Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Síða 3
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990. 3 dv Fréttir Neyðar- númer síma um land allt Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum: „Þetta er mikil framfor. Meö þessu kerfi er beint símasamband milli lög- reglu, Hjálparsveita skáta, björgun- arfélags, sjúkrahúss, flugtums, slökkvistöövar og ráðhúss sem hægt er að grípa til í neyðartilfellum,“ sagði Agnar Angantýsson, yfirlög- regluþjónn í Vestmannaeyjum, um nýtt almannavarnakerfi sem hefur verið tekið í notkun. Agnar á sæti í almannavamanefndinni í Eyjum. Auk þess var sett upp neyðarnúmer, 000, sem hægt er að grípa til ef fólk er í háska. „Það er gott að muna númerið, sem komið er víða um landið, og í fram- tíðinni verður hægt að hringja í það hvar sem er á íslandi. Ég vil leggja áherslu á að þetta er neyðarnúmer en ekki almennur þjónustusími. Þeg- ar hringt er í 000 svarar lögreglan og getur gefið beint samband við sjúkrahús, komið til hjálpar eða gert aðrar viðeigandi ráðstafanir," sagði Agnar. Reynslan er sú aö að þegar eitthvað kemur upp á er síminn mikið notað- ur og kerfið verður óvirkt vegna álags. Það gerðist til dæmis í Vest- mannaeyjagosinu 1973 og þá urðu stofnanir símasambandslausar eins og aðrir. Með nýja kerfmú er komið í veg fyrir það. Vestmannaeyj ar: Gjöld verða í lægri kant- Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum: „Útsvarsprósentan verður áfram 6,7% sem er hin sama og á síðasta ári. Heimildir til hækkunar útsvars, aðstöðugjalds og fasteignagjalda eru ekki nýtt að fullu. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi á dögunum þegar gjaldastefna bæjarins fyrir árið 1990 var samþykkt," sagði Arn- aldur Bjarnason, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, í samtah við DV. Heimilt er að leggja á 1,3% aðstöðu- gjald á allan atvinnurekstur en bæj- arstjórn ákvað að leggja 0,33% á rekstur fiskiskipa og flugvéla, 0,65% á fiskvinnslu, 1% á iðnrekstur og 1,3% á ajlan annan rekstur. Hvað fasteignagjöld varðar er nú heimilt að taka upp nýja viðmiðun sem miðast viö markaðsverð á höf- uðborgarsvæðinu. Sveitarfélög geta notað þessa hbimild eða hlutfall af henni. í Vestmannaeyjum verður þetta 0,335% á íbúðarhúsnæði en mátti vera 0,5%. Á annað húsnæði verða fasteignagjöld 0,8% en heimilt er að leggja á 1%. Erró krossaður Nú um áramótin sæmdi forseti ís- lands 18 einstaklinga heiðursmerki hinnar islensku fálkaorðu. Þeir eru Ágúst Bjarnason skrifstofustjóri, Almar Grímsson lyfsali, Ásdís Sveinsdóttir, Auður Laxness, Bald- vin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Bogi Pétursson verkstjóri, Eyþór Þórðarson kennari, Friðrik Pálsson forstjóri, Garðar Cortez söngvari, Guðmundur Guðmundsson (Erró) málari, Jón Tómasson stöðvarstjóri, herra Ólafur Skúlason biskup, Óli M. ísaksson verslunarmaður, Pálína Ragnheiöur Kjartansdóttir forstöðu- kona, herra Pétur Sigurgeirsson biskup, dr. Sigríður Þ. Valgeirsdóttir prófessor, Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri, Sveinbjöm Sig- urðsson byggingameistari og dr. Þuríður J. Kristjánsdóttur prófessor. -SMJ HEFURÞÚ GLEYMT AÐ VINNAl HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS? Það er fátt ergilegra en að missa af góðum vinningi í Happdrætti Háskólans fyrir það eitt að hafa gleymt að endurnýja! Nú gefst VISA- og EURO-korthöfum kostur á að endurnýja happdrættismiða sína með boðgreiðslum. Þannig sparast bæði tími og áhyggjur og þá gleymist ekki að vinna! HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS vænlegast til vinnings VINNINGASKRÁ FYRIR ÁRIÐ 1990: 9 vinn. á kr. 5.000.000, 108 vinn. á kr. 2.000.000, 324 vinn. á kr. 250.000, 1.953 vinn. á kr. 75.000, 13.797 vinn. á kr. 25.000, 118.575 vinn. á kr. 12.000, 234 aukavinn. á kr. 50.000. Samtals 135.000 vinn. á kr. 2.268.000.000. ARGUS/SIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.