Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Page 2
2
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
Fréttir
Skipverji lést og miklar skemmdir urðu þegar Hekla lenti í brotsjó í mynni Húnaflóa:
Af ar óhugguleg sjón sem
blasti við manni um borð
- sagði Guðmundur Einarsson, forstjóri Ríkisskipa, eftir sjóprófin í gærkvöldi
„Þaö var afar óhugguleg sjón sem
blasti viö manni um borö í Heklu.
Þaö kom strax upp í huga mér hversu
ótrúlegt þaö væri aö ekki fór verr í
þessum hamförum en maður er
harmi sleginn vegna þess sem gerst
hefur,“ sagöi Guömundur Einarsson,
forstjóri Ríkisskipa, í samtali viö DV
í gærkvöldi.
Guömundur hafði þá verið við-
staddur íjögurra tíma lokuð sjópróf
hjá sýslumannsembættinu á Hólma-
vík vegna brotsjóar sem strandferöa-
skipið Hekla fékk framan á sig á
laugardag. Lést einn skipveiji, af 10
manna áhöfn skipsins, af völdum
áverka en aðrir sluppu meö minni-
háttar meiðsl. Miklar skemmdir
uröu á yfirbyggingu skipsins.
Hekla var stödd um 6 sjómílur
austur af Óðinsboða í mynni Húnaf-
lóa þegar brotið gekk yfir um kiukk-
an 14 á laugardag. ,Kom brotið beint
framan á skipið og olli miklum
skemmdum í brúnni og vistarverum
skipverja á neðstu hæð yfirbygging-
arinnar. Auk þess gekk yfirbygging-
in inn aö framan og mastur fremst á
skipinu brotnaði.
Þrátt fyrir ringulreiöina eftir að
brotið gekk yfir voru skipverjar fljót-
ir að átta sig og báðu um hjálp. Nokk-
ur skip voru stödd í nágrenninu en
það var Kyndill sem varð fyrstur á
vettvang klukkan 17.20. Lóðsaði
Kyndill Heklima inn til hafnar á
Hólmavík þar sem skipin lögðust að
bryggju klukkan rúmlega níu um
kvöldið.
Eins og eftir sprengingu
„Brotsjórinn kom skipverjum gjör-
samlega í opna skjöldu þar sem veð-
ur var ekki það slæmt að menn
reiknuðu með slíkum hamförum.
Brotnuðu flestir gluggar á framhliö
yfirbyggingarinnar með þeim afleið-
ingum að sjórinn æddi inn í káetur
skipverja á neðstu hæð og brúna.“
Krafturinn var þvílíkur að veggir
og hurðir káetanna, sem lágu fram á
gang inni í yfirbyggingunni, möl-
brotuðu. Mikill loftþrýstingur mun
hafa myndast þegar sjórinn æddi inn
í skipið þannig að hurð einnar káetu
innan við ganginn brotnaði og innri
veggur þeirrar káetu brotnaði síöan
inn í eldhúsið þar inn af. Þannig gekk
brotið á einum stað í gegnum einn
glugga, tvær hurðir og loks einn
vegg. Fylltust káetumar og gangur-
inn af sjó og ýmsu lauslegu sem brot-
ið reif með sér. Var eins og að
sprengja hefði sprangið um borð.
Einn skipveija mun hafa verið
staddur á ganginum framan við
fremstu káeturnar þegar brotið gekk
yfír en hann fannst síöar á gangin-
um. Var hann borinn inn í messa
aftar í yfirbyggingunni þar sem hlúð
var að honum. Lést maðurinn áður
en komið var að landi á laugardags-
kvöld.
Nær allir gluggar í brú skipsins
mölbrotnuðu þegar brotið gekk yfir.
Eyðilögðust tæki og innréttingar
þegar brúin fylltist af sjó. Reyndar
komst lórantæki í lag aftur og komp-
ásinn var auk þess í lagi.
Grynningar
„Það var ekki það vont veður eða
illt í sjóinn að menn gætu átt von á
brotsjó. Menn hallast helst að því að
aðstæður við Óöinsboða hafi ráðið
mestu um hvemig fór. Það eru mikl-
ar grynningar í kringum Óðinsboða
og við slikar aðstæður geta magnast
upp brotsjóir. Þaö hlýtur að vera um
slíka skýringu að ræða,“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagði að ekki væri hægt að
meta skemmdimar á skipinu en eftir
því sem best væri séð væri farmur
skipsins óskemmdur. Því hagaöi
þannig til að yfirbyggingin rís hátt
frammi á skipinu og því gætti brots-
ins ekki aftan við hana.
Frá sýslumannsembættinu á
Hólmavík verður málið sent til af-
greiðslu hjá ríkissaksóknara, rann-
sóknarlögreglu og sjóslysanefnd.
-hlh
Einn skipverja á Heklu:
„Það var eins og
sprenging hefði orðið“
„Ég lá uppi í koju þegar brotið gekk
yfir skipið. Skyndilega var eins og
að mikill loftþrýstibylgja skylli inn í
herbergið og ég vissi ekki fyrr en ég
horfði inn um stórt gat á eldhús-
veggnum. Það var eins og að spreng-
ing hefði orðið. Brotið kom manni
gjörsamlega að óvörum," sagði einn
skipveija á Heklu við DV.
Skipveijinn lá í káetu á milli
fremstu káetanna og eldhússins.
Þegar brotið skall á skipinu raddist
sjór inn í káetuna beint á móti hans
káetu og virðist hafa myndað við þaö
gífurlega loftþrýstibylgju. Huröin á
fremstu káetunni mölbrotnaöi og
hurðin á káetu skipveijans, beint á
móti, var heldur engin hindrun.
Æddi brotið í gegnum herbergið og
inn í eldhúsið.
Það virðist hafa verið lán þessa
skipveija að hann lá uppi í koju og
varð þannig ekki fyrir brotinu á leið
þessígegnumherbergið. -hlh
Ríkharöur Másson, sýslumaður Strandamanna, stjórnaði sjóprófunum á
Hólmavik í gær. Meó honum er Guðmundur Einarsson, forstjóri Rtkisskipa
sem eiga Hekluna. DV-mynd BG
Einn skipverja á Heklu lá i kojunni til vinstri á þessari mynd þegar loftþrýstingsbylgja æddi skyndilega inn í gegn-
um hurðina og áfram í gegnum vegginn og inn i eldhúsið. Má skipverjinn teljast heppinn að hafa legiö í kojunni
þar sem herbergið er eins og eftir sprengingu. Leifarnar af hurðinni liggja ásamt ýmsu lauslegu á gólfinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Tryggvi Sveinsson, skipstjóri á Heklu:
Hefði aldrei truað
þessu að óreyndu
„Þetta var alveg óskaplegt. Eg
hef aldrei lent 1 nokkra þiessu líku
og hefði aldrei tiúað því aö óreyndu
aö svona kraftur gætá leyst úr læð-
ingi. Brotið skall eins og fjaJl yfir
skipið,“ sagöi Tryggvi Sveinsson,
skipstjóri á Heklu.
Tryggvi hafðist viö á Hótel Matt-
hildi á Hólmavík, ásamt öðram
sJdpveijum á Heklu, meðan sjópróf
vegna brotsjóarins stóðu yfir hjá
sýlsumanni. Þaö var þungt yfir
skipveijum og greinilegt aö at-
burðir liðins sólarhrings höföu.
markaö sín spor í vitund þeirra.
Þeir höföu horft á eftir félaga sín-
um og voru að vonum ekki tilbúnir
aö rifja upp atburðina á Heklu M
deginum áður.
.JMenn hafá sem stendur hvorki
þrek né vilja til að tjá sig um þenn-
an sorglega atburð,“ sagði Tryggvi.
-hlh