Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990.
Útlönd
Sogaðist upp úr sæti sínu
Skemmdir kannaðar á þotunni sem flugstjórinn sogaðist út um.
Símamynd Reuter
Breskur flugstjóri segist vilja fara í loftiö aftur þrátt fyrir að hafa
komist í hann krappan yfir Suður-Englandi á sunnudaginn. Flugstjórinn,
Timothy Lancaster, bjóst ekki við að halda lífí er hann sogaðist út um
gluggann á þotunni sem hann flaug meö 81 farþega á leiö M Birmingham
til Malaga á Spáni.
Hann kveðst hafa heyrt brothljóð er Mmrúður á þotu hans brotnuöu
í sjö þúsund metra hæð og andartaki síðar sogaðist hann upp úr sæti
sínu. Tveimur úr áhöfninni tókst að grípa í fætur flugstjórans og halda
honum föstum þar til vélinni hafði verið nauðlent í Southampton fimmt-
án mínútum efiir slysiö.
Lancaster liggur nú á sjúkrahúsi meö brotinn olnboga, úlnlið og þumal-
fingur. Hann er einnig kalinn á annarri hendi. Jakki flugstjórans fannst
á akri í suðurhluta Englands í gær.
Vilja ffugræningjann framseldan
Sovésk yfirvöld fóru fram á þaö í gær að piiturinn sem rændi sovéskri
flugvél seint á fóstudagskvöld og neyddi fiugstjórann tfl að fljúga til Stokk-
hólms yrði framseldur. Sjálfur ætlar pilturinn, sem er sautján ára, að
fara fram á pólitískt hæli i Svíþjóð. Óljóst er hversu langan tima það tek-
ur að fjalla um beiðni sovéskra yfirvalda.
Ekki verður hægt að framselja piltinn eftir að dómur hefur falhð. Piltur-
inn var settur í gæsluvarðhald á sunnudaginn. Ákæra á hendur honum
verður að hafa verið lögð fram i síðasta lagi 21. júm'.
Sovésk yfirvöld þökkuðu sænskum yfirvöldum í gær fyrir að hafa séð
til þess að farþegar sovésku flugvélarinnar gátu snúið fljótt aftur til Sovét-
ríkjanna. Pilturinn er sagöur hafa rænt flugvélinni eftir rifrildi við
foreldra sína út af skellinöðru.
Átök í Búkarest
Á meðan embættismenn rúmönsku stjórnarinnar og fulltrúar stjómar-
andstæðinga, sem verið hafa í hungurverkfalli, undirrituðu samkomulag
í gær brutust út átök mifli mótmælenda og öryggissveita fyrir utan aðal-
bækástöðvar stjómarinnar.
Samkvæmt samkomulaginu samþykkir stjómin í meginatriðum aðal-
kröfu þeirra sem voru í hungurverkfahi, nefhilega leyfi fyrir óháðum
sjónvarpsstöðvum í Rúmeníu. Kröfiimenn höfðu verið í hungurverkfalli
M því í apríllok.
Þeim óx hins vegar ásmegin við átökin í gær og sögðust ekki hætta
aðgerðum sínum fyrr en leyfi fyrir sjónvarpsstöð hefði verið gefið út.
Átökin milli mótmæienda og öryggissveita voru ekki sögð alvarleg.
Komið upp um smygl á flóttamönnum
Bandarísk yfirvöld hafa komið upp um áætíun um að smygla allt að
þtjátíu og fimm þúsund Kínveijum M Panama til Bandaríkjanna. Máhð
varö uppvist er útsendarar á vegum Bandaríkjastjómar, dulbúnir sem
eiturlyfjasmyglarar, komust ixm í innsta hring Kínveijanna.
Um sextíu manns voru handteknir í gær og af þeim eru margir sem
flúðu Kína eftir að yfirvöld þar brutu á bak aftur uppreisn námsmanna.
Bandarísku embættismennirnir kváðust hafa sannanir fyrir þvi að um
þrjátíu og fimm þúsund Kínverjar væru í Panama og biðu eftir flutningi
til Bandarflganna. Smyglið á þeim þangaö var skipulagt stuttu áður en
Bandaríkjamenn gerðu innrás í Panama í desember síðasthðnum.
SQðmarandstaðan fagnar
Stuðningsmenn Bandaiags lýðræðisafla í Búigaríu kveiktu i borðum
kommúnista fyrír framan þinghúsið í miðborg Sofiu í gær, einum degi
eftir fyrstu frjálsu kosningarnar i landinu i fjóra áratugi.
Súnamynd Reuter
Þrátt fyrir augljósan sigur fymun kommúnistaflokks Búigaríu, sem
nú nefnir sig Sósíahstaflokk Búlgaríu, hefur stjómarandstaðan í landinu
fagnaö þvi að einræöinu skuh lokið.
Yfir tíu þúsund stuðningsmenn Bandalags lýðræðisafla þyrptust út á
götur Soflu seint í gærkvöldi til aö fagna fyrstu frjálsu kosningunum í
Búlgaríu i fjóra áratugi. Ekki er búist við opinberum tölum fyrr en í
kvðld en skoðanakönnun gerð á vegum hinnar virtu Infas-stofhunar i
V-Þýskalandi sýnir að fyrrum kommúnistar hlutu 47,6 prósent en Banda-
iag lýðræðisafla 36,2 prósent.
DV
Hin nýja stjóm ísraels:
Harðlínumenn
fá aukin völd
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, hlaut í gær stuðning þingsins við
ráðherralista nýrrar stjórnar sinnar en sú stjórn er mesta harðlínustjórn í
SÖgu landsins. Símamynd Reuter
Harðhnumenn í ísrael styrktu
stöðu sína í gær þegar hin nýja stjóm
Yitzhak Shamirs hlaut stuðning
meirihluta ísraelska þingsins eftir
haröar og langar deilur. Fulltrúar
Palestínumanna og fuhtrúar stjórn-
arandstöðunnar segja að nýja stjórn-
in muni ekki ýta undir friðarhorfur
í þessum heimshluta. Sextíu og tveir
þingmenn lýstu yfir stuðningi við
ráðherrahsta Shamirs en 57 lýstu sig
andvíga honum. Þessi nýja stjórn er
mesta harðlínustjóm sem nokkurn
tíma hefur farið með völdin í ísrael.
Samþykkt þingsins í gær batt enda
á þriggja mánaða langa stjórnar-
kreppu í ísrael sem kom til vegna
ágreinings innan fyrri stjómar. Sú
stjóm, sem var skipuð fulltrúum
Verkamannaflokksins og Likud-
flokks Shamirs, féh vegna deilna um
friöarviðræður við Palestínumenn.
Verkamannflokkurinn styður hug-
myndir um slíkar viðræður en
Likud-flokkurinn er þeim andvígur.
Ljóst er að harðhnumenn innan
Likud em sigurvegarar stjómardeil-
unnar, hvað sem hður árangri Sham-
irs. Shamir segist munu vinna aö því
að ná friði við Palestínumenn en
hafnar alfarið að láta af hendi land
fyrir frið. Þá segist hann munu beita
öhum ráöum til að brjóta á bak aftur
uppreins Palestínumanna á her-
teknu svæðunum en hún hefur nú
staðið á þriðja ár.
En hin nýja stjórn er skipuð mörg-
um harölínumönnum sem' andvígir
em friðarviðræðum við Palestínu-
menn. Meðal þeirra er Ariel Sharon,
einn helsti keppinautir Shamirs um
forystuembætti Likud-flokksins, en
hann tekur við embætti húsnæðis-
málaráðherra. Sharon, sem leiddi
her ísraela er hann réðst inn í Líban-
on árið 1982, mun fara með búsetu-
mál innfluttra sovéskra gyðinga.
Búsetumál sovésku gyðinganna hef-
ur verið viðkvæmt mál í samskiptum
gyðinga og Palestínumanna þar sem
hægri menn krefjast þess að gyðing-
ar setjist að á herteknu svæðunum.
Reuter
íran-kontramálið:
Poindexter dæmdur í fangelsi
John Poindexter, fyrrum öryggis-
ráögjafi Bandaríkjaforseta, var í gær
dæmdur til sex mánaða fangelsis-
vistar vegna aðildar að íran-kontra
málinu svoköhuðu. Hann er eini sak-
borningurinn í þessu alvarlegasta
hneykshsmáh Reaganstjómarinnar
sem fær fangadóm. Dómarinn í mál-
inu sagði dóminn vera til að letja
aðra til að feta í hans fótspor. Engin
svipbrigði var að sjá a þessum fyrr-
um embættismanni Reagans, fyrrum
forseta, þegar dómurinn var kveðinn
upp í Washington í gær né lét hann
nokkuð hafa eftir sér um hann.
Poindexter var fundinn sekur í
apríl síðasthðnum um að bera ljúg-
vitni fyrir þingi, hindra framgang
réttvísinnar og síðast en ekki síst,
fyrir aðild að meintu samsæri um
að halda íran-kontra málinu leyndu.
Lögfræðingar hans hafa þegar hafið
undirbúning áfrýjunar dómsins.
íran-kontra máhð snerist um aðild
háttsettra bandarískra embættis-
manna að leyndri sölu vopna til íran
í þeirri von að það kynni að stuðla
að lausn vestrænna gísla í haldi
mannræningja í Líbanon. Arðinum
af sölunni átti síðan að veita til
kontraskæruliða í Nicaragua þrátt
fyrir bann bandaríska þingsins við
hernaðaraðstoðviðþá. Reuter
Fundað um sameinlngu Þýskalands:
Nýjar tillögur Moskvu
Utanríkisráöherrar Vestur-Þýskalands, Hans-Dietrich Genscher, og Sovét-
ríkjanna, Edúard Sévardnadze, ræddu sameiningu þýsku ríkjanna i so-
véska landamærabænum Brest í gær. Símamynd Reuter
Gorbatsjov Sovétforseti lagði til í
morgun að sameinaö Þýskaland
hefði tengsl við bæöi hemaðar-
bandalögin og gaf í skyn að það kynni
að ryðja brautina fyrir samkomulagi
austurs og vesturs um stöðu landsins
í kjölfar sameiningar. Forsetinn
sagði þetta á fundi sovéska þingsins
í morgun. Þessi ummæh forsetans
benda til að Moskvustjórnin hafi
mildað afstöðu sína til þeirrar kröfu
Vesturlanda að sameinað Þýskaland
eigi aðild að hinu vestræna hernaö-
arbandalagi, Nato.
Sovéski forsetinn sagði að ef leið-
togar Nato samþykktu breytingar á
hemaöarlegri stefnu bandalagsins á
fyrirhuguðum fundi sínum í London
í næsta mánuöi gæti farið svo að
lausn fyndist á þessari deilu.
Eduard Sévardnadze, sovéski utan-
ríkisráöherrann, gaf einnig í skyn í
gær að samningur um breytt sam-
skipti hernaðarbandalaganna kynni
að ryðja brautina fyrir samkomulagi
um stöðu Þýskalands að sameiningu
þýsku ríkjanna lokinni. Ráðherrann,
sem í gær fundaði með hinum vest-
ur-þýska kollega sínum, sagði um-
merki um að bandalögin væm að
láta af fjandskap hvort í annars garð
gefa ástæðu til bjartsýni og lét aö því
liggja að betri samskipti bandalag-
anna kynni að auðvelda samninga
um hemaðarlega stöðu hins samein-
aöa Þýskalands.
Kröfur Vesturlanda um að samein-
að Þýskaland eigi aðild að Nato hafa
reynst einn helsti þrándur í götu
samnings um stöðu landsins að sam-
einingu þýsku ríkjanna lokinni. En
að loknum viðræðunum í gær sögöu
ráðherrarnir að um framfór hefði
veriö að ræða í samningaviðræðun-
um. Hans-Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýskalands,
hafnaði því þó aö máhnu yrði frestað
fram yfir sameiningu og sagði best
að leysa öll mál fyrir sameininguna.
Reuter
/