Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989. 27 Fólk í fréttum. Erró Erró, víðfrægasti myndlistarmaður þjóðarinnar fyrr og síðar, hefur vak- ið verðskuldaða athygli og þakklæti allra landsmanna með hinni stór- mannlegu og ofnetanlegu gjöf, nær tvö þúsund hstaverkum sínum, er hann færði Reykjavíkurborg við opnun sýningar sinnar á Kjarvals- stöðum á laugardaginn var. Erró (Guðmundur) fæddist í Ól- afsvík 19.7.1932 og ólst upp hjá móður sinni, fyrst í Reykjavík til þriggja ára aldurs en síðan á Kirkju- bæjarklaustri þar sem móðir hans giftist Siggeir Lárussyni, b. þar. Erró fór til náms í Reykjavík og stundaði þá jafnframt teikninám í kvöldskóla en innritaðist síðan í teiknikennaradeild Handíða- og myndlistaskólans. Hann var við myndlistamám í Listaháskólanum í Osló 1951-54 og starfaði síðan í Flórens um skeið. Þá stundaði hann nám í gerð mósaíkmynda í Ravena í tvö ár og vann síðan við mósaík- myndir í nokkur ár. Erró dvaldi í ísrael í átta mánuði árið 1957 en flutti næsta ár til Parísar þar sem hann kynntist flestum fremstu Usta- mönnum surrelista-hreyfingarinn- ar. Hann hóf 1958 að vinna sam- klippimyndir samhhöa málverkinu en eftir kynni sín af bandarísku popp-stefnunni 1962 hóf hann að nota samklippumar í málverk sín og notaði þá myndvörpur í síaukn- um mæU. Á sjöunda áratugnum skrifaði hann undir tímabundinn samning viö GaUery Schwartz í Mílanó og tók þá þátt í sýningum víðs vegar um Evrópu en starfaði aðaUega með gaUeríinu Saint Germain. Erró er óhemju afkastamikill Ustamaður en hann hefur unnið markvisst að því að þróa sína eigin sérstæðu mynd- gerð. Með hverju árinu hafa verk hans orðið eftirsóttari og sjálfur er hann í hópi virtustu myndUstar- manna álfunnar. Hann hefur að undanfornu dvaUð til skiptis í Thai- landi, París og á Mallorca. Kona Errós var ísraelsk, Myriam Bat-Josep, en þau sUtu samvistum. Dóttir þeirra er Tura, nemi í læknis- fræðiíParís. Hálfsystkini Errós, sammæðra, eru Láms Siggeirsson, b. á Kirkju- bæjarklaustri; Kristinn Siggeirsson, b. á Hörgslandi, og Gyða Sigríður Siggeirsdóttir, húsmóðir í Reykja- vik. Hálfsystkini Errós, samfeðra, eru Einar, leirkerasmiður í Reykjavík; Ingvi, vélvirki í Reykjavík; Auður, húsmóðir í Reykjavík; Ari Trausti, jarðfræðingur í Reykjavík, og EgiU, arkitekt í Reykjavík. Foreldrar Errós vom Guðmundur Einarsson frá Miðdal, myndhöggv- ari og málari í Reykjavík, f. 5.8.1895, d. 23.5.1963, og Soffia Kristinsdóttir, húsmóðir að Kirkjubæjarklaustri, f. 16.6.1902, d. 1.2.1969. Guðmundur var bróðir Sigríðar, móður Bjama Guðnasonar prófess- ors og Bergs lögfræðings, fóður Guðnaknattspyrnumanns. Guð- mundur var sonur Einars, b. í Mið- dal, bróður Eiríks, móðurafa Vigdís- ar forseta. Einar var sonur Guð- mundar, b. og hreppstjóra í Miðdal, Einarssonar, b. á Álfstöðum á Skeið- um, bróður Guðmundar, b. í Mið- dal, föður Jóns, hreppstjóra á Set- bergi, ættfoður Setbergsættarinnar. Bróðir Jóns var Sigurður, afi Ottós N. Þorlákssonar, fyrsta forseta ASÍ. Jón var faðir Ingveldar, langömmu Páls Jenssonar prófessors og Gunn- ars Kvaran hstfræðings. Önnur dóttir Jóns var Sigríður, langamma Harðar Sigurgestssonar, forstjóra Eimskips. Þriðja dóttir Jóns var Sig- urbjörg, amma Alfreðs Guðmunds- sonar, forstöðumanns Kjai vals- staða, Guðmundar Bjömssonar, prófessors og augnlæknis, og Ragn- arsJúlíussonar. Einar var sonur Gísla, b. á Álfs- stöðum, bróður Ingveldar, móður Ófeigs ríka á Fjalli, langafa Grétars Fells, forseta Guðspekifélagsins. Móðir Guðmundar hreppstjóra var Margrét, dóttir Hafliða, b. á Bimustöðum á Skeiðum, Þorkels- sonar og Vigdísar Einarsdóttur. Móöir Einars í Miðdal var Vigdís Eiríksdóttir. Móðir Guðmundar frá Miðdal var Valgerður, dóttir Jóns, formanns á Bárekseyri á Álftanesi, og Sigríðar Tómasdóttur, systur Margrétar, langömmu Einars Bene- diktssonar sendiherra. Soffia, móðir Errós, var dóttir Kristins, b. á Miðengi, Guðmunds- sonar, b. á Miðengi, Jónssonar, b. á Selfossi, Einarssonar, b. á Selfossi, Þorleifssonar á Selfossi Valdasonar, b. á Fljótshólum, Eiríkssonar. Móöir Sofiíu var Sigríður Bjama- dóttir, b. á Arnarbæli í Grímsnesi, Ögmundssonar, b. á Oddgeirshólum í Flóa, bróður Guðrúnar, móður Salvarar, langömmu Bjöms Th. Bjömssonar hstfræðings. Ögmund- ur var sonur Þorkels, b. á Heiðarbæ í Þingvahasveit, Loftssonar og Sal- varar Ögmundsdóttur, b. á Hrafn- kelsstöðum, Jónssonar, b. þar, Jóns- sonar, b. á Stóra-Núpi, Magnússon- ar, b. í Bræðratungu. Móðir Jóns var Þórdís Jónsdóttir (Snæfríður íslandssól). Móðir Bjarna í Amarbæli var Sig- ríður Bjamadóttir, b. í Hjálmholti Stefánssonar, b. í Árbæ í Holtum, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, ættfoður Víkingslækjar- ættarinnar. Móðir Sigríðar á Miðengi var Sig- ríður Stefánsdóttir, prests á Felh í Mýrdal, Stefánssonar; prest á. Stóra-Núpi, Þorteinssonar, prests á Krossi í Landeyjum, Stefánssonar. Móðir Stefáns á Felli var Guðný, systir Ástríðar, langömmu Þorláks 0. Johnsen kaupmanns, langafa Erró. Einars Laxness, framkvæmdastjóra Menningarstjóðs. Guðný var dóttir Þorláks, lögréttumanns að Móum á Kjalamesi, Gestssonar. Móðir Sigríðar í Arnarbæh var Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarprests í Sólheimaþingum, bróður Páls, rekt- ors og orðabókarhöfundar. Systir Ólafs var Valgerður, ættmóðir Bri- emsættarinnar. Önnur systir Ólafs var Hólmfríður, langamma Gunn- laugs Scheving hstmálara og Jóns, föður Torfa, fyrrv. skólastjóra Myndhsta- og handíðaskólans, en bróðir Jóns var Hálfdán stórkaup- maöur, faðir Gunnars, fram- kvæmdastjóra Fjárfestingarfélags- ins. Hólmfríður var einnig lang- amma Magnúsar, b. á Lágum, lang- afa Garðars Cortes óperustjóra. Þá var Hólmfríður langamma Margrét- ar, ömmu Eherts Schram ritstjóra, og Herdísar, langömmu Páls Magn- ússonar fréttastjóra. Ólafur var sonur Árna, prest í Holti undir Eyjafjöllum, Sigurðs- sonarogKristínar JakobsdóttUr,' systur Jóns, föður Jóns Espólín. Afmæli Stefán Jasonarson I _ I Stefán Jasonarson, fyrrverandi bóndi í Vorsabæ í Flóa, er sjötíu ogfimmáraídag. Stefán er fæddur og uppalinn í Vorsabæ í Gaulveijabæjarhreppi í Flóa og hefur átt þar heimili aha tíð. Hann stundaði nám í íþrótta- skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal veturinn 1937 til 1938, véturinn eftir í Héraðsskólanum á Laugarvatni og veturinn 1940 tíl 1941 í Námsflokkum Reykjavikur. Frá árinu 1943 til 1988 var Stefán bóndi í Vorsabæ. Hann býr enn í Vorsabæ en sonur hans og tengda- dóttir hafa tekið við búinu. Stefán hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum sveitar sinnar og hér- aðs. Hann var formaöur Ung- mennafélagsins Samhygðar frá 1936 til 1964, að einu ári undan- skildu. Formaður kirkjukórs Gaul- veijabæjarsóknar var hann frá 1955 til 1985 og formaður áfengi- svamanefndar 1956 tíl 1984. Stefán var hreppstjóri í sínum hreppi frá 1963 th 1984. Hann sat í fuhtrúaráði Mjólkurbús Flóa- manna frá 1950 th 1989 og Mjólk- ursamsölunnar 1968 th 1989. í stjórn Búnaðarsambands Suður- lands frá 1959 th1987 og formaöur frá 1969 th 1987. í Laugardælanefnd Búnaðarsambandsins frá 1969 og síðar í stjóm thraunastarfsins á Stóra-Ármóti th 1988. í stjóm Skóg- ræktarfélags Árnesinga var Stefán frá 1966011986. Stefán var formaður landsmóts ungmennafélaganna á Laugarvatni 1965 og í framkvæmdanefnd land- búnaðarsýningarinnar á Selfossi 1978. Hann hefur unnið mikið fyrir klúbbana Öruggur akstur, setið þar í stjómum og rætt um umferðar- mál á fundum í flestum byggöar- lögumlandsins. Stefán var í framkvæmdanefnd heimhdarkvikmyndarinnar „í dagsins önn“ frá 1950 til 1987. Hann hefur verið fréttaritari Útvarpsins frá 1958 og Sjónvarpsins frá stofn- un þess. Hann hefur auk þess skrif- að fjölda greina í blöð og tímarit og flutt erindi í útvarp. Stefán er sonur Jasonar Stein- þórssonar frá Arnarhóh í Flóa og konu hans, Helgu ívarsdóttur frá Vorsabæjarhjáleigu. Jason var fæddur 12. febrúar 1872 og lést 27. mars 1952. Hann var bóndi í Vorsabæ frá 1903 th 1943 en bjó seinastáSelfossi. Helga húsfreyja í Vorsabæ, mcðir Stefáns, var fædd 20. maí 1871 og lést 7. júní 1917. Fósturmóðir Stef- áns var Kristín Helgadóttir frá Súluholti í Flóa, fædd 29. nóvember 1884 og lést 2. júlí 1977. Hún var húsfreyja í Vorsabæ frá 1918 th 1943. Stefán átti fjögur alsystkini en þau em nú öll látin. Þau vom: Þórður, byggingameistari í Reykjavík, fæddur 11. maí 1907, lát- inn 1. september 1980. Kona hans var Jóna Þórðardóttir og áttu þau tvöbörn. Sigríður, húsfrú á Selfossi, fædd 15. nóvember 1908, látin 6. mars 1988. Maður hennar var Júníus Sig- urðsson verkamaður. Hann er einniglátinn. ívar Kristinn, bóndi og hrepp- stjóri á Vorsabæjarhóh í Flóa, fæddur 5. júh 1910, látinn 28. júh 1963. Kona hans var Guðmunda Jónsdóttir, fædd 29. október 1922. Þauáttusjöböm. Steinþór, framkvæmdastjóri á Stokkseyri, fæddur 5. ágúst 1911, látinn 24. ágúst 1955. Kona hans var Dagbjört Sigurðardóttir og áttu þau fjögurböm. Stefán á þijú hálfsystkini, sam- feðra.Þaueru: Helga, húsfrú í Reykjavík, fædd 20. janúar 1920. Maður hennar er Egill Hjálmarsson bifvélavirki og eigaþauþrjúbörn. Helgi, pípulagningameistari í Reykjavík, fæddur 9. desember 1921. Kona hans er Áslaug Sigur- geirsdóttir og eiga þau tvö börn. Guðmundur, rafvirkjameistari í Reykjavík, fæddur 10. október 1925. Kona hans er Bjarney Ólafsdóttir og eiga þau sex börn. Stefán kvæntist 29. maí 1943 Guð- finnu Guðmundsdóttur frá Túni í Hraungerðishreppi, fæddri 3. sept- ember 1912. Hún er dóttir Guð- mundar Bjarnasonar og Ragnheið- ar Jónsdóttur, búenda í Túni. Stefán og Guöfinna eiga fimm börn.Þauera: Stefán Jasonarson. Helgi, bóndi og vömbílstjóri í Vorsabæ 2, fæddur 26. aprh 1945. Kona hans er Ólafía Ingólfsdóttir bóndi, fædd 30. maí 1952. Börn þeirra era Kristín Þóra, Stefán, Guðfinna og Berghnd. Ragnheiður, íþróttakennari og húsfrú á Akureyri, fædd 1. júh 1946. Maður hennar er Tómas Búi Böðv- arsson slökkvihðsstjóri, fæddur 14. nóvember 1942. Synir þeirra eru BöðvarogHlynur. Kristín, handavinnukennari og húsfrú, Hurðarbaki í Vilhngaholts- hreppi, fædd 18. september 1948. Maður hennar er Olafur Einarsson bóndi, fæddur 19. september 1945. Börn þeirra eru Eyrún, Stefán, Fanney og Guðmunda. Unnur, fóstra og húsfrú í Kópa- vogi og varaþingmaður Framsókn- arflokksins, fædd 18. janúar 1951. Maður hennar er Hákon Sigur- grímsson framkvæmdastjóri Stétt- arsambands bænda, fæddur 15. ágúst 1937. Synir þeirra em Finnur ogGrímur. Sveinbjörg, tækniteiknari og húsfrú í Borgamesi, fædd 17. ágúst 1956. Maður hennar er Hans Lind Eghsson mjólkureftirhtsmaður, fæddur 20. júní 1957. Sonur þeirra er HeiðarLind. Stefán verður að heiman á af- mæhsdaginn. Til hamingju með afmælið 19. september 90 ára Þórdis G Bridde, Bárugötu 8, Reykjavik. 85 ára Hólmfriður ÁrnadóttLr, „Fríða í Búðinni á Raufarhöfn“, Vífilsgötu 6, Reykjavík. 75 ára Þórarinn Þórarinsson, Hofsvahaötu 57, Reykjavík. 70 ára Ásta Guðmundadóttir, Stóru-Seylu, Seyluhreppi. Kári Hermannsson, Grundargerði 7A, Akureyri. Magnús Indriðason, Húsey, Seyluhreppi. 60 ára Guðjón Jónsson, Sætúni 8, Suðureyri. Tryggvi Sigurðsson, Grundartanga 4, Mosfehsbæ. Þorsteinn Þórisson, Hamrahlíð 25, Reykjavík. 50 ára Þórunn Ólafsdóttir, Amarsandi 6, Hehu. ólöf Ingibjörg Sigurðardóttir, Gljúfraseli 3, Reykjavik. Steinunn Sigriður Jónasdóttir, Heiöarlundi 7H, Akureyri. Kóri Eðvaidsson, Munkaþverárstræti 17, Akureyri. 40 ára Hildur Biering, Stífluseh 5, Reykjavík. Guðrún Níelsdóttir, Hlföargötu 8, Fáskrúðsfirði. Guðmundur ó. Baldursson, Gljúfraseli 11, Reykjavík. Jón Guðmundsson, Sævarlandi 20, Reykjavik. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, Álfalandi 15, Reykiavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.