Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 13
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989. 13 Frá landsfundi Alþýðubandalagsins. Almennir flokksmenn í Alþýðu- bandalaginu vflja vafalausl upp- gjör við sósíaiismann. Sósíalisminn ef að hrynjfc. Þó vilja sumir for- ystumenn flbkksins halda í úreltar kenningar. Karl Marx var enginn spámaðin-. Hann sá ekki fyrir þann mikla uppgang, sem loks varð í löndum kapítalismans. Kenningar Marx eiga því ekkert erindi til nú- tímamanna. Við sjáum það á þró- uninni í Austur-Evrópu. Kommún- isminn gengur ekki. Hann leiðir til efnahagskreppu. Ríki Austur- Evrópu eru að verða gjaldþrota. Alhr þekkja þá mannréttinda- skerðingu, sem kommúnisminn hefur kallað yfir þjóðir þessara landa. Hið sama gildir um sósíal- ismann í einfaldri merkingu. Nú stoðar ekki lengur að biðla til al- mennings með þjóðnýtingarkredd- um. Eins og margir áhrifamenn í kommúnistaríkjunum eru famir að sjá, verður markaðurinn að ráða. Það leiðir til beztra lífskjara fyrir allan almenning. Það er mest- ur stuðningur við alþýðu land- anna. Og vakir ekki fyrir hugsjóna- mönnum í Alþýðubandalaginu að styðja alþýðuna? Eiga vinstri menn ekki að vera sverð og skjöldur hins litla manns? Það skyldi maður ætla. En í þessum efnum verður að greina á milli hugsjónamann- anna í flokknum og flokksforys- tunnar. Kommúnistar réðu sambræðslu- flokkunum íslenzkir sósíalistar voru lengi dyggir stuðningsmenn sovétskipu- lagsins. Það gilti efdr að Samein- ingarflokkur alþýðu-sósíalista- flokkurinn varð til. Þá bræddu sig saman kommúnisrtar og stpr hluti íslenzkra sósíaldemókrata. Annar slfkur bræðingur varð við stdfnún Alþýðubandalagsins. En það gilti um sósialdemókratana f þessupi flokkum, baeði-Héðín’'g Hannibai, að þeir kómust áð því, að hinir raunverulegu kommúnistar réðu ferðinni í þessum flokkum. Áfram var haldið stuðningnum viö sovét- skipulagið. Áfram var dansað eftir pípu Kremlveija. Þetta tók brátt að breytast. Stalín féll frá. Eftirmælin um hann að austan tóku ®ö verða dekkri. Mönnum hér á landi tók flestum að verða Ijóst, að Stalín hafði ekki verið goðmn líkur maður. Hann hafði þvert á móti verið kúgari al- þýðunnar. Sá grunur læddist að mörgum sósíahstanum, að um- sagnir auðvaldspressunar svoköll- uðu um sovétskipulagið hefðu ekki verið svo fjarri lagi. Síðan tóku frekari tíðindi að gerast. Reynt var að koma á lýðræði í Ungvejalandi 1956. Sú uppreisn undan Kreml- veijum var kæfð í blóðbaði. Hinir fijáslyndu kommúnistar, sem stýrðu ferðinni skamma hríð í Ung- verjalandi, voru sviknir og teknir af lífi. Margir sósíalistar snerust við þetta. Minna en áður var hlust- að á boðskapinn frá Kreml. Ung- veijalandsmálið olli þáttaskiptum í sögu kommúnismans og sósíal- ismans - einnig á íslandi. Enn frek- ar bar á þessu, eftir að Sovétmenn kæfðu tilraunina til aukins frjáls- lyndis í Tékkóslóvakíu 1968. Þar var í nokkra mánuði reynt að vekja upp kommúnisma með mann- eskjulegri ásjónu. Margir komm- únistar í öðrum löndum fengu sig fullsadda, þegar þessi tilraun var kæfð með vopnavaldi Kremlverja. Einnig þetta olli straiunhvörfum. Margt fleira gerðist í kommúnista- ríkjum, sem vakti efasemdir kommúnista og sósíahsta. Æ fleiri tóku að hafna forystu Sovétríkj- anna. Síðan kom innrás í Afganist- an. Thraunir th frelsis í Austur- Evrópu voru jafnan kæfðar með valdi, þegar á þeim bar. Andófs- menn sættu ofsóknum. Það varð ýmsum forystumönnum í Alþýðu- bandalaginu ljóst, að þetta komm- únistaskipulag var ekki eftirsókn- arvert. Þvert á móti tóku þeir að aðhyllast það, sem kahað er Evr- ópukommúnismi, og margir þeirra íhöfðu lengi gert það. Sósíalismiim, . eins og það var kallað, skyldi hafa • Humneskjulega ásjóny. Lögð var áherzla á, að lýöræði skyldi ríkja, jafnvel þótt kommúmstar kæmust th valda. Kommúnistaflokkar tóku viða að vinna meira með sósíal- demókrötum og taka þátt í stjóm- um. Þetta ghti að miklu um Al- þýðubandalagið - og breytti því. Kreppa Kreppa kommúnimans blasti við. Það varð nokkuð ljóst flestum sós- íahstum vestantjalds, að þeir yrðu að hafa sinn sósíalsma með öðrum formerkjum en menn gerðu aust- antjalds. Vissulega voru sumir sós- ialistar enn sem fyrr leppar Kreml- veija, bæði hér á landi og annars staðar. En víðast tóku þessir flokk- ar að beina athyghnni að öðru. Þeir lögðu áherzlu á að vera for- ystuafl vinstri manna. Þeir gerðust um margt svipaðir sósíaldemókröt- um. En einnig þar var breyting á. Markaðsbúskapur Sósíaldemókratar tóku yfirleitt að sveigjast th hægri. Þannig höfh- uðu flestir vestrænir sósíaldemó- kratar meginatriöum í sósíalism- anum. Markaðsbúskapur varö Laugardagspistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri meira uppta lemngnum nja sosuu- demókrötum, sem viöa fóru með stjómarfúrystu. Þó er þvf ekki að neita; að ríkisforsjá var föngurn eitt. hetefá einkenni sósíaldemó- krata^Þeú;reyndu að byggja svo- kallað' ’vélferðarkerfi. En erfiðari efnahagur, sVo sem eftir olíu- kreppu, gerði velferðarkerfið örð- ugra. Víða eru ríki að sligast undan ríkisforsjá og of miklu velferðar- kerfi, sem sósíaldemókratar höfðu komið á. Kommúnistar eða sósíal- istar eltu sósíaldemókrata í þessu. En é sama tíma tóku sósíalista- flokkamir yfirleitt, svo sem Al- þýðubandalagið, að sveigjast einn- ig th hægri í raun. Þótt enn sé talað um marxisma og þjóðnýtingu í stefnuskrá Alþýðubandalagsins, hefur sá flokkur lítt sinnt þessu í raun. Þótt talað sé um að losna við varnarliðið, ber htið á því máh, þegar Alþýðubandalagið er í stjóm. Alþýðubandalagið hefur reynt að styðjast við íslenzka þjóðernis- hyggju. Sá flokkur þykist yzt th vinstri. Framsóknarflokkur En í raun er þar bara um enn einn Framsóknarflokkinn að ræða. Það þýðir, að haldið er upp á ýmis sjónarmið, sem nú á tímum era í raun afturhaldssj ónarmið. Það ger- ist á þeim timumm, sem æ fleiri hefur orðið ljóst, að markaðurinn þarf að ráða. Stefna ríkisforsjár- flokkanna gengur því þvert gegn hagsmunum alþýðu fólks. Þetta var öðravísi fyrram daga. En tímamir breytast, og valdamenn sósíahsta hafa ekki breytzt nægi- lega með tímanum. Það er framsóknarstefna ahra flokka, sem leikur íslenzku þjóðina verst. Það er hin úrelta stefna ríkis- forsjár í öhum sköpuðum hlutum. Alls staðar hefur hið opinbera putt- ana. Af þessu hefur leitt klíku- veldi, þar sem valdhafar úthluta fjármunum almennings th gæð- inga sinna og gæluverkefna. Af þessu leiðir, að fjármunum lands- manna er sóað. Þeir ganga ekki th hinna arðbæru verkefna. Fyrir- greiðslupóhtikin ræður ferðinni. Þetta er ein meginástæða þess, hversu llla er nú komið fyrir þjóð- inni. Við komumst aldrei upp úr kreppu með þessu framhakh. Því miðor eraahir' flþkkar hér undir sömu sök seldir.Alþýðubán’dalagið er’eiim af Framsólmárflökkönum. Til'flæmiamáekki sj§. mikípn' mun á lanjíbúnaðaráðherra Áft>ýðu- bandalagsins og fyrirrennáfa>hans úr Framsóknarflokknum. Litið' öðram augum getur vel verið, að. Alþýðubandalagið ætti að teljast flokkur hægri krata, með þessum formerkjum, og ganga í Alþjóða- samband jafnaðarmanna. Það væri engu að síður Rramsóknarflokkur, eins og margir irataflokkamir era líka. Vel má veiíi, að Alþýðubanda- lag og Alþýðuflokkur ættu að sam- einast. Það mundi sjálfsagt auð- velda eitthvaö að skipta mönnum í flokka. En fyrst og fremst er út í hött að viðhalda kenningum um marxisma í stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins. Við sjáum á aðferð- um ráðherra þessa flokks, fyrr og síðar, hvers konar flokkur Al- þýðubandalagið er. Það er ekki verndari láglaunafóks. Þvert á móti ráðast ráðherrar flokksins nú hart gegn alþýðufóhá Flokkur ís- lenzkra sósíalista hefur breytzt gegnum tíðina. En hann hefur ekki breytzt næghega th þess að hann þjóni almannahagsmunum. Þvert á móti. Ekkert á að vera sjalfsagðara en að Alþýðubandalagið athugi nú sinn gang í ljósi erlendra atburða. Það er öllum almenningi ljósara en nokkru sinni, hversu ákaft sumar Austur-Evrópuþjóðir mega nú fagna auknu frelsi. Fáránlegt væri af Alþýöubandalaginu að sitja áfram í feninu. Flokksforystan kann að vilja það, en ahur almenn- ingur hlýtur að hafna slíkum flokki. Sósíahsminn er að hrynja. Hann hefur kahað yfir sósíahsta- ríkin efnahagskreppu. Nú sýna til dæmis Austur-Þjóðveijar, Ung- verjar og Pólverjar, hvaö þær þjóð- ir vilja og hvers þær hafa farið á mis. Alþýðubandalagið ætti að söðla um. En ekki er líkegt, að það dugi. Þetta verður vafalaust áfram einn af Framsóknarflokkunum með eitthvert daður við hinn úrelta sósíalisma. En hreyfing hefur orðið í Al- þýðubandalaginu, hreyfing, sem kann að boða gotL Þar finnast þó að nnhnsta-kosti' öfl, sera vilja breyta um kúrs- og hverfa frá hinu úrelta skipulagi. En ekkihrtgir. að strika bara yfir. nokkrar línur f etieínúskrá; eigi flokkurinii einhvern öma afr getá þjónað alþýðu landsins. Þar þarf iftiklu meiri stefnubreyt- ing og hugarfarsbreyting að koma th. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.