Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990.
Viðskipti______________________________________
Það harðnar á steypumarkaðnmn:
Kreppan ekki í rénun
Kreppan er ekki í rénun á bygg-
ingamarkaðnum ef mið er tekið af
steypusölu það sem af er árinu. Sala
á steypu er minni en í fyrra og mun-
ar þar mest um hve samdrátturinn
var mikill í apríl og maí. Það voraði
illa fyrir steypuframkvæmdir.
Tómas Runólfsson, hjá Sements-
verksmiðju ríkisins, segir að verk-
smiðjan geri 'ráð fyrir minni sölu á
sementi á þessu ári én í fyrra og ekki
beri á öðru en að það æth að verða
raunin.
„Við gerum ráð fyrir að selja alls
milh 110 og 115 þúsund tonn af sem-
enti á þessu ári borið saman við tæp-
lega 118 þúsund tonna sölu í fyrra,“
segir Tómas.
Steypusala náði hámarki árin 1987
og árið 1988 þegar þensla ríkti í efna-
hagslífinu og ekki síst í byggingar-
iðnaðinum. Bæði þessi ár seldust yfir
130 þúsund tonn af sementi. Salan
var meiri árið 1988 eða tæplega 132
þúsund tonn.
Að sögn Tómasar er samdráttur í
steypusölu mun meiri úti á landi en
á höfuðborgarsvæðinu.
Sementsverkspiiðj an hefur orðið
að stöðva framleiðslu sements í einn
mánuð á þessu ári vegna minnkandi
sölu. „Við framleiddum ekkert se-
ment í mars, tíminn var þess í stað
notaður til viðhalds hér í verksmiðj-
unni.“
-JGH
Kreppan er ekki i rénun á byggingamarkaðnum miðað við tölur um sölu
sements á árinu. Það stefnir í samdrátt upp á 16 prósent miðað við árið 1988.
Bílamarkaðurinn breytist um mánaðamótin:
Erfiðara að flytja inn bandaríska bíla
Ný reglugerð um gerð og búnað
ökutækja tekur gildi 1. júh næstkom-
andi. Nýju reglumar miðast viö stað-
al ökutækja í Evrópu. Helstu áhrifin
á bílamarkaðnum við þessa breyt-
ingu er sú að erfiðara verður að fá
sértegundir af bandarískum bílum
en áður.
„Þessi reglugerð hefur ekki svo
mikil áhrif á framboð bandarískra
bíla hjá okkur. Chrysler-bílaverk-
smiðjurnar hafa framleitt bíla fyrir
Evrópumarkaðinn um nokkurt
skeið. Engu að síður fylgir þessu
aukinn kostnaður og meiri vinna
vegna skýrslugerðar," segir Ragnar
J. Ragnarsson, forstjóri Jöfurs hf„
sem er með umboð fyrir Chrysler.
Hann segir ennfremur að eftir 1.
júh verði að leggja fram skírteini
meö hverri tegund þar sem færðar
séu sönnur á að viðkomandi bíh
standist þær kröfur um búnað sem
gerðar eru samkvæmt evrópskum
staðli.
Að sögn Ragnars framleiða Japanir
bíla sérstaklega fyrir Evrópumarkað
og sömu sögu sé auðvitað að segja
um bíla framleidda í Evrópu.
„Ég tel að eftir breytinguna muni
þeir sem vilja sérstakar og sjaldgæf-
ar tegundir af bandarískum bílum,
sem ekki eru framleiddir fyrir Evr-
ópumarkað heldur eingöngu Banda-
ríkjamarkað, eiga erfiðara með að fá
óskina uppfyllta. Þetta kemur hins
vegar ekki að sök með meginþorra
bíla.“
-JGH
Menning
Minnismerki frjó-
semi og sköpunar
- sýning Sigríðar Elfu Sigurðardóttur í HLaðvarpanum
í Hlaðvarpanum á Vesturgötu 3 stendur þessa
dagana yfir allsérstæð sýning. Sigríður Elfa Sig-
urðardóttir hefur lagt þar undir verk sín bæði
kjahara og ris hússins, auk þess sem nokkuö
smámuna úr smiðju Sigríðar er til sölu á mið-
hæðinni á Listmunamarkaðnum. Sá hluti sýn-
ingarinnar sem er í kjallaranum hlýtur að vekja
hvað mesta athygli. Þar er um að ræða uppstill-
ingu (instailation á erlendu máh) sem stendur
mun nær leikhúsi en fólk á almennt að venjast
með þá grein núlista.
Ferð inn í heim goðsagna
Segja má að hér sé um að ræða ferðalag gests-
ins inn í sammannlega undirvitund; fortíð
mannsins og framtíðarvon; átök kynjanna og
átök frjósemi og eyðingar. Sigríður Elfa skrifar
inngang að sýningu sinni sem hún byggir á goð-
sögn Macuna-indíána um þá daga er konan réð
ríkjum hér á jörð og skóp frið og frjósemd með
töfraflautu að vopni. Önnur útgáfa goðsagnar-
innar mun hafa vitrast Sigríði í draumi og hafði
konan þar tennt sköp sér til varnar. Öfundsjúk
karlrembusvín sáu sér svo leik á borði, brutu
skapatennur hinnar frjósömu móður og upp-
hófu eyðingarskeið pungrottanna. Þannig geng-
ur gesturinn innum tennt sköp þegar hann
heimsækir sýninguna. Seiðandi flaututónar
leiða hann inn í helli þar sem frjósemin og erót-
íkin ræður ríkjum. Eðlur eðla sig í tré, kviðmikl-
ar kvígur eru málaðar af andakt á helhsveggi
og frjósöm indíánamóðir verður léttari á gólfi
prýddu spíralmynduðum gróðri.
Tilvísanir í umhverfið og söguna
Þaðan liggur leiðin framhjá „töfraflautu" um
„gang einmanaleikans", en þar hanga minnis-
merki um nokkra indíánaþjóðflokka í Mexíkó
og einn í Kólumbíu, sem eru í þann mund að
deyja út. Sigríöur fer skemmtilega leið í sköpun
þessara minnismerkja og að mínum dómi eru
þau hápunktur sýningarinnar. í stað þess að
taka beint upp form og aðferðir indíánanna í
handverki gerir Sigríður hálsfestar sem inni-
Eitt af verkunum á sýningu Sigríðar Elfu Sigurð-
ardóttur í Hlaðvarpanum. DV-mynd GVA
Myndlist
Óláfur Engilbertsson
halda eftirlíkingar hluta úr þeirra nánasta um-
hverfi eða sögu. Þannig er hálsfesti Lacando-
nes-ættflokksins gerð úr ávaxtaeftirlíkingum
þar sem þeir búa í frumskóginum syðst í Mex-
íkó og lifa mestmegnis á ávöxtum og grænmeti.
Á sama hátt fær hin kólumbíska Coquis-þjóð
gyllta eðlu í sitt hálsmen, því hún á mikla gull-
smiði. Til aö boðskapurinn fari svo ekkert á
milh mála hefur Sigríður staðsett spegil í beinu
framhaldi af minnismerkjunum.
Að þessari menningarlegu dýfu lokinni fer
fram uppgjör í aldingarðinum þar sem hehög
þrenning hefur tögl og hagldir í gervi þríhöfða
nöðru. Nakið parið sýnist sauðmeinlaust þó
eyðileggingin sé í sjónmáli. Á altari frjósemi og
dauða eru blóm nærð á dósagosi að mexíkönsk-
um sið. Hauskúpumar á altarinu og tré lífsins
eru beinar tilvísanir í menningarheim azteka,
sem tignuðu, eins og kunnugt er, dauðann. Lýs-
ingin á altarið virkar skemmthega, sem og á
hellamálverkin.
Heimurtákna
Viö útganginn'blasir við nekt eyöleggingar-
innar og er vel við hæfi að hrátt umhverfið fái
þar að njóta sín. Hin ftjósama móðir er nánast
orðin að dufti, en skapatennur hennar varðveit-
ast engu að síður. Til að undirstrika eyðinguna
er biti í gervi töfraflautu alsettur kopamöglum
við útganginn en kopar mun vera eitur í æðum
tijáa. Vera má að sumir kunni að lesa út úr
sýningu þessari kröfu um mæðraveldi og tafar-
laust valdaafsal karla.
Réttara er þó vafalaust að tala um mýkt frem-
ur en harðneskju, að sköpunin sé virt en ekki
eyðingin. Á tímum skógarhöggs, mannhöggs og
gróðurhúsaáhrifa hlýtur öllum að vera hollt að
velta þessum hlutum fyrir sér. Kjahari Hlað-
varpans er góður vettvangur th þess nú um
stundir.
Á efri hæð eru th sýnis níu málverk. Mér
þótti þau standa kjallarauppstillingunni nokkuð
að baki. Þó vekur eftirtekt skemmtileg áferð á
málverkunum sem Sigríður mun ná fram aö
mestu með fljótandi prentlitum. Einnig blandar
hún pappír, grisjum, striga og jafnvel fiskbein-
um inn í ríkulega áferðina. Ramminn utanum
myndina „Einmanaleiki" vakti einnig athygh
mína. Þar búa kuðungar til ramma utan um
mynd af annars konar kuðungi, sem mun reynd-
ar hafa verið notaður sem flauta af indíánum.
Veikasti hlekkur sýningarinnar þykir mér
teikningin, þ.e. anatómían í málverkunum.
Þetta kemur sterkt í ljós þar sem mannslíkam-
inn er veigamikið atriði, s.s. í myndunum
„Skráð í sand“ og „Flug“. Myndir sem reiða sig
meira á áferðina og táknræn, fremur en raun-
sönn form, standa mun betur að vígi. En í hehd-
ina er hér á ferðinni óvenjuleg og „heit“ sýning
sem mun vonandi bæta örfáum fersentímetrum
viö ósonlagið. Síðasti sýningardagur er 17. júni.
Byggmgamarkaðurinn:
Mun minna
um stórverk
Mun minna er um stórverk á bygg-
ingamarkaðnum en á undanfömum
ámm þegar miklar steypufram-
kvæmdir vom samtímis í Kringl-
unni, Útvarpshúsinu, Helguvík og
fleiri stöðum.
Að sögn Aðalsteins Hahgrímsson-
ar, hjá stærsta verktakafyrirtæki
landsins, Hagvirki, em helstu stór-
verk fyrirtækisins þetta sumarið
brúin í Garðabæ, nýtt stórhýsi í mið-
bæ Kópavogs, nýtt fjölbýlishús í
Hafnarfirði og hús fyrir SEM-sam-
tökin.
Varðandi önnur stórverk á bygg-
ingamarkaönum nefnir Aðalsteinn
stórt bhageymsluhús sem Byggða-
verk er að reisa við Lindargötu svo
og sorpböggunarstöðina i Gufunesi.
Þá mun Hagvirki vera að undirbúa
framkvæmdir við stórt bílageymslu-
hús við Hverfisgötuna, gegnt Þjóð-
leikhúsinu.
Varðandi byggingamarkaðinn í
hehd, segir hann: „í okkar thviki er
þetta heldur betra á hinum almenna
markaði, hann virðist vera að
glæðast. Mér heyrist aðrir hafa svip-
aðasöguaðsegja." -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6 mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5,5 lb
18mán.uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9.25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viöskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Alltr
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr-) 16,5-17,5 Bb
Utlánverðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandarikjadalir 10,10 10,25 Bb
Sterlingspund 16.8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb
Húsnaeðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júní 90 14,0
Verðtr. júní 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajúni 2887 stig
Lánskjaravisitala maí 2873 stig
Byggingavisitala júní 545 stig
Byggingavísitala júní 170,3 stig
Húsaleiguvisitala 1,8% hækkaði 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,902
Einingabréf 2 2,676
Einingabréf 3 3,230
Skammtimabréf 1,661
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,138
Kjarabréf 4,860
Markbréf 2,584
Tekjubréf 1.988
Skyndibréf 1,454
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,358
Sjóðsbréf 2 1,769
Sjóðsbréf 3 1,645
Sjóðsbréf 4 1,397
Vaxtasjóðsbréf 1.6635
Valsjóðsbréf 1,5635
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Oliuféiagið hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.