Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Side 25
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989. 4. flokkur karla: KR og Valur leika til úrslita KR og Valur tryggöu sér sigur í leikjum sínum í undanúrslitum 4. flokks karla um síðustu helgi og eig- ast þessi lið því við í úrslitaleik sem fram fer 10. desember. Öruggur sigur Vals Valur og Víkingur áttust við í fyrri undanúrslitaleiknum og var sá leik- ur á ýmsan hátt sögulegur. Strax í upphafi náðu Víkingar tveggja marka forustu en misstu þá tvo leik- menn út af í tvær mínútur í stað einnar mínútu sem er rétt refsing þegar leiktími er 2 x 15 mínútur eins og var í Reykjavíkurmótinu. Þennan tíma nýttu Valsarar mjög vel, náðu að jafna og komast yfir. Staðan í hálfleik var 6-3 Val í vil. í seinni hálfleik juku Valsarar síð- an muninn og unnu örugglega, 14-7. Mörk Vals: Ari Allanson 4, Hilmar Ramos 3, Kjartan Hjálmarsson 3, Valtýr Stefánsson 2, Davíð Ólafsson 1 og Daði Hafþórsson 1. Mörk Víkings: Haukur Sigurðsson 3, Ámi Árnason 2, Hlynur Halldórs- son 1 og Kristinn Hafliðason 1. KRbar sigurorð af Fram KR-ingar byrjuðu leikinn gegn Fram af miklum krafti og náðu strax góðri forustu, 7-1. Framarar náðu að klóra í bakkann og staðan í hálfleik var 8^4 KR í vil. í seinni hálfleik voru það Framarar sem sneru dæminu við og náðu þeir af miklu harðfylgi að minnka muninn í eitt mark, 9-10. Framarar reyndu síðan allt hvað þeir gátu til að jafna leikinn en mun- urinn var ávallt eitt marki þar til stuttu fyrir leikslok að KR-ingar tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum án þess að Fram tækist að svara fyrir sig. Sigur KR var því staðreynd, 16-13, og mæta þeir því Valsmönnum í úr- slitum 10. desember. Verður sá leik- ur án efa mjög jafn og spennandi þar sem liðin léku tvisvar saman í und- anriðlinum og skiptust á að sigra. Mörk KR: Daði Ingólfsson 5, Atli Knútsson 5, Óli B Jónsson 3, Andri Sveinsson 1, Árni Birgisson 1 og Anton G. Pálsson 1. Mörk Fram: Eymar Sigurðsson 5, Sigurður Júlíusson 3, Haraldur Harðarson 2 og Sigurður Guðjónsson 2. Mistökin í leik Vals og Víkings, sem getið er um hér á undan, má rekja til þess að hringlað er með leiktíma í Reykjavíkurmóti 4. flokks karla. í íslandsmóti er leiktími 2 x 20 mínút- ur en einhverra hluta vegna hefur leiktími í Reykjavíkurmóti 4. flokks karla verið styttur í 2 x 15 mínútur og hefur svo verið undanfarin ár. Þykir unglingasíðunni vera kominn tími til að HKRR taki sig til og leið- rétti þessi ,,mistök“ þannig að 4. flokkur karla fái eins og allir aðrir flokkar að leika fullan leiktíma. Hilmar Bjarnason, fyrirliði Víkinga, reynir hér markskot á móti ÍR. Hilmar og félagar hans í Víkingi leika á móti Fram í úrslitaleiknum í desember. 3. flokkur karla - Reykjavíkurmót: Fram og Víkingur leika til úrslita í undanúrslitum í Reykjavíkur- móti 3. flokks karla léku annars veg- ar ÍR og Víkingur og hins vegar Fram og KR. Flestir bjuggust við að Vals- menn myndu eiga öruggt sæti í und- anúrslitunum en vegna kærumála voru Valsmenn dæmdir úr keppni. Valur varð því að gera sér að góðu að sitja eftir heima og missa af mögu- leikanum á Reykjavíkurmeistaratitl- inum í ár. VíkingurvannÍR Fyrri undanúrslitaleikurinn var á milli ÍR og Víkings. Bæði liðin mættu ákveðin til leiks og var ljóst að þau ætluðu sér bæði sigur. Leikurinn var mjög jafn og spennandi til að byrja með og skiptust liðin á að skora. í hálfleik var staöan jöfn, 7-7. Víkingar byrjuðu seinni hálfleik- inn betur og komust fljótlega yfir í leiknum. Þeir leiddu síðan leikinn með 2-3 mörkum lengst af en undir lok leiksins tóku ÍR-ingar mikinn fjörkipp og náðu að minnka muninn í eitt mark. Það varö niðurstaðan þegar upp var staðið og endaði leik- urinn með sigri Víkinga, 14-13. Markahæstir hjá Víkingi voru þeir Ámi Stefánsson 7 og Hilmar Bjarna- son 3 en flest mörk ÍR skoruðu þeir Trausti Hafsteinsson 5 og Guðmund- ur Pálsson 4. Fram í úrslitaleikinn Leikur Fram og KR var mikill bar- áttuleikur þar sem bæðið liðin börð- ust af miklum krafti og stundum af of miklum því að einn leikmanna Fram fékk að líta rauða spjaldið eftir útistöður við einn leikmanna KR. Fram komst fljótiega yfir í leiknum en KR jafnaði fljótlega, 4-4. Það sem eftir var hálfleiksins höfðu Framarar þó ávallt frumkvæðið og höfðu tvö mörk yflr í hálfleik, 9-7. Það voru KR-ingar sem skoruðu fyrsta markið í síðari hálfleik. Fram- arar skoruðu að bragði og leiddu all- an síðari hálfleikinn með 2-4 mörk- um. Leikurinn endaði með þriggja marka sigri Fram, 17-14. Markahæstur í liði Fram var Einar Tönsberg með 8 mörk en Magnús Agnar Magnússon skoraði 6 mörk fyrir KR. Það verða því Fram og Víkingur sem leika úrslitaleikinn í 3. flokki karla þann 10. desember. 37 Handbolti unglinga Valsmenn komu skemmtilega á óvart í undanúrslitum 5. flokks karla er þeir lögðu deildarmeistara KR í jöfnum og spennandi leik. Þrátt fyrir að KR-ingar hefðu oft komist í ákjósanleg marktækifæri sá markvörður Vals oftast við þeim. Reykjavíkurmót 5. flokks karla: ÍR og Valur leika til úrslita í 5. flokki karla áttust við annars vegar KR og Valur en hins vegar Víkingur og ÍR. Báðir leikirnir voru mjög skemmtilegir á að horfa og verður örugglega hart barist um Reykjavíkurmeistaratitilinn í þess- um aídursflokki. KRtapaði óvæntámótiVal í fyrri leiknum mættust lið KR og Vals. KR-ingar, sem höfðu unnið alla andstæðinga sína í 1. deildinni helg- ina áður, máttu gera sér að góðu aö tapa fyrir Valsmönnum og missa þar með möguleikann á þessum titíi. Leikurinn var jafn og spennandi allan leikinn og skiptust liðin á að skora. Staðan í hálfleik var jöfn, 5-5. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik, hnifjafn leikur og spennan þrúgandi. Vamir liðanna og markvarsla voru í fyrirrúmi og varði markvörður Valsmanna oft meistaralega í leiknum. Lokamínút- urnar voru æsispennandi og hefði leikurinn getað endað á hvorn veg- inn sem var. Það voru þó Valsmenn sem fógnuðu sigri þegar flauta dóm- arans gall og fögnuður þeirra var mikill eins og gefur að skilja. Mörk Vals gerðu: Ingimar Jónsson 4, Jón Brynjarsson 1, Örn Amarsson 1, Walter Grimsson 1 og Ástvaldur Sigurðsson 1. Mörk KR gerðu: Andrés Sigþórsson 3, Haraldur Þorvarðarson 2, Kristján Þorsteinsson 1 og Vilhjálmur Vil- hjálmsson 1. ÍRtryggði sér sigur Leikur ÍR og Víkinga var jafn til að byrja með. Bæði liðin léku ágætan sóknarleik en vamir liöanna hefðu þó mátt vera betri. ÍR-ingar vom ávallt fyrri til að skora og leiddu leik- inn oftast nær. Staöan í hálfleik var 9-8, ÍR í vil. í seinni hálfleik reyndust ÍR-ingar sterkari aðilinn og tóku fljótlega for- ystu og vom yfir allan seinni hálf- leikinn. Leikurinn endaði með ör- uggum sigri ÍR, 17-14. Það em því ÍR og Valur sem leika til úrshta í 5. flokki karla 10. desemb- er. Mörk ÍR gerðu: Ólafur Jósepsson 8, Ólafur Sigurjónsson 4, Róbert Hjálmtýsson 3, Ragnar Óskarsson 1 og Sverrir Sverrisson 1. Mörk Víkinga gerðu: Sæþór Matt- híasson 6, Þorbjöm Sveinsson 4, Jón Sigurðsson 3 og Aðalsteinn Guðjóns- son 1. 6. flokkur karla í undanúrshtum Reykjavikur- gleyma því að fall er fararheill og er stutt var til leiksloka jöfhuðu móts 6. flokks karla áttust við liö það að hafa komist svona langt í Framarar og að loknum venjuleg- Víkings og Leiknis annars vegar sínu fyrstamóti sýnir styrk hðsins. um leiktíma var því jafnt, 3-3. og Fram og KR hins vegar. Umleiöogþeirhafasiípaðleiksinn í framlengingunni skomðu KR- Leikur Víkings og Leiknis, sem eiga þeir örugglega eftir að koma ingar fyrsta mai'kiö en Framarar nú lék í fyrsta skipti í úrshtum sterkir th leiks seinna í vetur. jöfnuðu og skoruðu síðan sigur- Reykjavíkurmóts, var leikur katt- Markahæstir hiá Víkingi voru: markið, við mikinn fógnuð, er hálf arins að músinni. Víkingar náðu Arnai' Jóhannsson 3 og Amar minúta var til leiksloka, úr víti, straxforustunniíleiknumogjuku Reynisson 2. Mörk Fram: Ægir Jónsson 2, þeir hana út leikinn. Staðan í hálf- Reykjavíkurrisamir Fram og KR Finnur Bjamason l og Birgir Guð- leik var 2-0 og lokatölur leiksins áttustsíðanviöogvarleikurþeirra mundsson 1. uröu 7-0 Víkingi í vil. Greinilegt mjög jafn og spennandi en fram- Mörk KR: Björgvin Vilhjálmsson var að Leiknispiltarnir vom að lengja þurfti þar sem jafnt var að 2, Alfreð Finnsson 1 og Guðjón Sig- stíga sín fyrstu skref í handboltan- loknum venjulegum leiktíma. urðsson 1. um en Víkingspiltarnir virkuðu KR skoraði fyrsta mark leiksins Það verða því Fram og Vikingur mun ákveðnari í sínum leik. en tvö raörk frá Fram fylgdu á eftir sem eigast við í úrshtum og verður Þrátt fyrir að Leiknisstrákarnir og var staöan í hálfleik 2-1. KR- leikur þessara höa án efa jafn og hafi ekki átt möguleika á móti Vík- ingar jöfnuðu í upphafí seinni hálf- spennandi. Úrshtin fara fram 10. ingum í þessum leik mega þeir ekki leiks og komust einu marki yfir en desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.