Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
Fréttir
Skemmdar-
verk í
skólahúsi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Miklar skemmdir voru unnar í
Gagnfræðaskóla Akureyrar í gær-
kvöldi og hefur ekki hafst uppi á
-þeim sem þar voru að verki.
Kennari við skólann kom á staðinn
upp úr miðnætti og tilkynnti inn-
brotið til lögreglu. Brotist hafði veriö
inn á skrifstofu skólastjóra og ritara,
inn í ljósritunarherbergi og fleiri
staði í skólahúsinu, dyrakarmai
voru brotnir og fleiri skemmdir unn-
ar. Ekki var ljóst í morgun hvort ein-
hverju hafði verið stolið.
Kennarinn sem varð innbrotsins
var kom að skólanum um kl. 20.30 í
gærkvöldi og þá var allt í góöu lagi,
og er því ljóst að innbrotið hefur
verið framið eftir þann tíma en fyrir
miðnætti.
Björgunarbátur
náði í veikan
mann á togara
Björgunarbátur frá Sandgerði náði
í veikan skipveija um borð í skuttog-
arann Svein Jónsson í nótt er hann
var staddur skammt frá Reykjanesi.
Ferðin á bátnum gekk mjög vel og
var maðurinn kominn undir læknis-
hendur um tveimur tímum eftir að
útkallið barst til björgunarsveitar-
innar í Sandgerði. Veður var sæmi-
legt á þessum slóðum.
Maðurinn fékk bráða magakveisu.
Sá kostur var valinn að senda björg-
unarbátinn að ná í manninn í stað
þess að togarinn kæmi sjálfur til
hafnar þar sem báturinn er mjög
hraðskreiður. Báturinn er í eigu
björgunarsveitarinnar Sigurvonar í
Sandgerði. -ÓTT
Reykjanesbraut:
Tekinn á 157
Lögregla í Keflavík tók ökumann
fyrir að aka á 157 kílómetra kraða á
Reykjanesbrautinni aðfaranótt laug-
ardagsins. Ökuþórinn var sviptur
ökuréttindum á staðnum.
Að sögn lögreglunnar er þetta
hraðskreiðasta ökutæki sem hún
hefur stöðvað á Reykjanesbrautinni.
Áöur hafa mótorhjól mælst á meiri
hraða. -GK
Hurð og veggur þessarar káetu í Heklu splundraðist þegar sjórinn braust
inn um gluggann og inn i herbergið. Eins og myndin gefur til kynna var
það gífurlegur kraftur sem leystist ur læðingi þegar brotið gekk yfir skipið.
Myndin er tekin á ganginum framan við fremstu káeturnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Átta landa keppnin:
fisland í fjórða sæti
ísland hafnaði í 4. sæti í átta Danir unnu keppnina, fengu 27,5
landa keppninni í skák sem lauk vinninga en V-Þjóðverjar fengu 27
nú um helgina í Danmörku. í síð- vinninga. Pólveijar fengu 26 vinn-
ustu umferö gerði íslenska sveitin inga en íslendingar 21,5. Svíar feng-
jafhtefli við V-Þjóðverja, 3-3. Jó- u 20,5 og Norömenn fengu 18 vinn-
hann Hjartarson vann sína skák inga,Finnlandl7vinningaogFær-
en GuöMður Lifja tapaði og aörir eyingar ráku lestina, fengu 10,5
gerðu jafntefli. vinninga. -SMJ
Kyndill hafði
leitað vars
vegna veðursins
„Okkur barst beiðni um hjálp frá
Heklu klukkan 14.10. Þá lágum við í
vari inni á Reykjarfirði. Höfðum við
verið á leið til Bolungarvíkur en ég
ákvað að snúa við og leita vars á
laugardagsmorgun. Mér leist ekkert
á veðrið. Þegar hjálparkallið barst
fórum við náttúrlega af stað og vor-
um komnir að Heklu klukkan 17.20.
Það var ekki reynandi að fara um
borð en það varð úr að við sigldum
aðeins á undan Heklu og lóðsuðum
skipið til hafnar á Hólmavík,“ sagði
Grétar Bjamason, skipstjóri á
Kyndli, við DV.
Kyndill var eitt þriggja skipa sem
voru í nágrenni Heklu þegar hún
fékk á sig brotsjó eftir hádegi á laug-
ardag. Grindvíkingur og Guðmund-
ur VE voru ekki langt undan en það
var Kyndill sem kom fyrst að Heklu,
og Guðmundur VE skömmu síðar,
og Kyndill lóðsaði hana til hafnar.
„Við lýstum skipin upp svo við
sæjum milli skipanna á leiðinni. Sigl-
ingin gekk vel og við lögðumst að
bryggju rúmlega níu um kvöldið."
-hlh
Strandferðaskipið Hekla var statt um 6 sjómílur austur af Óðinsboða (1), á
leið frá Akureyri til ísafjarðar, þegar brotsjór gekk yfir skipið að framan
um klukkan 14 á laugardag. Þá er Kyndill staddur í vari inni á Reykjarfirði
(2). Hekla sendi út hjálparbeiðni kiukkan 14.10 en skipin mættust klukkan
17.20 (3). Þá hafði Hekla siglt inn flóann fyrir eigin vélarafli. Kyndill lóðs-
aði síðan Heklu inn til Hólmavikur (4) þar sem skipin lögðust að bryggju
klukkan rúmlega níu á laugardagskvöld.
Skipverjinn sem lést
Þegar blaðið fór í prentun hafði skipiðHeklafékkásigbrotsjóálaug-
ekki náðst í alla aöstandendur skip- ardag. Því er ekki hægt að birta nafn
veijans sem lést eftir að strandferða- hans að svo stöddu. -hlh
í dag mælir Dagfari_____________
Útvarpsfrelsi
Dagfari er mikill áhugamaður um
fijálst útvarp. Dagfari hefur alltaf
verið þeirrar skoðunar að það sé
ófært að hafa bara eina stöö og eitt
lag og eina þjóðarsál. Þess vegna
fagnaði hann þeim áfanga sem náð-
ist þegar einokun Ríkisútvarpsins
var rofin og fleiri fóru að senda út.
Fyrst kom Bylgjan, svo kom Stjam-
an, næst kom Rót og Útrás og FM96
og er þá ekki rás tvö upptalin. Dag-
fari hafði sig allan í frammi að
hlusta á allar þessar stöðvar, enda
trúr sínum málstað. Þetta kom
heldur ekki svo mjög aö sök vegna
þess að það var sama hvaö Dagfari
hlustaði á margar stöðvar, þær
voru allar eins. Sama tónlistin var
leikin í öllum stöðvurium, sömu
kverólantamir hringdu inn og
sömu plötusnúðamir sátu við fón-
inn.
Þetta er þó ekki alveg rétt því
Rótin var yfir þaö hafin að leika
sömu popplögin og hinir. í staðinn
fyrir dægurlögin og fimmtíu vin-
sælustu lögin spila þeir á Rótinni
sömu viðtöhn og sömu samtals-
þættina daginn út og daginn inn
og um tima var maður farinn að
halda að einhver í hljóðstofunni
hefði gleymt að slökkva á tækjun-
um þangað til Dagfari las það ein-
hvers staðar að þetta væri dag-
skrárstefna til að spara upptökur.
Eins er það með Alfa, kristilegu
útvarpsstöðina. Hún leikur ekki
popplög nema þau fjalli um Krist
og hefur þann kost fram yfir hinar
útvarpsstöðvarnar að enginn þarf
að hlusta á þessa stöð.
Nú era sumar þessara útvarp-
stöðva aö myndast við að kynna
fjölbreytta dagskrá hjá sér og
stundun nægir það eitt að lesa þess-
ar dagskrár í blöðunum til að kom-
ast í gott skap. Á fóstudaginn var
dagskráin á Stjörnunni til að
mynda þannig að klukkan ellefu
vora allir komnir í helgarskap.
Klukkan fimmtán var þulurinn
sagður á útopnu og klukkan nítján
var ekkert kjaftæði á dagskrá. Um
miðnætti var Stjarnan komin í
partístuð og klukkan íjögur um
nóttina var einhver Amar Alberts-
son sá hressasti á landinu og fer í
ljós þrisvar í viku.
Þeir hjá FM96 eru þó ekkert að
hafa fyrir því að segja manni í
hvaða skapi þeir era eða hvenær
maður á að vera kominn í parti-
stuð.
Dagskráin hjá þeim er svona;
13.00 Amór Bjömsson. 15.00 Finn-
bogi Guðmundsson. 17.00 ívar Guð-
mundsson. 19.00 Guðný Mekkinós-
dóttir. 22.00 Ámi Vilhjálmur Jóns-
son. 3.00 Árnar Þór Óskarsson.
Dagfari verður aö játa fáfræði
sína og viðurkenna að þetta merki-
lega fólk, sem dagskráin fjallar um,
hefur aldrei verið nefnt í mann-
kynssögunni hans. Ríkissjónvarpið
ætlar að gera dagskrá um Jónas frá
Hriflu og þann mann hefur Dagfari
heyrt minnst á, en ekki Guðnýju
Mekkinósdóttur eða Arnór Bjöms-
son. Er hér með beðist afsökunar
á því.
Með hliösjón af því hversu fjöl-
þreyttar þessar dagskrár era og
hversu merkilegar persónur það
era sem fram koma í þessum út-
varpsstöðvum er vel skiljanlegt
þótt ungir íjármálamenn í Reykja-
vík takist nú á um það hver eigi
hvaða stöð, hver sameinast hveij-
um og hver stofnar næstu útvarps-
stöð. Það hijóta að vera mikhr pen-
ingar í þessu og eru reyndar svo
miklir að þeir era ekki búnir að
telja þá þegar stöðvar eru samein-
aðar. Hvorki það sem úti er né
heldur það sem inni er enda kom
í ljós að vangoldnar skuldir upp á
þijátíu milljónir fundust ekki fyrr
en eftir sameiningu Bylgjunnar og
Stjömunnar og þá gátu þeir ekki
sameinast um að borga þær.
Stjarnan fór á hausinn og spratt
jafnharðan upp aftur og er sjálfsagt
rekin fyrir skuldirnar vegna þess
að lánardrottnarnir höfðu ekki efni
á því að tapa skuldunum. Þetta
þóttu svo góð tíðindi í bransanum
að enn var ný stöð stofnuð sem
heitir Aðalstöðin af því að hún er
aðalstöðin. Þegar fjármálamenn sjá
að það er hægt að reka útvarps-
stöðvar með því að fara á hausinn
án þess að fara á hausinn þá er
þetta pottþéttur bisness.
Nú kemst maður í partístuð og
helgarstuð og hlustar á ekkert
kjaftæði á einum sjö stöðvum í einu
og er furða þótt þjóðin hafi beðið
um þetta frelsi? Maður vonar bara
í einlægni aö enn séu til plötusnúð-
ar til að sinna þessum göfugu og
fjölbreyttu dagskrám!
Dagfari