Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990. AEmæli Ásta Erlingsdóttir. Ásta Erlingsdóttir, Grandavegi 47, Reykjavík, er sjötug í dag. Ásta er fædd í Reykjavík og fékk snemma áhuga fyrir störfum fööur síns. Hún vann viö grasalækningar frá 1960, fyrst með föður sínum og eftir and- lát hans 1967 hélt Ásta störfum hans áfram. Þessari arfleifö hennar hefur hún sinnt af kærleika og gefið böm- um sínum. Ásta hefur ferðast mikið um landið og safnað jurtum og leitað að heppilegum uppeldisstöðum þeirra jurta sem áhugi hennar bein- ist að. Kunnáttan til grasalækninga hefur haldist í ætt föður hennar í kvenlegg öldum saman. Ásta hefur fengist við aö mála og teikna úr jurtalitum og hefur haldið sýningu á verkum sínum. Atii Magnússon hefur samið endurminningar Ástu: Ásta grasalæknir, líf hennar og lækningar og dulræn reynsla, 1987. Ásta giftist í ágúst 1938 Einari Jóns- syni, f. 31. maí 1908, d. 1. mars 1968, vélstjóra. Foreldrar Einars em: Jón Einarsson, b. í Vaðlakoti í Gaul- veijabæjarhreppi, og kona hans, Ingibjörg Ámadóttir. Böm Ástu og Einars em: Baldvin, f. 30. ágúst 1938, vélvirki í Astralíu, kvæntur Elísa- betu Magnúsdóttur og eiga þau þrjú böm; Regína, f. 11. júní 1940, d. 1. september 1980, hárgreiðslukona, gift Eggerti N. Bjarnasyni rann- sóknalögreglumanni, eiga þau fimm böm; Ásthildur Kristín, f. 16. febrú- ar 1945, fegmnarsérfræðingur í Garðabæ, gift Jóhanni Inga Jó- hannssyni verkstjóra, eiga þau tvö böm; Einar, f. 31. júlí 1952, nemandi í HÍ, á hann tvö börn; Ólöf Ingi- björg, f. 14. júlí ,1956, gift Hlyni Hö- skuldssyni bankastarfsmanni í Rvík, eiga þau tvö börn, og Jón, f. 27. febrúar 1959, rennismiður í Rvík, og á hann eitt bam. Ásta giftist í júh 1974 seinni manni sínum, Ingi- mar Lámssyni, f. 3. apríl 1922, verkamanni. Foreldrar Ingimars eru: Láms Helgason, b. á Heiði á Langanesi, og kona hans, Arnþrúð- ur Sæmundsdóttir. Systkini Ástu em: Jón, f. 25. apríl 1908, d. 29. júní 1941, vélstjóri í Rvík; Gissur Ólafur, f. 21. mars 1909, þýðandi og fyrrv. umdæmisstjóri Pósts og síma á Sel- fossi; Stefanía, f. 22. apríl 1910, hús- móðir í Kanada; Gunnþómnn, f. 10. ágúst 1911, húsmóðir í Rvík; Svein- bjöm, f. 28. mars 1913, vélstjóri i Rvík; Þorsteinn, f. 21. júh 1914, rennismiður í Rvík; Soffia, f. 18. júní 1916, d. 24. júní 1916; Óh Fiíippus, f. 11. júh 1917, d. 14. desember 1955, verkamaður í Rvík; Soffía, f. 24. september 1922, húsmóðir í Rvík; Regína, f. 30. september 1923, hús- móðir í Rvík, og Einar Sveinn, f. 3. mars 1926, vömbílstjóri í Rvík. Foreldrar Ástu vom: Erlingur Filippusson, búfræðingur og grasa- læknir í Rvík, og kona hans, Kristín Jónsdóttir. Erlingur var sonur Fihppusar, b. og silfursmiðs í Kálfa- fellskoti, Stefánssonar. Móðir Erl- ings var Þórunn, grasalæknir og ljósmóðir, Gísladóttir, b. á Ytri- Ás- um í Skaftártungu, Jónssonar, bróð- ur Eiríks, langafa sandgræðslustjó- ranna Páls Sveinssonar og Runólfs, föður Sveins landgræðslustjóra. Annar bróðir Gísla var Jón, langafi Ragnars Jónssonar bókaútgefanda, fóður Jóns Óttars fyrrv. sjónvarps- stjóra. Móðir Þórunnar var Þórann ljósmóðir Sigurðardóttir, b. í Steig í Mýrdal, Ámasonar. Móðir Þórunn- ar var Þórann ljósmóðir, langamma Steinunnar, langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Bróðir Þórunnar var Þorsteinn, fað- ir Ólafar, langömmu Erlends Ein- arssonar, fyrrv. forstjóra SÍS, og Karls, föður Hólmfríðar, ungfrú heims 1985. Þómnn var dóttir Þor- steins, b. og smiðs á Vatnsskarðs- hólum í Mýrdal, Eyjólfssonar, og konu hans, Karítasar ljósmóður, stjúpdóttur Jóns Steingrímssonar eldklerks, Jónsdóthn', klaustur- haldara á Reynistað, Vigfússonar. Móðir Jóns var Helga Jónsdóttir, biskups á Hóium, Vigfússonar. Kristín var dóttir Jóns, b. á Gilsár- vöhum í Borgarfirði eystra, Stefáns- sonar, bróður Einars, afa Valgeirs Bjömssonar hafnarsfjóra. Móðir Kristínar var Stefanía ljósmóðir Ól- afsdóttir, b. á Gilsárvöhum í Borgar- firði eystra, Stefánssonar. Móðir Ólafs var Steinunn, læknir og ljós- móðir, Þórðardóttir, b. á Finnastöð- um, Gíslasonar, og konu hans, Ey- gerðar Jónsdóttur pamfils, systur Jóns, langafa Einars H. Kvaran. Móðir Stefaníu var Soffia, systir Ásta Erlingsdóttir. Ehsabetar, langömmu Gunnars Gunnarssonar skálds. Soffia var dóttir Sigurðar, b. í Skógum í Öxar- firði, Þorgrímssonar og konu hans, Rannveigar Skíða-Gunnarsdóttur, b. í Ási í Kelduhverfi, Þorsteinsson- ar, ættföður Skíða-Gunnarsættar- innar, langafa Elísabetar, ömmu Sigurðar Blöndal, fyrrv. skógrækt- arstjóra. Lóa North Steinunn Ásta Ehsabet North, sem ætíð hefur verið köhuð Lóa, hús- móðir í Guildford á Suður-Englandi, verður sjötug á morgun. Lóa fæddist á Akureyri og ólst þar upp fyrstu þrjú árin en flutti þá með foreldmm sínum og systkinum th Reykjavíkur. Á yngri árum sínum vann Lóa við verslunarstörf í Reykjavík. Hún giftist þann 23.3.1946 dr. James North, lækni í Guhdford á Suður- Englandi. Lóa og James North eiga einn son, John Kingsweh North, f. 20.11.1953, sem er starfsmaður hjá Barcley’s Bank í London, en hann hefur und- anfarin ár verið sérstakur fuhtrúi hjá Arab Banking Corporation í Bahrain þar sem hann býr með fjöldskyldu sinni. John Kungswell North kvæntist 12.3.1977 Söru Je- hring og eiga þau tvær dætur. Systkini Lóu vom átta og eru fjög- ur þeirra á lífi. Systkini hennar: Bergsveinn, f. í Reykjavík 18.12. 1908, d. 21.12.1971, fulltúi hjá Vam- arhðinu á Keflavíkurflugvelh, var kvæntur Magnúsínu Bjarnleifsdótt- ur og átti hann tvö böm; Eggert Thorberg, f. á Akureyri 12.8.1911, d. 2.3.1988, fuhtrúi hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur og síðar dyra- vörðu á Hótel Sögu, var kvæntur Lám Petrínu Bjamadóttur og eign- uðust þau sjö böm; Björn, f. á Akur- eyri 25.1.1915, fyrrv. yfirflugum- ferðarstjóri og framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjóm, kvæntur Jó- hönnu Maríu Hafliðadóttur og eign- uðust þau fjögur böm; Ingibjörg, f. á Akureyri 2.1.1917, d. 11.9.1989, húsmóðir í Reykjavík, var gift Sig- urði Kr. Þórðarsyni gjaldkera og eignuðust þau fjögur börn; Kjartan, f. á Akureyri 21.4.1918, bifreiða- stjóri í Reykjavík, kvæntur Gróu Þorleifsdóttur húsmóður og á hann fjögur börn; Friðrik, f. á Akureyri 4.7.1921, skipstjóri og síðar dehdar- stjóri hjá Sementsverksmiðju ríkis- ins, kvæntur Körlu Stefánsdóttur húsmóður og eiga þau fimm böm; Kristbjörg María, f. í Reykjavík 2.4. 1924, húsmóðir og verslunarmaður, gift Guðmundi Bjarnasyni, vélstjóra hjá ÍSAL, og eiga þau tvo syni; Þór- arinn Óttar Berg, f. í Reykjavík 24.7. 1925, d. 15.11.1978, flugrekstrarstjóri Loftleiða og síðar Flugleiða, var kvæntur Borghildi Edwald, hús- móður og starfsmanni á iðnþjálfun- ardeild á Kleppsspítala, og eignaðist hannfimmbörn. Foreldrar Lóu vom Jón Eyjólfur Bergsveinsson, f. í Hvallátmm á Breiðafirði26.6.1879, d. 17.12.1954, skipstjóri, kaupmaður, ogforseti Fiskifélags íslands, og síðar fyrsti erindreki Slysavamafélags íslands, og kona hans, Ástríður María Egg- ertsdóttir frá Fremri-Langey á Breiðafiröi, f. 22.6.1885, d. 16.11. 1963, húsmóðir. Jón var sonur Bergsveins Jóns- sonar, b. í Hvallátmm á Breiðafirði, og konu hans, Ingibjargar, systur Bjöms ráðherra og ritstjóra, föður Sveins forseta og Olafs ritstjóra, afa Ólafs B. Thors forstjóra og Ólafs Mixa læknis. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. í Djúpadal, Jónssonar, b. í Djúpadal, Arasonar, bróður Finns, b. á Hjöllum, afa Ara Arnalds, al- Steinunn Ásta Elísabet North. 80 ára_________ 60ára__________ Ingunn Aradóttir, Einar Jósepsson, Kópnesbraut5,Hólmavík. Smáratúni21,Keflavík. Guðrún Jónsdóttir, Hann veröur eriendis á afmælis- Knerri, Breiöuvíkurhreppi. daginn. Gísli Felixson, Ilólavegi 18, Sauðárkróki. þingismanns og sýslumanns, föður Einars Amalds borgardómara og Sigurðar Amalds bókaútgefanda, föður Jóns Laxdal Amalds, borgar- dómara og Ragnars Arnalds alþing- ismanns. Ástríður María var dóttir Eggerts, b. í Fremri-Langey Gíslasonar, b. á Stakkabergi. Móðir Eggerts var Guðrún, systir Sveinbjöms í Skál- eyjum, föður Jóhanns Lúthers, próf- asts í Hólmum, móðurafa Einars Odds Kristjánssonar, formanns VSÍ. Sveinbjöm var einnig faðir Sigríðar, ömmu Gunnlaugs Finnssonar, al- þingismanns í Hvilft. Guðrún var dóttir Magnúsar, b. í Skáleyjum Einarssonar, bróður Eyjólfs eyja- jarls, alþingismanns. Móðir Ástríðar var Þuríður Jóns- dóttir, b. og hafnsögumanns í Bhds- ey Bjamasonar, hafnsögumanns í Viðvík hjá Stykkishólmi. Lóa tekur á móti gestum á heimhi bróðursonar síns á Tómasarhaga 7 frá klukkan 17-19:00 á afmælisdag- inn. Friðrik Larsen, Þorsteinsgötu 9, Borgamesi. Austurvegi 63, Selfossi. ÓmarÁrnason, ------7—----------------------- Kárastíg8,Reykjavik. 70 ára GuðbjörgÁsgeirsdóttir, ------------------------------- Túngötu5, ísafirði. Guðlaug Gísladóttir, Halldóra Vilhelmsdóttir, Neðstaleiti 1, Reykjavík. Hríseyjargötu 11, Akureyri. Hún verður að heiman á afinælis- Guðmundur O. Friðleifsson, daginn. Skerseyrarvegi 3B, Hafnarfirði. Gunnar Guðmundsson, Ragnhildur Helgadóttir, Kjalarlandi 28, Reykjavík. Urðarbraut 4, Blönduósi. Pétur A. Thorsteinsson, Aðalsteinn A. Guðmundsson, Ljósheimum 8, Reykjavik. Ásbúð 28, Garöabæ. Kikhard Örn Jónsson, Arkarholti 6, Mosfellsbæ. Guðrún Ester Þorsteinsdóttir, Silfurbraut 10, Höfn í Homarfirði. Sviðsljós Eldri konur í íyrirsætustörfum Ný umboðsskrifstofa fyrir fyrir- sætur var opnuð í Groucho-klúbb- num í London í þessari viku. Það sem vekur athygh við þessa skrif- stofu er að hún hefur ekki á sínum snærum ungar og spenghegar stúlkur heldur konur á besta aldri. Eigendur fyrirtækisins em þær Patti Boyd og Joanne Dainton en þær störfuöu báðar sem fyrirsætur fyrir íjölmörgum árum. Þær stöhur segjast hafa gengið frá samningi við þijátíu konur th að annast fyrirsætustörfin. Sú yngsta er um fertugt en sú elsta tæplega áttræð. Á meðal þessara kvenna era nokkrar kunnar fyrir- sætur og leikkonur fyrri ára, t.d. Tania Mahet sem lék í James Bond-myndinni, Goldfinger. Að sögn Patti og Joanne er eftirspum- in mikh enda hefur það fólk sem komið er yfir fertugt mesta peninga á milh handanna. Patti, sem átti hugmyndina um að stofnsetja fyr- irtækið, bætti því við að auglýs- ingastofur væru nú loks að gera sér grein fyrir því að fólk yfir fertugt heföi mest auraráð og það þýddi lítið að láta unghngsstúlkur aug- lýsa föt ætluð eldri konum. DV er kunnugt um sambærilegar umboðsskrifstofur í Frakklandi og Bandaríkjunum en engar fréttir höfum við af framgöngu þeirra. ■jf' : ~ Ein af fyrirsætum Patti og Joanne.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.