Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
13
Lesendur
Umbætu
Óskar Óskarsson skrifar:
í stefhu um umbætur í gengis-
málum, sem þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins kynnti nýlega, var m.a.
íjallaö um grundvallarbreytingu á
fyrirkomulagi gengisskráningar
hér á landL Ekki er þar margt til
bóta, utan það aö hverfa frá pólit-
ískri stýringu á genginu og láta
markaðsaöstæður ráöa feröinni. -
En þetta ogrannaö sem þar er
minnst á er þó engin lækning á því
vantrausti sem fólk hefur á ís-
lenska gjaldmiðlinum. Þaö van-
traust læknar ekkert, nema aftiám
krónunnar sem gjaldmiöils.
Auövitað'þarf aö færa niður verð-
bólgu, en hún verður ekki færð
niöur með því einu að láta mark-
aðsaðstæöur skrá gengið. Verð-
bóga mun aldrei minnka þótt inn-
lendar markaösaðstæður ráði ferð-
inni. Hór er spennan og græðgin
of mikil til þess að afnema þá freist-
ingu sem felst t.d. í því að sjávarút-
vegur fái ekki sínu framgengt með
hækkun verðs á erlendum gjald-
miðli, hvenær sem þeim monnum
sem þar ráða feröinni þóknasL
Allar vangaveltur hagfræðinga
og annarra sérfróðra manna um
gengismál falla þvi miður um sjálf-
ar sig að því leyti sem tekur til
gengismála, á meðan þeir ekki þora
að leggja beint tíl, að hér verði kom-
ið á öðru tveggja; afnámi krónunn-
ar og þá með nýjum gjaldmiðli sem
kenndur er við sjálfstætt ríki (en
Jslenski gjaldmiðlilinn ekki bættur úr þessu, hverníg sem reynt er að
tela vandann", segir m.a. i bréfinu.
ekki dönsku krúnuna) - eða hins
vegar beinni tengingu krónunnar
við einhvern traustan gjaldmiðil
erlendan. Auðvitað væri dollarinn
þar sterkastur, en aðrir gjaldmiðl-
ar koma þar einnig til.
Umbætur í gengismálum, sem
kynntar voru á vegum þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, eru að rnínu
mati óraunhæfar og gagnslitlar,
auk þess sem þær eru torskilið
plagg og þungmeltar flestu venju-
legu fólki. - Það verður að hafa þor
til að setja fram raunhæfar kenn-
ingar, ekki síst þegar allir eru sam-
mála um að íslenski gjaldmiðillinn
verður ekki endurbættur úr þessu,
hvernig sem menn reyna að fela
vandann.
Meiri tóngæði á rás 1
Oddur skrifar:
Ekki veit ég hve margir halda enn
tryggð við gömlu gufurásina, sem
svo er kölluð, eða rás 1. Sennilega
aðeins hinir eldri. En þessi „undir-
málshópur" á þó rétt á því að hægt
sé með góðu móti að ná sambandi
við útsendingu þessa, þ.e.a.s. á FM-
bylgju. - Langbylgjan er þokkaleg en
hver kýs ekki fremur að nýta sér
meiri tóngæði á örbylgju?
Tæknimeistarar rásar 1 fullyrða
að vægur kraftur útsendingar tryggi
meiri tóngæði, einkum er varðar sí-
gilda tónlist. Þessi rök á ég bágt með
að skilja. Það þarf tæpast sérfræðing
til þess að heyra þann gífurlega mun
sem er á tóngæðum t.d. rásar 1 og
rásar 2. - Gufan fellur því á prófinu.
Svo aö alls réttlætis sé gætt ber
þess að geta að plötusafn RÚV af
klassík og léttklassík er orðið lúið
af ofnotkun og ef til vill ekki sann-
gjamt að bera það saman við nýlegar
og nýjar hágæðaupptökur á popptón-
list allra þessara „frjálsu" stöðva.
En ágætu ráðamenn, að lokum
hógvær ósk og bæn til ykkar. -
Sinnið betur minnihlutanum sem
enn heldur tryggð við gömlu rásina.
Dagskrárefni fram að kvöldi er jafn-
an ágætt en má ég koma meö tillögu
um smáandlitslyftingu. - Popptónlist
verði gerð útlæg á rás 1. Það fer lítið
fyrir henni, satt er það. En það má
enn minnka þá fyrirferð.
P.S. Miðdegjssögur hafa margar
verið ágætar en ekki myndi „bóka-
lýðveldið“ missa virðingu sína þótt
öðru hvoru slæddust inn spennandi
reyfarar!
Aukablað
Hús og húsbúnaður
Miðvikudaginn 27. september mun aukablað
um hús og húsbúnað fylgja DV.
Meðal annars verður Qallað um heimilistæki, tæki og
innréttingar í eldhús og bað7 gólfefni, húsgögn og
ýmislegt annað innaristokks.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði, hafi samband við auglýsin^adeild DV hið
fyrsta í síma 27022.
Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga í þetta
aukablað er til fimmtudagsins 21. september.
Auglýsingadeild
Þverholti 11, sími 27022
RÁÐSTEFNA UM FÉLAGSLEGA HÚSNÆÐISKERFIÐ
MANUDAGINN 25. SEPT.
Til ráðstefnunnar eru boðaðir:
Fulltrúar verkalýðsfélagana í stjórnum verkamanna-
bústaða, fulltrúar aðildarfélaga ASl, miðstjórn ASi.
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu ASÍ sem fyrst og eigi
síðar en fimmtudaginn 21. sept.
Lausafjáruppboð
í Barðastrandarsýslu
Eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hrl., Reynis Karlssonar hdl., Sigríðar
Thorlacius hdl., Benedikts E. Guðbjartssonar hdl., Kristins Hallgrímssonar
lögfr., Steingríms Þormóðssonar hdl., Landsbanka íslands, Péturs Guð-
mundssonar hrl., Agnars Gústafssonar hrl., Garðars Briem hdl., tollstjórans
í Reykjavík, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl„ Tómasar H. Heiðar iögfr., Hró-
bjartar Jónatanssonar hdl., Þorfinns Egilssonar hdl„ Ólafs Sigurgeirssonar
hdl„ Guðmundar Markússonar hrl„ Einars S. Ingólfssonar hdl„ Helga Jó-
hannessonar lögfr., Guðmundar Kristjánssonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen
hdl„ Baldurs Guðlaugssonar hrl. og Innheimtu ríkissjóðs verða eftirtaldir
lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði sem haldið verður á lögreglustöð-
inni, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 21. september 1989 kl.
15.00 eða þar sem þessir munir finnast.
4 fiskiker, Itt sjónvarpstæki, Panasonicmyndbandstæki, 3 sæta sófi, hús-
bóndastóll m/skemli, Saloria sjónvarpstæki, peningakassi, kæliborð, 2 Coke
kæliskápar, plógherfi m/vagni, Eminett orgel 520, Zerowatt þvottavél, B-
19, B-215, B-315, B-524, B-559, B-670, B-712, B-738, B-806, B-971,
B-1179, B-1321, B-1545, R-23830, R-45973, R-46094, Ö-4709, V-1912
og Toyota lyftari.
Greiðsla við hamarshögg
Sýslumaður Barðastrandarsýslu,
29. ágúst 1989
MYNDBÖND
ÚTGÁFUDAGUR 20. SEPT. ’89.
HVERVANN?
Vinningsröðin 16. september:
122-112-112-212
Heildarvinningsupphæð: 486.547 kr.
12 réttir = 340.592 kr.
4 voru með 12 rétta - og fær hver 85.148 kr. í sinn hlut.
11 rétlir = 145.955 kr.
42 voru með 11 rétta - og fær hver 3.475 kr. í sinn hlut.