Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELIAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreíðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Staða stjórnarinnar Fyrir verslunarmannahelgi birtust niðurstööur skoð- anakönnunar DV um fylgi flokkanna, ríkisstjórnarinnar og afstöðu almennings til bráðabirgðalaganna. í þessari könnun fengust fróðleg úrsbt um margt og þá einkum er varðar stöðu ríkisstjófnarinnar. Það kom ekki á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn stend- ur sterkt að vígi. Hann fékk 54% fylgi þeirra sem af- stöðu tóku í könnuninni, enda er það nánast lögmál að stjórnarandstöðuflokkur bætir við sig fylgi þegar erf- iðleikar steðja að ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn nýt- ur þess að standa utan átakanna og erfiðleikanna, sem við er að kljást þessa dagana, og virðist það raunar ár- angursríkast í póhtíkinni að segja sem minnst og hafa hægt um sig. Sjálfstæðismenn kunna að segja að meiri- hlutafylgi í skoðanakönnun sé vísbending um að kjós- endur hafi loksins áttað sig á að stefna Sjálfstæðisflokks- rns sé sú eina rétta. Sú óskhyggja á sér þó ekki stoð í raunveruleikanum, heldur er hin ástæðan þyngri á vog- arskálunum að hér fái tímabundin óánægja með aðra flokka útrás. Sjálfstæðisflokkurinn á að vera raunsær og viðurkenna fyrir sjálfum sér að þetta er sýnd veiði en ekki gefin. Einhver kann að spyrja af hverju Kvennalistinn fái þá ekki óánægjuatkvæðin til jafns við Sjálfstæðisflokk- inn. Því er til að svara að Kvennalistinn hefur gleymst og höfðar þar að auki ekki jafn víðtækt til kjósenda og stór flokkur á borð við Sjálfstæðisflokkinn. Kvennalist- inn geldur smæðar sinnar. Ennfremur má ætla að dag- ar Kvennalistans sem stjórnmálaafls séu taldir. Nýja- brumið er horfið. í ljósi fylgis einstakra flokka og mikils gengis Sjálf- stæðisflokksins vekur það athygli að staða ríkisstjórnar- innar hefur styrkst. Ennþá er meirihluti þeirra sem afstöðu taka á móti ríkisstjórninni, en engu að síður hefur fylgi hennar aukist frá síðustu könnun og er nú með besta móti eða 43% af þeim afstöðu taka. Fylgi ríkis- stjórnarinnar er sömuleiðis meira en samanlagt fylgi þeirra flokka sem að henni standa. Nú hefðu menn kannske haldið að hremmingar ríkis- stjórnarinnar í BHMR-mábnu hefðu bakað henni aukn- ar óvinsældir. Öllum er ljóst að vandi stjórnarinnar í því máb var heimatbbúinn. Samverkandi klaufaskapur og klúður. Rökstuddar kröfur hafa verið settar fram um afsögn fjármálaráðherra og jafnvel að ríkisstjórnin færi frá og efndi til kosninga. Miðað við niðurstöður skoðanakönnunarinnar má hins vegar draga þá ályktun að kjósendur telji það meira virði að stjórnin sitji áfram og sjái fyrir endann á aðgerðum sínum. Þjóðarsáttin hefur sjálfsagt haft þar jákvæð áhrif fyrir ríkisstjórnina og sú sáttargerð nýtur mikbs stuðnings. Menn vilja ekki stofna henni í hættu með því stjórnleysi sem kosningar og biðtími eftir nýrri ríkisstjórn kostar. Afstaðan til bráðabirgðalaganna kom nokkuð á óvart í ljósi þess að þau eru hugsuð til að vernda þjóðarsátt- ina. Bráðabirgðalög höfðu aðeins stuðning naums meiri- hluta aðspurðra. En ofar í huga fólks er að mábn séu leyst með samkomulagi frekar en lagaboði og bráða- birgðalög eru ekki að skapi þjóðar sem vbl sátt og frið um þær aðgerðir sem stuðla að bættum efnahag. Þá almennu ályktun má draga af skoðanakönnun DV að kjósendur vbji stöðugt stjórnmálaástand og efnahags- ástand. Ríkisstjórnin þarf hvorki að kvarta né örvænta meðan hún bðast ekki sundur innan frá. Ebert B. Schram Umræða um ísland í nýrri Evrópu hefur verið nokkur á síðum dag- blaða og í sjónvarpi undanfarnar vikur. Og með réttu. Verulegar breytingar eru í nánd, einungis tvö ár skilja okkur frá árinu 1992 þegar ríki Evrópubandalagsins verða að einu, sameiginlegu markaðssvæði. Vitaskuld hlýtur því afstaða ís- lands til þessa bandalags Evrópu- þjóða að verða mönnum umræðu- efni nú. Annað væri bæði óeðlilegt og raunar beinlínis hættulegt fyrir íslendinga. Þessi mál verður að ræða. Þolendur á heimskorti Slík umræða hlýtur að heíjast á þessu: íslendingar eru smáþjóð og sem slík fremur þolendur en ger- endur á heimskortinu. Hvemig tryggir slík smáþjóð best áhrif sín og stöðu í samfélagi þjóöanna á að mörgu leyti misheppnað: hér hefur ekki tekist að jafna lífskjör fólks“, segir greinarhöfundur. \ Island í nýrri Evrópu tímum breytinga sem hún stjórnar ekki sjálf? Menn geta haft mismunandi skoðanir á byggingu og skipulagi Evrópubandalagsins. Menn geta deilt um það hvort Evrópubanda- lagið sé sérlega lýðræðisleg stofnun eða ekki sérlega lýðræðisleg stofn- un. Menn geta deilt um störf kommissara í Briissel. En menn geta ekki deilt um það hvort árið 1992 þýði breytingar í okkar heim- sálfu eða ekki: sú staðreynd liggur ljós fyrir, við íslendingar ráðum engu um það hvort sem okkur líkar betur eða verr. Tilvist Evrópu- bandalagsins er nálæg staðreynd rétt eins og tilvist Bandaríkjanna og tilvist norðurpólsins. íslending- ar verða að taka afstöðu sam- kvæmt því og engu öðru. Þjóðleg íhaldssemi Við skulum ekki gleyma því að ísland er afar lítið markaðssvæði og þar af leiðandi óhagkvæmt. Fyr- ir það greiðir þjóðin stórar upp- hæðir og láglaunafólk vitaskuld mest. Það er láglaunafólkið sem finnur mest fyrir eilífri dýrtíð á íslandi. Og það er staðreynd að það eru matvælin, sem hér taka mestan toll af lífskjörum láglaunafólks: 1500 krónur fyrir lambalæri er of mikið og of ósanngjamt miðað við kaupgjaldið til að verjandi sé og samræmist engri jafnaðarstefnu. Matvælaverðið hér á landi er eitt dæmi þess að íslenskt þjóðfélag er að mörgu leyti misheppnað: hér hefur ekki tekist að jafna lífskjör fólks. Annað dæmi er vinnutíminn: ísland er mesta vinnuþrælkunar- land í Vestur-Evrópu- samkvæmt nýlegri könnun. Þessu tvennu verður að breyta - það er megin- verkefni róttækra manna í framtíð- arlandinu íslandi. Nýtt hugtak í íslenskum stjórn- málum, hin svonefnda „þjóðlega íhaldssemi" samræmist engri rót- tækni og ýtir raunar undir þá kenningu að braut stjómmálanna sé fremur hringur en lína. „Þjóðleg íhaldssemi" nefnist á ýmsum tungumálum, „nasjónalkonservat- ismi“ en sú stefna var þekkt víða fyrr á öldinni, til dæmis í Þýska- landi, og fylgdu henni íhaldssöm- ustu menn þjóðfélagsins, til dæmis júnkarar og aðrir leiðandi menn í því gráa og herþyrsta Prússlandi. „Þjóðleg íhaldssemi" varð síðar uppspretta annarra afla í Þýska- landi sem ekki skulu tilgreind hér en ljóst má vera að sérhver endur- lifgun hugtaksins er óheppileg og vekur ýmsar neikvæðar minningar úr sögunni. „Nasjónalkonservat- ismi“ felur í sér upphafningu þjóð- ar og þess vegna um leið lítillækk- un annarra þjóða. Eðlis síns vegna flokkar hún þannig fólk fyrst og fremst eftir þjóðemi þess. Breytt stjórnmál á breyttum tímum Menn segja aftur og aftur: ísland er svo lítið. Vitaskuld er ísland lítið en það KjaHarinn Einar Heimisson háskólanemi, Freiburg, Vestur-Þýskalandi réttlætir samt ekki þjóðlega íhalds- semi hér fremur en annars staðar. Þjóðleg íhaldssemi er hreinlega slæm pólitík enda líkast til fátt sem valdið hefur eins óskynsamlegum ákvörðunum stjórnmálamanna í tímans rás og viðleitni til að upp- hefja eigin þjóð. Við lifum tíma þegar heimurinn er að verða meiri heild en nokkru sinni fyrr. Verkefni stjórnmálanna verða sömuleiðis alþjóðlegri. Sem dæmi má nefna eitthvert mesta vandamál Evrópumanna um þess- ar mundir, dauða náttúrunnar. Skógar eru að deyja. Vötn eru að deyja. Ástæðan er mengun sem veröur einhvers staðar í fjarlægu landi. Þannig deyja dönsk tré vegna verksmiðjulofts frá Belgíu og tékk- nesk tré vegna verksmiöjulofts frá Frakklandi. Vandmálin eru breytt og þess vegna breytast stjórnmálin einnig. Samskipti íslands og Evrópu- bandalagsins mótast af ýmsum þáttum. Vitaskuld er varsla fisk- veiðilögsögunnar fyrsta lykilmál í samskiptum íslendinga við þetta stóra bandalag. Annað lykilmál eru óumflýjanlegar breytingar á ís- lenskum landbúnaði sem fram- kvæma verður á næstu árum með sem minnstum óþægindum fyrir íslenska bændur. Þriðja lykilmál er uppbygging nýrra fyrirtækja á íslandi og fjármögnun þeirra en Evrópubandalagið hefur raunar sýnt atvinnuuppbyggingu á jaðar- svæðum (eins og í Portúgal) góðan skilning. Alkunna er að það vantar sárlega rýmri aðstöðu og meira fjármagn til öflugrar atvinnuuppbyggingar hér á landi. Lánsfé á hinum þrönga íslenska peningamarkaði hefur tíð- um verið á okurvöxtum og haldið niðri atvinnuuppbyggingu og sömuleiðis stórlega spillt lífskjör- úm barnafjölskyldna í húsnæðis- kaupum. Menn verða að athuga rækilega opnun íslensks peninga- markaðar út frá þessum forsend- um. Fjórða lykilmál er menningarleg einangrun íslands, til dæmis úti- lokun íslenskra námsmanna frá evrópskum háskólum: alkunna er að frá árinu 1992 verða íslendingar í svonefndum þriðja flokki á eftir námsmönnum úr Evrópubanda- lagi og úr þriðja heiminum þegar inntaka í háskóla er ákveðin. Eitt elsta mennta- mál í Evrópu Hins vegar er ástæðulaust að full- yrða að Evrópubandalagið muni koma í veg fyrir að íslendingar tali áfram íslensku eins og áhrifamaö- ur í þjóðfélaginu fullyrti um dag- inn; það er ekki lykilmál varðandi samband íslands og Evrópubanda- lagsins. Vitaskuld verður að hlúa að íslenskri menningu og varðveita rækilega hið merka tungumál ís- lensku, eitt elsta lifandi menntamál í Evrópu. Við berum ábyrgð á þessu tungumáli, einnig gagnvart öðrum Evrópubúum. Menning okkar er hluti af Evr- ópumenningunni, "átengd menn- ingu annarra þjóða í álfunni og gegnir afar mikilvægu hlutverki í menningarsögu hennar: vitað er að íslensk menning skipar mikilvæg- an sess víða í evrópskum háskól- um. Við verðum að varðveita menningu okkar okkar vegna - en ekki síður annarra vegna. Að lokum þetta. Það sem mestu máli skiptir í framtíðarlandinu ís- landi er að hægt sé að bæta þar lífs- kjörin, lækka matvælaverðið, stytta vinnutímann, tryggja hóf- lega vexti á útlánum, eila fjár- streymi í atvinnuuppbyggingu svo brýn mál séu nefnd. Róttækir menn verða að einbeita sér að þessu. Út frá þessum forsendum verður sömuleiðis að meta samband ís- lands og Evrópubandalagsins; hvernig verða lífskjör hér best tryggð í framtíðinni, jöfnuður og jafnrétti þegar þær breytingar verða í álfunni, sem við stjórnum ekki sjálf? - Upphafning þjóðernis er slæmt leiðarljós við það vandsama verk. Einar Heimisson „Tilvist Evrópubandalagsins er nálæg staðreynd rétt eins og tilvist Bandaríkj- anna og tilvist norðurpólsins. íslend- ingar verða að taka afstöðu samkvæmt því og engu öðru.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.