Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990.
Fréttir
DV ræddi við fanga og starfsmenn að Litla-Hrauni:
Sveitamenn og fangarnir
bjarga því er bjargað verður
- segir Ólafur Jens Sigurðsson fangaprestur
„Þaö væri löng saga aö segja frá
aðbúnaðinum hér. En viö erum mest
'ósáttir viö aö þurfa aö hýsa geðsjúkl-
inga. Hér eru nokkrir fársjúkir menn
og af þeim hafa hlotist stórvanda-
mál. í tilfelli eins fangans átti geð-
læknir aö koma einu sinni í viku.
En enginn kom fyrr en þaö þurfti að
sprauta fangann niöur - ekki fyrr en
alll var komið í óefni. Þetta kemur
niður á hinum föngunum og er auka-
refsing fyrir þá,“ sagöi Magnús Ingi
Gíslason, flokkstjóri fangavarða á
Litla-Hrauni, þegar DV menn skoð-
uðu fangelsiö í fylgd Ólafs Jens Sig-
urðssonar fangaprests nýlega.
„Það sem bjargar málunum er að'
hinir fangarnir eru umburðarlyndir
gagnvart þeim geðsjúku. Kynferðis-
afbrotamenn verða yfirleitt ekki fyr-
ir aðkasti eins og í erlendum fangels-
um en þaö andar köldu til þeirra,"
sagði Ólafur.
Fyrstu dagarnir eru martröð
Þegar fangi kemur í afplánun á
Litla-Hraun fer hann fyrst í A-
álmuna, sem reist var á sínum tíma
fyrir fanga er tengdust Geirfinnsmál-
inu. í þessari álmu dveljast þeir geð-
sjúku og þangað koma menn fyrst
þegar þeir koma á Litla-Hraunið.
Þegar DV ræddi við einn fangann
sagðist hann aldrei geta gleymt þeirri
óþægilegu lífsreynslu sem hann varð
fyrir þegar hann var vistaður á með-
al þeirra geðsjúku í byrjun afplánun-
ar. Hann hafði aldrei komið áður á
Litla-Hraun. Þegar menn eru vistaðir
í A-álmunni má búast við ýmsum
vægast sagt óþægilegum uppákom-
um af hálfu þeirra geðsjúku. Menn
verða hræddir, þeim líður illa og
þeir verða fyrir lifsreynslu sem aldr-
ei gleymist. Þetta er aukarefsing fyr-
ir fanga og fangaverðimir þurfa að
ganga í störf faglærðs fólks á geð-
sjúkrahúsum. Ástæðan er að velferð-
arþjóðfélagið árið 1990 býr ekki við
betri kjör. Ósakhæfir geðsjúkir fang-
ar eru geymdir í fangelsum.
Ófaglærðir
sveitamenn
Samskipti fanga og fangavarða eru
talin góö á Hrauninu. Þetta kom fram
í máli beggja aðila. Samkomulag á
milli fanga innbyrðis virðist líka
vera prýðilegt. „Það sem í rauninni
bjargar ástandinu fyrir horn vegna
geðsjúku fanganna er að meðfangar
þeirra eru mjög umburðarlyndir
gagnvart þeim - þeir vernda þá að
vissu leyti,“ sagði Ólafur. „Fanga-
verðirnir eru sveitamenn úr ná-
grannabyggöunum og það er þeim
að þakka að föngunum líður yfirleitt
sæmilega miöað við aðstæður. Þeir
veita föngunum vissa sálarhjálp þó
þeir séu á engan hátt lærðir til þess,“
sagði Ólafur.
Má bjóða þér inn í skáp?
„Skáparnir" eru minnstu klefam-
ir. Þeir standa við svokallaðan
Laugaveg í miðju fangelsi þar sem
mest er umferðin. Ef skápafangi fær
tvo í heimsókn þarf hann sjálfur að
fara út. Rúm með dýnu og stein-
steyptum gafli er það eina sem fang-
anum er boðið upp á þegar þjóðfélag-
ið dæmir hann í „betrun" og vill
gleyma honum um hrið. Borði, stól
og öðru þarf viðkomandi að „redda
sér“ utan múranna. Það tekur marga
mánuði að vinna sig upp í betri klefa
í B-álmunni. Biðin eftir betri klefa
verður löng fyrir þá sem búa núna
við Laugaveginn. „Það er allt að fyll-
ast af mönnum með langtímadóma,“
sagði einn fanginn.
Iðjuleysið er verst
DV ræddi ásamt fangaprestinum
við tvo fanga sem eru að taka út
langa afplánun. Þeir eru því í betri
klefunum - tveir atorkufullir ungir
menn: „Iðjuleysið er verst. Það gerir
mann líka slæman í skapinu til
lengdar,“ sagði annar þeirra. „Við
höngum bara og getum lítið gert.
Þessu mætti breyta þannig að við
fengjum að vinna meira og íþróttaað-
stöðuna mætti bæta,“ sögðu fangarn-
ir. Annar þeirra stundar nám með
góðum árangri við Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Þeir sögðust báöir vera
óhressir með að geta ekki ræktað
fjölskyldubönd 'betur - viö erum
óþarflega mikið aöskildir frá vinum
og ættingjum. Símamál hafa þó skán-
að og við fáum að tala í 6 mínútur á
dag í síma. Við megum hringja sjálf-
ir í þrjár mínútur og aðrir mega
hringja í okkur í aðrar þrjár. Síðan
fáum viö frí en þau eru stutt -15 tíma
fri fáum við á þriggja mánaða fresti.
Fyrsta fríið fær maöur eftir eins árs
afplánun,“ sögðu þeir.
Frelsið ákvarðast af þremur
mönnum
Skiptar skoðanir eru á meöal fanga
og fangavarða um fæðið á Litla-
Hrauni. Fiskur er hafður í aðra
hverja máltíð og ýmislegt annað í
hinni máltíð dagsins. „En vandamál
vegna matarins eru smáatriðið 1
samanburði við óskiljanleg störf
Fullnustumatsnefndar," sagði annar
fanginn.
Ólafur fangaprestur segir að fang-
arnir á Litla-Hrauni séu mjög ósáttir
við störf og úrskurði nefndarinnar.
Hún ákveður oft um örlög þessara
manna - hvort þeir fá reynslulausn
eða náðun eftir helming eða tvo
þriðju afplánunartímans. Þarna get-
ur munað heilum átta mánuðum í
lífi manna.
„Fangarnir skilja ekki eftir hvaöa
reglum nefndin vinnur. Þetta er heit-
asta málið hér á Litla-Hrauni. Menn
segja oft að nefndin starfi eftir geð-
þóttaákvörðunum. Hún er oft nefnd
þriðja dómsstigið og hún er aðeins
skipuð þremur mönnum,“ sagöi Ól-
afur.
Meðferð og hjálp sem fangarnir 55
fá á Litla-Hrauni er aðallega í gegn-
um tvo menn, sálfræðing og fanga-
prestinn. Félagsráðgjafi starfar að
vísu hjá Fangelsismálastofnun en
störf hans sem slíks fagmanns verða
takmörkuð þar sem mikill hluti tíma
hans fer í önnur óskyld mál eins og
að útvega föngum peninga.
Röskur fangahjálpari
Dómsmálaráðherra réð nýlega
, mann sem gegnir starfi svokallaðs
fangahjálpara. Sá heitir Björn Ein-
arsson og var hann staddur á Litla-
Hrauni þegar DV kom í heimsókn.
Björn hefur reynt ýmislegt sjálfur
og vinna hans felst meðal annars í
að ráðleggja föngum hvemig þeir eigi
að undirbúa sig fyrir frelsiö. Björn
veitir föngum einnig aðstoð við að
komast í áfengismeðferð og fylgist
vel með þeim þegar þeir fara á slíkar
stofnanir. Bjöm veitir föngum ýmsa
aðra hjálp.
„Þetta er allt undir ykkur sjálfum
komið hvað þið gerið þegar þið kom-
ið út. Enginn getur tekiö þá ákvörð-
un fyrir ykkur að forðast afbrot,“
sagði Björn við nokkra fanga sem
tóku orð hans greinilega alvarlega.
Villandi umtal
Föngum finnst oft villandi umtal
um þá vegna neyslu fíkniefna á
Hrauninu. Þeir segja lítið vera um
slíkt innan fangelsisveggjanna þó
svo að einhvern tíma verði vart við
að „slæðingur" sé þar stundum á
ferð. „Frásagnir eru oft orðum aukn-
ar og það er til skaða,“ segir Ólafur.
„Litla-Hraun er lokaður staður og
fylgst er með því að eiturlyf berist
ekki þangað inn. Svo mikið er víst
að þau eru í afar litlum mæli miðað
við það sem gerist í opna samfélag-
inu,“ sagði fangaprestur.
Ólafur kemur minnst einu sinni í
viku og gefur föngum kost á við-
tölum. Þeir bera þá oft upp við hann
ýmisleg vandamál sem þeir eiga við
að etja í lífinu til dæmis vegna fjöl-
skyldumála. Hann gefur föngum ráð
og leiðbeinir þeim um hvemig skyn-
samlegt er að standa að ýmsu bæöi
í fangelsinu og eftir afplánun.
Ólafur annast einnig allt helgihald
sem kirkjan stendur fyrir í fangels-
um. í vetur hafa guöfræðinemi og
hljóðfæraleikari annast helgihald
meö fangaprestinum. Auk þess koma
Jóhann Guðmundsson, starfsmaður
Háskólans, og kona hans einu sinni
í mánuði og bjóða föngum upp á
helgistund.
Fangarnir á Litla-Hrauni eru menn
með tilfinningar og þarfir eins og
þeir sem eru utan múaranna. Þeir
neita því ekki að þeir hafi unnið til
vistar sinnar í fangelsinu. Hins vegar
finnst stjórnvöldum greinilega allt í
lagi að vista menn í „skápum" innan
um geðsjúka þjóðfélagsþegna.
-ÓTT
Peningainarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbaekur ób. 3 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-6 Ib
6 mán. uppsögn 4-7 Ib
12mán. uppsögn 4-8 Ib
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3 Allir
Innlan verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán.uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2.5-3 Lb.Bb,-
Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,25 Sb
Sterlingspund 13.6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,25 Sb
Danskar krónur 10,5-11 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 13.0-13,75 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14 Allir
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggö
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,95-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,15-10,25 Bb
Sterlingspund 15,85-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 10-10,25 Allir
' nema Ib
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 26
MEÐALVEXTIR
óverðtr. maí 90 14
Verötr. maí 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala mai 2873 stig
Lánskjaravísitala april 2859 stig
Byggingavisitala mai 541 stig
Byggingavísitala mai 169,3 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,841
Einingabréf 2 2,648
Einingabréf 3 3,186
Skammtimabréf 1,644
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,119
Kjarabréf 4,795
Markbréf 2,552
Tekjubréf 1,962
Skyndibréf 1.438
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,333
Sjóðsbréf 2 1.748
Sjóðsbréf 3 1.630
Sjóðsbréf 4 1,381
Vaxtasjóðsbréf 1,6470
Valsjóðsbréf 1.5500
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 500 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 145 kr.
Hampiðjan 152 kr.
Hlutabréfasjóður 178 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 152 kr.
Skagstrendingur hf. 320 kr.
Islandsbanki hf. 163 kr.
Eignfél. Verslunarb. 170 kr.
Olíufélagið hf. 415 kr.
Grandi hf. 164 kr.
Tollvörugeymslan hf. 102 kr.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Næstminnstu klefarnir á Litla-Hrauni eru af þessari stærð. Þeir eru við
svokallaðan Laugaveg og kallast „skápar“. Rúm með steinsteyptum gafli
er það eina sem fanginn fær. Annað verður hann sjálfur að útvega í gegn-
um aðstandendur utan múranna.
Magnús Ingi Gíslason fangavörður i glerbúri við „Laugaveginn".
Olafur Jens Sigurðsson fangaprestur i einum klefanna i B-álmunni þar sem
langtímafangar eru vistaðir. Löng bið er eftir klefum af þessari stærð.
„Skápafangarnir" verða bara að bíða, mánuðum saman.
DV-myndir Brynjar Gauti