Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER'1989.
9
Utlönd
Funda um efnavopn
BandaríKjamenn hafa lagt til að
komið verði á laggirnar alþjóðlegri
nefnd til að hafa eftirlit með efna-
vopnum og veita aðstoð við að hafa
hemil á úbreiðslu þeirra. Þetta koma
fram á fjögurra daga fundi í Ástralíu
um efnavopn sem fulltrúar 67 þjóða
sækja.
Richard Clarke, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti allar
þær þjóðir, sem hafa yfir efnavopn-
um að ráða, til að viðurkenna tilvist
þeirra. Aðeins tvær þjóðir, Banda-
ríkjamenn og Sovétmenn, viður-
kenna opinberlega að eiga birgðir al
slíkum vopnum. Bæði ríkin telja að
aðrar tuttugu þjóðir, þar af sex i
Miðausturlöndum, ráði einnig yfir
efnavopnum.
Fundurinn í Ástralíu er haldinn
skömmu áður en viðræður utanrík-
isráðherra stórveldanna hefjast í
Bandaríkjunum. Fastlega er búist
við að samkomulag náist mOli ráð-
herranna. .
Reuter
A eyjunni Guadeloupe í Karíbahafi urðu gífurlegar skemmdir er fellibylurinn Hugo gekk þar yfir.
Simamynd Reuter
NHJán fórust
í fellibylnum
Nífján manns hafa nú látið lífið af
völdum veðurofsans á Karíbahafi.
Gífurlegar skemmdir urðu á mann-
virkjum á Puerto Rico er fellibylur-
inn Hugo gekk þar yfir í gær og er
jafnvel talið að hundruð þúsunda séu
nú heimilislausir.
í borgingi San Juan notuðu þjófar
tækifærið og létu greipar sópa í
verslunum og stórmörkuðum sem
rúður höfðu brotnað í vegna veður-
ofsans. Neyðarástand ríkti á eyjunni
og voru tvö þúsund og fimm hundruð
hermenn kaUaðir út til björgunar-
starfa.
Frakkar sendu ráðherra og aðra
embættismenn til eyjunnar Guade-
loupe þar sem Hugo skildi eftir sig
slóð eyðUeggingar þar á sunnudag-
inn. Fimm manns eru sagðir hafa
látið lífið á eyjunni og áttatíu og fimm
slasast. TaUð er að tíu þúsund manns
hafi misst heimUi sín.
Veðurfræöingar spáðu því að Hugo
væri á leið tU Dóminíska lýðveldisins
þar sem flugveUinum hefur verið
lokað. Ekki er taUð útUokað að leið
HugosUggiyfirBahamaeyjar. Reuter
Stjómarmyndunarviöræður í Noregi:
Þrýstingur frá
hægri og vinsfri
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: •
Borgaralegu flokkamir í Noregi
hófu viðræður um myndun nýrrar
ríkisstjómar í gær. Formenn flokk-
anna þriggja, Hægri flokksins,
KristUega þjóðarflokksins og Miðju-
flokksins, reikna meö að samningar
muni taka tvær vikur.
í gær höfðu flokkarnir ekki byrjað-
ir að ræða erfiðustu málin en voru
samt bjartsýnir. En aðrir eru heldur
vantrúaðir á viöræðurnar.
Forsætisráðherrann, Gro Harlem
Brundtland, lýsti því yfir í gær að
ný borgaraleg stjóm væri jafnóraun-
sær möguleiki núna eins og á síðasta
kjörtímabiU nema þvi aðeins að
flokkarnir þrír geri samning við Carl
I. Hagen, formann Framfaraflokks-
ins, og tryggi sér þar með meirihluta
á þingi.
Það er óhugsanlegur möguleiki fyr-
ir milliflokkana. Þetta veit forsætis-
ráðherrann og þvi er þessi yfirlýsing
hennar tilraun tU að spUla fyrir
stjómarmyndun borgaralegu flokk-
anna, að því er formaður Miðju-
flokksins, Johan J. Jakobsen, segir.
„Við látum ekki beita okkur þrýst-
ingi,“ segir hann og væntir þess aö
Verkamannaflokkurinn muni styðja
nýju stjómina og sýna henni tiUits-
semi þegar flokkurinn kemst í
stjómarandstöðu. „Því að alUr flokk-
ar þurfa að vera ábyrgir á þessum
erfiðu tímum,“ segir Jakobsen.
En ríkisstjómarkandidatarnir
verða líka fyrir sterkum þrýstingi frá
hægri. Framfaraflokkurinn fer ekki
dult með löngun sína til að ná völd-
um á einhvern hátt. Carl I. Hagen
hefur boðist til þess að gera hinum
borgaralegu flokkunum grein.fyrir
afstöðu Framfaraflokksins en Miðju-
flokkurinn þvemeitar að taka á móti
nokkurri greinargerð frá Carl I. Hag-
en. „Það er okkur nóg að hafa séð
stefnuskrá Framfaraflokksins,“ seg-
ir formaðurinn, Johan J. Jakobsen.
Hægri formaðurinn og forsætisráð-
herraefnið Jan P. Syse hefur marg-
boðist til að fræða Carl I. Hagen um
gang mála í viðræðunum við hina
flokkana en Hagen afþakkar aUa
slíka fræðslu. Á meðan hinir flokk-
arnir vUja ekki hlusta á Hagen viU
hann ekki hlusta á þá án þess að
hafa möguleika á að blanda sér í
umræðurnar.
Hagen hefur einnig hótað Hægri
flokknum aö Framfaraflokkurinn
muni hjálpa Vérkamannaflokknum
til að steypa stórþingsforsetanum,
sem er hægri maður, ef Hægri flokk-
urinn kemur ekki tU móts við Hagen
á einhvem hátt.
Gro hefur nú slegið þetta vopn úr
hendi Hagen með því að tilkynna að
Verkamannaflokkurinn muni ekki
feUa stórþingsforsetann ef tekið
verði aukið tillit tU Verkamanna-
flokksins í sambandi við aðrar valda-
miklar stöður á þinginu.
Hægri flokkurinn, Miðjuflokkur-
inn og KristUegi þjóðarflokkurinn
eiga erfiða daga framundan. Inn-
byrðis ágreiningsmál eru mikU fyrir
og við þau bætist sterkur þrýstingur,
bæði frá hægri og vinstri.
Samkeppni um
íslenskt nafn!,
Eins og kunnugt er hefur Reykjavíkurborg
keypt veitingahúsið „Broadway" við Álfabakka í Reykjavík.
iw„ íþrótta- og tómstundaráð mun taka við rekstri
JK/' hússins frá og með 1. nóvember n.k.
%
Hér með er auglýst eftir tillögum um
íslenskt nafn á staðinn.
Tillögum skal skila
á skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs /
Fríkirkjuvegi 11
fyrir 15. október n.k.
merkt (TR - hugmyndasamkeppni.
Tillögur afhendist í lokuðu umslagi
undirdulnefni og meðfylgi annað umslag
með nafni höfundar.
iþrótta- og tómstundaráð skipar fimm manna
dómnefnd með fulltrúum frá ÍTR og unglingum.
_ ’ Veitt verða ein verðlaun kr. 50.000,- fyrir bestu
tillöguna. Ef fleiri en ein tillaga með sama nafni
berst verður dregið á milli höfunda um 1. verðlaunin.
Niðurstöður í samkeppninni verða kynntar í nóvember.
íþrótta- pg tómstundaráð óskar einnig eftir tillögum og
hugmyndum barna, unglinga og foreldra um starfsemi í
húsinu fyrir börn og unglinga. %
Tillögur sendist ÍTR
Fríkirkjuvegi 11
merkt - starfsemi - fyrir 15. október.
Þeir aðilar sem óska eftir afnotum af húsnæðinu fyrir
fundi, ráðstefnur og skómmtanir er bent á að hafa
samband við skrifstofu ITR í síma 622215.
lHtón»-00 TðMSTIMMU)
REYKJAVlKUR
Veiðimenn
- nú er tækifærið
Opnuöum i dag hina árlegu haustútsölu okkar á
veiðifatnaði, þar á meðal jökkum, vestum, kuldafatnaði,
regnfatnaði, peysum, íþróttagöllum o.m.fl.
20-50% afsláttur
Hausttilboð
Bjóðum viðskáptavinum vorum
15% staðgreiðsluafslátt á öllum
veiðivörum verslunarinnar með-
an á útsölunni stendur.
Verslunin
eiöiv<
Langholtsvegi 111
104 Reykjavík 0) 6870*90