Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Síða 11
Hressingarleikfimi fyrir hresst fólk á öllum aldri á mánudögum, miðvikudögum og laugardögum. Sólveig Valgeirsd. og Arna Kristmahnsd. íþróttakennarar. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990. Svidsljós Hjónaband: Brúðkaupsmynd númer eitt. Annar brúðkaupsdagurinn. Mánaðarkort í tækjasal og gufubað, verð aðeins kr. 1500. Tryggðu þér tíma í síma 672270. Höfum húsiðtil sýnis í dag og næstu daga. .. Þetta var ósköp venjulegt amerískt brúðkaup. Brúðurin grét og brúð- guminn viknaði. Gloria og Chuck Hellinger voru gefin saman að viðstöddu miklu fjölmenni og lof- uðu hvort öðru eilífum trúnaði og ást. Það sem var óvenjulegt við brúð- kaupið var að brúðhjónin voru nú gefin saman í fjórða skiptið á 26 árum. Gloria og Chuck giftust fyrsta sinni 19. október árið 1963, þá var brúðurin 23 ára en brúðguminn 29 ára. Þau höfðu hist í klúbbi fyrir ógift fólk og orðið afar ástfangin, svo ást- fangin að Chuck bað hennar á öðru stefnumóti þeirra. Fjórum mánuðum síðar gengu þau í hjónaband og héldu í brúðkaupsferð til Las Vegas. Hjónabandið entist í fimm ár en lauk þá með skilnaði. Þau ákváðu samt sem áður að reyna aftur. Árið 1978, tíu árum eftir skilnaðinn, voru þau gefin saman öðru sinni. Það hjónaband entist í fjögur ár. Ari síðar ákváðu þau að ganga í þriðja hjónabandið og entist það í tvö ár en lauk þá með skilnaði eins og fyrri hjónabönd.þeirra. Nú, 26 árum eftir að þau voru fyrst gefin saman í heilagt hjónaband, ákváðu þau að gera enn eina tilraun. „Við vorum bara krakkar þegar við giftum okkur í fyrsta sinnið,“ segir Chuck. „Ég var eigingjam og hugsaði fyrst og fremst um sjálfan mig. „Það sem fór fyrst og fremst með fyrsta hjónaband okkar var hversu mikið Chuck vann svo og að hann vildi aldrei ræða þau vandamál sem komu upp í hjónabandinu. Þaö tók þó út yfir allt þegar sonur okkar var fæddur og hann hafði aldrei tíma fyrir hann,“ segir Gloria. Chuck tekur undir orð konu sinnar og segist hafa verið ahnn upp á bóndabæ og þar hafi hann lært að vinna mikið enda hafi þessi vinnuár- átta orðið til þess að fyrsta hjóna- bandi þeirra lauk með skilnaði. En Chuck hélt sambandi við fyrr- um eiginkonu sína og son og sá til þess að hún fengi mánaðarlegan framfærslueyri. Þaö varð til þess aö Gloriu fannst hann alveg ómótstæði- Þriðji brúðkaupsdagurinn. INNGANGUR legur og féllst á að hitta hann aftur. Stefnumótið leiddi svo til þess að þau ákváðu aö reyna öðm sinni. Hjóna- bandið gekk ekki sem skyldi. Chuck vann eins og þræll og haföi htinn tíma til að sinna fjölskyldunni. Þá vildi Gloria skilnað á nýjan leik. Nokkm eftir annan skilnaðinn fékk Gloria þær fréttir hjá lækni sín- um að möguleiki væri á að hún gengi með krabbamein, sem síðar reyndist þó rangt. Hún hringdi umsvifalaust í Chuck og þau ákváðu að giftast í þriðja skiptið. En vinnuárátta Chuck hafði ekki minnkað með árunum og Gloria ákvað því að skilja við hann. Sonur þeirra hjóna óx úr grasi og flutti frá móður sinni, Gloria var orð- in ein í kotinu. „Þá varð mér Ijóst að það vantaði eitthvað í líf mitt og mér fannst því ekki úr vegi að við Chuck giftumst í fjórða skiptið. Hann var mér sammála. Þetta er hins veg- ar í síðasta skiptið sem við göngum saman upp að altarinu. Við vorum ffá upphafi ætluð hvort öðru, við vomm bara svohtið lengi að átta okkur á því,“ segir frú Helhnger að lokum. Og loks gift í fjórða skiptið. góð búningsaðstaða fylgir öllum sölunum svo og gufuböð. Jafnframt gefst tækifæri til að stunda upphitun, leik- fimi og þrekæfingar með lóðum ogtækjum í sérstökum æfinga- sal án nokkurs aukakostnaðar. Á staðnum er líka aðstaða til að spila, tefla, fara í borðtennis eða biliarð eftir æfingatíma. Hvað passar þér? Við höfum salina. Þitt er valið! * Fótbolti + Handbolti + Körfubolti + Blak + Badminton + Skallatennis + Leikfimi + Gufuböð * Lyftingar ísérstök- um tækjasal + Eða búið til þína eigin íþróttagrein. Það tekst í fjórðu tilraun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.