Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Side 9
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990.
9
Utlönd
Leiðtogi Verkamannaflokksins, Neil Kinnock (fyrir miðju) lýsti í gærkvöldi yfir ánægju sinni með frammistöðu fram-
bjóðenda flokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Simamynd Reuter
Að loknum sveitarstjómarkosningum 1 Bretlandi:
Nefskatturinn íhald-
inu dýrkeyptur
Nefskatturinn, sem lagður var á í
Bretlandi í síðasta mánuði, kostaði
íhaldsflokk Thatcher forsætisráð-
herra mörg sæti í sveitarstjórnar-
kosningum sem fram fóru þar í landi
í gær. Stór hluti kjósenda sýndi
óánægju sína með skattinn í verki
og greiddi fulltrúum Verkamanna-
flokksins atkvæði sín. Þó gekk
Verkamannaflokknum ekki eins vel
og margar skoðankannanir höfði
spáð fyrir um.
Þegar búið var að telja í eitt hundr-
að og sextíu af tvö hundruð og tíu
kjördæmum í Englandi, Skotlandi og
Wales höíðu íhaldsmenn tapað 268
sætum en unnið 71. Verkamanna-
flokkurinn hafði aftur á móti unnið
340 sæti en tapað 39.
Gott veður og sólskin víða um Bret-
landseyjar í gær juku á kjörsókn sem
var með besta móti. Þessar kosning-
ar í gær eru stærsti prófsteinn á vin-
sældir íhaldsflokksins síðan fyrir ári
þegar flokkurinn þurfti að sætta sig
við ósigur í kosningunum til Evrópu-
þingsins.
Leiðtogi Verkamannaflokksins,
Neil Kinnock, var að vonum ánægð-
ur með þau úrslit sem lágu fyrir í
gærkvöldi og sagði þau frekari sönn-
un um aukinn stuðning við flokkinn.
Forysta íhaldsflokksins sagði aftur á
móti að frambjóðendum flokksins
hefði ekki gengið eins illa og spár
hefðu sagt til um. í skoðankönnun-
um fyrir kosningar var því spáð að
flokkurinn myndi missa alls fiögur
hundruð sæti.
íhaldsflokkurinn hefur tapað
miklu fylgi síöustu vikur og mánuði,
ef marka má niðurstöður skoðana-
kannana. Samkvæmt sumum könn-
unum hafði Verkamannaflokkurinn
allt að 23 prósenta forskot á íhalds-
flokkinn. Ihaldsflokkurinn getur þó
stutt sig við niðurstöður nýrrar
könnunar á vegum Gallup sem birt-
ist í Daily Telegraph í morgun. Sam-
kvæmt þessari könnun hefur forskot
Verkamannaflokksins minnkað ög
nemur fimmtán prósentum.
Fréttaskýrendur segja að hluta
þessa vinsældataps megi rekja til
nefskattsins sem og hárra vaxfa og
vaxandi verðbólgu. Verkamanna-
flokkurinn lagði áherslu á að kosn-
ingarnar í gær snerust einkum um
nefskattinn. Þessi skattur er lagður
á alla fullorðna í landinu án tillits til
tekna og kemur í stað eignaskatts.
Nefskattinum er ætlað að íjármagna
alla þjónustu sveitarfélaga. Mikil
mótmæli gegn þessum skatti voru
haldin í London fyrir mánuði. Þau
mótmæli snerust upp í verstu og
blóðugustu róstur sem átt hafa sér
stað í höfuðborginni fyrr eða síðar.
Reuter
Kemur KGB-foringi til Noregs?:
Titov vill vitna í máli Treholts
KGB-forínginn Genadij Titov á
það á hættu að verða handtekinn í
Noregí þegar hann kemur þangað
til að vitna í nýjum réttarhöldum
yfir meinta njósnaranum Arne
Treholt því hann nýtur ekki frið-
helgi og hefur verið lýstur óvel-
kominn.
Titov, sem nýlega talaði við
sænska sjónvarpið og danska út-
varpið, sagði að hann væri meira
en fús að ræða um samskipti sín
viö Treholt og vitna í máli hans í
Noregi. Lögfræðingurinn Carl A.
Fleischer hefur þó sagt að vaninn
væri að handtaka þá sem þykja
óæskílegir í landinu. Eftir að Titov
var lýstur það sem kallað er „non
grata“ í Noregi árið 1977 hefur
hann ekki leyfi til að koma þangað.
Ame Treholt hefur sjálfur sagt í
viðtali við sænska sjónvarpiö að í
dag þættu samskipti hans við Titov
og þaö sem þeim fór á milli ósköp
eölilegt og venjulegt en á sínum
tíma hefðu fundir þeirra ekki gefið
góða imynd af sér í Noregi. Ilann
bætti því einnig við að hann hefði
ekki verið einn um þaö að hitta
Titov því mun fleiri hefðu hitt hann
reglulega.
NTB
Verkföll í Vestur-Þýskalandi
Bylgja verkfalla gengur nú yfir
Vestur-Þýskaland og eru starfsmenn
Pósts og síma þar fremstir í flokki
ásamt þeim er vinna í stál- og rafiðn-
aði.
í gær fóru um 8000 starfsmenn
Pósts og síma í verkfall til að mót-
mæla kröfum um aukna framleiðni.
Talsmaður stéttarfélags póstmanna
lofaði að ef samningar tækjust ekki
mætti húast við fleiri verkfollum á
næstunni.
Skyndiverkfoll þessi auka mjög
álagið á Helmut Kohl, kanslara Vest-
ur-Þýskalands, sem er nóg þessa dag-
ana vegna sameiningar þýsku ríkj-
anna. Verkfóllin eru mikið áfall fyrir
- aðaliðnaðarfyrirtæki landsins.
IG Metall, sem er stærsta stéttarfé-
lag í Vestur-Evrópu, fyrirskipaði
stöðvun í gær og var það í þriðja
skipti á skömmum tíma sem at-
vinnulífið lamast. Fer fólk fram á að
vinnuvikan verði stytt í 35 tíma, en
nú er hún 37 tímar, og kaupið verði
hækkað verulega. Rúmlega 230.000
starfsmenn stærstu fyrirtækja Vest-
ur-Þýskalands, þ.á m. starfsmenn
bílaverksmiðjunnar BMW og raf-
tæknifyrirtækisins Siemens lögðu
niður vinnu í þrjár klukkustundir í
gær.
Vestur-þýska stjórnin sagði að
landið hefði ekki efni á því að stytta
vinnuvikuna einmitt núna þegar það
þyrfti að fjármagna sameingu þýsku
ríkjanna. IG Metall sagði þó að þýski
iðnaðurinn væri tilbúinn að fallast á
málamiðlun en aðilar eru þó langt í
frá að vera sammála um hvernig
koma skuli á 35 tíma vinnuviku. Ef
ekki verður búið að semja fyrir
þriðjudaginn mun verða kosið um
hvort stéttarfélögin boði til allsherj-
arverkfalla. Reuter
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Hefur þú menntun og reynsífi sem
nýtíst þér til að starfa að málefnum
fatíaðra?
Heftir þá löngun til að tafcast é við ný vcrfc-
cfní í áhugaverða starfsumhverfi þar scm
tæfcifærí bjóðast til nýsköpunar í vínnu-
brögðum og samvinnu við sérfræðínga á
ýmsum sviðum?
Ef svo er víll Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norður-
landí eystra benda þér á eftirfarandi:
RÁÐGJAFAR- OG GREININGARDEILD
Við deildina starfa tveir sálfræðingar og forstöðumaður leikfanga-
safns. Deildin veitir ráðgjöf til foreldra fatlaðra barna, stofnana sem
þjóna fötluðum börnum jafnframt þvi að vera ráðgefandi i málefn-
um fullorðinna og þeirra stofnana sem Svæðisstjórn rekur.
Við deildína eru nú lausar þessar stöður-.
1 staða forstöðumanns leikfangsafns.
Um er að ræða fjölbreytt og Iifandi starf sem gefur möguleika á
ýmiss konar nýbreytni, þróun og þverfaglegu samstarfi. Mikil
áhersla er lögð á að fötluð börn njóti almennrar þjónustu og fýlgir
þvi starfinu meðal atinars samvinna við dagvistir viða í umdæminu.
Umsækjendur hafi menntun á uppeldissviði og reynslu af að starfa
með börnum á aldrínum 0-16 ára.
1 staða félagsráðgjafa.
Félagsráðgjafmn tengist i starfi sinu sérfræðingum deildarinnar sem
annars vegar vinna að málefnum barna og unglinga en hins vegar
málefnum fullorðinna.
VISTHEIMILIÐ SÓLB0RG,
SÉRFRÆÐI- 0G ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Heimílið er sú stofnun Svæðisstjórnar sem Iengst hefur starfað og
þar búa að jafnaði 45 þroskaheftir einstaklingar. Með samþykki
stjórnvalda hefur verið ákveðið að þróa starfsemi þess i átt að sér-
fræðí- og þjónustumíðstöð þar sem aðstaða verður fýrir stjórnsýslu
o.fl. Til að svo megi verða þarf stærstur hluti ibúanna að flytjast á
næstu árum i aðra búsetu, eins og t.d. sambýli. Fyrsta skrefið í átt
til þessara breytinga er aukið sjálfstæði þeirra 6 íbúðardeilda sem
nú eru á heimilinu og stóraukin dagþjónusta víð þá og aðra sem
á slikri þjónustu þurfa að haida. Einnig verður stefnt að aukinní
þjónustu í formí skammtimavistunar.
Svæðisstjórnin vill ráða fólk með sérhæfða þekkingu og reynslu
af stjórnun og skipulagsstöfum tíl að vinna að undirbúningi og fram-
kvæmd þeirra breytinga sem verða á starfsemi Sólborgar i þá átt
sem hér er lýst. Um þessar stöður er að ræða:
1 staða deíldarstjóra ibúðardeílda.
Deildarstjóri hefur umsjón með rekstri 6 ibúðardeilda og Ieiðír það
starf sem þar fer fram. Hann ber ábyrgð á starfsmannahaldi og
tekur þátt i þverfaglegu samstarfi um mótun þjónustunnar og þeirra
breytinga sem stefnt er að i rekstri heimilisins.
1 staða deildarstjóra dagdeílda.
Deildarstjórinn stýrir þeirri dagþjónustu sem nú er veitt og vinnur
að skípulagningu nýrra tilboða og þjónustuþátta. Hann ásamt öðr-
um starfsmönnum mótar og samræmir þá dagþjónustu sem nú
er rekin og verður rekin i nafni Svæðisstjórnar.
10 stöður deildarþroskaþjálfa.
Deildarþroskaþjálfar óskast til starfa á öllum deildum heimilisins.
Þeir ganga að hluta til vaktír og annast daglega verkstjórn og Ieið-
sögn til starfsmanna hver á sinni deild. Þeir taka einnig virkan þátt
í því þróunarstarfi sem stefnt er að í starfi heimilisins.
SAMBÝLI
2 stöðar forstöðumanna.
Svæðisstjórn rekur sambýli á 5 stöðum á Akureyri og eitt á Húsa-
vik. lbúar sambýlanna eru samtals um 40. Við tvö þessara sam-
býla eru Iausar stöður forstöðumanna.
Annað sambýlanna þjónar fólki með langvinna geðsjúkdóma og
starfar i tengslum við geðdeild FSA. 1 hinu sambýlínu búa þroska-
heftir. Þessi störf bjóða upp á samvinnu við aðrar stofnanir Svæðis-
stjórnar og þverfaglega vinnu.
Nánarí upplýsingar um stöður þessar veíta:
Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri Svæðisstjórn-
ar, sími 96-26960.
Ráðgjafar- og greiningardeild:
Gyða Haraldsdóttir forstöðumaður, simi 96-26960.
Vistheimílíð Sólborg:
Sígrún Sveinbjörnsdóttir forstöðumaður, sími
96-21755.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Skriflegar umsóknir skal senda Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra, pósthólf 557, 602 Akureyri.
Framkvæmdastjóri