meðal Sovétmanna.
Reuter
Lidan móður Teresu læknum
Forystumenn pólska kommúnistaflokksins:
Vilja uppstokkun
Forystumenn pólska kommúnista-
flokksins hafa lagt til að nafni flokks-
ins og stefnuskrá verði breytt og
segja fréttaskýrendur að það yrði
mesta uppstokkun í flokknum í
fjörutíu ár. Á fundi miöstjórnar
flokksins í gær var samþykkt álykt-
un þar sem skorað var á meölimi
flokksins að taka afstöðu til framtíð-
ar flokksins, hvort hann ætti að
starfa áfram í upphaflegri mynd eða
hvort breyta ætti honum honum í
umbótasinnaðan sósíalistaflokk.
Leszek Miller, aðili að stjórnmála-
ráðinu, sagði að flokkurinn ætti á
hættu að hverfa af sjónarsviðinu í
kjölfar mikils ósigurs hans í þing-
kosningunum fyrr í sumar og til-
nefningar nýrrar ríkisstjómar undir
forsæti Samstööu, hinna óháðu
verkalýössamtaka. Er þetta í fyrsta
sinn frá síðari heimsstyrjöldinni að
kommúnisti heldur ekki embætti
forsætisráðherra í Póllandi.
Miller kvaðst hlynntur því að ný
stefnuskrá flokksins yrði samin og
aö hann fengi nýtt nafn. Hann kvaðst
viss um aö ef meðlimir flokksins
tækju þann kost aö breyta flokknum
yrði afleiðingin nýr flokkur meö nýja
stefnuskrá, eitthvað nýlt til aö bjóða
pólskum almenningi.
Miðstjórnin samþykkti að senda
meðlimum flokksins spurningahsta
um framtíð flokksins. Niðurstöðurn-
Pólskur kommúnisti les dagblað Samstöðu, hinna óháðu verkalýðssamtaka.
Símamynd Reuter
ar verða svo lagðar fyrir stjórnina
þann 30. september þegar hún kemur
saman á ný.
Pólski kommúnistaflokkurinn hef-
ur átt á brattann að sækja hvað
snertir vinsældir meðal almennings
frá því aö Stalín kom honum til valda
árið 1944. Ráðamenn flokksins stóðu
meðal annars fyrir því að herlög
voru sett í Póllandi en samkvæmt
þeim var Samstaða bönnuð. Samtök-
in eru nú lögleg.
Reuter
Miðstjóm sovéska kommúnistaflokksins fundar í dag:
Búist við harkalegum deilum
Fastlega er búist viö að miðstjórn únistaflokksins, sem halda átti árið í Sovétríkjunum síðustu tólf mán-
sovéska kommúnistaflokksins lýsi 1991, yrði flýtt og það haldið í okt- uði. Sovéskir ráðamenn óttast að
yfir stuðningi sínura við ályktun óber 1990. Talið er að ákvörðun haldi slík þjóðernisókyrrð áfrara
frá því í síöasta mánuði þar sem þessi flýti því að fleiri umbóta- geti það haft áhrif á urabótastefnu
m.a. er lagt til að sovésku lýðveldin sinnar taki sæti í forystuliði Sovét- stjórnvalda.
firamtán fái aukna sjálfsstjóra. ríkjanna. Fundurinn keraur á tíma er deil-
Fulltrúar miðstjómarinnar hófu í Fréttaskýrendur búast við ur lýðveldanna Armeníu og Az-
morgun tveggja daga allshetjar- harkalegum deiium harðlínu- erbaidzhan um yfirráð yfir hérað-
fund þar sem fjallað verður um manna og umbótasinna á fundin- inu Nagorno Karabakh í
stöðu lýðveidanna og framtíðar- um. Sagðist einn vestrænn stjóra- Azerbaidzhan virðast vera að
horfur, sem og þá miklu þjóöemis- arerindreki búast við að fundurinn magnast á nýjan leik. Þá hefur
ólgu sem nú á sér stað víða um myndi fremur endurspegla shkar einnig verið mikil ókyrrð í Eystra-
Sqvétrikin. deilur en komast að niðurstöðu um saltsríkjunum en þau fara fram á
í morgun, á fyrsta degi fundar- þjóðemisdeiiurnar. aukna pólitíska sjálfsstjórn og
ins, tiikynnti svo Gorbatsjov, for- Fundurinn kemur í kjölfar efnahagslegt sjálfstæði
seti Sovétríkjanna, að þingi komm- ókyrrðar sem farið hefur vaxandi Rcuter
ísraelskir stjómmálamenn:
Vara við deilum
innan stjómarínnar
ísraelskir stjómmálamenn vöruðu
við vaxandi ókyrrð innan Likud-
flokksins, annars stjómarflokks
landsins, vegna mismunandi afstöðu
hinna tveggja aðiidarflokka ríkis-
stjórnarinnar til kosningaáætlunar
stjórnvalda. Deilur vegna áætlunar-
innar hörðnuöu mjög í gær eftir að
vamarmálaráðherra ísraels, Yitzhak
Rabin, kom frá viðræðum við Hosni
Mubarak, forseta Egyptalands.
Rabin lýsti yfir stuðningi við til-
raunir Egypta til að koma á viðræð-
um ísraelsmanna og Palestínu-
manna. Rabin og Mubarak náöu
samkomulagi um nokkrar breyting-
artillögur á kosningaáætlun ísra-
elsku stjórnarinnar og að Egyptar
útnefndu fulltrúa Palestínumanna til
nánari viðræðna um hinar fyrir-
huguðu kosningar.
En fulltrúar Likud-flokksins,
flokks Shamirs forsætisráðherra,
hafa hafnað breytingum þeim sem
Egyptar hafa lagt til. Segja þeir að
deilur Likud og Verkamannaflokks-
ins geti leitt til falls samsteypustjórn-
ar þessara tveggja flokka.
í útvarpi ísraelska hersins í gær
sagði að Shamir væri andvígur því
að Egyptar útnefndu fulltrúanefnd
Palestínumanna ef slíkt hefði í for
með sér samráð Egypta og PLO,
Frelsissamtaka Palestínu, sem
Shamir hefur sagt vera hryðjuverka-
samtök.
Reuter
Shamir, forsætisráðherra ísraels, hefur hafnað breytingartillögum Hosni
Mubarak, forseta Egyptalands, við kosningaáætlanir ísraelsstjórnar.
Teikning LurJU