Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Page 2
2 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989. Fréttir Útgerðarmenn vllja rannsókn á misferli í gámaútflutningi: Tryggingagjöld rukkuð en gámar ekki tryggðir A aðalfundi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna í gær var lögð fram tillaga frá hópi sem fjall- aði um rekstrarskilyrði og afkomu fiskveiðiflotans. Þar er lagt til að aðalfundur LíÚ fordæmi úthlutun gámaleyfa til annarra aðila en út- gerðarmanna. Lagt er til að stjóm LÍÚ verði falið að láta rannsaka meint misferh í því sambandi og fara með það fyrir dómstóla ef þurfa þykir. Þaö misferli, sem útgerðarmenn vilja að verði rannsakað, er að þeir aðilar, sem sjá um gámaútflutning, innheimti frá útgerðarmönnum tryggingagjald fyrir gámana en tryggi þá ekki. Ef þetta reynist rétt er hér um mjög háar fjárhæðir að ræða. Ótrúlegt er að tiílaga á borö við þessa skuli borin upp og sam- þykkt á opinberum fundi án þess að menn þykist hafa vissu fyrir þessu. Þá var lögð fram tillaga um að þar til opinber stjómvöld hætta afskiptum af útflutningi ísfisks í gámum verði leyfin aðeins veitt útgerðarmönnum. Astæöcm fyrir þessari tillögu er sú að útgerðarmenn halda því fram að algert siðleysi' viðgangist við úthlutun gámaleyfa. Þeir segja að ganga fyrir og að utflutningsleyfin gangi kaupum og sölum. Útgerðar- menn fuilyrða að þeir sem fá gáma- útflutningsleyfi selji þau á 40 til 50 þúsund krónur fyrir hvem gám. í blaðinu Fiskifréttum, sem kom út í gær, er það haft eftir Kristjáni Óskarssyni útgerðarmanni að hann hafi greitt í ár yfir hálfa miUj- ón króna til umboösfyrirtækja í gámaútflutningi. Umboðsfyrir- tækja sem beinlinis hafi orðið til vegna þess kerfis sem er við lýði. Þessi fyrirtæki eiga engan fisk en fá alltaf gámaútflutningsleyfi, segir Kristján. Mikill hiti var í mönnum á aðal- fundi LÍÚ í gær vegna þessara mála. -S.dór - útflutningsleyfin sögö ganga kaupum og sölum á 40 til 50 þúsund krónur „pólitískir gæðingar" séu látnir Steingrímur J. Sigfiísson: Þrýst á um hann sem varaformann Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðar- og samgönguráðherra, sagðist ekkert geta sagt til um hugs- anlegt framboð sitt á landsfundi AI- þýöubandalagsins en mikið hefur verið spáð í framboð til varafor- mannsembættisins. Þar situr fyrir Svanfríður Jónasdóttir, aðstoðar- maöur fjármálaráðherra, og hefur hún sagst bjóða sig fram til endur- kjörs. Steingrímur staðfesti að talsverð umræða hefði verið um framboðsmál og sagðist hvorki geta neitað né játað hugsanlegu framboði. Samkvæmt heimildum DV hefur verið lagt hart að Steingrími úr röðum andstæðinga formannsins enda talin vænleg leið til að skerða áhrif formannsins að breyta um varaformann. Það er hins vegar ljóst að Stein- grímiu: fer ekki í framboð nema hann og stuðningsmenn hans séu vissir um sigur. Það væri vond niðurstaða fyrir hann að tapa kosningu um varaformannsembætti fyrir Svan- fríði, sérstaklega þar eð ljóst er að þau munu berjast um efsta sæti á lista flokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra fyrir alþingiskosningar. Kosningar til formcmns, varafor- manns, ritara, gjaldkera og fram- kvæmdastjómar fara fram í dag. Miðstjómarkosning er hins vegar á morgun. -SMJ Steingrimur J. Sigfússon, samgöngu- og landbúnaðarráðherra, játar hvorki né neitar framboði sinu til varaformennsku í Alþýðubandalaginu. Hér ræð- ir hann málin viö Guömund Þ. Jónsson og Sigfinn Karlsson. DV-mynd GVA Össur Skarphéðinsson: Fórnaði sér til að lægja öldurnar - ætlar ekki í prófkjör „Ég er metoröagjam ungur maður, mér þykir gaman 1 borgarstjóm og mig langar til að vera í borgarstjóm. En það er auðvelt fyrir mig að koma hingað og segja hættum að rífast og fóma engu. Því ætla ég, það er lítið lóð en lóð samt, að taka þá ákvörðun hér og nú að þegar kemur að forvali í Reykjavík, sem mig langar til aö taka þátt í, mun ég ekki taka þátt í því,“ sagöi Össur Skarphéðinsson, varafulltrúi Alþýðubandalagsins í borgarstjóm Reykjavíkur. Össur sagðist með þessu vilja bera klæði á vopnin í þeim miklum deilum sem urðu á milli Birtingarfólksins og flokkseigenda á landsfundi Al- þýðubandalagsins. Það er óhætt að segja að á fundinum hafi enn einu sinni verið staðfest sú djúpa gjá sem á milli þeirra er. Réðust fulltrúar hópanna harkalega aö tillögum hvor annars og gerðu ýmist að vísa hvor öðrum yfir í Alþýðuflokkinn eða Framsóknarflokkinn. -SMJ Þyrla frá Varnarllðinu lenti i hrauninu við Krýsuvíkurveg, sunnan Hafnarfjarðar, í gær vegna bilunar. Eftir að við- gerð hafði farið fram var henni flogið á upphaflegan áfangastað. DV-mynd S Annir á fæðingardeildinni: Er rafmagnsleysið að segja til sín? Miklar annir em nú á fæðingar- deild Landspítalans þar sem mjög margar konur hafa fætt undanfama daga. Á þriðjudaginn vom sextán fæðingar á deildinni sem er með mesti fjöldi fæðinga á einum degi á þessu ári. Á mánudeginum vom fæð- ingamar 10 og á miðvikudeginum vom þær 8. Fyrir hádegi í fyrradag vom fimm fæðingar yfirstaðnar. „Þetta er ansi mikil töm núna og við megum varla við meiru. Við vilj- um alveg hafa nóg að gera en við viljum líka geta sinnt fólkinu al- mennilega. Annars upplifum viö svona tamir nokkrum sinnum á ári og því er þetta ekkert nýtt fyrir okk- ur. En viö getum ekki annað 16 fæð- ingum tvo daga í röð,“ sagði Kristín Tómasdóttir á fæðingardeild Landspítalas við DV. Kristín sagði að nóvember hefði byijað rólega, jafnvel of rólega, en róleg tímabil orsökuðu alltaf miídar tamir stuttu síðar. Þaö hefði sýnt sig það sem af væri nóvember. Þessi fjöldi fæðinga orsakar pláss- leysi á fæðingardeildinni. Þannig biöu fjórar konur eftir því að komast af fæðingarganginum í gærmorgun og fimm fæöingar vom þá í gangi. Ef litið er á fjölda fæðinga á árinu virðist stefna í frekar margar fæðing- ar í nóvember þar sem í gær höfðu 124 nóvemberböm fæðst. Frá ára- mótum lítur dæmið svona út: janúar 221 fæðing, febrúar 181, mars 228, apríl 221, maí 229, júní 236, júli 255, ágúst 274, september 235 og okt- óber 218. Alls gerir þetta 2422 fæðing- ar það sem af er árinu. Fæðingar á fæðingardeildinni em flestar í júlí og ágúst en sumarlokun Fæðingarheimilisins skýrir þann fjölda aö mestu leyti. Loks má geta þess til gamans að skýringar á nýafstaðinni fæðinga- töm á fæðingardeildinni voru ekki lengi að berast okkur til eyma. Þann- ig vildu margir meina að börn, sem hefðu fæðst undanfama daga, hefðu komið undir þegar rafmagnsleysið mikla gekk yfir landið í febrúar. Hefði fólk hreinlega haldið sig í rúm- inu í vetrarmyrkrinu. , -hlh Eggin lækka áfram Síöan á fimmtudag hefur eggjaverð lækkað úr 395 krónum kílóið niður fyrir 300 kr/kg í flestum stærri versl- unum á höfuöborgarsvæðinu. Lægsta verð, sem DV er kunnugt um, er 285 kr/kg í Kjötstöðinni í Glæsibæ og Ásgeiri í Seljahverfi. Hagkaup hóf leikinn með því að bjóða egg á 299 kr/kg. Fleiri fylgdu á eför og virðist samstaða eggjabænda um að halda föstu verði vera gjör- samlega úr sögunni. Eggjakílóiö kostar nú 299 krónur í öllum Hagkaupsverslunum, 290 krónur í Bónusverslununum tveim og fjórum verslunum Nóatúns. Mikligarður býður eggin á 294 kr/kg og á það við Miklagarð vestur í bæ, Kaupstað í Mjódd, KRON Eddufelli, Stórmarkaöinn Engihjalla og Kf. Miðvangi í Hafnarfirði. Grundarkjör við Stakkahlið, Furu- grund og í Hafnarfirði selur eggja- kílóiöá297krónur. -Pó Leit að tíu tonna báti Mikil leit hófst að tíu tonna báti frá Akranesi um kvöldmat- arleytið í gær. Einn maður er á. bátnum. Síðast sást til bátsins um klukkan 13.30 í gærdag en hann var á netaveiöum. Fjöldi báta og skipa tók þátt í leitinni. Allt benti til þess að bát- urinnværiofansjávar. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.