Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
Útlönd
Byggingar og mannvirfci i borginni Detong t skemmdust mikiö þegar
Simsmynd Reuter
Sextíu þúsund manns eru nú heixnilislaus í noröurhluta Kina í Kjölfar
nokkurra öflugra jarðskjálfta sem gengu yfir í siðustu viku og urðu tutt-
ugu og níu aö bana. í fréttum kínverskrar fréttastofu í gær sagði að nokk-
ur hundruð hefðu slasast í jaröskjálftunum. Sjö jarðskjálftar gengu yfir
Shanxi og Heibei héruð snemma á firamtudagsmorgun. Mældist sá sterk-
asti 6,1 á Richterskvaröa. Vestrænir björgtmarraenn segja að kínverskir
embættismenn telji að allt að ellefu þúsund hús hafi jafnast viö jörðu.
Öfgasinnaðr hægrimenn vinna á
Svo virðist sem kristUegir demókratar, flokkur Helmuts Kohls, kansl-
ara V-Þýskalands, muni tapa stórum, allt að tíu prósentum á sumum
kjörstöðum, í sveitarstjómarkosningum sem fram fóru í Baden-Wúrtem-
berg i gær. Repúblikanaflokkurinn, flokkur öfga-hægrisinna undir sljórn
fyrrum SS-foringja, virðist hins vegar munu bæta venúega við sig.
Samkvæmt spám sem byggðar voru á fyrstu tölum í fjórum stórum
borgum munu Repúblikarnar vinna allt að fimm prósent atkvæða sem
nægjr þeim tii að tryggja sér sæti í bæjar- eða borgarráði
Sfsulu vNI róttækar
Walter Sisulu, sem látinn var
laus úr fangelsi í Suður-Afríku ný-
verið, sagöi í viötali við tímaritið
Time, sem birt var í gær, að hann
væri hlynntur tafarlausum, rót-
tækinn breytingum til að binda
enda á kynþáttaaðskilnaöarstefnu
stjómvalda.
Sisulu var látínn laus, ásamt sjö
öðrum leiötogum blökkumanna í
S-Afríku, í síðu8tu viku. Flestír
höfðu þeir verið í fangelsi í rúman
aldarfjórðung, ásakaðir um að vfija
steypa sfjóm hvíta minnihlutans í
Pretóríu.
í viðtalinu sagði Sisulu að þar tíl
ríkisstjóm Suður-Afríku sest aö
samningaborðinu og samningar
nást, þar á meðal að endi verði Walter Sisulu, fyrir miðju, ásamt
bundinn á ofbeldi er engin leiö að Desmond Tufu erkiskupi
koma í veg fyrir þaö. Simamynd Reirter
Handtaka í Heinz-málinu
Rúmlega fertugur fyrrum lögreglumaður 1 Bretlandi var ákæröur á
laugardag fyrir samsæri. Er manninum, Rodney Whitelco, gefið að sök
aö hafa átt aöild að fjárkúgunartilraun gegn Heinz-fyrirtækinu með því
að fást viö krukkur af bamamat
Witcelco er sakaður um aö hafa, ásamt vitorösmanni, reynt að kúga
tvær milljónir dollara út úr Heinz-fyrirtækinu með því aö eitra bama-
mat. Mál þetta vaktí mikla athygli þegar fyrst varð vart eitrunar og gler-
brota í krukkum af Heinz-bamamat Fimm ungböm hafa veriö lögö inn
á sjúkrahúss vegna þessa og vitað er um þijú hundmð tilfelli þar sem
grunur leikur á um að átt hafi veriö við krukkur af bamamat, þar á
meðal komið fyrir glerbrotum í þeim. Fyrsta krafa fjárkúgaranna var
lögö fram fyrir ári, þegar fyrstu tUfellin komu upp. Lögregla telur aö
hinir meintu fjárkúgarar eigi aðild að minnsta kosti tólf tilfellum þar sem
vítissóti hefur verið settur í bamamatinn. Engin slys urðu á bömum.
Brasllískt sklp tekur nlðri
Brasllíska tlutningaskipiö Merkantil Mateca brotnaði f tvennt þeg
tókniðri vesturafNoregiumhelgina. Sfmaunynd
Þijátiu og átta þúsund tonna brasiliskt flutningaslcip, Merkantil Mateca,
tók niöri og brotnaði í tvennt vestur af Noregi um helgina. Öllum sem
um borö vom, 35 manna áhöfii, var bjargað að sögn talsmanns björgunar-
liðsins. Slæmt veður var þegar slysið átti sér stað.
Um borð í skipinu var farmur af súráli og 430 tonn af olíu. „Fyrstu
rannsóknir benda til að um smáleka geti veriö að ræða en við búumst
ekki við mikilli mengun,“ sagöi Willy Andersen, yfirmaöur mengunar-
stofnunar Noregs.
DV
Flugslysið 1 Hondúras:
Ástæður ókunnar
Rannsókn er nú hafin á tildrögum
flugslyssins í Teguicalpa í Honduras
á laugardag en þá fórst Boeing-727
farþegaflugvél. Rúmlega eitt hundr-
að og þrjátíu létust í slysinu. Vélin,
sem var í eigu Tan Sahsa-flugfélags-
ins frá Hondúras, var að koma frá
Costa Rica. Ástæður slyssins eru
ekki kunnar.
Brak úr vélinni er dreift um stórt
landssvæði um tuttugu kílómetra
suðaustur af Tegucigalpa. Vélin
rakst utan í fjall er hún var í aðflugi
að flugvellinum í Tegucigalpa. Miklir
vindar voru og lágskýjað þegar slysið
átti sér stað. Að sögn þeirra sem
komust lífs af átti það sér stað án
nokkurs fyrirboða.
Að sögn starfsmanna Rauöa kross-
ins hafa 132 lík fundist, þar á meöal
lík vinnumálaráðherra Hondúras.
En um borö í vélinni voru 146 manns
og komust fimmtán lífs af. Engin
opinber tala um fjölda látinna hefur
verið gefin upp.
Farþegarnir voru frá fimmtán
þjóðlöndum, þar á meöal N-Ameríku,
rómönsku Ameríku og Evrópu. Taliö
var aö nokkrir starfsmenn Samein-
uöu þjóðanna hafi verið meðal far-
þega en ekki er ljóst hvort svo var
og þá hver afdrif þeirra urðu.
Ekki er vitað til þess að nokkrar
alvarlegar bilanir hafi fundist í vél-
inni. Svarti kassinn svokallaði, þar
sem er að finna samtöl flugmanna
sem og samskipti við flugtum, verð-
ur sendur til Bandaríkjanna til frek-
ari rannsóknar. Talsmaður Tan Sah-
sa-flugfélagsins sagöi að ekki væri
að vænta lokaniðurstöðu úr þeim
rannsóknum fyrr en í fyrsta lagi að
mánuði liðnum. Tan Sahsa-flugfélag-
ið hafði vélina á leigu frá Continen-
tal-flugfélaginu bandaríska.
Áætlað var að hópur tæknimanna
frá Boeing-verksmiðjunum og emb-
ættismanna frá samgönguráðuneyti
Bandaríkjanna kæmi á slysstað í gær
til aö aðstoða við rannsóknina.
Reuter
Björgunarmenn leita í flaki flugvélarinnar sem fórst í Hondúras um helgina.
Simamynd Reuter
Palmemáliö:
Gagnrýni Lisbet
visað a bug
Ritstjórar Dagens Nyheter, Ex-
pressen og Aftonbladet vísuðu í gær
á bug fullyrðingum Lisbet Palme um
að fjölmiðlar hefðu borgað lögreglu-
mönnum fyrir upplýsingar. I sjón-
varpsviðtali á laugardagskvöld hélt
Lisbet því einnig fram að Hans Hol-
mér, fyrrverandi lögreglustjóri í
Stokkhólmi, hefði logið að henni.
Það var Lisbet sjálf sem bað um
að fá að koma fram í sjónvarpinu
vegna þess sem gerst hafði eftir að
Christer Pettersson, sem ákærður
var fyrir morðið á Olof Palme, var
sleppt. Kvaðst hún hafa fengið áfall
við fréttina að yfirréttur hefði komist
að annarri niðurstöðu en undirrétt-
ur. „Mér finnst ekki þægilegt þegar
ljósmyndarar Aftonbladets, Express-
ens og Dagens Nyheters elta mig á
röndum í hverfinu þar sem ég bý.
Ég treysti þeim ekki.“
Lisbet gagnrýndi harðlega bæði
lögreglumenn og fréttamenn vegna
þess sem gerst hefði á meðan á rann-
sókn morðsins stóð. Kvaðst hún hafa
sannanir fyrir því að fréttamenn
hefðu borgað lögreglumönnum fyrir
upplýsingar sem ekki hefðu átt að
birtast almenningi. „Ég veit að um
hefur verið að ræða svo háar upp-
hæðir að lögreglumanni hefur verið
boðið ársfrí á launum."
Benti Lisbet á að bílar fréttamanna
hafi fylgt á eftir lögreglubílum og
beinlínis eyðilagt rannsóknina.
Fréttamenn hefðu hitt vitni og sýnt
þeim myndir þannig að síðar hefði
ekki veriö hægt að nota þau.
Holmér lögreglustjóra sagði hún
hafa haft samband við blaðamann
þrátt fyrir loforð um að halda leyndu
því sem Lisbet sagði.
Lisbet Palme kvaðst enn vera
þeirrar skoðunar að Christer Pett-
ersson væri morðingi manns hennar.
TT
Hald lagt á
tonn af kókaíni
var gerö á býli um 300 kílómetra fyr-
ir norðan Bogota. Auk kókaínsins
fann lögreglan vélbyssu, tvær
skammbyssur og 110 þúsund dollara.
Við skyndiárásina var enginn hand-
tekinn.
Það var hins vegar í bænum Buc-
aramanga sem lögreglan handtók
systkini sem Bandaríkjamenn hafa
fariö fram á að verði framseld. Alls
hafa nú tíu meintir fíkniefnasalar,
sem eftirlýstir eru í Bandaríkjunum,
veriö handteknir í Kólumbíu. Fjórir
hafa verið framseldir síðan herferðin
gegn fíkniefnabarónunum hófst fyrir
tveimur mánuðum.
Enginn hinna handteknu tilheyrir
þó þeim hópi sem Bandaríkjamenn
vilja helst fá framselda.
A fóstudaginn voru tvö þúsund
manns gripnir í skyndileit lögregl-
unnar í Bogota. Lagði lögreglan hald
á fjölda skotvopna.
Reuter
Kólumbíska lögreglan tilkynnti um Kólumbíumenn sem eftirlýstir eru í
helgina að hún hefði lagt hald á yfir Bandaríkjunum.
tonn af kókaíni og handtekið tvo Kókaínið fannst þegar skyndiárás
Um tonn af kókaini fannst á búgaröi fyrir norðan Bogota um helgina.
Simamynd Reuter