Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
31
pv_____________________________Erlend myndsjá
Biðstaðan í Panama á enda
Nokkrum dögum
fyrif nýafstaöna
jólahátíð fyrirskip-
aði Bandaríkjafor-
seti hemaðaríhlutun
í Panama. Eitt af
markmiðum hennar
var að koma höndum
yfir Manuel Antonio
Noriega, hershöfð-
ingja og þáverandi
forseta landsins, en
hann er eftirlýstur í
Bandaríkjunum.
Noriega var aftur á
móti ekki á þeim
buxunum að láta
klófesta sig og leitaði
hælis í sendiráði
Páfagarðs í Panama-
borg. Þar hefur hann
haldið sig síðan á
aöfangadag og virð-
ist ekki á fórum.
Páfagarður hefur
hafnað óskum
Bandaríkjanna um
að hann verði fram-
seldur til þangað. Því
er biðstaða í Panama
þessa stundina.
Spurningin er: Verð-
ur Noriega dreginn
fyrir dóm eður ei?
Um
borg milli jóla og nýárs en Manuel Antonio Noriega, hershöfðingi og fyrrum einvaldur í
Panama, hefur dvalist í sendiráðinu síðan á aðfangadag. Krefst fólkið þess að hershöfðing-
inn verði framseldur í hendur Bandaríkjamönnum en Noriega er eftirlýstur í Bandarikjunum.
Stærri myndin er frá mótmælum 28. desemeber en á innfelldu myndinni má sjá nokkra
þátttakendur mótmæla á gamlársdag. Símamyndir Reuter
Bandaríkjamenn réðust til inngöngu í Panamaborg þann 20.. desember síðastliðinn. Harðir bardagar milli
bandarískra hermanna og stuðningsmanna Manuels Antonios Noriega, hershöfðingja og þáverandi forseta
Panama, stóðu í nokkra daga.
A þessari mynd má sjá bakgarð sendiráðs Páfagarðs i Panamaborg
en þar dvelst Manuel Noriega nú. Talsmenn Páfagarðs hafa hafnað ósk
Bandarikjamanna um að framselja hershöfðingjann í hendur þeim.
Nokkur hverfi Panamaborgar fóru mjög illa í bardögum bandarískra hermanna og stuðningsmanna Norieg-
as. Miklar skemmdir urðu til að mynda í Chorillo-hverfinu - þaðan sem þessi mynd er - en þar voru höfuð-
stöðvar Noriegas og hermanna hans.
Yfirvöld í Bandaríkjunum buðu peninga fyrir vopn og létu Panamabúar
hundruð vopna af hendi við bandarísku hermennina.