Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990.
Fréttir
Stórveldaslagurinn í skák:
Riddarinn fór á rangan reit
Jóhann Hjartarson virtist ætla
að eiga auðveldan dag í gær í tafli
Norðurlandaúrvalsins við Banda-
ríkjamenn. Hann átti í höggi við
stórmeistarann Anatoly Lein, sem
íslendingum er að góðu kunnur frá
þátttöku sinni á skákmótum hér á
landi. Lein gaf peð snemma tafls
og var erfitt að koma auga á hvað
bjó þar að baki.
En Jóhann gætti sín ekki sem
skyldi. Smám saman tókst Lein að
skapa sér sóknarfæri á kóngsvæng
og áhorfendum var hætt að lítast á
hlikuna. Þá kom tímahrakið til
skjalanna en það bjargaði og refs-
aði mönnum til skiptis í gær, sem
endranær. Lein átti vinningsleik
með riddara sínum. Hann seildist
eftir manninum en til allrar ham-
ingju fyrir Jóhann lenti riddarinn
á röngum reit. í einu vetfangi tókst
Jóhanni að snúa taflinu sér í vil
og er Lein féll á tíma gat hann ekki
bjargað stööunni lengur.
Hvítt: Anatoly Lein (Bandaríkin)
Svart: Jóhann Hjartarson (Norður-
lönd)
Nimzoindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3
0-0 5. Bd3 c5 6. a3 Bxc3+ 7. bxc3
dxc4 8. Bxc4 c5 9. Re2 Dc7 10. Bd3
e5 11. e4
Lein hefur ekki áhyggjur af því
þó að hann missi dýrmætt miö-
borðspeð. Betra er taliö 11. dxe5
Dxe5 og nú 12. Dc2, frekar en 12.
f4?! Dd513.0-0.Hd8 og eftir drottn-
ingakaup náði svartur yfirhönd-
inni, en þannig tefldist skák Lars-
ens og Friðriks (svart) í Dallas 1957!
11. - cxd4 12. cxd4 exd4 13. 0-0
Þetta er alvöru peðsfórn. Annars
hefði hann leikið 13. Bb2.
13. - Rc6 14. h3 He8 15. Rg3 Re5 16.
Bf4 Bd7 17. Bxe5 Dxe5 18. f4 Da5?!
Eftir skákina hafði Jóhann á orði
að 18. - De7 hefði verið mun örugg-
ara. Nú nær Lein býsna hættulegri
sókn.
Skák
Jón L. Arnason
19. e5 Rd5 20. Dh5 h6 21. Re4 He7 22.
Hf3 Re3 23. Hg3 Kh8 24. Hg5!
Óþægilegur leikur í tímahraki.
24. - Bb5 25. e6! f5
8 I w
7 ii I A
6 1 A A
5 WJl A UW
4 A Aú A
3 & <km A
2 * *■ A
1 ZL
A B C D E F G H
Norðmaðurinn Simen Agdestein tefldi geysilega vel á 1. borði fyrir Norðurlandasveitina i fyrstu umferð stór-
veldaslagsins í skák. Á þriðjudagskvöldið tókst sovéska „birninum" Arthur Jusupov að leggja norska knatt-
spyrnumanninn að velli en Simen er sem kunnugt er einnig landsliðsmaður í knattspyrnu.
26. Hxf5! Rxf5 27. Dxf5 Hxe6
Besta tilraunin en svartur getur
enga björg sér veitt. Nú leiðir 28.
Rf2! til vinnings á hvítt. Þá valdar
Það vantaði ekki áhorfendur á
næstsíðustu umferð stórvelda-
slagsins í skák sem fór fram í gær-
kvöldi. Meðal annars mættu:
Siguröur Sígurðsson, fyrrverandi
útvarpsmaður, Ingvar Ásmunds-
son skólastjóri, Magnús Pálsson
raftæknifræðingur og tvíburabróð-
ir hans, Sæmundur Pálsson lög-
regiuþjónn, Stefán Briem háskóia-
kennari, Jörundur Hilmarsson ís-
lenskufræðingur, Magnús Einars-
son lögregluvarðstjóri, Jónas P.
Erlingsson forstjóri, Hálfdán Her-
mannsson flugvélstjóri, Torfl Ás-
geirsson, fyrrverandibilstjóri, Þor-
steinn Skúlason lögfræðingur, Eg-
ill rakari, Sturla Pétursson skák-
meistari, Jónas Elíasson verkfræð-
ingur, Árni Emilsson bankastjóri,
Andri Hrólfsson starfsmaður Flug-
leiða, Jóhann Þórir Jónsson rit-
stjóri, Kristinn Þorsteinsson
bankastarfsmaöur, Stefán Bjarna-
son, fyrverandi endurskoðandi,
Ásgeir Þ. Árnason lögfræðingur,
Helgi Samúelsson verkfræðingur,
Kristján Silveríusson, eftirlauna-
þegi og skákáhugamaður, Guð-
finnur R. Kjartansson fram-
kvæmdastjóri, Bragi Halldórsson
kennari, Eyjólfur Bergþórsson
heildsali, Hannes H. Stefánsson
skákmaður, Andri Áss Grétarsson
skákmaður, Inginmndur Sig-
mundsson viðskiptafræöinemi, Ei-
ríkur Hjálmarsson fréttamaður,
Sigríður Indríðadóttir húsmóðir og
Haraldur Blöndal hæstaréttarlög-
maður.
-SMJ
riddarinn biskupinn og svartur
getur ekki bjargað sér eins og í
skákinni. Einnig er 28. - Hel +. 29.
Kh2 Kg8 30. Bxb5 með hótuninni
31. Bc4+ og vinna drottninguna,
vonlaust. En Lein var of bráður á
sér.
28. Rf6? Hel+ 29. Kh2 Bxd3! 30.
Dxa5 Hxal
Jóhann hefur fengið tvo hróka
fyrir drottninguna og nú ætti hann
að vinna. Lein gerir honum lífið
létt.
31. Dd2? Hxa3 32. Rh5 Hg8 33. Db4
Ha2 34. Rg3
Og Lein féll á tíma um leið en
staða hans er töpuð.
-JLÁ
Alþingi:
Litháar fengu heillaóskir
Alþingi samþykkti í gær þingsá-
lyktunartillögu um að senda lithá-
ensku þjóðinni heillaóskir í tilefni
sjálfstæðisyfirlýsingar hennar sem
þjóðþing Litháa samþykkti á sunnu-
daginn.
í þingsályktuninni segir að Alþingi
telji að sjálfsforræði þjóða með lýð-
ræðiskjörnum þingum sé grundvöll-
ur fijálsra samskipta og stuðli að
friði í heiminum. Alþingi fagnar því
sjálfstæði Litháens og væntir góðrar
samvinnu við lýðræðiskjörna full-
trúa hennar.
-SMJ
I dag mælir Dagfari
Hjónabandssæla
Nýlega var sagt frá skoðanakönn-
un sem danskir félagsfræðingar
stóðu fyrir um íslenska hjóna-
bandssælu. Útkoman varð sú að
þau hjónabönd endast best þar sem
karlinn er hvað mest að heiman.
Eftir því sem karlamir vinna meira
eykst hjónasælan og ástin blómstr-
ar best í svefnherberginu eftir því
sem hjónin sjást sjaldnár.
Dagfari þurfti enga Dani til að
segja sér þetta, hvað þá skoðana-
könnun. Almenn skynsemi segir
allt um það að samband hjóna, sem
eru saman í tíma og ótíma og karl-
inn hangir yfir konunni eða konan
yfir karlinum, fer næstum því allt-
af í hundana. Fólk verður þreytt
hvað á öðra, leiðist endalaus nær-
vera, svo ekki ekki sé talað um það
ónæði sem hlýst af því þegar annar
makinn er sífellt að leita á hinn
makann með ótímabærum kyn-
mökum. Hver nennir að vera að
gera það kvölds og morgna?
Hins vegar er gott að fá staðfest-
ingu á þessum grun og nú er um
að gera fyrir kerlingarnar að senda
karlana í vinnuna og láta þá strita
myrkranna á milli því það gefur
góða raun í hjónabandinu. Nú þarf
engin eiginkona að hafa móral út
af því þótt karlinn vinni fyrir heim-
ilinu eða hann drepi sig á eftir-
vinnu vegna þess að hún getur ver-
ið viss um að hamingja þeirra
hjónakornanna vex í hlutfalli við
erfiðið. Því þreyttari sem hús-
bóndinn er því betra.
Eiginmennirnir þurfa heldur
ekki að hafa samvisku út af því
þótt það dragist aö þeir komi heim.
Framvegis geta þeir meira aö segja
hringt heim úr vinnunni og til-
kynnt konunni að þeir komi alls
ekki heim það kvöldið til að styrkja
hjónabandiö. Þetta er sem sé pott-
þétt aðferð til aö koma sér upp af-
sökun fyrir þvi að fara ekki heim
og nú geta eiginmenn lagt leið sína
á bjórkrár og billjardstofur eða
slegið í fyllirí með gömlu félögun-
um fram eftir öllum kvöldum án
þess að eiginkonan geti sagt orð.
Allt er þetta í þágu ástarinnar í
hjónabandinu.
Enginn maður með viti leggur
leið sína heim til konunnar um
miðjan dag og allir ættu að forðast
heimili sín og fjölskyldu um helg-
ar. Ef menn hafa ekkert fyrir stafni
á vinnustað sínum geta þeir alltaf
farið út á lífiö og leitað sér að hjá-
konum undir því yfirskini að
hjónabandið sé stirt og þreytandi
og þurfi lagfæringar við. Helst eiga
ekki skjótast heim, ekki hringja,
ekki senda skilaboð, heldur ein-
faldlega hverfa sporlaust þegar
þeim hentar. Ef konan múðrar geta
menn dregið skoðanakönnunina
upp úr vasanum og bent á það hvað
danskir segja um íslenska hjóna-
bandssælu.
Það var kominn tími að Danir
legöu eitthvað gott til málanna hér
uppi á Islandi. Þeir áttu okkur
skuld að gjalda eftir margra alda
nýlendustjórn og það er þakkar-
vert að danskir félagsfræðingar
hafi loksins skammast sín fyrir
meðferðina á íslendingum og gert
hérlendum karlmönnum þann
greiða að gefa þeim pottþétt alibí.
Við áttum þetta inni hjá Dönum.
Að því er eiginkonurnar varðar
mega þær líka þakka fyrir þessa
skoðanakönnun því nú geta þær
rekið eiginmennina út þegar þær
vilja á þeirri forsendu að hamingj-
an í hjónabandinu þurfi á því að
halda. Þær geta sjálfar farið á
vertshúsin og gefið dauðann og
djöfulinn í karlinn þegar sá gállinn
er á þeim. Hvers vegna skyldu kon-
ur láta sig hafa það að sitja uppi
með grútleiðinlega karlpunga
heima hjá sér þegar búið er að
sanna það á vísindalegan hátt að
hjónabandið þrífst best með því að
vera sem mest í burtu livort frá
öðru?
Eftir þessa skoðanakönnun kem-
ur auðvitað helst til greina hjá öll-
um þeim hjónakornum, sem hafa
áhuga á að hanga saman í hjú-
skapnum, að hittast reglulega einu
sinni í viku. Mæla sér mót á kaffi-
húsi eða svefnherberginu á föstu-
dagskvöldum en eyða að öðru leyti
tíma sínum með öðru fólki og utan
heimilis. Þau sem neyðast til að
koma heim geri það til skiptis og
aldrei bæði í einu. Þetta hafa Danir
ráðlagt íslenskum skötuhjúum og
veitir sannarlega ekki af þessari
uppörvun í þeim hjónaskilnaðar-
faraldri sem gengur yfir þjóðina
um þessar mundir.
Dagfari