Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 26
26
ÞítlÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990.
Lambada meö stæl
Þessi skemmtilega mynd var tekin fyrir af unglingakeppni sem haldin
var f nýjasta tískudansinum, lambada. Keppnin, sem haldin var á veg-
um Dansskóla Auðar Haralds, þótti takast vel og þessi sérstæði dans,
sem dansaöur er meira og minna í návígi, fellur unga fólkinu greinilega
vel i geð. Keppt var i tveimur flokkum og sigraði parið á myndinni i
öörum þeirra. DV-mynd GVA
Sviðsljós
Börnin í Ásgarðsskóla í Kjós söfnuðu fyrir píanói með fallegum jólasöng.
Draumur um
píanó rætist
Hvað skal gera ef píanó vantar og
mikið liggur við? Jú, ráðið er að
halda fjöruga söngskemmtun og selja
kaífi og kökur. Þetta vissu bömin í
Ásgarðsskóla í Kjós, tóniistarkenn-
arinn og skólayfirvöld. Æfingar hóf-
ust þvi af fullum krafti og skemmt-
unin var haldin skömmu fyrir jól.
Húsfyllir var í Félagsgarði í Kjós
og kunnu menn vel að meta söng
skólabarnanna. Að auki komu góðir
grannar, Mosfellskórinn, þar sem
popparinn góðkunni, Bjami Arason,
söng einsöng.
Hnallþórur vænar, brauðtertur og
kaffi vom síðan punkturinn yfir i-ið.
Allt þetta varð til þess að draumur-
inn um píanóið ætti að rætast áður
en langur tími líður.
Strákarnir í skólanum létu sitt ekki eftir liggja. Eftir að söng lauk létu þeir
nokkra létta brandara fjúka.
Ólyginn
sagði...
Billy Idol
- poppstjarnan fræga - lenti ný-
lega á spítala eftir að ráðist var á
hann á götu í London og hann
stunginn með hnífi. Að því er
virtist kom að honum aðdáandi
sem bað um eiginhandaráritun.
Hann dró síðan upp hníf og náði
að stinga Idol í fótinn áður en
hann var stöðvaður. Idol vildi
helst ekki að þessi atburður kvis-
aðist út því hann telur að at-
burður sem þessi örvi aðra bijá-
læðinga til að gera atlögu að
frægu fólki. En ekki tókst það
þótt hann harðneiti sjálfur að tjá
sig um málið.
Zsa Zsa Gabor
er söm við sig. Nú er verið að
undirbúa kvikmynd um ævi eins
frægasta kvennagulls sem uppi
hefur verið á þessari öld, Porfirio
Rubirosa, er lést í bílslysi 1965.
Gabor var ein af mörgum frægum
konum sem hann hélt við og það
aftraði henni ekki frá því að halda
við kvennagullið að hún var á
þeim tíma gift leikaranum Ge-
orge Sanders. Ungar leikkonur
munu leika þekktar konur á borð
við Gabor, Barböra Hutton og
Evitu Peron sem allar vora í ást-
arsambandi við kvennagullið.
Zsa Zsa er ekki ánægð með þessa
tilhögun. Hún vill leika sjálfa sig
og segir að engin leikkona í heim-
inum sé nógu falleg til að leika
hana.
Frank Sinatra
kom við á bar einum í Los Ange-
les og pantaði Gibson en það er
drykkur sem inniheldur aðallega
vodka en laukur er látinn út í í
stað bers. Barþjónninn, sem var
hinn hróðugasti yfir því að vita
hvaða kokkteill Gibson væri,
spurði Sinatra hvort hann vildi
auka lauk út í glasið. Sinatra
svaraði snúðugt: „Drengur, þetta
er drykkur, ekki salat.“ Ekki sat
þó reiðin lengi í stórsöngvaran-
um því hann borgaði drykkinn
með hundrað dollara seðli og
sagöi þjóninum að eiga afgang-
inn.
Gömlu menn-
ímiryngjaupp
Gömlu Hollywood-stjömumar
Gene Kelly og Milton Berle taka ör-
ugglega undir þá fullyrðingu að mað-
ur sé aldrei of gamall til að verða
ástfanginn. Öldungamir tveir, Kelly
sem er 77 ára og Berle sem er 81 árs,
era báðir búnir að finna sér lífs-
fóranaut 1 „síðasta" skiptið.
Gene Kelly hitti sína tilvonandi
Patricia Ward, sem er 27 ára, þegar
honum var fengin aðstoð við að
skrifa endurminningar sínar. í dyr-
unum birtist þessi fallega stúlka og
sagðist eiga að vera honum til aðstoð-
ar. Ward var ekki lengur aðeins gest-
ur í húsinu og eftir skamma viðkynn-
ingu flutti hún til hans.
Kelly á tvö böm frá fyrra hjóna-
bandi og era þau ekki beint ánægð
með þetta upphlaup í gamla mannin-
um. Hann aftur á móti er ákveðinn
í að giftast stúlkunni og segir að eng-
inn hafi hjálpaö sér eins mikið og
hún, ekki bara við skriftir, heldur
þegar hann veiktist snögglega fyrir
stuttu síðan.
Gene Kelly á að baki tvö hjóna-
bönd, annað með leikkonunni Betsy
Blair sem endaði með skilnaði 1957
og síðast með æskuunnustu sinni,
Jeanne, sem er móðir bama hans.
Ekki er alveg jafnmikill aldurs-
munur á Milton Berle og hinni 47 ára
gömlu Raquel Rael. Berle missti eig-
inkonu sína í apríl en þau höfðu ver-
ið gift í þijátíu og sex ár. Vinir hans
segja að Rael sé það besta sem gat
hent gamla manninn. Lífsviljinn
hvarf þegar eiginkonan dó en glamp-
inn er kominn aftur og sá gamli hef-
ur ekki verið ræðnari í lengri tíma.
Raquel Rael, sem er mikill dýravinur
og hefur starfað fyrir dýraverndun-
arsamtök, er einnig einkaritari Doris
Day.
Gene Kelly ásamt rithöfundinum
Patrlcia Ward, sem er 50 árum yngri
en hann. Þaó kemur samt ekki í veg
fyrir aó brúðkaup á þessu ári.
Milton Berle ásamt Raquel Rael
sem er 34 árum yngri en hann. Ekki
hefur enn verið minnst á brúökaup
en mikill vinskapur er á milli þeirra.