Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
23
Menning
I anda Schumanns
í haustsólinni fylgdist ég með
fyrstu danssporum nokkurra fóln-
aðra lauíblaða kringum runnann
sem þau féllu af. Ég var í þann
mund að uppgötva þann leynda
söng sem þau dilluðu sér við þegar
viniu- minn Flórestan kom aðvíf-
andi. Hann var uppveðraður og
virtist fullur angurblandinnar
gleði, engu síður en laufin.
„Vefstu Evsebíus," sagði hann,
„þú hefur rétt fyrir þér með virtú-
ósa. Oft virðist fólk koma einungis
til að hlusta á fingur þeirra og
margir fingrafimir nofæra sér
þetta. En gæti glæst tæknilegt yfir-
borð staðið í vegi fyrir að menn
hlustuðu á það sem hljóðfæraleik-
arinn hefur raunverulega að
segja?“
„Það fólst nú ekki í orðum mín-
um,“ sagði ég.
„Að minnsta kosti hefðu þeir þá
misst af miklu sem héldu að Dmitri
Alexeev væri bara kominn til að
sýna fingrafimi. Fyrir utan aö
fingrafimi leikur htiö hlutverk í
sónötum Mozarts.“
„Já, lék hann ekki K 310, þessa ,
fyrstu raunveruiega tragísku smíð
Mozarts? Skildi hann hana, að þínu
viti?“ Ég leyndi ekki hæðinni skír-
skotun í dómhörku Flórestans.
„Hvílíkur skírleiki! Hann skildi
tónlistina. . .“ Flórestan hikaði,
„en kannski var honrnn stundum
of umhugað um að við vissum að
hann skildi hana.“ (Hér gat ég ekki
annað en skellt upp úr.) „Jú,
heyrðu hvemig hann byijaði fyrsta
Tónlist
Atli Ingólfsson
stefið." Hann lygndi aftur augun-
um og söng. „Fallegt en analýtískt,
ekki satt?“
Ég gaf lítið út á þetta. „Spilaði
hann ekki Camaval op. 9 eftir
Schumann? Þú hefur ekki hitt Ro-
bert ljúflinginn?" spurði ég.
„Dásamlegt. Schumann var ör-
ugglega í salnum en ég kom ekki
auga á hann. Ég held ég hafi aldrei
notið Camavalsins eins vel. Alexe-
ev skipti um gervi á augabragði
milli smálaganna, enda gaf hann
sér ekki mikinn tíma milli þeirra,
kannski óþarflega lítinn. Einu
sinni greip ég hann í röngu gervi,
það var í Valse noble í fyrri hlutan-
um, þar var heldur mikil ástríða."
Flórestan færðist í aukana. „Og
hvílíkur Chopinspilari! Mér þykir
að vísu ekki jafnvænt um sónötuna
op. 58 og mörg smærri verk, þó er
hún yfirmáta snjöll. Eitthvert há-
tíðnisuð eyðilagði fyrir mér fyrsta
kaflann en afgangurinn var hrein
snilld. Meira að segja í aukalagi,
Pólónesu Chopins í As dúr sýndi
Alexeev mér nýja möguleika í túlk-
un þessa marghijáða verks.“
Þú ert þá ánægður. Hvað varstu
að hugleiða á leiðinni hingað?" Ég
hellti rauðvíni í glas handa honum.
Það sljákkaði í vini mínum. „Er
ekki dálítið kaldhæðnislegt, Ev-
sebíus, að nú erum við í flokki með
Ffiisteunum að dásama Schumann
og Chopin?"
„Nei, bróðir sæll,“ svaraði ég „sá
Schumann sem við fylgjum er sá
sem stofnaði Davíðsbræður, það er
ekki sá sami og Fílisteamir prísa."
Einhvem veginn svona mætti
stæla tónlistarumfjöllun Roberts
Schumanns í tímariti því sem hann
stofnaði 1834.
islenska óperan mánudaginn 18. sept-
ember kl. 20.30:
Dmitri Alexeev lék á pianó verk eftir
Mozart, Schumann og Chopin.
Atli Ingólfsson
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Afbragðs túnþökur. Seljutn mjög góðar
túnþökur sem eru hífðar af í netum.
100 prósent nýting. Erum með bæki-
stöð við Reykjavík. Túnþökusalan sf.,
s. 98-22668 og 985-24430.
Garðeigendur, athugið. Bjóðum alla
garðyrkjuþjónustu, vinnum eftir
teikningum. Fagmenn. Hafið samband
í síma 75913 milli kl. 18 og 22 öll kvöld.
Getum tekið að okkur hellulagnir,
hleðsluveggi og aðra garðavinnu.
Uppl. í síma 77749 og 42629.
■ Húsaviðgerðir
Útleiga háþrýstidæla. 300 Bar. Þrýst-
ingur sem stens kröfur sérfræðinga.
Cat Pumps, bensín- eða rafdrifnar.
Einnig sandblástursbúnaður. Stáltak
hf., Skipholt 25, sími 28933.
Húsasmíðameistari, múrarameistarar
auglýsa. Utanhússklæðningar og
sprunguviðgerðir, áralöng reynsla.
Uppl. í síma 23059.
Lekur? Lekur? Upprætum lekavanda-
mál á þaki, svölum o.s.frv, einnig al-
hliða múrviðgerðir. Föst tilboð. Uppl.
í síma 25658 frá kl. 16-22.
■ Nudd
Gufu- og nuddstofan Hótel Sögu. Bjóð-
um upp á nudd, gufu, ljós (nýjar per-
ur), nuddp. og tækjas. Opið virka daga
frá kl 8-21, laugard. kl 10-18. S. 23131.
■ Fyrir skrifstof una
Telefaxtæki, Harris/3M, margar gerðir,
hágæðatæki, hraði allt að 10 sek.
Árvík sf., Ármúla 1, sími 91-687222.
■ Til sölu
Útsala á sætaáklæði, verð 3500 kr.
Póstsendum samdægurs. Bílteppi, litir
blár, rauður, grænn og svartur. Verð
1250 kr. fm. ÁVM driflokur fyrir flest-
ar gerðir jeppa fyrirliggjandi (Manu-
al), verð 7400. G.S. varahlutir, Ham-
arshöfða 1, sími 83744 og 36510.
Sumarhjólbarðar.
Hágæðahjólbarðar frá Kóreu á lágu
verði, mjög mjúkir og sterkir.
Hraðar hjólbarðaskiptingar.
Barðinn hf., Skútuvogi 2, Reykjavík,
símar 30501 og 84844.
■ Verslun
NEW NATUftAL COLCHJR
fl TOOTHMAKEUP
Pearlie tannfarðinn gefur aflituðum
tönnum fyllingu og gervitönnum nátt-
úrlega og hvíta áferð. Heildverslunin
Kristín hf., pöntunarsími 641085.
Sjálfvirkur símsvari tekur við pöntun-
um allan sólarhringinn, verð 690.
Heildverslunin Kristín, Box 366, 200
Kópavogur.
„Ghostbusters" leikföngin í miklu úr-
vali. Póstsendum. Tómstundahúsið
hf., Laugavegi 164, sími 21901.
Allir fylgihlutar og dælur fyrir potta gg
sundlaugar. Verð frá 74.300. K. Auð-
unsson hf., Grensásvegi 8, s. 686088.
■ Bátar
Höfum fyrirliggjandi dýptarmæla-, rad-
ara, lóran C og talstöðvar fyrir smærri
báta á hagstæðu verði og kjörum.
Visa raðgreiðslur.
Friðrik Á. Jónsson,
Fiskislóð 90,
símar 14135 og 14340.
Skipasala Hraunhamars: Þessi bátur,
sem er 7 tn. að stærð, byggður úr
plasti 1975, með Leyland vél árg. 1975,
Furunu dýptarmæli, línu- og netaspii
og 4 m gúmmíbát, er til sölu. Kvöld-
og helgarsími 51119. Farsími 985-
28438, Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarf., s. 54511.
■ BOar til sölu
M. Benz 280 TE '83, Ford Bronco XLT
'84, Nissan Sunny 4x4 '88, Daihatsu
Cuore '88. Bílasalan, Smiðjuvegi 4,
Kóp., sími 77202.
Chrysler LeBaron 79, ekinn 98.000 km,
með rafinagni í öllu, t-topp og velti-
stýri, 2ja dyra, á krómfelgum, skoðað-
ur '90. Verð 330.000 eða 250.000 stað-
greitt. Uppl. á Bílasölunni Bílaport,
sími 688688, eða í s. 20475 e.kl. 19.
Dodge Ramcharger '85 til sölu, til
greina kemur að taka seljanlegan bíl
upp í. Uppl. í síma 92-12953.
Torfærukeppni. Bikarmót Bílabúðar
Benna og Jeppaklúbbs Reykjavíkur
verður haldið í gryfjunum í Jósepsdal
23. sept. kl. 13. Skráning verður á
mánudag milli kl. 16 og 22 og þriðju-
dag milli kl. 16 og 18 í símum 91-
622404 og 985-21953. Verðlaun í flokki
götubíla: 1. sæti 50 þús., 2. sæti 25
þús., 3. sæti 10 þús. { flokki sérút-
búinna: 1. sæti 100 þús., 2. sæti 50
þús., 3. sæti 25 þús.
Langstökkskeppni á jeppum. Verð-
laun fyrir lengstu stökk að verðmæti
kr. 70 þús. Skráning í sömu símum.
Sérlega góður og fallegur
Range Rover, árg. '79, hvítur, ekinn
133 þús. km, verð kr. 640 þús., stað-
greiðsluafsláttur eða skipti á ódýrari
(ca 150-200 þús.). Uppl. í síma 91-21198
kl. 18-20 dagl.
■ Ýmislegt
' ---- % s
Hárgreioslustofar
ýjjbena
Leirubakka 36 S 72053
Allar nýjustu tískulínur í permanenti og
strípum. Gerið verðsamanburð. Opið
laugardaga 10-14, virka daga 9-18.
SkóbvorÖustíg3 Sími26641
September-tilboð. Viltu verða brún(n)?
Frábærir bekkir, góðar perur.
1. 34 spegla perur.
2. 2 andlitsljós.
3. Andlitsblástur.
4. Tónlist í öllum bekkjum.
5. Góðar sturtur.
6. Góð þjónusta.
Verð: 10 tímar á kr. 2.300, 20 tímar á
kr. 3.950. Við emm ódýrir, ekki satt?
Pantið tíma í síma 26641.
■ Líkamsrækt
Veggtennis. Opið alla virka daga frá
kl. 9-23, laugardag og sunnudag frá
kl. 10-17. Pantaðu strax.
Veggsport hf., Seljavegi 2,
sími 91-19011.
DRÖGUM ÚR FERÐ
ÁÐUR EN VIÐ
BEYGJUM!
IUMFERÐAR
RÁÐ
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboðskaupanda verður fasteignin Vesturberg 167,
þingl. eig. Gísla Guðmundssonar, boðin upp að nýju og seld á nauðungar-
uppboði sem fram fer á eigninni sjálfri fimmtudaginn 21. september 1989
kl. 18.00. Uppboðsbeiðendureru Olafur Gústafsson hrl., Guðmundur Jóns-
son hdl., Gísli Baldur Garðarsson hrl., Ævar Guðmundsson hdl., Sveinn
Skúlason hdl., Þorvarður Sæmundsson hdl., Landsbanki íslands, Valgarð
Briem hrl., Árni Einarsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Jón Ólafsson
hrl., Ólafur Thoroddsen hdl., Búnaðarbanki íslands og Ari isberg hdl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík