Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989. Sviðsljós Ólyginn sagði.... Marlon Brando sagöi fvrir stuttu aö The Fresh- man. kvikmynd sem hann er ný- búinn aö leika í. væri léleg. í viö- tali \iö kanadískt blaö sagöi hann aö myndin væri hræöileg og eng- inn myndi koma aö sjá hana. Hann lauk viötalinu á þann veg aö þetta væri hans síðasta kvik- mynd og hann óskaöi þess aö hann heföi valið betra hlutverk. Marlon Brando var í skárra skapi þegar hann talaði viö blaðamenn stuttu síðar. Tók hann orð sín tii baka. „Eftir aö hafa séð fullgeröa útgáfu myndarinnar sé ég nú aö The Freshman er virkilega fynd- in og skemmtileg.'' Sting er þekktur söngvari og einnig ágætur leikari. Þessi baráttuglaöi skemmtikraftur, sem hefur ferö- ast um allan heim í þágu friöar, er nú að leika á sviði í Túskild- ingsóperunni sem sýnd verður á Broadway. Aö sjálfsögðu leikur hann Magga hníf. Þaö skeöi á for- sýningu í Washington aö sjálf- virkur tjaldbúnaður bilaði í þriöja þætti og tjaldið fór aö renna fyrir sviðið. Sting var trúr þeirri fullyrðingu leikara að sýn- ingin yröi aö halda áfram hvað sem á dyndi og setti sig í stelling- ar þannig aö hann gat haldið tjaldinu meðan aðstoðarmenn þyrptust aö og hélt áfram meö rulluna eins og ekkert hefði í skorist. Eftir aö tekist hafði aö laga tjaldið brutust út mikil fagn- aöarlæti meðal áhorfenda sem vel kunnu að meta þessa skyndi- ákvörðun Sting. Tiffany er sautján ára táningastjarna sem hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal unglinga. Hún hefur komið tveimur lögum hátt á vin- sældalista í Bandaríkjunum og seldist fyrsta LP-plata hennar í fimm milljónum eintaka. Það fylgja þó frægðinni ýmsir erf- iöleikar. Einn aðdáandi hennar hefur reynst of aðgangsharður. Sá heitir Jeff Deane Tumer og hefur hann sent henni ótal bréf þar sem segir meöal annars að guð ætli þeim að vera saman. Þá er hann þaulsætinn fyrir utan heimili hennar og hringir í hana í tíma og ótíma. Pilturinn hefur nú verið kærður og hefur honum verið skipað að halda sig í minnst 200 metra fjarlægö frá heimili Tiffany. Þá hefur honum verið bannað aö hringja í hana og að hætta að senda henni gjafir. Erró vinsæll - allar myndir seldust í friðum hópi gesta við opnun málverkasýningarinnar var Hannibal Vajdi- marsson sem hér sést á tali við Sigurð Blöndai skógræktarstjóra, Ólaf Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og eiginkonu hans, Guðrúnu Þorbergs- dóttur. DV-myndir GVA Það var mikill fjöldi fólks sem var við opnun málverkasýningar Errós á Kjarvalsstöðum síðastliðinn laug- ardag. Þar gaf að líta fólk úr öllum stéttum, þekkt sem óþekkt. Greini- legt er að íslendingar kunna vel að meta sinn þekktasta málara því eftir helgina var búið að selja allar mynd- irnar. Þá var einnig mikið selt af plakötum eftir þekktum verkum listamannsins og sjálfur hafði Erró mikið að gera viö aö árita plaköt og kort. Ljósmyndari DV var á staðnum og myndaði fólk í sölum og göngum Kjarvalsstaða og sjáum við árangur- inn á síðunni. ívar S. Jónsson, skrifstofustjóri Þjóðleikhússins, sést hér rýna í áletrun sem er á vinstra brjósti konunnar á málverkinu. - Tónlistarmennirnir Gunnar Kvaran sellóleikari og Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri hafa sjálfsagt eitthvað til málanna að leggja um sýningu Errós. Erró hafði nóg að gera við að árita plaköt og póstkort sem seldust grimmt i anddyri Kjarvalsstaða. Sonur Egils Eðvarðssonar kvikmyndagerðarmanns og eiginkonu hans, Guðrúnar Bjarnadóttur verslunarkonu, hefur ekki mikinn áhuga á málverk- um Errós og hefur fengið sér blund á öxl föður síns. Fyrsta frumsýning Aiþýðuleikhússins í Iðnó Óvíst er hvað verður um gamla Iðnó eftir að Leikfélag Reykjavíkur hefur flutt starfsemi sína í nýja Borg- arleikhúsið. Til bráöabirgða hefur Alþýðuleikhúsið fengiö þar inni með sýningu á einu leikriti, Isaöar gellur, sem frumsýnt var á fostudagskvöld. ísaðar gellur eru breskt leikrit sem gerist á íslandi og fjallar um þrjár stúlkur frá Hull sem koma til íslands í von um auðtekinn pening við vinnu í físki. Frumsýningargestir tóku leik- ritinu vel og voru myndir þær sem eru á síðunni teknar í hléi á fóstu- dagskvöldið. Sverrir Guðjónsson brosir hér framan i Ijósmyndarann. Með honum á myndinni eru Kristin Magnús leikkona, Elín Edda Árnadóttir, eiginkona Sverris, og Halldór Snorrason, eiginmaður Kristínar. Þær skemmtu sér vel yfir ísuðum gelium, Ragnhildur Jónsdóttir loftskeyta- maður og Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi. DV-myndir GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.