Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990.
Fréttir
Verslunarbankinn með
meirihluta í Stöð 2
- breytti skuldum í hlutafé og hefur meirihluta í nýrri stjóm fyrirtækisins
„Með þessum samningi höfum við
axlað verulega ábyrgð varðandi end-
urskipulagningu þá sem þarf að fara
fram á Stöð 2. Við gerum samning
þennan þar sem mjög sterkur rekstr-
argrundvöllur er fyrir Stöðinni. Það
ætti öllum að vera ljóst. Þau vanda-
mál, sem þarf að leysa, er fjárhagsleg
endurskipulagning og skipulagning
stjómunarþáttarins. Að þeim málum
leystinn er kominn grundvöllur fyrir
mjög öflugu fyritæki. Á því er ekki
nokkur vafi,“ sagði Höskuldur Ólafs-
son bankastjóri í samtali við DV.
Á hluthafafundi Sjónvarpsfélagins,
sem haldinn var á gamlársdag, var
samþykkt hlutafjáraukning úr
5.555.000 krónum í 405.555.000 krón-
ur. í samkomulagi, sem gert var á
fundinum, tók Eignarhaldsfélag
Verslunarbankans hf. að sér að
ábyrgjast sölu á hlutafé fyrir 250
milljónir en fyrri eigendur ætla að
útvega hlutafé að upphæð 150 millj-
ónir. Þá var samþykkt viðbótar-
heimild til öflunar hlutafjár upp á
100 milljónir en eiginíjárstaða Sjón-
varpsfélagsins hefur verið neikvæð
um 400-500 milljónir.
Höskuldur sagði að ekki hefði
náðst samkomulag við fyrirtækin
fimm, sem sýnt hafa áhuga á Sjón-
varpsfélaginu, en ýmsir fleiri hefðu
sýnt áhuga.
„Við reiknum ekki með að það
verði vandamál að selja þessa hluti
í Sjónvarpsfélaginu. Það er reyndar
ekki tímabært að gefa upp hveijir
hafa sýnt áhuga en það verður unnið
í þessu á næstu dögum.“
- Teljiðþiðtryggtaðfyrrieigendur
geti útvegað 150 milljónir?
„Það verður að koma í ljós.“
Ný stjórn
Á fundinum var kosin ný stjórn
Sjónvarpsfélagsins. Formaður henn-
ar er Jónas Aöalsteinsson og vara-
formaður Þorvarður Eliasson. Aðrir
í stjórn eru Þorvaldur Guðmunds-
son, Orri Vigfússon og Hans Kristján
Árnason. Nýir í stjóm eru Þorvarð-
ur, Þorvaldur og Orri.
Eignarhaldsfélag Verslunarbank-
ans hefur nú hðlega 60 prósent af
hlutafé Sjónvarpsfélagsins á sinni
hendi auk þess sem þrír af fimm
stjórnarmönnum eru frá Eignar-
haldsfélaginu.
Á fundinum voru ráðningarsamn-
ingar fyrrverandi aðaleigenda Sjón-
varpsfélagsins, þeirra Jóns Óttars
Ragnarssonar, Hans Kristjáns Áma-
sonar og Ólafs H. Jónssoanr, end-
urnýjaðir. Eru samningamir ekki
tímabundnir en Höskuldur gat ekki
tjáð sig um breytingar frá fyrri ráðn-
ingarsamningum. Þá var einnig
gengið frá því að félagið tryggði ahar
skuldbindingar, sem það stendur í,
gagnvart bankanum. Loks var kosið
framkvæmdaráð sem í sitja Jón Sig-
urðsson framkvæmdastj óri, Jón Ótt-
ar Ragnarsson sjónvarpsstjóri og
Jónas Aðalsteinsson stjórnarfor-
maður.
Stjórnarfundur í Sjónvarpsfélag-
inu verður haldinn í dag. Þá skýrist
framtíöarskipulag Stöðvar 2. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem DV
hefur aflað sér verður vegin- þre-
menninganna sem hingað til hafa
verið aðaleigendur Stöðvarinnar
verulega minni innan fyrirtækisins.
Þá er reiknað með að eitt fyrsta verk
fundarins verði að sameina rekstur
Sjónvarpsfélagsins og íslenska
myndversins sem Sjónvarpsfélagið
hefur átt hundrað prósent.
-hlh
Pétur Eyfeld, verslunarmaður við Laugaveginn, varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að koma að bíl sínum
mikið skemmdum eftir alvarleg skemmdarverk. Billinn kostar tæpar þrjór milljónir króna og er tjónið mjög mikið.
Pétur sagði við DV að hann hefði tryggt bíla án þess að verða fyrir tjóni í 40 ár - „þrátt fyrir svona skemmdarverk
fæ ég ekki bílinn bættan,“ sagði Pétur. Á myndinni er Karl Kristjánsson bílaviðgerðamaður. DV-mynd BG
Landsbanki hyggst reka
Samvinnubanka sem útibú
bankamir verða ekki sameinaðir
Landsbankinn hyggst ekki sam-
einast Samvinnubanka heldur
reka hann sem útibú, samkvæmt
hinu nýja kauptilboði sem banka-
ráð Landsbanka samþykkti síöast-
hðinn fóstudag. í tilboðinu er gert
ráð fyrir að kaupverðið sé 605 mihj-
ónir króna fyrir 52 prósent hlut
Sambándsins í Samvinnubankan-
um og ætlar Landsbankinn ekki að
kaupa meira í bankanum.
Skömmu fyrir jól samþykkti Al-
þingi lög sem heimila bönkum aö
eiga meirihluta í öðrum bönkum.
Samkvæmt þessum lögum getur
Landsbanki náð meirihluta í stjóm
á 52 prósentum en áður hefði það
ekki dugað nema fyrir um 20 pró-
sentum í stjórninni.
Samkvæmt kauptilboðinu er gert
ráð fyrir því að kaupin miðist viö
þessi áramót en í samkomulagi
Sverris Hermannssonar og Guð-
jóns B. Ólafssonar var miðað við
1. september síöasthöinn. Meö því
að bankamir verða ekki sameinað-
ir losnar Landsbanki við 124 mihj-
óna króna skuldbindingu vegna líf-
eyrisgreiöslna en um þetta atriði
hefur verið hvað mest þrefað í við-
ræðum Landsbanka og Sambands-
ins að undanfomu.
Nýjustu tölur gera ráð fyrir því
að Samvinnubanki hafi hagnast
um 140 milljónir á síðasta ári. Þessi
hagnaður bætir stöðu bankans um
þá upphæö og kemur hún Lands-
banka þannig óbeint til góða.
í kauptilboði Landsbanka, sem
hljcðar upp 605 milljónir, eru engir
fyrirvarar um töpuð útlán.
Sambandið er langstærsti skuld-
ari í Samvinnubankanum. Á síð-
asta ári tók Samvinnubankinn
hlutabréf Sambandsins í Essó að
handveöi. Hlutur Sambandsins í
Essó er um 47 prósent í fyrirtækinu
en eigið fé Essó er um 2 milljarðar
króna.
Stjórn Sambandsins á eftir að
fjalla um kauptilboð Landsbanka.
-JGH
Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu:
Við erum alveg
úr myndinni
„Viðræður okkar við Verslunar-
bankann leiddu ekki til neins sam-
komulags. Ég ht þannig á stöðuna í
dag að við séum alveg úr mynd-
inni,“ sagði Ingimundur Sigfússon,
forstjóri Heklu og talsmaður fimm
fyrirtækjahópsins svonefnda, við
DV.
Ingmundur sagði það rangt aö fyr-
irtækin fimm heföu komið með nýtt
tilboð í meirihluta Stöðvar 2.
„Við höfum ekki talað við neinn í
sambandi við þetta mál frá því
nokkru fyrir jól. Þá var okkur sagt
að það væri ekki óskað eftir viðræð-
um við okkur í bih. Reyndar voru
teknar upp viðræður milh okkar og
Verslunarbankans á föstudaginn en
þær leiddu ekki th neins og þar kom
ek{d fram neitt tilboð frá okkur.“
-hlh
Alvarleg líkamsárás:
Þurfti að sauma þrjátíu
spor í andlit mannsins
Maður á fertugsaldri slasaöist al-
varlega og tvennt varð einnig fyrir
meiðslum á Rauða ljóninu aðfaranótt
laugardagsins eftir alvarleg átök.
Lögreglan telur að hér hafi verið um
mjög slæma hkamsárás að ræöa og
muna menn reyndir vart eftir öðru
eins, svo iha var maöurinn útleikinn.
Um nóttina hafði maður, sem hafði
áöur verið í vinnu hjá þeim sem síð-
an var ráöist á, verið að angra fólk
á staðnum og kom upp nokkur
ágreiningur. Þegar út var komið fékk
hann annan í hð með sér og báru
þeir sig að á mjög storkandi hátt og
höfðu í hótunum. Var síðan ráðist á
manninn og hann barinn mjög iha.
Hann kinnbeins- og nefbrotnaði og
leit mjög illa út eftir hina fólskulegu
árás. Þurfti að sauma rösklega þijá-
tíu spor í andht mannsins eftir árás-
ina.
Kona mannsins fékk skurð á auga-
brún og þriöji aðihnn, sem var með
þeim í fór, hlaut einnig mörg högg á
líkamann.
Árásaraðih var handtekinn strax
eftir atburðinn og færður í fanga-
geymslur. Lögreglan hefur málið til
frekari rannsóknar.
-ÓTT
Hann fæddist á
réttum tíma
- segir Gunnhildur Stefánsdóttir um fyrsta bam ársins
„Hann fæddist alveg á réttum tíma
miðað við það sem gert hafði verið
ráð fyrir. Það var búið að segja mér
að ég ætti að fæða þann 1. janúar og
það stóðst því alveg. Mér skilst að
aðeins þrjú prósent af öhum fæðing-
um standist alveg á tíma miðað viö
skoðun í sónar. Fæöingin gekk mjög
vel,“ sagði Gunnhildur Stefánsdóttir,
móðir fyrsta bamsins sem fæddist á
landinu á þessu ári.
„Ég missti nokkuð af legvatni um
hálfellefuleytið á gamlárskvöld og
fór þá á fæðingardeildina. Mér var
þá sagt að ég mætti fara heim ef ég
vildi. En um hálftólfleytið var svo
allt komið af stað og strákurinn
fæddist klukkan kortér fyrir tvö á
nýársnótt. Þetta gekk miklu betur en
þegar ég fæddi hinn son minn sem
er tólf ára,“ sagði Gunnhildur.
Hún var mjög hress er DV heim-
sótti hana þar sem hún lá á fæðingar-
deild Landspítalans í gær. Nýfæddur
sonur hennar lá við hliö hennar og
var hann við fæðingu 16 merkur að
þyngd og 51,5 sentímetrar að lengd.
Gunnhildur hefur ekki ákveðið hvað
sá stutti á að heita.
Faðir drengsins heitir Böðvar Frið-
riksson.
-ÓTT