Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifíng: Simi 27022 Frjálst,óháö dagblað FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990. Eurovision: Blaðamenn töldu lagið best íslenska lagið í Eurovision-keppn- inni, Eitt lag enn, var kosið besta lagið hjá blaðamönnum landanna tuttugu og tveggja sem þátt taka í keppninni í gær. Að sögn Grétars Örvarssonar söngvara voru þau mjög ánægð yfir þeim úrslitum sem gæfi þeim vísbendingu um aö fólk væri ánægt með lagið. „Erfiðasti dagurinn hjá okkur er í dag. Við förum í tvær æfingar í dag og í kvöld verður rennsli þar sem allur þátturinn verður sendur til þeirra landa sem keppa eins og hann mun veröa annaö kvöld. „Eg hef grun um að þessi þáttur muni skipta miklu máli því að dómnefndir munu fylgjast meö útsendingunni," sagði Grétar. Blaðamenn frá hinum ýmsu lönd- um hafa sýnt Grétari og Siggu mikla athygli og þau hafa farið i allnokkur viðtöl. Þau eru bjartsýn með lagið og sögðust vona það besta. Að sögn Grétars hafa þau leitt alla veðbanka hjá sér - úrslitin koma í ljós á morg- -^un. -ELA Eldhúsdagur: Júlíus boðaði stofnun tveggja sfjórn- málaflokka í eldhúsdagsumræðunum á Al- þingi í gærkvöldi boðaði Júlíus Sól- nes stofnun tveggja nýrra stjórn- málaflokka. Hann sagði jafnaðar- mannaflokk vera í burðarliðnum og kjölfarið yrði stofnaður nýr fjölda- flokkur hægra megin við miðju. Hann spáði því að þessir tveir flokk- ar myndu leysa núverandi stjórn- málaflokka af hólmi í framtíðinni. Fátt nýtt kom að öðru leyti fram í þessum umræðum. Þær voru í öllum atriðum eins og eldhúsdagsumræður hafa verið síðustu áratugina. Stjórn- arsinnar lofuðu verk ríkisstjórnar- innar í hástert en stjórnarandstæð- ingar fundu ríkisstjórninni og störf- um hennar flest til foráttu. Það kom fram í máli margra að ástæðan fyrir andstöðu Sjálfstæðis- flokksins við stofnun umhverfis- málaráðuneytis væri vegna persónu- legrar andstöðu þingmanna flokks- ^ins við Júlíus Sólnes. ■ Þá skerptu kvennalistakonur and- stöðu sína við nýtt álver og stóriðju yfirleitt. -S.dór LOKI Rifjað upp á eldhúsdegi: Satt og logið sitt er hvað. Sönnu er best að trúa. En hvernig á að þekkja það, þegar flestir Ijúga. Lögreglan fann í fórum þeirra grunuöu í morðmálinu: Þýfi frá Esso og smámynt - blóðug fót Við húsleitir, hjá fólkinu sem er í gæsluvarðhaldi vegna morðsins á bensínstöðinni við Stórageröi, fann lögreglan meðal annars þýfi sem sarrnað er aö var tekið í innbroti á einni af smurstöðvum Esso. Þaö innbrot var framið fyrir nokkru. Þetta hefur DV eftir öruggum heimiidum. Við húsleitir fundust einnig smá- peningastautar - sömu gerðar og voru teknir í bensínstöðinni við Stóragerði. Ekki er sannað aö stautarnir séu frá bensínstööinni við Stóragerði. Þá fundust blóðug föt í eigu eins karlmannsins. Sam- kvæmt heimildum DV ber hann því við að hann hafi lent í slagsmálum og reyndar er talið líklegt að svo send til Skotlands til ef hafi verið. Hann hefur kært lík- amsárásir til lögreglu tvisvar sinn- um síðustu vikur. Fötin hafa verið send til Skotlands þar sem blóðið verður efnagreint. DV hefur einnig upplýsingar um að einn grunuðu mannanna hafi, seint í síðustu viku, verið að skipta smámynt í bönkum í miðbæ Reykjavíkur. Eins og fram hefur komið í fjölraiölum hefur RLR vopn undir höndum sem grunur leikur á að geti hafa verið notað til að bana bensínafgreiöslumanninum í síðustu viku. Annar mannanna sem situr nú í gæsluvarðhaldi hef- ur oftsinnis borið á sér bitvopn. í upphafi lék strax grunur á um að fikniefnaneytendur hefðu staðið að baki morðinu. Neytendur í þörf fyrir að ná sér í peninga til að fjár- magna kaup á eiturlyfjum - dæmi- gert athæfi fíkniefnaneytenda sem fremja rán eða innbrot. Þau fjögur sem nú sitja í varöhaldi í Síðumúla- fangelsinu hafa öll verið neytendur sterkra fikniefna. Tveir mannanna hafa komiö viö sögu fikniefnalög- reglunnar í Reykjavík. Annar þeirra var viðriðinn innflutn- ing á 700 skömmtum af LSD á síð- astliðnu ári. Samkvæmt heimild- um DV eru aö minnsta kosti tvö þeirra sem nú sitja í Síöumúlafang- elsinu mjög ílla farin eftir neyslu ofskynjunarlyfja. -ÓTT Sóldýrkendur nýta sér fyrstu glætu vorsins til að sóla sig. Þessi yngismær í Hampiðjunni hallaði sér upp að trolli þegar sólin skein hvað glaðast í gær og lét sig dreyma um sólríkt sumar. DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Sæmilegt víðast hvar Á morgun verður vestlæg átt, skýjað vestanlands og ef til vill súldarvottur í fyrramáliö en þurrt síðdegis. í öðrum landshlutum létt- ir tíl. Hiti víðast 6-12 stig, hlýjast austanlands þar sem einnig verður bjartast. Sýn og Stöð 2 hafa sameinast Stöð 2 og Sýn hafa sameinast. Skrif- að var undir samninga í nótt. Hin nýja sjónvarpsstöð ætlar að hafa tvær sjónvarpsrásir og vera með tvær útvarpsstöðvar, Bylgjuna og Stjörnuna. Til stendur að stofna 800 milljóna króna almenningshlutafé- lag á næstunni. Það verður stærsti fjölmiðlarisinn hér á landi. Mjög leynilegar viðræður hófust á milh Sýnar og Stöðvar 2 fyrir nokkr- um dögum. Segja má að þær hafi staðið þrotlaust yfir síðustu fjóra sólarhringana. Árangurinn leit dags- ins ljós í nótt. Hin nýja sjónvarpsstöð hyggst verða með tvær sjónvarpsrásir. -JGH Hreggviður Jónsson: Hafa margoft boðið okkur að koma yfir Hreggviður Jónsson, annar tveggja þingmanna Frjálslynda hægri flokksins, neitar þeim orðrómi að þeir Ingi Björn Albertsson hafi ákveðið að ganga yfir í Sjálfstæðis- flokkinn. „Þetta er ekki rétt.“ Hreggviður segir ennfremur að þeir Ingi Björn íhugi um þessar mundir framtíð Frjálslynda hægri flokksins. „Við teljum okkur vera á tímamótum um póhtíska framtíð okkar.“ - En hafið þið rætt við sjálfstæðis- menn að undanförnu um að ganga yfir í Sjálfstæðisflokkinn? „Það hafa engar viðræður átt sér stað. Þeir hafa hins vegar margoft boðið okkur að koma yfir, raunar allt frá því að við stofnuöum Borg- araflokkinn." -JGH Látum ekki loka - segja Amarflugsmenn „Ég vona að flugmálastjóri átti sig í þessu máli og ákveði að vinna með okkur þannig að við fáum að greiöa þetta með skaplegum hætti. Fólkiö okkar þarf hka aö fá sín laun,“ sagði Kristinn Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, en flug- málayfirvöld hafa hótað að loka fyr- irtækinu ef það stendur ekki skil á um 1,4 milljónum í lendingargjöld um hádegi i dag. Kristinn sagði að aldrei kæmi til lokunar fyrirtækisins vegna svo htils hluta af um mihjarðs skuld félagsins. Hann sagðist vonast til þess að hægt yrði að greiða starfs- fólkinu laun innan fárra daga eftir að búið væri að ganga frá ákveðnum málum. -gse NÝR GLÆSILEGUR VEITINGASTAÐUR í MIÐBORGINNI uu/ jarlinn TKYGGVAGÖTU BÍLALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.