Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990. Tilboð FLORIDA Verð frá kr. pr. mann FLUG OG GISTING í NÆTUR. * 10 * Hjón + 2 börn, 2-12 ára. Helgarferðir LONDON Verð frá kr. FLUG OG GISTING í 3 NÆTUR M/MORGUN- VERÐI * GLASGOW 24.15«,-* FLUG OG GISTING í 3 NÆTUR M/MORGUN- VERÐI LUXEMBOURG "" 23.781,-* FLUG OG GISTING í 3 NÆTUR M/MORGUN- VERÐI FFANKFURT “*“ 26.904,-* FLUG OG GISTING í 3 NÆTUR M/MORGUN- VERÐI STOKKHÓLMUR "*“ 28.059,-* FLUG OG GISTING í 3 NÆTUR M/MORGUN- VERÐI * Verð pr. mann, 2 i herbergi. Verð miðað við gengi 27.12. ’89 HALLVEIGARSTÍG SÍMI 2 83 88 FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu fólagi Utlönd Gleði og hryggð einkenna nýársfagnað í Austur-Evrópu í áramótaávarpi sínu hét Iliescu forseti því að forystumenn bráða- birgðastjórnarinnar í landinu myndu ýta undir lýðræði og vinna að fjölflokkakerfi fyrir kosningarnar sem áætlaðar eru í apríl. Stjórnar- andstaðan í Rúmeníu undirbýr sig nú undir fyrstu kosningarnar í fjóra áratugi þar sem hún fær að taka þátt. í fyrsta sinn síðan kommúnistar komust til valda í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar eru áætlaðar íjölflokkakosningar í Búlgaríu, Tékkóslóvakíu, A-Þýskalandi, Ung- verjalandi og Rúmeníu á þessu ári. Yfirvöld í Póllandi héldu frjálsar kosningar á síðasta ári. Tékkar fögnuðu nýju ári með því að þyrpast í þúsundatali út á götur Prag og annarra borga. Á Wences- las-torgi í Prag, þar sem íbúar lands- ins komu saman til að mótmæla ein- ræði kommúnista fyrir aðeins einum mánuði, var nýju ári fagnað á hefð- bundinn hátt, með dansi og söng fram eftir nóttu. í nýársávarpi sínu hét Vaclav Havel, nýkjörinn forseti, þúsundum pólitískra fanga sakar- uppgjöf. Tugir fanga hafa þegar hlot- ið frelsi. í Austur-Þýskalandi féll skuggi á áramótafagnaö um fjögur hundruð þúsund Þjóðverja við Brandenborg- arhhðið skömmu eftir miðnætti að- faranótt nýársdags. Einn maður lést og um eitt hundrað slösuðust þegar stór sjónvarpsskermur hrundi á mannfjöldann við hliðið. Þá skýrði lögregla frá því að lík ungs vestur- þýsks manns hefði fundist í Austur- Berlín. Ekki er talið að lát hans teng- ist slysinu við Brandenborgarhliðið. Alls slösuðust þrjú hundruð Þjóð- verjar á nýársfagnaði í báðum hlut- um Berlínarborgar. í nýársávarpi sínu hét leiðtogi Búlgaríu, Petar Mladenov, að „Búlg- arar myndu bragða á ávöxtum frels- isins“ á yfirstandandi ári. „Árið 1990 munu frjálsar kosningar fara fram í Búlgaríu," sagði Mladenov. Mlad- enov tók við embætti af harðlínu- manninum Todor Zhivkov síðla árs 1989 en hefur mátt sæta gagnrýni stjórnarandstæðinga fyrir að hafa ekki fellt úr gildi alræði kommún- ista. Fastlega er búist við að búlg- arska þingið samþykki að afnema einræði flokksins í þessum mánuði. Albanía er nú eina landið í Austur- Evrópu sem hefur farið á mis við umbótabylgju þá sem gengiö hefur yfir austurhluta álfunnar. í nýársá- varpi sínu sagði Ramiz Alia, leiðtogi albanskra kommúnistá, að umrótið í Austur-Evrópu myndi ekki hafa nokkur áhrif í Albaníu. Reuter Austur-Evrópubúar fögnuðu nýju ári um helgina fullir vonar en jafn- framt hryggir í bragði vegna blóðsút- hellinga síðustu vikna í Rúmeníu. Nú, er áramótafagnaðurinn hefur runnið sitt skeið á enda, horfa íbúar austurhluta álfunnar fram á veginn, til árs frjálsra kosninga, uppbygging- ar efnahagslífsins og endaloka ein- ræðiskenninga fortíðarinnar. í Rúmeníu var of snemmt að efna til fagnaðarhátíðar um helgina því skömmu fyrir jólahátíðina áttu sér stað blóðugir bardagar milli almenn- ings og hermanna annars vegar og öryggissveita Ceausescus, fyrrum forseta, hins vegar. Götur Búkarest voru að mestu auðar um áramótin og flestir Rúmenar héldu sig innan- dyra og minntust fórnarlamba bar- daganna. Rúmenskur hermaður myndar sigurmerkið. Snjókarlinn, sem sjá má að baki unga manninum, gerðu hermenn í BÚkarest. Símamynd Reuter Skuggi féll á nýársfagnað Þjóðverja er stór sjónvarps- skermur féll um koll og ofan á margmenni er var að skemmta sér við Brandenborgarhliðið aðfaranótt 1. jan- úar. Einn maður lést. Simamynd Reuter Talið er að um fjögur hundruð þúsund Þjóðverjar hafi safnast saman við Brandenborgarhliðið sem skilur að Austur- og Vestur-Berlín. Símamynd Reuter Olía flæðir úr mannlausu skipi úti fyrir strönd Marokkó: Hætta á vistfræðilegu stórslysi Sérfræðingar hafa unnið að því dag og nótt að reyna að koma í veg fyrir að 280 kílómetra löng olíubrák, sem er aðeins um 18 mílur frá strönd- um Marokkó, nái til lands. Óttast þeir að takist ekki að koma í veg fyr- ir að olían, sem ílæddi úr íranska olíuskipinu Kharg-5, nái til strandar kunni að vera í aðsigi eitt versta olíu- slys í sögunni. Sökum suðvestlægra vinda og hafstrauma hefur olíuhrák- in, sem nær yfir allt að eitt hundrað fermílna stórt svæði, borist æ nær landi. Fiskiðnaður er talinn í hættu sem og vetrarvarpstaður marga fá- gætra fuglategunda. Talið er aö um sextíu þúsund tonn af hráolíu hafi flætt úr íranska olíu- skipinu Kharg-5 sem nú er á reki í Atlantshafi úti fyrir strönd Marokkó. Það er næstum tvöfalt meira magn en flæddi úr olíuskipinu Exxon Valdez í Prince Wilhamssundi fyrir utan strönd Alaska í mars á síðast- hðnu ári. Erfitt er að henda reiður á hversu Olíubrák færist nú æ nær strönd Marokkó í Afriku í kjölfar þess að mikið af olíu hefur flætt úr mann- lausu olíuskipi sem verið hefur á reki á Atlantshafi í þrettán daga. alvarlegur þessi leki úr Kharg-5 kann að vera því yfirvöld í Marokkó hafa gefið frá sér mismunandi yfirlýsing- ar. Hafnaryfirvöld í Casablanca segja að olíumagnið, sem hefur flætt úr skipinu, sé mun minna en það sem margir hafa áður sagt, eða tæplega þrjátíu þúsund tonn. í yfirlýsingu innanríkisráðuneytis Marokkó sagði að næði olíubrákin til lands væri hætta á „vistfræðilegu stórslysi“. En talsmaður umhveríisverndarráðu- neytisins sagði í gær að sérfræðing- arnir hefðu stjórn á ástandinu. Jacques-Yves Cousteau, franski haffræðingurinn, sagði í samtali við franska sjónvarpsstöð að hann teldi að aht að sjötíu þúsund tonn heföu flætt úr sldpinu. Hann gagnrýndi stjórnvöld í Marokkó og sagði að fyrsta slysið hefði átt sér stað þann 19. desember, þegar eldur kom upp í skipinu en fyrst á gamlársdag hefði fólk veitti því einhvern gaum. Eldur kom upp í Kharg-5, rúmlega 284 þúsund tonna ohuskipi, fyrir þrettán dögum þar sem það var á siglingu úti fyrir ströndum Marokkó. Þijátíu og tveggja manna áhöfn var um borð en hún yfirgaf skipið strax og eldsins varð vart. Enginn mannskaði varð. Síðan eldurinn kom upp hefur skipið rekið um 400 mílur mannlaust á Atlantshafi og er nú úti fyrir strönd Safi, lítils sjávarþorp á strönd Marokkó. Mikið magn olíu hefur flætt úr skipinu og vegna vind- áttar er olíubrákin nú um átján míl- ur fyrir utan ströndina. Skipið sjálft hefur verið dregið á haf út, allt að tvö hundruð mílur. Embættismenn í Marokkó sögðu í gær að fjórtán flugvélar og sjö bátar ynnu að því dag og nótt aö halda olíu- brákinni frá landi eins og mögulegt væri. Sérfræðingar reyna nú hvað getur að leysa leysa olíuna upp með alls kyns efnum og sápu. Yfirvöld í Marokkó sendu frá sér neyðarbeiðni á sunnudag og brugðust margar þjóðir skjótt við. Frakkar eru í for- ystu alþjóðlegs hóps sem nú vinnur að því að varna vistfræðilegu stór- slysi en auk þeirra leggja Spánverj- ar, Bretar og Portúgalar hönd á plóg- inn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.