Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Side 9
LAUGARDAGUR 18. NÖVEMBER 1989. íslendingar hafa galopið hjarta - rætt við Pólverja sem starfa á Rifl Pólverjarnir sex, sem starfa við beitningu á Rifi, heima i stofu. Pólverjarnir við vinnu sína. Frá vinstri Kazik verkfræðingur, Rysiek bóndi og Bogdan rafeindavirki. Stefán Þór Sigurðsson, DV, Hellissandi: Það var hráslagalegt nóvember- kvöld, kalsarigningarsuddi og þaö logaði ekki á þósastaumum fyrir utan húsið þegar ég bankaði upp á hjá „Pólverjunum sem eru að beita“. Undir þvi samheiti ganga þeir þangað til menn hafa kynnst þeim nánar. Til dyra kom alúðleg- ur, ungur maður sem bauð mig velkominn og visaði mér til stofu eftir að hafa hjálpað mér úr úlp- unni. Eftir skamma stund var borið fram kaffi, boll^r á bakka og vodka með. Rigníngarsuddinn gleymdur. Aðeins einn þeirra sexmenninga, sem eru nú hér á landi til að beita agni fyrir þorsk á þessari línuver- tíð, talar nokkra ensku. Að auki talar annar dáhtla þýsku en þar sem þýskukunnátta mín er ákaflega tak- mörkuð ræði ég aðallega við þann enskumælandi, sem heitir Kazik, og hann leitar oft áhts hinna. „Ég bý í Gdansk," svarar hann fýrstu spumingunni. „Foreldrar mínir em aftur á móti frá htlu sveitaþorpi og þar ólst ég upp. Það var mikh eplarækt í þorpinu og við bjuggum th eplavín. Vissir þú að Pólveijar flytja út eplavin, m.a. th Japans?" Ég varð að viðurkenna að ég vissi ekki um annan útflutning Pólveija en skip og Prins Póló. Tók þátt í verkfallinu - Við hvaö starfar þú í Póhandi? „Ég vinn í Lenín-skipasmíðastöð- inni í Gdansk. Ég var meðal þeirra sem tóku þátt í verkfalhnu sem kom Samstöðu í heimsfréttirnar, það gerðu alhr sem unnu þar þá. Verkfalhð stóö í u.þ.b. þijár vikur og við vorum þar ahir allan þann tíma. Fólk kom hvaðanæva að til að færa okkur mat og aðrar nauð- synjar. Og th að tala við okkur. Þaö var mikil samstaða meðal ahra, við þekktum meira að segja nokkra lögreglumenn, suma háttsetta, sem komu óeinkennisklæddir th okkar með mat og fleira. í rauninni voru þetta ákaflega góðar þijár vikur, samstaða og móralhnn góður.“ - En svo kemur þú th íslands og þetta er í annað skiptið sem þú kemur hingað th að vinna. Hvers vegna? „Meginástæðan er betra kaup hér á íslandi, hversu miklu betra er kannski erfitt að segja th um. Það er dáhtið afstætt. Matvöruverð hér er mjög hátt,“ Þegar hér var komið sögu sagði hann nokkur orð th fé- laga sinna og yfir mig streymdi pólskur orðaflaumur -og menn kinkuðu kohi th samþykkis og hristu höfuð í forundran. Sá þýsku- mælandi, með sítt hár og yfirvara- skegg, ákaflega „þýskur" í úthti, spurði hvort við framleiddum sjálf- ir landbúnaðarafurðir okkar. Þeg- ar ég jánkaði þvi vildi hann fá að vita hvers vegna þær væru svona dýrar. Mér vafðist tunga um tönn og bjóst við að þar kæmi inn í smæð þjóðfélagsins. Kom þá í ljós að pólsk stórbú hafa gjarnan fimm hundruð kýr. Verð á ýsuflökum skhdu þeir ekki. Þegar talið barst að verðlagningu á bjór litu þeir á mig vorkunnaraugum og buðu annan vodkasnaps. „Annars líkar okkur mjög vel á íslandi," túlkaði Kazik. „íslending- ar hafa tekið okkur mjög vel. Alls staðar þar sem við komum er bros- að til okkar og ég býst við að fólk segi: „Þama eru Pólveijamir," eða eitthvað í þá átt. íslendingar hafa stórt og gott hjarta og okkur finrist það galopið. Vinnan við beitning- una er mjög erfið en vinnuandinn góður. Stjómendurnir og verk- stjórinn eru fyrsta flokks fólk og menn eru léttlyndir í beitningunni. Okkur hentar hka vel að byija vinnudaginn snemma. Við vöknum klukkan fimm og byijum að vinna klukkan sex, svipað og í Póhandi. Nei, það er ekki of snemmt,“ svarar hann athugasemd minni. „Menn eiga að byija vinnudaginn snemma og borða góðan morgunmat. í Pól- landi er enginn miðdagsmatartími, menn fá sér eitthvað smávegis á 5-10 mínútum. Svo em menn komnir heim klukkan 4-5 og geta verið með fjölskyldunni það sem eftir er dagsins. Öll fjölskyldan borðar saman góðan kvöldmat." Kazik bregður sér frá og kemur aftur með mynd af fjölskyldunni, eiginkonu og 18 ára dóttur. í Pól- landi byija menn að læra að aka 17 ára eins og á íslandi. - En eiga þeir bh? Það eiga þeir flestir. Austan- tjaldsbíla, pólska Fíata, Lödur, Skoda og einn átti nærri 20 ára gamla Volgu. Þeir gerðu óspart grín að austantjaldsbhunum og þegar tahð barst að Trabant tóku þeir alhr fyrir nefið. - Hvemig líst ykkur á ísland? „Veistu nokkuð, ég þekki Pól- veija sem var hér fyrir nokkru og hann réð mér stíft frá að koma hingað. Hér væri ekkert nema siýór og grjót, ekkert fólk sæist á ferðinni, engin umferð, staðurinn væri eins og ameríska fangelsiö Alcatraz. Auðvitað er þetta ekki rétt hjá honum og vingjarnleiki ís- lendinga bætir það sem vantar á veðurfarið. En hér er mjög gróð- ursnautt. Pólland er að þriðjungi þakið tijám.“ Ég reyni að bera í bætifláka fyrir landið og í ljós kemur að þeir hafa ekki haft neitt tækifæri th að skoða sig um. Eftír lendingu í Keflavík var þeim ekið beina leið vestur á Nes, mestaha leiðina í myrkri. Ég spurði hvort, ef þeir kæmu aftur, þeir vhdu ekki reyna fyrir sér ann- ars staðar á landinu. „Nei. Hér er gott að vera. Við þekkjum tíl hér og líkar við vinnuna. Það borgar sig ekki að breyta th breytinganna vegna.“ Öðruvísi dansleikir - Hafið þið farið út að skemmta ykkur hér? „Við höfum farið á bah í Röst, Helhssandi. Það er ólíkt eða heima. í Póllandi eru skemmtistaðimir meira sambland af veitingastöðum og menn fara ahtaf th þess að borða. Menn sitja viö borð, borða mat fram á kvöld, drekka vín og dansa. Hljómsveitirnar leika gjarna mikið af pólskri tónhst. Þar eru það oft slökkvihðsmenn sem halda böllin. Slökkvihðin eru skip- uð sjálfboðahðum og böliin þeirra fjáröflunarleið. í Póhandi fer eng- inn með áfengi á ball. Kannski er ekki grundvöllur fyrir samskonar dansleikjum hér vegna þess hversu fámennt er hér.“ í stofunni var kveikt á sjónvarpi, hvað finnst þeim um íslenskt sjón- varp? „Við skhjum náttúrlega sárahtið, en íþróttirnar eru góðar, þar skhj- um við hvað er að gerast." Þegar hér var komið var orðiö framorðið fyrir menn sem byija erfiðsvinnu klukkan sex á morgni. Ég tók því saman pjönkur mínar og skálaði síðasta „Nastrovia". Mér var hjálpað í úlpuna af því siðaða miðevrópska látleysi sem einkenn- ir aha þeirra framkomu og var kvaddur með handabandi. Úti hafði stytt upp, tunghð óð í skýjum og ég steig beint ofan í pohinn sem var undir ljósastaurnum sem var slökkt á. \ ^ Nýr ACCORD 1990. Stíl- hreint, svipsterkt og klass- ískt útlitið segir ekki allt. Stórfelldar breytingar eru á bílnum frá fyrri árgerð- um. Má þar fyrst nefna 100% aluminium vél, (feyknalega) kraftmikil, 16-ventla og með tvöfalda jafnvægisása á sveifarás, sparneytin og umfram allt hljóðlát. Frábærir aksturseiginleikar sem eiga sér fáar hliðstæð- ur eru framkallaðir með endurbótum á fjöðrun, sjálfstæðri fyrir hvert hjól, sem eykur rásfestu og öryggi í akstri. ACCORD 1990 er stærri, rýmri og vandaðri en áður. Aukin þægindi, meiri hljóðeinangrun, vandaður Honda frágangur og rúm- góður bíll fyrir 5 fullorðna, gerir aksturinn og tilveruna að samfelldri ánægjustund. Honda Accord 1990, glæsi- bifreið á hagstæðu verði sem sannarlega er vert að kynna sér. Sýning laugardag og sunnu dag. Honda á Islandi, Vatna- görðum 24, sími 689900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.