Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990. Engin kjöt- lækkun enn „Það hefur ekkert af kjöti á nýju verði komið hér inn enn og því er verðið óbreytt," sagði Júiíus Jónsson í Nóatúni, formaður félags matvöru- kaupmanna, í samtali við DV. „Við höfum ekki séð neinn verðlista enn og erum að átta okkur á þessu." Kaupmenn hafa fimdað sín á milh og rætt við Framleiðsluráð land- búnaðarins um möguleika á endur- greiðslu á birgðir frá hinu opinbera til þess að geta lækkað kjöt í verði strax. Kaupmenn ætla að funda með forystu Kaupmannasamtakanna í dag til þess að skipuleggja frekari þrýsting á stjómvöld. Neytendur búast við lækkun þegar í stað í samræmi við auglýsingar frá hinu opinbera um verðlækkanir í tengslum við gildistöku virðisauka- skatts. Kjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkaði um áramót um nim 8% í heildsölu og viðskiptavinir voru famir að spyrja eftir „ódýra kjötinu“ í verslunum þegar 3. janúar. „Slík endurgreiðsla yrði afar erfið og að mínu viti nær ófær í fram- kvæmd,“ sagöi Árni Jóhannsson, framkvæmdastjóri búvörudeildar Sambandsins, í samtali við DV. Hann taldi að verðlækkun á dilkakjöti myndi skila sér til neytenda eftir helgi hið fyrsta. -Pá Kanna iarðaöna undir byggðina - „Fossvogsbraut“ verður ekki 1 Fossvogsdal Sveitarstjóraarmenn í Kópavogi Nýbýlaveg og koma upp hjá Lundi lög og fleira. og Reykjavík hafa átt fundi vegna við Hafharöarðarveg. Hinn kostur- Undirbúningsvinnan gengur vel lausnar á legu Fossvogsbrautar. Á inn er sá að göngin liggi undir og eru forráðamenn sveitarfélag- þeim fundum hefur ekki verið rætt Kíarrhólma sem er í norðurhlíð annaí þessari vinnuaffullumheil- um að leggja braut í Fossvogsdal. Digranesshálsins. Þau göngmyndu indum. Vonast er til að hin langa Tveir kostir hafa helst verið rædd- byrjaíbeinuframhaldiafStekkjar- deila sveitarfélaganna um þetta ir. Báöir kostirmr gera ráð fyrir bakka og liggja undir Nýbýlaveg mál sé á enda nú. jarðgöngum undir byggðina á og enda á sama stað og hin göngin, Talið er að mótmæli ibúa vegna Digraneshálsi. í báðum tiifellum er það er við Lund. Fossvogsbrautar hafi endanlega verið að ræða um tveggja kílómetra Ekki er enn fariö að reikna hvað drepið hugmynd um Fossvogs- löng göng. jarðgöng, samkvæmt þessum braut í dalnum. Önnur leiðin er sú að bytja i möguleikum, muni kosta. Verk- „Menn eru bjartsýnir á að þetta beinu framhaldi af Breiðholtsbraut fræðingar og starfsmenn Vega- verði,“ sagði Valþór Hlöðversson, og halda nánast beina leið undir gerðar rikisins era að kanna jarð- bæjarfulltrúiíKópavogi. -sme Sjómannadeilan: Nær «1 fleiri sjávarplássa Nú er ljóst að sú fiskverðsdeila, sem hófst á Eskifirði, er að breiðast út um allt Norður- og Austurland. Þegar hafa sjómenn á Fáskrúðsfirði og Vopnafirði neitað að róa fyrir það fiskverð sem þar er greitt. Togarasjómenn á Siglufirði fóru að visu á sjó eftir áramótin, en þeir hafa gefið viðsemjendum sínum frest til 10. janúar til að ganga að kröfum þeirra um hærra fiskverð. Togarinn Rauðinúpur frá Raufar- höfn er í slipp en hann á að fara á sjó um miðjan þennan mánuð. Áhöfn hans hefur sett fram kröfur um hærra fiskverð og líkur eru á að ekki verði farið á sjó fyrr en það mál er leyst. Sjómenn á Austfjörðum, sem DV ræddi við í gær og í morgun, fullyrða að þessi deila muni breiðast út. í gær var mikið um fundahöld milh sjómanna og viðsemjenda þeirra á Eskifirði, Vopnafirði og Fáskrúðs- firði. Lausn fékkst ekki á deilunni, en þó eru menn ekki vonlausir um að samkomulag geti tekist. Sjómenn á Vopnafirði vilja 30 % fiskverðshækkun. Þar er ekki bara um togarasj ómenn að ræða. -S .dór Björgunarbátur úr Kópavogi tekur einn bátanna í tog. Fjórir bátar lögðust á hliöina eða hvolfdi í hvassviðriá Foss- vogi. Á innfelldu myndinni ræðir Páll Hreinsson björgunarmaður við lögregluþjón í Nauthólsvík eftir að tveggja manna bát hafði rekið þar stjórnlaust á land. Sá sem togar í björgunarbátinn er Ragnar Már Steinsen, 14 ára gamall, nýkjörinn siglingamaður ársins. Við bátinn til vinstri stendur Sigríður Ólafsdóttir, 14 ára, sem lenti í mikl- um hrakningum er bát hennar hvolfdi og mastrið brotnaði. DV-myndir S Rmm ungmenni í hrakningum á Fossvogi Fimm ungmenni, þar á meðal ný- kjörinn siglingamaður ársins, lentu í hrakningum á Fossvogi í gær. Fóru þau í siglingu í allhvössu veðri og reyndist þeim erfitt aö halda bátun- um á réttum kih. Lögðust bátarnir ýmist á hhðina eða að þeim hvolfdi. Tókst siglingafólkinu að bjarga sér af eigin rammleik þar til hvessti mjög. Fjórtán ára stúlka missti stjórn á bát sínum og hvolfdi honum ná- lægt landi. Rákst þá mastrið í botn- inn og brotnaði. Stúlkunni tókst síð- an sjálfri að bjarga sér í land. Piltar á tveggja manna bát misstu einnig stjórn á sínum bát og rak þá að landi við Nauthólsvík. Tveimur tókst að sigla klakklaust að landi í Kópavogi. Var annar þeirra Ragnar Már Steinsen, 14 ára gamall piltur sem var nýlega kjörinn sighngamað- ur ársins. „Þetta var nú eiginlega landsliðs- æfing,“ sagði Óttar Hrafnkelsson, annar piltanna sem rak á land við Nauthólsvík. „Það losnaði hjá okkur bandspotti sem heldur framseghnu. Seghð blakti bara eins og fáni í vind- inum. Við hötðum litla stjórn á bátn- um og urðum því að sigla á reiðan- um. Okkur tókst þó að láta bátinn reka að landi á móts við flugbraut- ina. Síðan kom björgunarbátur og tók okkur í tog að landi hjá siglinga- félaginu Ými í JCópavogi. Þetta var aht saklaust til að byrja með. Fyrst komu nokkrar rokur en okkur tókst aö ná bátunum á réttan kjöl ef þeir lögðust á hliðina eða hvolfdi. Síðan bætti mjög í vindinn og við enduðum á ýmsum stöðum í víkinni," sagði Óttar. Fimmmenningarnir keppa á bátum í ólympíuflokki. Óttar vildi koma fram þakklæti til lögreglunnar í Reykjavík sem hann sagði að hefði brugðist við á mjög skjótan hátt þeg- ar hætta steðjaði að hjá sighngafólk- inu. -ÓTT LOKI Bara að bor Davíðs komi nú ekki upp í Kópavogskjallara! Veörið á morgun: Fer að kólna fyrir norðan Á morgun verður fremur hæg sunnam og suöaustanátt á landinu, skúrir sunnanlands og vestan en að mestu léttskýjað norðanlands. Hitinn verður 3-5 stig sunnanlands en nálægt frost- marki fyrir norðan. NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR BÍLALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.