Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990. Heimsmarkaður: Fiskverð á uppleið Almenn fiskveröshækkun hefur orðið á Bandaríkjamarkaði í kjölfar hækkunar í Evrópu. Coldwater Sea- food Corporation, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, hefur þannig hækkað sína vöru um 3 til 6 prósent. Eftir hækkunina er þorskblokkin komin í 1,95 dollara. Eftir sem áður greiðir Evrópumark- aður hærra verða en þar fer þorsk- blokkin á 2 til 2,15 dollara. Ástæða þessara hækkana er sam- dráttur í fiskveiðum í heiminum. Hans gætir beggja vegna hafs. Auk þessa hefur Evrópumarkaður verið að styrkjast á kostnað annarra mark- aða. Hann hefur þannig tekið umtals- vert frá Ameríkumarkaði í þorski og ýsu og af Asíumarkaöi í grálúðu, karfa og öðrum fisktegundum. -gse Skaui 4 skúma með haglabyssu Ölvaður sölumaður úr Reykjavík var handtekinn á Breiðamerkur- sandi, skammt .vestan við Jökulsár- lón, um helgina eftir að hafa skotið á og drepið friðaða fugla. Eitthvað mun manninum hafa staðið stuggur af hinum tignarlega og ógnvekjandi skúm sem ver hreið- ur sín á söndunum. Þegar lögreglan kom aö manninum hafði hann skotið fjóra skúma. Lögreglan lagði hald á bifreið mannsins og skotvopn, enda var hann grunaður um ölvun. Fugl- amir eru nú geymdir í frystigeymsl- um lögreglunnar á Höfn. Maðurinn hafði byssuleyfi en ströng viðurlög eru við því að vera ölvaður og hafa skotvopn undir höndum. Auk þess er óleyfilegt að skjóta friðaða fugla. -ÓTT Svettu hrossin boðin upp Bæjarfógeti hefur ákveðið að bjóða upp hesta Sigríöar Stefánsdóttur þar sem um stórfellt og endurtekið brot er að ræða. Eins og DV hefur skýrt frá svelti hún hrossin þannig að þau voru orðin mjög veikburða. Áöur hefur konan svelt 2 hross þannig að nauðsynlegt var að lóga þeim. Upp- boð á þessum 10 hrossum verður haldið á fimmtudaginn næstkomandi kl. 18 við rétt Sigurjóns Sveinssonar forðagæslumanns við Kaldárselsveg. -PÍ Vilja segja sig úr Mikii óiga er nú á meðal hesta- manna vegna hrossadóma á vegum Búnaðarfélags íslands. Haida hestamenn þvi fram aö dómar séu nú mun harðari en í venjulegu ári sem sé reyndar vaninn þau ár sem landsmót hestamanna fari fram. Nú þykir mönnum hins vegar keyra um þverbak og gerast þær raddir sífeiit háværari sem vilja úrsögn Félags hrossabænda úr Búnaðarféiagi íslands. „Það er rétt aö bændur hafa margir komið að máii við okkur og viijað gera eitthvað í máiinu strax," sagði séra Haildór Gutm- arsson í Holti en hann er í stjórn Félags hrossabænda. Sagði hann að óánægjuna mætti greina um land allt. Menn munu hins vegar ekki vera á einu máii um það hvort uppgjör við ráðunautana sé heppiiegt strax og eru margir sem vilja geyma það tii haustsins. Sagði Halldór að hann teldi erfitt að koma því i kring fyr- ir iandsmótiö sem liæfist i júlíbyrj- un. Hrossaræktarráöunautarnir tveir, þeir Þorkell Bjarnason og Kristinn Hugason, hafa dæmt marga hesta þaö sem af er árinu, meöal annars með tiliiti til lands- mótsins. Eru margir hrossaeigend- ur ákafiega ósáttir við dóma þeirra enda getur slæmur dómur lækkað hesta verulega í verði og útiiokað möguleika þeirra á að komast í ættbók. í kringum landsmótið koma margir útlendingar hingaö tii lands og hugsuðu hestamenn sér gott til glóðarinnar. Þá hefur ein- kunnagjöfinni verið breytt, til dæmis varðandi dóma fyrir bygg- ingu. Hafa mörg hross lækkað í einkunn ef tekið er mið af þeirri einkunn er þau fengu fyrr á árinu. Að söp Halldórs sjá menn ýmsa möguleika um framvindu mála. VOja menn þá starfa i farvegi hrossaræktarnefndarinnar en segja sig úr lögum við Búnaðarfé- lagið. Sagði Halldór að lögum sam- kvæmt hefðu hrossabændur leyfi til að stofna fagfélag sem tæki að sér hrossadóma og réði til þess sér- staka ráðunauta. Átti Halldór von á frekari fundaiiöldum um þetta mál fljótlega og er gert ráð fyrir umræðu um úrsögnina innan Fé- lags hrossabænda á næstuniú. -SMJ Það fór vel um þennan hrossahóp sem Ijósmyndari DV festi á filmu i gær, enda ótrúlegt að hann þurfi að þola umdeilda hrossadóma. Þó að hrossin standi í höm þá væsir ekki um þau enda hin þrifaiegustu. Það styttist nú I landsmót hestamanna og má gera ráð fyrir að hestar og hestamenn leysi knattspyrnuna af hólmi hjá mörgum i júlímánuði. DV-mynd GVA Hjólreiðamaður og gangandi kona slösuðust 19 ára gamall pOtur á reiðhjóli og 77 ára gömul fótgangandi kona slös- uðust í umferðinni í Reykjavík í gær. Einnig slasaðist ökumaður einnar bifreiðar sem lenti í fimm bíla árekstri á Reykjanesbraut. POturinn slasaðist er hann hjólaði inn á götuna og lenti á bíl sem kom akandi á móts við NorðurfeO og Iðu- fell í gærmorgun. Hann hlaut stóran skurð á höfði auk innvortis meiðsla og missti hann meðvitund. POturinn var fluttur í skyndi á slysadeild en hann var þó ekki talinn í lífshættu. Ánnað slys varð er 77 ára gömul varð fyrir bíl er hún var að ganga frá strætisvagnaskýli og suður yfir Miklubraut síðdegis í gær. Konan missti meðvitund og var tahð að hún hefði fótbrotnað. Slysið varð á móts við strætisvagnaskýli og er hellulögð gangstétt á umferðareyju sem hggur á milli hinna umferðarþungu ak- reina. Þarna er engin sebrabraut og eru shkir staðir að sögn lögreglu dæmigerðar slysagildrur. Á þessum stað hafa orðið nokkur alvarleg slys, þarámeðaldauðaslys. -ÓTT LOKI Dómarar gefa gulu og rauðu spjöldin víðar en á Ítalíu. Veðriö á morgun: Rigning eða súld Á morgun verður rigning eða súld á Suður- og Vesturlandi en smáskúrir víða annarsstaðar. Þó eru allgóðar líkur á björtu veðri á Austurlandi. Hitinn verður 9-14 stig. SKUIUIBÍIAR 25050 SENDIBÍLASTÖÐIN Hf opid um kvöld og helgar Kgntucky Fned Chicken Faxafeni 2, Reykjavík Hjallahrauni 15, Hafnaríirði Kjúklingar sem bragó er að Opið alla daga frá 11-22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.