Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
3
Fréttir
Fjárveitinganefnd Alþingis:
Landsbyggðin fær fertug-
falt vægi á við Reykjavík
- á síðustu 30 árum sem eru þó uppgangstími Reykjavíkur í nefndinni
í fyrsta skipti í mörg ár eignuð-
ust Reykvíkingar fulltrúa í íjárveit-
inganefnd Aiþingis þegar Ásgeir
Hannes Eiríksson, þingmaður
Borgaraflokksins, tók sæti í nefnd-
inni í þingbyrjun.
í fjárveitinganefnd hittir Ásgeir
Hannes fyrir landsbyggðarþing-
menn. Það eru þau Sighvatur
Björgvinsson af Vestfjörðum,
Margrét Frímannsdóttir af Suðurl-
andi, Alexander Stefánsson af
Vesturlandi, Pálmi Jónsson af
Norðurlandi vestra, Friðjón Þórð-
arson af Vesturlandi, Málmfríður
Sigurðardóttir af Norðurlandi
eystra, Ólafur Þ. Þórðarson af Vest-
Qörðum og Egill Jónsson af Aust-
urlandi.
Ásgeir er fyrsti þingmaður Reyk-
víkinga í nefndinni síðan Friðrik
Sophusson sat þar veturinn 1982 til
’83. Friðrik sat fjögur ár í fjárveit-
inganefnd en áður hafði Ellert B.
Schram setið þar sem þingmaður
Reykvíkinga. Friðrik sat þar í tvö
ár en þegar Ellert settist í fjárveit-
inganefnd árið 1977 hafði Reykja-
vík ekki átt fulltrúa þar.
Ef tekið er 30 ára tímabil, eða aft-
ur til 1959, sést að Reykvíkingar
eiga aðeins sjö nefndarstörf af 279
en þá er reiknað á þann hátt aö 9
störf falli til á hverju ári. Lands-
byggðin fær hins vegar 272 nefnd-
arstörf í fjárveitinganefnd. Það
þýðir að landsbyggðin fær nær fer-
tugfalt vægi í fjárveitinganefnd
umfram Reykjavík. Reykjavík fær
aðeins 2,5% af þeim nefndarstörf-
um sem bjóðast í fjárveitinganefnd
Þetta er ekki í sarnræmi við fjölda
kosningabærra manna í Reykjavík.
Þeir voru við síðustu alþingiskosn-
ingar 67.387 talsins eða um 40%
kosningabærra manna. Sam-
kvæmt því væri eðlilegt að Reyk-
víkingar ættu að jafnaði íjóra
nefndarmenn.
Ráðstafa 2% fjárlaga
Fjárveitinganefnd Alþingis
komst á laggirnar 1934 þegar af-
greiðslu fjárlaga var breytt. í stað
þess að aígreiða þau í báðum deild-
um var farið að afgreiða þau í sam-
einuðu þingi.
Fjárveitinganefnd hefur í sjálfu
sér ekki mikil áhrif á lokaniður-
stöðu íjárlaga - aðeins er taliö að
um 2% fjárlaga fái breytingu þar.
Nefndin hefur hins vegar áhrif á
skiptingu framkvæmdarfjár en það
er það fjármagn sem fer meðal ann-
Hlutfall Reykvíklnga Hlutfall Reykvíkinga
í fjárveitingarnefnd á á kjörskrá viö sföustu
Alþingi síöan 1959 alþingiskosningar
■ Reykjavik □ Aörir landshlutar
ars til hafnarframkvasmda, skóla-
mála og íþróttamála. Á þessu sviði
getur orðið mikilvægt fyrir við-
komandi kjördæmi að hafa menn í
nefndinni þótt þeir segi sjálfir að
unnið sé eftir frekar fastmótuðum
hlutfallstölum.
Þetta eru liðir sem varða dreif-
býhð og það er ótvírætt að það kem-
ur til kasta fjárveitinganefndar-
manna þegar fjármagninu er út-
hlutað út í kjördæmin.
„Meiri háttar menn“
Þrátt fyrir að fjárveitinganefnd-
armenn hafi ekki mikil áhrif á nið-
urstöðu fjárlaga þá er ljóst að
nefndarmenn njóta virðingar um-
fram menn annarra nefnda. „Þetta
erú meiri háttar menn,“ sagði mað-
ur kunnur þingstörfum og annar
bætti við að hér væri um að ræða
menn sem hefðu ákveðið „status
syrnbol". Þeir þættu mikilvægir í
sínu kjördæmi og það sæist best á
því að oft hefði orðið harðvítug
barátta innan flokka um sæti í
nefndinni.
Einn þeirra sem setiö hafa í
nefndinni lengi er Egill Jónsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins á
Austurlandi. Hann vildi ekki gera
mikið úr áhrifum nefndarmanna
og sagði að þau hefðu alltaf verið
ofmetin.
„Ekki farið illa
með Reykjavík“
„Ég tel það fjarri því að þarna sé
verið að fara illa með Reykjavík
enda pössum við vel upp á höfuð-
borgina," sagði Egill Jónsson en
hann hefur lengi setið í flárveit-
inganefnd.
„Það er nú kannski erfitt að út-
skýra af hverju þessu er svona
háttað í fjárveitinganefnd en það
hefur stundum verið þannig að
þegar flokkur hefur fengið ráð-
herra úr einu kjördæmi þá fær það
sama kjördæmi ekki fulltrúa í fjár-
veitinganefnd. Það gæti verið hluti
af skýringunni. Þá má nefna að hin
stóra nefnd á Alþingi, utanríkis-
málanefnd, hefur síður lands-
byggðarmenn innan sinna raöa.“
-SMJ
FAVOW?,
« «■ t® BYIUA
tónM-sins 1» . _ - (DN- v*- i nuga aö íavor {imm gira, 1 ^ %
ftáÞ^^lSarmeöÞilum
saaðíavorií
roanna, hmm dy - og viðlanum
30 mán. (21/ís aT'’
ÍÉJ
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
0PIÐ ALLA VIRKA DAGA
KL. 9-12 0G 13-18
LAUGARDAGA KL. 13-17
JOFUR - ÞEGAR ÞU KAUPIR BIL