Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1989, Síða 2
g .«8ei aswjvtavöM .œ auoAauTMMW
2 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989.
Fréttir dv
Eiim alvarlegasti ágreirdngur sem komið hefur upp í utanríkismálanefnd:
Nefndin klofnaði endan-
lega í afstöðu til EB
eftir umdeilda atkvæðagreiðslu í nefhdinni
Ekki náðist samkomulag í utanrík-
ismálanefnd Alþingis á fundi í gær-
kvöldi þar sem taka átti afstöðu til
viðræðna íslendinga við Evrópu-
bandalagið. Er þetta einn aivarleg-
asti ágreiningur sem þar hefur kom-
iö upp.
Fxilltrúar stjómarandstöðunnar í
nefndinni vildu fá samþykki fyrir
þingsályktunartiUögu sem fól í sér
að teknar yrðu strax upp tvíhliða
viðræður um fríverslun með fisk sem
meðal annars byggðu á bókun 6.
Formaður nefndarinnar, Jóhann
Einvarðsson, flutti hins vegar tillögu
um að vísa svipaðri áskorun til ríkis-
stjórnarinnar og lét ganga til at-
kvæða um það. Mjög sjaldgæft er að
gengið sé til atkvæðagreiðslu í utan-
ríkismálanefnd Alþingis og er yfir-
leitt reynt til hins ýtrasta að ná sam-
komulagi þar. Var tillagan samþykkt
með atkvæðum þeirra Jóhanns,
Karls Steinars Guðnasonar, Guð-
mundar G. Þórarinssonar og Hjör-
leifs Guttormssonar. Á móti vom
Eyjólfur Konráð Jónsson, Kristín
Einarsdóttir og Ragnhildur Helga-
dóttir.
„Þetta er ótvírætt með alvarlegri
ágreiningsefnum sem komið hafa
upp í nefndinni," sagði Eyjólfur
Konráð, fuUtrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, en hann lýsti því yfir á fundinum
að formaður nefndarinnar hefði rofið
sáttartilraunir stjómarandstöðunn-
ar. Því teldi stjómarandstaðan sig
hafa heimild til að flytja aðra tUlögu
inn á þing og hefur orðið samkomu-
lag um það.
Þá er mikil reiði meðal nefndar-
manna úr röðum stjómarandstöð-
unnar vegna tilkynningar forsætis-
ráðherra um bókun ríkisstjórnar-
innar í gær varðandi könnunarvið-
ræður EFTA og EB. „Ég tel það mjög
alvarlegt að forsætisráðherra skuli
kynna þessa bókun ríkisstjórnarinn-
ar án þess að hafa áður samráð við
utanríkismálanefnd," sagði Kristín
Einarsdóttir, fvúltrúi KvennaUstans
í utanríkismálanefnd.
„Ég tel þetta að vissu leyti jákvæða
afstöðu að tiUögu sjálfstæðismanna
var vísað tíl ríkisstjómarinnar þó
það sé rétt að það sé langt síðan látið
hefur verið reyna á atkvæðagreiðslu
í nefndinni," sagði Jóhann. Hann
sagði að það væru honum vonbrigði
að ekki tókst að ná samkomulagi við
stjómarandstöðuna en nefndin hefði
verið í mikiU tímapressu og því ekki
verið hægt að bíða eftir að það tækist.
-SMJ
Davíð Oddsson borgarstjóri stóð í ströngu i gær, nýkominn úr sólinni á
Flórida. Hann vígði nýja 27 rúma sjúkradeild fyrir öldrunarlækningar og
bæklunaraðgerðar í B-álmu Borgarspítala. Aö þvi loknu ræsti hann nýja
vararafstöð Borgarspítalans en sú gamla mun ekki hafa verið nægilega
með á nótunum í rafmagnsleysi. DV-mynd Brynjar Gauti
Búvöruhækkanir ákveðnar
Ákveðin hefur verið 5% hækkun á
verðlagsgmndveUi mjólkur og
mjólkurvara, 5,4% hækkun á grund-
veUi kindakjöts, 6% hækkun á verð-
lagsgrundveUi nautakjöts og 4% á
kjúklinga.
Fimmmannanefnd fundar í dag og
ákveður hækkun á heUdsöluverði
búvara. Álagning kaupmanna á
mjólkurvörur hækkar inn 0,5%.
Reikna má með 6-10% hækkun á
mjólkurvörum, mest á rjóma og
smjöri en minnst á miólk.
-Pá
Deilur um viðræður við Evrópubandalagið:
„Getur orðið stór-
skaðlegt fyrir okkur“
- segir Jón Baldvin sem frestar utanför sinni
„Þetta vekur auðvitað tortryggni
um það að hér sé aUt í hers höndum
og væntanlega berast fréttir út um
það að formaður EFTA-ráösins hafi
tæplega umboð tíl þess að halda
máUnú áfram. Þetta getur orðið
stórskaðlegt íslenskum utanríkis-
hagsmunum,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
sem átti að mæta í dag á sameiginleg-
an fund þingmanna Evrópubanda-
lagsins og EFTA og átti hann að leiða
EFTA-nefndina.
Jón Baldvin hefur enn frestað ut-
anfor sinni og fer hann ekki úr landi
fyrr en á sunnudag þannig að hann
mun verða viðstaddur vantrausts-
umræðuna í kvöld.
„Það er erfitt fyrir menn í útlönd-
um að skUja það sem er að gerast
hér en vegna upphlaups Hjörleifs
Guttormssonar, sem er búinn að taka
Sjálfstæðisflokkinn í óábyrga stjóm-
arandstöðupóUtík komast menn ekki
tíl að sinna verkum sínum. Ég Ut á
þetta taugaveiklunarkast sem sígUt
dæmi um niðurlægingu Sjálfstæðis-
flokksins. Honum er ekkert heUagt
lengm:. Það er stórmál og stríðir gegn
hefö Sjálfstæðisflokksins í utanríkis-
málum sem lýtur að þvi að draga
ekki hagsmuni þjóðkrúinar í*utan-
ríkismálum niður í svaðið í smásál-
arpóUtík hér innanlands. Þeim er
það ekki heUagt lengur og eru því
lentir Hjörleifs Guttormssonar meg-
in í stærsta utanríkisviðskiptamáli
íslands á lýðveldistímanum,“ sagði
JónBaldvinHannibalsson. -SMJ
Húsgagnarisinn varð að
tveimur fyrirtækjum
Ekkert varð af stofmm húsgagna-
risans, sameiningu Axis, Kristjáns
Siggeirssonar og Gamla kompanís-
ins. Þess í stað hafa Axis og EE-
skrifstofuhúsgögn stofnað nýtt fyrir-
tæki, Axis húsgögn hf. Krisiján Si-
geirsson og Gamla kompannð munu
hins vegar ganga í eina sæng 14. des-
ember, líklegast imdir nafninu GKS.
Eyjólfur Axelsson og Eyjólfur Eð-
valdsson verða framkvæmdastjórar
Axis húsgagna hf. sem hefur starf-
semi frá og með áramótum. Davíð
Lúðvíksson, verkfræðingur hjá Fé-
lagi íslenskra iðnrekenda, verður
framkvæmdastjóri GKS. Það fyrir-
tæki mun líka hefja starfsemi um
áramótin. -JGH
Leiðangur Hafrannsóknastofnunar fann enga loðnu:
Komst ekki yfir mikilsverð svæði vegna hafíss
„Sú staðreynd blasir við að á því
svæði sem við fórum yfir fannst eng-
in loðna. Hún fannst ekki heldur
þegar hennar var leitað af rann-
sóknaskipi í sumar. Síðan hafa veiði-
skipin verið að leita en lítið fundið.
Það sem fundist hefur á Kolbeinseyj-
arsvæðinu er mjög lítið magn. En ég
vil taka fram og undirstrika það, að
við komumst ekki á stórt og mikils-
vert svæði djút úti milli Kögurs og
Látrabjargs. Og meðan það svæði
hefur ekki verið rannsakað lifir mað-
ur í voninni um að loðnan sé þar,“
sagði Sveinn Sveinbjömsson, fiski-
fræðingur og leiöangursstjóri á Áma
Friðrikssyni í samtali við DV í morg-
un.
Sveinn benti á að á árunum 1975
og 1979 hafi loðnan einmitt haldið sig
á því svæði á þessum árstíma. Það
era því fordæmi fyrir því að hún
haldi sig þama.
í fyrra sagði Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræöingur, eftir loönuleiðangur,
að mikið væri af tveggja ára loðnu
sem ætti að koma inn í veiðarnar á
þessari vertíð. Sveinn var spurður
hvað gæti hafa komið fyrir þessa
loðnu, hvort mögulegt væri að hún
hefði drepist vegna fæðuskorts?
„Mér vitanlega era engin dæmi
þess að stórir árgangar hverfi vegna
fæðuskorts. Við höfum hins vegar
dæmi þess að árgangar vaxi lítið
vegna þess en ekki að þeir hverfi.
Og einmitt sú loðna sem nú á að bera
uppi veiðamar var mæld sem árs-
gömul loðna 1988. Sú mæling kom
mjög vel út miðað við aðrar stofn-
mælingar sem gerðar hafa verið í
ágúst í mörg ár. Raunar talinn með
betri árgöngum sem mældir höfðu
verið. Því höfðum við enga ástæðu
til að ætla annað en að loðnuvertíð
í ár yrði eðlileg. Því er það skrýtið
að loðnan skuli ekki finnast. Og þess
vegna lifir maður í þeirri von að það
sé loðna þama vestur frá, þar sem
við gátum ekki farið yfir vegna haf-
íss,“ sagði Sveinn.
Annað sem styrkir þá trú er að í
sumar urðu menn varir við allmikið
af loðnu á vestursvæðinu, að sögn
Sveins, allt að Grænlandi. Þar var
um að ræða rækjuskip og rann-
sóknaskip. Loðnan var ekki veiðan-
leg þá sökum þess hvað hún var
dreifð.
„Staðreyndin er að hún var á þessu
svæði og gæti verið á svæðinu sem
við komumst ekki yfir. En það er líka
staðreynd, sem ekki er hægt að horfa
fram hjá, að við fundum enga loönu
í þessum leiðangri," sagði Sveinn
Sveinbjömsson.
Þess má að lokum geta að fyrir-
hugað er að gera út aukaleiðangur
frá Hafrannsóknastofnun til loðnu-
leitar í desember.
-S.dór