Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 22
MÁNUDAGUR; 23. OKTÓBE^ 1988., 22 Iþróttir Sport- SIIITar Gífurleg spenna ríklr í sjötta riðli undan- keppni heimsmeist- arakeppninnar í knattspymu sem, elns og kunnugt er, fer fram á ítaiiu næsta sumar. í sjötta riðlinum hata Spánverjar þegar tryggt sér rétt tU að leika I úrslita- keppninni á nsesta ári en slag- urixm um annað sætið í riðlin- um og laust sæti í úrslitakeppn- inni stendur á miiii íra og Ung- verja. Irar standa betur að vigi, eru með 10 stig en Ungverjar 8. Bæði eiga liðin einn ieik eft- ir. írar leika gegn Möltu á Möltu en Ungverjar mæta Spánverjuxn á Spáni. Alþjóða knattspymusambandið hefur ákveðiö aö þessir leikir skuli fara fram á sama tíma, þann 15. nóvember. Hróp óhorfenda verða ekki hávœr hjó Feyenoord Hollenskir knattspyrnuunnend- ur eru ætíð að láta meira og meira aö sér kveöa á knattspymuvöll- um þar í landi og hafa menn mikl- ar áhyggjur i blómalandinu. Ný- lega hefur Ajax veriö dæmt úr Evrópukeppnum næsta árið og á dögunum var Feyenoord, liðið sem Pétur Pétursson lék með um tima, skikkað til að leika næsta helmaleik $inn fyrir tómum áhorfendastæðum vegna mikilla óláta sem uröu á heimavelli liðs- ins í leik gegn Fortuna Sittard. Hróp áhorfenda veröa þvi ekki hávær er Feyexxoord mætir Den Haag. Maxweli hyggst kaupa besta iið israels Breski auðkýfinguriim Robert Maxwell er ekki af baki dottiim og hyggst nú færa út kvíamar. Reyndar er erfitt fyrir menn að detta af baki sem geta sig vart hreyft fyrir seðlabúntum. Hann á sem kuxmugt er enska 1. deildar liðið, Derby County, og 2. deildar liðið, Oxford United. Sjálfur er Maxwell stjómarformaður þjá Derby og sonur hans, Kevin, er stjómarformaður hjá Oxford. Nú em taldar miklar lflcur á þvi að Robert Maxwell kaupi besta knattspyrnuliö ísraels, Betar Jerusalem. Maxwell er á förum til Ísrael8 þar sem hann mun ganga frá kaupsamningi við for- sætisráðherra ísraels, Yitzhak Shamir, leiðtoga Ukud banda- lagsins. Málum er nefnilega þannig háttað i ísrael að stjóm- málaflokkar eiga knattspymulið- ia Forráöamenn Betar Jerusal- em em mjög ánægöir með áhuga Maxwells og segja að það sé hneyksli að stjómmálaflokkar séu aö ráðskast með knatt- spymuliðin. S-Kóreumenn eru með pálmann í höndunum Um helgina fóru fram tveir leikir í Asíuriðli undankeppni HM í knattspymu. Norð- ur-Kóreumenn unnu Qat- arbúa, 2-0, og Suöur-Kóreu- mann unnu Kínvexja, 1-0. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Suður-Kóreumenn komist í lokakeppni heimsmeistara- keppninnar í annað skiptið í röö en Suöur-Kóreumenn tóku þátt í lokakeppninni í Mexíkó 1986. Staöan í AsíuriöUnum er nú þannig að Suður-Kórea er með 5 stig eftir 3 leflti, Samein- uðu arabísku furstadæmin eru með 3 stig eftir 2 leiki, Norður- Kóreumenn eru með 2 stig eftir 3 leikl, Qatar er meö 2 stig eftir 3 leiki og Saudi-Arabia rekur lestina með l stig eftir 2 leiki Urvalsdeildin í körfuknattleik: Fjör á Króknum - Keflavík sigraði Tindastól, 101-100, eftir framlengdan leik • Guðjón Skúlason skoraði 36 stig fyrir Keflvíkinga. Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkroki; Keflvíkingar bám sigurorð af Tinda- stólsmönnum í æsispennandi leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á Sauðárkróki í gær. Eftir framlengd- an leik sigruðu Keflvíkingar með eins stigs mun, 100-101. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 91-91. Tindastóll hafði forystu í hálf- leik, 53-48. Leikurinn jafn og spennandi Leikurinn var alian tímann jafn og spennandi og viðureignin því hin besta skemmtun fyrir áhorfendur sem fjölmenntu á leikinn, alls um 400 manns. Tindastólsmenn leiddu leik- inn lengst af en Keflvíkingar voru þó alltaf skammt undan. Magnús.Guðfinnsson tryggði ÍBK sigurinn í framlengingunni byrjuðu Tinda- stólsmenn mun betur og skoraði Bo Heiden sex stig í röð og staðan var því orðin 97-91. Virtist því ailt ætla að stefna í sigur heimanna. Keflvík- ingar voru á öðru máli og börðust kröftuglega. Þegar fimm sekúndur voru til leiksloka tryggði Magnús Guöfinnsson Keflvíkingum sigurinn með glæsilegri körfu. Bo Heiden var bestur í liði Tinda- stóls í annars jöfnu liði. Valur Ingi- mundarson, Sturla Örlygsson og Bjöm Sigtryggsson voru þónokkuð áberandi. Guðjón Skúlason og Nökkvi Sveinsson voru bestir í liði Keflvík- inga en baráttan var allsráðandi í liðinu, sérstaklega þegar á leikinn leið. • Dómarar leiksins voru Kristinn Albertsson og Leifur Garðarsson. • Stig Tindastóls: Bo Heiden 34, Valur Ingimundarson 25, Sturla Örl- ygsson 19, Björn Sigtryggsson 10, Sverrir Sverrisson 10, Pétur Sigurðs- son 2. • Stig Keflvíkinga: Guðjón Skúla- son 36, Nökkvi Sveinsson 19, Magnús Guðfinnsson 12, Falur Harðarsson 12, Sigurður Ingimundarson 7, Krist- inn Friðriksson 6, Albert Óskarsson 4, Einar Einarsson 4, Ingólfur Har- aldsson 1. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Þór kominn á blað - vann ÍR-inga á Akureyri í gærkvöldl með 97 stigum gegn 92 Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: Þórsarar unnu sinn fyrsta sigur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi er þeir lögðu ÍR-inga að velli á Akureyri með 97 stigum gegn 92. Sá sigur hefði getað orðið mun stærri eftir gangi leiksins því ÍR- ingar söxuðu mjög á forskot Þórsara undir lok leiksins án þess að ná að vinna upp forskotiö sem Þór hafði náð að byggja upp. Þannig breyttist staðan úr 94-81 fyrir Þór í 95-92 á stuttum tíma og áhorfendur hafa sjálfsagt haldið að Þórsarar ætluðu að kasta enn einum sigrinum frá sér á lokamínútunum. Svo fór þó ekki, Þórsarar náðu að bæta við sig og segja má að sigur þeirra hafi verið fyllilega verðskuld- aður og öruggur. ÍR skoraði fyrstu körfu leiksins en Þór komst síðan yfir áður en ÍR jafn- aði 10-10. Þá kom kafli sem hvorki gekk né rak hjá liðunum en Þór komst aftur yfir, og aftur jafnaði ÍR, nú 20-20. Eftir þaö var Þór ávallt yfir og staöan í hálfleik 45-32 fyrir heima- menn. ÍR skoraði 6 fyrstu stig síðari hálf- leiks en þá tóku Þórsarar við sér og breikkuðu bilið. Þeir komust mest 15 stig yfir, 78-63, og héldu þeim mun þar til alveg í lokin. Þetta var kærkominn sigur hjá Þór og liðið sýndi að það getur unnið leiki í deildinni ef hugarfarið er rétt. Liöið var þó í miklum villuvandræðum undir lok leiksins eins og venjulega og það kom illa niður á vöminni. Konráð Óskarsson, Jón Öm Guð- mundsson og Dan Kennard vom bestu menn liðsins, en Guðmundur Bjömsson og Bjöm Sveinsson áttu einnig góða spretti og allir leikmenn liðsins léku með að þessu sinni. ÍR-liðið gerði það sem það gat en þaö nægði ekki. Bandaríkjamaður- inn Leo Thomas var bestur þeirra, Jóhannes Sveinsson og Björn Steff- ensen einnig ágætir en Karl Guð- laugsson, langskytta þeirra, var í strangri gæslu og skoraöi óvenjulít- ið. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 27, Dan Kennard 24, Jón Örn 20, Guð- mundur Björnsson 10, Eiríkur Sig- urðsson 9, Bjöm Sveinsson 3, Davíð Hreiðarsson 2 og Þórir Guðlaugsson 2. Stig ÍR: Leo Thomas 26, Jóhannes Sveinsson 22, Bjöm Steffensen 20, Bragi Reynisson 12, Karl Guðlaugs- son 10, Bjöm Leósson 2. Dómarar vom Sigurður Valgeirs- son og Kristján Möller og dæmdu þokkalega. • ívar Asgrímssom var drjúgur fyrir liö sitt, Hauka, gegn Val i gærkvöldi og skoraöi 30 stig. Haukar báru sigur úr býtum eftir framlengdan leik. Valsmenn stóðu í Haukamönnum - Haukar sigruöu, 78-82, eftir framlengdan leik Valsmenn komu rækilega á óvart með frammistöðu sinni gegn Hauk- rnn í úrvalsdeildin í gærkvöldi. Leik- urinn var í jafnvægi lengst af og þurfti aö framlengja hann til að knýja fram úrslit. Eftir venjulega leiktíma var staöan 71-71 en Hauka- menn voru sterkari í viðbótartíman- um og sigmðu með 82 stigum gegn 78. í hálfleik var staðan, 36-32, fyrir Val. Valsmenn sýndu einn besta leik á tímabilinu þó aö sigur hafi ekki unn- ist í þetta skipti. Liðið vex með hveij- um leik og er skeinuhætt hvaða liði sem er í deildinni. Haukar léku þenn- an leik ekki vel en sýndu þó mátt sinn þegar mest á reyndi. Berhends og Svali Björgvinsson áttu bestan leik í Uði Vals en hjá Haukum var ívar Ásgrímsson yfir- burðamaður. Jonathan Bow var frískur að venju. • Dómarar vom Helgi Bragason og Kristinn Óskarsson. • Stig Vals: Berhends 20, Svali Björgvinsson 14, Einar Ólafsson 11, Ragnar Jónsson 9, Björn Zöega 7, Guöni Hafsteinsson 7, Matthías Matthíasson 6, Ari Gunnarsson 4. Stig Hauka: ívar Ásgrímsson 30, Jonathan Bow 25, Pálmi Sigurðsson 11, Henning Henningsson 8, ívar Webster 4, Jón Arnar 2, Tryggvi Jónsson 2. Ægir Mái Káxaaan, DV, Suöuxnasjum: Reynismenn léku slnn besta leik í langan tíma er þeir uröu aö lúta I lægra haldi fýrir Njarðvik, 86-90, í úrvalsdeildinni í körfiiknattleik í Sandgeröi í gærkvöldi. Reynir hafði forystu i hálfleik, 39-37. Teitur öriygsson lék ekki með UMFN vegna meiðsla og Releford lék ekki heldur þvi tilskilin keppnis- leyfl hafa enn ekki borist. • Stig Reynis: Ellert 21, Grisson 19, Jón Ben 14, Sigurþór 12, Sveinn 8, Jón 4, Einar 4, Helgl 2, Antony 2. • Stig UMFN: Ástþór 20, Jóhannes 18, Friðrik 14, ísak 13, Helgi 11, Krist- inn 10, Gunnar 2, Friörik R. 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.