Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 17
FIMMTUÐAGUR 4. JANÚAR 1990.
i, sem var stofnað þann 26. nóvember 1989, afhenti i gærkvöldi verðlaun fyrir síð-
kylfinga ársins 1989 i karla og kvennaflokki, efnilegasta kylfinginn og þann vinsæl-
rá vinstri: Sigurjón Arnarsson, GR, sem var valinn sá efnilegasti, Hannes Eyvinds-
Karen Sævarsdóttir, GS, sem var útnefnd kylfingur ársins í kvennaflokki, og Úlfar
karlaflokki. Lengst til hægri er síðan Gunnar Sigurðsson, formaður hins nýstofnaða
‘rðlauna. DV-mynd GS
ngurinn endanlega úr
f Rúmenar koma ekki
íir komi í febrúar, segir Guöjón Guðmundsson
hætta væri á aö Rúmenar myndu ekki
koma hingað til lands vegna ástandsins
í heimalandinu. Landshðiö væri að
mestu skipað leikmönnum frá Steaua,
hði hersins, og Dinamo, liði öryggis-
sveita Ceausescus, og borin hefðu verið
kennsl á leikmenn og þjálfara í hópi
þeirra öryggissveitamanna sem hand-
teknir hefðu verið. Þessar upplýsingar
eru komnar frá Ivan Snoj, júgóslavneska
handknattleiksfrömuðinum, sem löng-
um hefur verið íslendingum innan
handar.
„Þetta eru ekki óeðlilegar vangaveltur
í kjölfar þess sem gerst hefur í Rúmeníu
og það er ekki hlaupið að því að ná sam-
bandi þangað. Það yrðu vissulega alvar-
leg tíðindi fyrir undirbúning okkar
vegna heimsmeistarakeppninnar ef leik-
irnir féllu niður, segja má að hann færi
þá endanlega úr skorðum," sagði Guð-
jón.
-VS
25
íþróttir
Hvalreki á flörur íslenskra tennisáhugamanna:
Tennisstjarna
vill koma í vor
- Jan Gunnarsson kemur líklega til landsins í maí
Einn af fremstu tennisleikur-
um í heiminum í dag, Svíinn Jan
Gunnarsson, hefur mikinn hug á
að koma til íslands í vor á vegum
íþróttafélags Kópavogs. Miklar
líkur eru taldar á að hann geti
komið um miðjan maí. Frá þessu
var skýrt í Smálandsposten, út-
breiddasta dagblaði Suöur-Sví-
þjóðar, fyrir skömmu.
„Ég komst í samband við Jan
fyrir milhgöngu Lars-Áke Eng-
blom, forstjóra Norræna hússins,
og hann hefur tekiö mjög vel í að
koma. Til stóð að hann kæmi um
miðjan desember en ekkert varð
af því þar sem hann sló sjálfan
Boris Becker út úr opna Stokk-
hólmsmótinu sem þá stóð yfir og
hélt því áfram keppni,“ sagði Ein-
ar Óskarsson, forvígismaður
tennisdeildar ÍK, í samtali við DV
í gærkvöldi.
Jan Gunnarsson er 27 ára gam-
all og hefur verið atvinnumaður
í Vestur-Þýskalandi í tíu ár. Hann
hefur oft riáð langt á stærstu
mótum heims síðustu árin, sigr-
aði til dæmis Tékkann Ivan Lendl
á móti í Bandaríkjunum 1988 og
síðan Becker á dögunum. Þá var
hann í hði Svía sem lék til úrshta
gegn Vestur-Þjóðveijum í Davis
Cup fyrir skömmu.
„Það er ekki ljóst hvort hann
kæmi einn eða með sterkan mót-
spilara með sér en hvort sem
væri yrði gífurlegur fengur fyrir
íslenska áhugamenn um tennis,“
sagði Einar Oskarsson.
-VS
Guðmundarnir eru
báðir á batavegi
- líklega báðir með gegn Tékkum um helgina
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjurtu
Keflvíkingar munu mæta til
leiks í nýjum búningum í 2. deild-
arkeppninni i knattspymu næsta
sumar. Þeir klæðast svarbláum
peysum, hvítum buxum og hvit-
um sokkum, og er þetta nánast
sami búningur og skoska lands-
liðið hefur gert frægan. Það þýðir
að dómarar á leikjum þeirra geta
ekki klæðst svörtu!
Á árum áður lék ÍBK í svörtum
peysum og til tals kom að taka
þær upp á nýjan leik. I hálfan
annan áratug hefur aðalbúning-
ur félagsins hins vegar verið gul-
ur og blár. Aðeins meistaraflokk-
ur fær nýju búningana til að
byrja með en séð verður til með
yngri flokkana.
Islenska landshðið, sem mætir
Tékkum þrívegis í handknattleiks-
landsleikjum hér á landi um næstu
helgi, verður lítið breytt frá leikjun-
um við Norðmenn á dögunum. Guð-
mundur Guömundsson er farinn að
æfa með liðinu á ný eftir að hafa
verið frá vegna meiðsla og telja má
víst að hann verði með. Þá eru horf-
ur á að Guðmundur Hrafnkelsson
markvörður verði orðinn góður af
þeim meiðslum sem hafa hrjáð hann.
Ennfremur hefur Jón Kristjánsson
æft með liðinu og gæti komið inn í
hópinn fyrir Óskar Ármannsson,
sem verður frá í einar tvær vikur
vegna fmgurbrots. Hins vegar verð-
ur Siguröur Sveinsson fjarri góðu
gamni en hann þarf að fara til Vest-
ur-Þýskalands í dag vegna anna hjá
félagi sínu, Dortmund.
Fyrsti leikur þjóðanna verður í
Digranesi í Kópavogi annað kvöld,
fostudagskvöld, og hefst kl. 20. Hinir
tveir fara fram í Laugardalshöllinni,
kl. 16 á laugardaginn og kl. 20 á
sunnudagskvöldið.
Eftirtaldir leikmenn eru í hópnum
fyrir leikina:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Val
Guðmundur Hrafnkelsson, FH
Leifur Dagfinnssón, KR
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Jakob Sigurðsson, Val
Konráð Olavsson, KR
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Bjarki Sigurðsson, Víkingi
Vaidimar Grímsson, Val
Gunnar Beinteinsson, FH
Héðinn Gilsson, FH
Júlíus Jónasson, Asnieres
Alfreð Gíslason, Bidasoa
Sigurður Gunnarsson, ÍBV
Jón Kristjánsson, Val
Kristján Arason, Teka
-VS
irottamaður ársins 1989?
hlýtur sæmdarheitið í hófi á Hótel Loftleiðum 1 kvöld
Kristján Arason
Leikmaður með íslenska landsliðinu
í handknattleik og spænska úrvals-
deildarfélaginu Teka. Hefur um ára-
bil verið tahnn í hópi fremstu hand-
knattleiksmanna í heimi, bæði sem
frábær sóknar- og varnarmaður. Var
í lykilhiutverki í sigri íslands í B-
keppninni í Frakklandi og varð enn-
fremur bikarmeistari á Spáni með
Teka síðasta vor en þar er hann nú
að leika sitt annað keppnistímabil.
Ragnheiður Runólfsdóttir
Fremsta sundkona íslands undan-
farin ár og á árinu 1989 setti hún
hvorki fleiri né færri en 22 íslands-
met og er alls methafi í 17 greinum.
í desember náði hún þeim frábæra
árangri að hafna í fimmta sæti í 100
metra bringusundi í Evrópubikar-
keppninni sem fram fór á Spáni.
Ragnheiður keppir fyrir ÍA og var
útnefnd íþróttamaður ársins af les-
endum DV fyrir skömmu.
Sigurður Einarsson
Komst í hóp bestu spjótkastara
heims á árinu og náði jöfnum og góð-
um árangri. Hann hreppti brons-
verðlaunin í Grand Prix-keppninni
og var í kjölfarið valinn til að keppa
fyrir hönd Evrópu í heimsbikar-
keppninni í Barcelona. Þar varð
hann í 6. sæti. Besta kast Sigurðar
var í úrshtum Grand Prix í Mónakó,
82,82 metrar sem tryggði honum
bronsið.
Þorgils Óttar Mathiesen
Fyrirhði íslenska landsliðsins í
handknattleik síðustu þrjú árin og
leiddi hðið til sigurs í B-keppninni í
Frakklandi. Var vahnn til að leika
með heimsliðinu á síðasta sumri.
Þorgils Óttar hefur verið fyrirhði FH
um árabil og er nú þjálfari hðsins
og leikmaður. Hann er leikjahæsti
landsliðsmaður íslands í handknatt-
leik frá upphafi þrátt fyrir að vera
aðeins 27 ára gamall.
Þorvaldur örlygsson
Besti knattspyrnumaður íslands 1989
að mati mótherja hans í 1. deildinni
sem völdu hann leikmann ársins.
Lék stórt hlutverk í fyrsta sigri KA
í 1. deild íslandsmótsins og ekki síður
með íslenska landshðinu þegar það
vann Tyrki. Þorvaldur skrifaöi undir
atvinnusamning við enska 1. deildar
félagið Nottingham Forest í nóvemb-
er og hefur þegar unnið sér þar fast
sæti í liðinu.