Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 13
FIMMTUDÁGUR 4. JANÚAR 1990.
13
Lesendur
Af afgreiðslu
hjá lögreglu
G.Ó. skrifar:
Á Þorláksmessukvöld er mikið
um að vera í miðborg Reykjavikur.
Þá er mikil umferð og bílum lagt
beggja vegna gatna, jafnvel uppi á
gangstétt í einhverjum mæli. Á
þessu kvöldi ættu nú ekki að vera
hundrað í hættunni á þessu sviði,
svo mjög sem fólk er hvatt til að
koma í miðborgina.
Þetta kvöld vorum við hjóna-
kornin að kaupa síðustu gjafirnar,
rétt fyrir lokun verslana. Þegar við
komum aftur að bílnum okkar upp-
götvaðist, að lyklarnir höíðu glat-
ast og engir varalyklar höfðu fylgt
með þessum bíl sem við erum ný-
búin að eignast.
Ég vissi strax að lyklarnir voru í
ákveðinni verslun við Laugaveg-
inn, mundi að ég hafði lagt þá frá
mér þegar ég var að skrifa ávísun.
Reyndi ég að fá lögregluna í
Tryggvagötu til að hjálpa mér að
finna heimasíma verslunareig-
anda, en hvernig sem reynt var
tókst það ekki.
Á þriðja í jólum fór ég að vinna
í þessu máli og ætlaði að fara í
verslunina en hún var enn lokuð.
- Toyotaumboðið tjáði mér að ef
ég gæti tekið „cylinder" úr læsingu
á bílnum gætu þeir smíðað lykil
eftir númeri. Áður en því var lokið
var bíllinn fjarlægður af lögregl-
unni.
Síðan, þegar búiö var að smiða
lykil, þurfti að greiða tæpar fjögur
þúsund krónur til að fá bílinn úr
bílaporti lögreglunnar við Mikla-
garð. Ég haföi um leið símasam-
band (þann 28.12.) við aöstoðaryfir-
lögregluþjón, sem mér var vísað á
til að reyna að fá þessa upphæö
fellda niöur, vegna þessara sér-
stöku aðstæðna. - Þetta hafði þegar
kostaö okkur fé og fyrirhöfn og sá
ég ekki ástæðu til að ríkið þyrfti
að „græða“ á óvæntum erfiðleikum
fólks.
Rakti ég sögu mína fyrir þessum
yfirmanni lögreglunnar og sagöi
að hægt væri að fá hana staðfesta
hjá lögreglunni, að ég hefði til-
kynnt þetta og að mikið hefði verið
reynt til að bjarga málunum við
samstundis. Þessum yfirmanni
varð hins vegar ekki hnikað, hann
var fastur fyrir og endurtók aftur
og aftur að bílnum hefði verið lagt
ólöglega.
Ég sagði honum aö ætlunin hefði
verið að geyma bíhnn þarna í hálf-
tíma á Þorláksmessukvöld og það
hafi verið röð af bílum þama öfug-
um megin götunnar, rétt eins og
okkar. Hann sýndi þessu þó engan
skiining og sagði að ég hefði lagt
ólöglega og ég yröi að taka afleið-
ingunum.
Nú hefi ég fengið lyklana úr
versluninni en dettur í hug speki
sem ég heyrði eitt sinn: Þeir menn
sem eru blindaðir af lagabókstafn-
um einum, en hafa ekki skilning á
aðstæðum fólks, hvemig sem sem
þær eru, eru síst fahnir til lögreglu-
starfa.
Verðlagseftirlitið gagnslaust:
Vöruverð þegar hækkað
Verðhækkun, m.a. á tækjum til heimilisnota, áberandi fyrir jólin - þrátt fyr-
ir litlar sem engar gengisbreytingar? - Því heldur bréfritari a.m.k. fram.
Anna Gunnarsdóttir skrifar:
Það hefur talsvert borið á því í fjöl-
miðlum, þegar rætt er við ráðamenn
og aðra sem nú vilja gera aht til að
koma efnahags- og verðlagsmálum
hér í viðunandi horf, eins og það er
orðað - áður en gengið verður til
kjarasamninga, að almenningur er
hvattur tíl að fylgjast vel með vöru-
veröi og láta vita ef fólki sýnist verð
hafa hækkað, og þá einkum í sam-
hengi við virðisaukaskattinn sem
tekinn verður upp um áramótin.
Það er hins vegar hætt við því að
nokkuð seint sé í rassinn gripið ef
fólk á að fara fylgjast með verðlagn-
ingu og verðhækkunum eftir ára-
mótin. Staðreyndin er nefnilega sú
að langflestir kaupmenn hafa nú þeg-
ar hækkað vöruverð til samræmis
við það sem þeir ætla að dugi þeim
eftir að virðisaukaskatturinn kemur
í gang. Þeir hafa því haft fyrirhyggju
í þessum málum eins og oftast áður
þegar von er á að stjómvöld taki við
sér tímabundið og þykist ætla að
fylgjast með verðlagi.
Ég hef sjálf fylgst með þessum
hækkunum og sá strax fyrir jól að
hverju stefndi í þessum efnum. Tók
t.d. eftir að ryksugur (einn þeirra
hluta sem þurfti að endurnýja hjá
mér) höfðu hækkað verulega rétt
fyrir jóhn og syo var um flest önnur
heimihstæki. Ég varð því of sein í
þeim efnum. - Engin veraleg breyt-
ing hefur þó orðiö á gengisskráningu
og þess vegna eru þessar verðhækk-
anir eftirtektarverðar.
Það er því nokkuð seint nú að biðja
fólk um að fylgjast með verðbreyt-
ingum hjá kaupmönnum og þjón-
ustuaðilum. Þær era þegar afstaðnar
og duga viðkomandi þar til niður-
staða hefur fengist eftir næstu kjara-
samningalotu. - Þá verður líka tekið
til óspihtra málanna á nýjaleik um
verðhækkanir og þá eram við enn
og aftur thbúin í „næsta hring.“
Engin sorphreinsun!
an við að troða í tunnur og kassa
dugar það ekki til því úrgangur og
umbúðir eru orðnar svo viðamiklar
að ein eða tvær tunnur duga hvergi
nærri tíl á þessum tíma.
Svo bætti ekki úr skák að nú bar
svo við að hér í Reykjavík var háv-
aðarok og raslið sem ekki var vel
varið ofan í tunnunum fauk út í veð-
ur og vind og götumar era sumar
hveijar fuhar af úrgangi, aðallega
pappír og kössum, að viðbættu rusli
frá flugeldum, blysum og öðru því
sem við bætist á gamlárskvöld.
Ég tel að svo mikilvæga þjónustu
sem sorphreinsun er megi ekki feha
niður þótt hátíðisdagar séu með
stuttu mhhbhi. Kannski eru sorp-
hreinsunarmenn í fríi þessa daga
mhh jóla og nýárs, og ég get vel unnt
þeim þess í sjálfu sér, en það bitnar
harkalega á heimhunum og um-
hverfl þeirra og borginni ahri. - Ég
vona að þetta verði tekið til athugun-
ar fyrir næstu jól og þótt tæpt ár sé
nú þangað th er áreiðanlega ekki ráð
nema í tíma sé tekið.
Kona við Ásvallagötu hringdi:
Um og eftir jólin er eðlhegt að sorp
hlaðist upp hjá fólki. Á annan í ný-
ári var fyrst farið að hreinSa sorpið
hjá fólki. Þá voru tunnurnar orðnar
svo fuhar að manni féllust hendur
við að losa sig við það sem frá heimh-
unum koma. Þótt maður hafi sig ah-
„Úrgangur og umbúðir verður fyrirferðarmikið í sorptunnum eftir hátíðarn-
ar.“
Dansáhttgafólk
Áhugafólk um dans og dansmennt
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 4. janúar í Ris-
inu, Hverfisgötu 105, kl. 20.30.
Mætum öll.
M EN NTAMÁLARÁÐ U N EYTIÐ
LAUS STAÐA
Við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild Háskóla íslands er
laus til umsóknar staða lektors (37%) í hjúkrunarfræði. Aðal-
kennslugrein er heilsugæsla. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt
til tveggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um námsferil, ritsmíðar, vísinda-
störf, kennslu og hjúkrunarstörf umsækjenda skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavik, fyrir 1.
febrúar 1990.
Menntamálaráðuneytið,
27. desember 1989
ræktin
Ánanaustum 15 — Reykjavlk — Simi 12815
KARATEFÉLAG
VESTURBÆJAR
Byrjenda- og fram-
haldsnámskeið
hefjast 4. janúar.
Innritun í símurn
12355 og 12815.
Sölutímabil á
Ferðaþristi III,
sem nú er í gangi,
framlengist til
1. júní 1990.
K FLUGFERÐIR 7f
ÞO akafur af ö*um retnum hér að ofan. Ef ura nafn kamur fram þrtmr hafur þu unntA f*rt
þangað tlrfrl Raykjavkogtlbaka. Fálr þu3 ttfhfetar Mndlr&u mtðanntl FerdaÞrWtaln*, Box
4S. 8tO Hvaragarði Dragið varður um aukavtnninga mað jðfnu mH úr tnnaandum mtðum.