Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 8
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989.
Kópasker
Umboðsmaður óskast á Kópaskeri frá og
með 1. des. nk.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
96-52187 og á afgreiðslu DV í Reykjavík í
síma 91-27022.
Lduydiuaya, u.w — it.w | —■
Sunnudaga, 18.00 - 22.00 Þ»«rhoitiii
s: 27022
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Flugleiða hf., skiptaréttar Reykjavíkur,
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Eimskipafélags íslands hf., ýmissa lögmanna,
banka og stofnana fer fram opinbert uppboð í uppboðssal tollstjóra í Toll-
húsinu við Tryggvagötu (hafnarmegin) laugardaginn 25. nóvember 1989
og hefst það kl. 13.30. Seldar verða ýmsar ótollaðar og upptækar vörur
og bifreiðar, fjárnumdir og lögteknir munir, ýmsir munir úr dánar- og
þrotabúum.
Eftir kröfu tollstjóra: Daf 600 1969, VW 1976, VW 1982, Peugeot 1984,
vél, Opel 1977, Opel 1979, Ford Fairmont 1978, húsgögn, alls konar fatnað-
ur, matvara, skófatnaður, tengibúnaður, mótorhjól, glysvarningur, alls konar
varahl., vefnaðarvara, mótorhjóladekk, hljómtækjavörur, sportveiðitæki,
glas-caviar, 4300 kg, brauðmylsna, 900 kg, snúningshurð, straujárn, 588
kg, innihurðir og karmar, speglar, 750 kg, dæla, sturtubox, gúmmíhanskar,
girðingaefni, filterpokar, Ijóskastarar, gúmmíbobbingar, vörur til skreytingar,
hljómfltæki, segulbönd, hátalarar, handverkfæri, naglar í naglabyssu, bílkeðj-
ur, loðnunótaefni, kaðlar, net, myndbandstæki, útvarpstæki, myndbandspól-
ur og margt fleira.
Eftir kröfu skiptaréttar: farsími, Ijósritunarvél, peningaskápur, reiknivél, tölva
og prentari, skrifborðsstóll, útvarpstæki, símtæki, peningakassi, búðarkassi,
símsvari, ritvél, 2 hestakerrur, 7 hnakkar og beisli, múlar, reiðhjálmar og
margt fleira.
Lögteknir og fjárnumdir munir og bifreiðar: GP-438 Mazda 1982, R-
39408, Daihatsu Charade 1988, alls konar leðurfatnaður, mikið magn af
alls konar fatnaði, sjónvarpstæki, myndbandstæki, alls konar húsbúnaður,
frímerki, hljómfltæki, ísskápar, þvottavélar, frystikista og margt fleira.
Eftir kröfu Flugleiða hf.: stálgrindur, varahl. í mótorhjól, jólaskraut, video-
afspilari, eyrnaskjól, spiladósir, vatnsúðarar, sokkabuxur, sportsokkar, kven-
peysur, stálborar, postulínsvörur, ritvélahjól, varahl., master tape, píanó-
varahl., varahl. í talstöðvar, lofttúða, flúrljós, kassettur, bækur, kvenskór, leik-
föng, varahl. í flugvélar, varahl. í bifreiðar.
Eftir kröfu Eimskips hf.: Varahl. í litasjónv., rekkar, alls konar varahl., kraft-
pappír, járngrind, tengingar, borð, sandkassadót, kvenskófatnaður o.fl.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs-
haldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
Hinhliðin
Ásgeir Sigurvinsson segir að hann hafi séð svo margar fallegar konur um ævina að hann geö ómögulega
gert upp á milli þeirra.
Verst að lenda í
umferðaröngþveiti
- segir knattspymuhetjan Ásgeir Sigurvinsson
Ásgeir Sigurvinsson, knatt-
spyrnumaðurinn kunni, leikur nú
sinn síðasta vetur með þýska liöinu
Stuttgarí en hann hyggur á nám
næsta vetur. Ásgeir segist ætla að
læra eitthvaö í sambandi við íþrótt-
ir og jafhvel eitthvað fleira. Hann
býst við að vera í Þýskalandi næstu
þtjú til fjögur árin. Þessa dagana
sést Ásgeir lítíð heima hjá sér þar
sem mikið er að gerast í knatt-
spymunni en eför helgina mun
hann spila leik í Evrópukeppninni
ásamt félögum sínum. Það er Ás-
geir Sigurvinsson sem sýnir hina
hiiöina að þessu sinni.
Fullt nafn: Ásgeir Sigurvinsson.
Fæðingardagur og ár: 8. mai 1955.
Maki: Ásta Guðmundsdóttir.
Börn: Þau eru tvö, Tanja Rut, 6
ára, og Ásgeir Aron, 3ja ára.
Bifreið: Benz árgerð 1989.
Starf: Knattspyrnumaður.
Laun: Eru þau ekki einkamál?
Annars em þau þokkaleg.
Áhugamál: Það er margt, aðallega
iþróttír og eitthvað í þeim dúr.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Ætli það sé ekki að ferðast.
Eg geri talsvert að því og hef alltaf
jafngaman af,
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Það sem mér finnst leiðinleg-
ast er að lenda í umferðaröngþveit-
inu á mesta annatíma.
Uppáhaldsmatur: Það eru jóla-
kræsingarnar, rjúpurnar.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólkin er
best. Þeir framleiða ágætis mjólk
hér í Þýskalandi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremsturí dag?Ég var alltafhrifinn
af Bcn Johnson þangað til komst
upp um hann - ætli minn uppá-
haldsíþróttamaður sé ekki Boris
Becker. Annars hef ég einnig dá-
læti á Marco Van Basten.
Uppáhaldstímarit: Það er erfitt að
segja til um það. Líklegast lít ég
einna helst í sportblööin td. Kic-
ker. Konan mín fær stundum ís-
lensku tímaritin send að heiman
en ég get varia sagt að ég líti í þau.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
fyrir utan eiginkonuna? Þær eru
nú svo margar fallegar sem ég hef
séð. Ég get varla gert upp á milli
þeirra.
Hlynntur eða andvígur rikisstjórn-
inni: Ég er mjög ópólitískur. Ég
fylgist þó með sfjórnmálum í gegn-
um dagblöðin sem ég fæ aö heim-
an. Ég er hvorki með þessari ríkis-
stjórn né á móti enda hef ég lítið
af henni að segja.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? John McEnroe tennisleikari
er í feikilegu uppáhaldi mér og ég
vildi gjaman hitta hann. McEnroe
er skemmtilegur persónuleiki.
Uppáhaldslcikari; Það er ekki vafi
á því að Jack Nicholson er minn
uppáhaldsleikari af þeim erlendu.
Svo eru menn heima eins og Laddi
og ekki má gleyma vini mínum
Bimi Karlssyni en hann er einn af
mínum uppáhaldsleikurum.
Uppáhaldsleikkona: Ég verð að við-
urkenna aö ég á enga uppáhalds-
leikkonu.
Uppáhaldssöngvari: Þaö er auðvit-
að Elvis Presley, ekki spurning um
þaö.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Um
þessar mundir er það líklega Gor-
hatsjov.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Það er langt síðan maður hefur
spáð í svoleiðis hluti. í gamla daga
las ég helst Dreka en ég veit ekki
hvort hann er ennþá til.
UppáhaldssjónvarpsefniiÉg sleppi
aldrei áramótaskaupunum en ann-
ars eru það iþróttirnar.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég er
hvorki hlynntur eða andvígur og
get ekki séð neinn skaða af vera
þeirra á íslandi.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég get litið svarað þeirri
spumingu. Líklegast er ég ekki
dómbær þvi ég veit ekki einu sinni
hvað þær stöðvar heita sem ég
hlusta á þegar ég kem heim til ís-
' lands.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég á erf-
itt rrieð að svara þeirri spumingu
því óg kem ekki neinum þeirra fyr-
ir mig.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég hef horft meira á
Stöð 2 þegar ég er heima - þaö verö
ég að viðurkenna. Ég fylgist tals-
vert með sjónvarpi hér úti í Þýska-
landi.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Vinur
mirrn Páll Magnússon.
Uppáhaldsskemmtistaður: Erfið
spuming. Síðast þegar ég var
heima fór ég á Hótel ísland. Er þaö
ekki staðurinn sem er mest „inn“?
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Það er
auðvitað fyrsta félagið sem ég gekk
í; Týr og síðan ÍBV.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Nei, engu sérstöku en
auövitað er eitthvað framundan og
jú, maður stefnir aö einhverju en
ekki neinu sem tekur að tala um
núna.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég
fékk tvær vikur í sumarfrí og þær
notaðí ég og fjölskylda mín til að
feröast hringinn í kringum ísland.
Það var hálferfítt ferðalag og veörið
langt frá því að vera skemmtilegt.
-ELA