Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Blaðsíða 16
í
16
Popp
Eiríkur Hauksson með sína fyrstu sólóplötu, Skot í myrkri:
„Fæ útrás
fyrir þunga-
rokkið
í Artch"
„,Það sem fyrst og fremst tafði útgáfu
plötunnar var það að ég flutti til
Noregs. Þá féll vinna við hana niður
um skeið. Síðan kom ég nokkrum
sinnum heim til að taka meira upp
en á endanum varð ljóst að hún
næði ekki skammlaust út fyrir síð-
ustu jól. Því var ákveðið að fresta
henni um ár.“
Eiríkur Hauksson söngvari er hér
á landi í stuttri heimsókn til að fylgja
eftir útgáfu sólóplötunnar sinnar,
Skot í myrkri. Hún var á útgáfuáætl-
un Steina hf. síðastliðiö sumar en
komst ekki út af ástæðunni sem Ei-
ríkur greindi frá hér að framan.
„Ég notaöi þess vegna tækifærið,"
segir Eiríkur, „og bætti við þremur
lögum í sumar, lögunum Sexý,
Hlekkjaöur og svo titillaginu."
Svo sem kunnugt er syngur Eiríkur
með norsku bárujámssveitinni
Artch. „í henni fæ ég'útrás fyrir
þungarokkstilhneigingamar" segir
hann. „Þess vegna þótti mér allt í
lagi aö höfða méira til fjöldans með
Skoti í myrkri en ég hefði gert ef
harða rokkið hefði verið allsráðandi.
Hér á landi seljast tæpast nema 1500
tíl 2000 eintök af þungarokksplötum.
Á Skoti í myrkri er ég vitaskuld að
höfða til rokkaðdáenda en jafnframt
Umsjón:
Ásgeir Tómasson
þeirra sem höfðu gaman af Gaggó
Vest og fleiri lögum sem ég hef sung-
ið á liðnum árum.“
Þrjár sólóplötur
Önnur ástæða er fyrir því að Skot
í myrkri er ekki rokkaðri en raun
er á.
„í plötusamningnum, sem Artch
gerði við bandarísku útgáfuna Metal
Blade, er mér beinlínis bannað að
bjóða upp á svipaða tónlist á sólóplöt-
unum mínum og þá sem við emm
að fást við í Artch,“ segir Eiríkur.
„Ég kom þvi inn í samninginn aö ég
fengi að hijóðrita þijár sólóplötur
meðan við værum samningsbundnir
Metal Blade. Það tókst aðeins með
skilyrðinu sem ég var að segja frá.“
Eiríkur Hauksson semur flest lögin
og textana á Skotí í myrkri. Hann
býst við að einbeita sér meira að laga-
smiðum í framtíðinni en hingaö tíl.
Þá sýnir hann á sér óvænta hlið á
plötunni sem kraftmikill og hressi-
legur gítarleikari.
„Já, og ég leik meira að segja á
hljómborð á henni líka,“ segir hann
og brosir. „Ég spái því að ég eigi eft-
ir að spila meira á gítar á næstu sóló-
plötunni minni ef af henni verður.
Ég hef meira að segja miklu meira
gaman af að spila á gítar nú en
syngja! Þessi gítaráhugi kom þannig
tU að ég hljóðritaði prufuupptöku að
laginu Skotí í myrkri í Noregi og lék
þar sjálfur á gítar. Ég var svo ánægð-
ur með útkomuna aö ég leyfði honum
að halda sér.“
Næsttekið
upp erlendis
Eiríkur minntist þama á næstu
sólóplötu sína. Hann er þegar farinn
að huga að henni.
„Ég reikna með því að línan á
henni verði í ætt viö það sem hljóm-
sveitin Aerosmith er að fást við
núna,“ segir hann. „Mér þykir einna
mest variö í Aerosmith af þeim
hljómsveitum sem eru að fást við
létta bárujámiö um þessar mundir."
Þá reiknar Eiríkur með því að nokk-
uð öðmvísi verði staðið að vinnunni
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989.
DV
Eirikur Hauksson nokkurn veginn kominn með formúluna fyrir þvi hvernig
ekki skuli staðið að vinnu við hljómplötu.
við nýju plötuna en Skot í myrkri.
„Við erum nokkum veginn komnir
með formúluna fyrir því hvemig
ekki skuli standa að útgáfu hljóm-
plötu,“ segir hann. „Það er raunar
ómögulegt að vera búsettur erlendis
og þurfa síðan að skjótast heim til
að taka upp. Næsta plata verður því
áreiðanlega hljóðrituð erlendis, svo
framarlega sem ég verð enn búsettur
í Noregi."
Fátt bendir til annars en að sú verði
raunin um nokkurt skeið í viðbót.
Eiríkur og félagar hans í Artch em
nú að búa sig undir að taka upp aðra
plötu hljómsveitarinnar. Metal Blade
vill koma henni á markað í aprílmán-
uði næstkomandi.
Á Bandarí kjamarkaó
„Við byijuðum að vinna við nýju
plötuna í september síðastliðnum.“
segir Eiríkur. „Við ætlum aö byija
að taka hana upp í janúar. Við ætlum
að gera það í Noregi og hljóðblanda
síðan í Polarstúdíóinu í Stokkhólmi.
Síðasta plata Artch seldist í milli
fjöratíu og fimmtíu þúsund eintök-
um,“ bætir Eiríkur viö. „Hún kom
einungis út í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Til dæmis eigum við alveg
eftir aö koma okkur á framfæri í
Miö- og Vestur-Evrópu þar sem
áhugi á rokktónhst er mikill.
Stefnan er sú að við forum vestur
um haf í vor eða byijun sumars til
að fylgja nýju plötunni eftír með
hljómleikahaldi. Við höfum fengiö
að finna fyrir því að við emm í raun-
inni bölvanlega einangraðir í Noregi
þar eð við emm fyrst og fremst að
höfða til Bandaríkjamanna.
Ef allt gengur að óskum getur fariö
svo að ég verði að slá næstu sóló-
plötu eitthvað á fresL Ég verð að játa
að sú tónlist, sem ég hef mest gaman
af að flytja, er sú sem Artch er að
fást við, það er gijóthart rokk. Þar
að auki finnst mér ég eiga betur
heima í hljómsveit en einn míns liðs.
Ætli Eric Hawk í Artch eigi ekki
meiri tök í mér en Eiríkur Hauksson
sóló,“ segir söngvarinn og bama-
kennarinn síðhærði og brosir góðlát-
lega.
Hljómsveitin Pandóra frá Keflavík kveður sér hljóðs:
Adeila á stríðsbrölt
Hljómsveitin Pandóra frá Kefla-
vík er búin að starfa í núverandi
mynd í hálft annað ár. Reyndar
háiir hún lítíð komið fram opin-
berlega en hefur eigi að síöur nú
nj'verið sent frá sér sína fyrstu
híjómplötu. Sú heitir Saga.
„Af hverju Saga? Ja, við emm að
segja eina sögu á plötunni," segja
liðsmenn Pandóm. „Upphaflega
vorum við reyndar ekki með eina
heild í höndunum en við löguðum
textana þannig að í þeim er nú sam-
hengi. Reyndar virðist fólk túlka
söguþráöinn á margvíslegan máta.
Að minnsta kosti erum við búnir
að heyra nokkrar útgáfur. Einn
kunningi okkar hélt meira aö segja
aö sagan væri um sig!“
Þeir segja þráðinn reyndar koma
berlega í ljós í þriöja kafla plötunn-
ar, ádeilu á stríðsbrölt heimsins.
Inn í hana fléttast saga af manni
sem ætlar aö bjarga heiminum upp
á eigin spýtur.
Það vekur athygli að textar plöt-
unnar em á ensku. Slíkt er sagt
eitur í beinum útgefenda. Fékk
Pandóra engar athugasemdir
vegna þessa? „Jú, jú,“ svarar Júl-
íus Guðmundsson, trommu- og
Liðsmenn Pandóru: Júlíus Guðmundsson, Þór Slgurðsson, Sigurður Jóhannesson og Björn Árnason.
flautuleikari hljómsveitarinnar,
sonur útgefandans, Rúnars Júlíus-
sonar. „Við minntum hann bara á
... lifun. Þar vom allir textamir á
ensku. Hann fór þá aö tala um aö
sig og hina í Trúbroti, sem stóðu
að ... lifun, hefði dreymt um að
komast á erlendan markað á sínum
tíma. Okkur dreymir það bara
líka!“
Fjórmenningamir í Pandóm,
þeir Júlíus, Bjöm Ámason bassa-
leikari, Sigurður Jóhannesson
söngvari og Þór Sigurðsson gítar-
leikari, em reyndar í klípu þessa
dagana. Platan þeirra er nýútkom-
in og þeir mega ekki vera að því
að fylgja henni eftir; em allir upp-
teknir viö uppfærslu Leikfélags
Keflavíkur á söngleiknum Grettí.
Reiknaö er hins vegar með því að
sýningum ljúki um næstu mánaða-
mót og þá ætla piltamir aö láta
heyra í sér sem víðast á suövestan-
verðu landinu. Og þeir ættu að eiga
nóg af frumsaminni tónlist tíl að
flytja áheyrendum sínum.
„Við eigum aðra sögu tilbúna.
Hún kemur hins vegar ekki út á
næstunni," segja þeir. „Hún er líka
með enskum textum og rúmast
ekki nema á tvöfaldri hljómplötu.
Við verðum víst að bíða meö þá
söguþar til við erum orðnir heims-
frægir! Reyndar verður næsta
plata okkar einungis með íslensk-
um textum. Við stefnum á að koma
henni út á næsta ári.“
4