Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
17
íslandsmet
kastaði 85,28 metra á alþjóðlegu móti í Malmö
Einar Vilhjálmsson setti
nýtt glæsilegt íslands-
met í spjótkasti á al-
þjóðlegu frjálsíþrótta-
móti í Malmö í Svíþjóð í gær.
Einar gerði sér lítið fyrir og kast-
aði spjótinu 85,28 metra í fyrsta
kasti sínu í gær og bætti eigið met.
Met hans var 84,66 metrar en þá
vegalengd kastaði hann fyrir 2
árum.
Hélt ég væri orðinn of gamall
„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður
með þetta og ég neita þvl ekki að
þetta kom mér nokkuð á óvart. Ég
hélt ég væri orðinn of gamall til að
ná svona risakasti en annað kom í
ljós,“ sagði Einar, kampakátur eftir
þennan glæsilega árangur í gær.
Átti í erfiðleikum
eftir fyrsta kastið
Ég átti í erfiðleikum eftir þetta
fyrsta kast og fann þá mikið til í
hné en þar hef ég átt við þrálát
meiðsli að stríða," sagði Einar enn-
fremur.
Hann gerði aðeins eitt gilt kast
eftir metkast sitt en það kom ekki
að sök og Einar vann glæstan sigur
í spjótkastskeppninni.
-RR/EJ
• Einar Vilhjálmsson.
Norðurlandamót hestamanna í Danmörku:
]þróttir
Sportstúfar
Heil umferð var leikin í 1. deild frönsku
knattspymunnar um helgina og urðu úr-
slit sem hér segir:
Marseiile-Caen..................2-1
Monaco-Montep...................3-1
Brest-Rennes....................0-0
Toulouse-Lyon...................3-1
Paris SG-Toulon.................4-0
Bordeaux-LUle...................1-1
Nantes-Met2.....................1-1
Cannes-Auxerre..................0-3
Sochaux-Nancy...................1-0
StEtienne-Nice..................1-0
• Monaco og Marseille eru efst og jöfh
eftir þrjár umferðir, bæði haía þau unnið
alla sina leiki og eru með 6 sttg.
Jafntefli hjá
Grasshoppers
í 1. deild svissnesku knattspyrnunnar var
leikin heil umferð um helgina og urðu
úrsht þessi:
Aarau-Sevette...................1-1
Grasshoppers-Young Boys.........0-0
Lausanne-Wettingen..............4-0
Lugano-Luzern...................1-2
Xamax- Zurich................... 0-1
Sion-St. GaUen..................1-1
Bröndby í efsta
sæti í Danmörku
Bröndby er í efsta sæti í 1. deild dönsku
knattspyrnunnar þegar leiknar hafa verið
12 umferðír. Um helgina sigraði Bröndby
Uð Silkeborg, 2-0. Önnur úrsUt urðu þann-
ig:
Bl903-Næstved...................2-0
AGF-AaB.........................0-2
Ikast-Frem......................1-1
Lyngby-Herfölge.................1-0
OB-KB............... ,.4-0
Viborg-Vejle.....................2-1
• Bröndby er í efsta sæti með 19 stig,
SUkeborg 16, B1903 15, AGF 15 og Frem
14. KB er i neðsta sæti með aðeins 7 stíg
en með liðinu leikur Loftur Ólafsson.
Liverpool fór létt
með Lilleström
Lið Liverpool hefur verið á keppnisferða-
lagi undanfamar vikur og hefur Uðið leik-
ið nokkra vináttuleiki tíl undirbúnings
keppnistímabUinu í Englandi sem hefst
slðar í þessum mánuðí. Um helgina lék
liöið gegn norska félaginu Lilleström og
fóm leikar þannig að Liverpool vann ör-
uggan sigur, 3-0. Steve McMahon, David
Burrows og John Bames sáu um að skora
fyrir meistarana sem þóttu leika stórgóða
knattspymu.
idinga, ásamt 3 nýjum leikmönnum sem Rob-
:man og rúmenski landsliðsmaðurinn, George
Símamynd/Reuter
Elsti hesturinn var
átján vetra gamall
Enginn fékk hormónasjokk
í Qanmörku
Útlendu knaparnir voru ekki
hræddir við hormónasjokk í stóð-
hestum sínum því átta knapanna
kepptu á stóðhestum. Ekki sýndi
„óviðráðanleg löngun þeirra í hitt
kynið“ sig á þessu móti. Meðal ann-
arra stóðhesta var þar Glaður 887 frá
Ytra-Skörðugili en hann er orðinn
17 vetra, faðir Hlyns sem Einar Öder
Magnússon keppti á. Glaður 887 var
þó ekki elsti hesturinn því Völsungur
frá Kolkuósi er 18 vetra. Knapi á
honum var Kari Mette VoII.
Það þykir ekki gott að koma fyrstur
inn í dómhring í hestaíþróttum.
Dómar hækka yfirleitt er hður á
mót. íslensku keppendumir töldu sig • Einar Öder Magnússon og Jón Steinbjörnsson kampakátir eftir gott gengi á Norðurlandamótinu í Danmörku.
frekar óheppna því þeir áttu byrjun- DV-mynd E.J.
Það er skemmtileg tilviljun að á
sama tíma og Norðurlandamótið í
hestaíþróttum var haldið í Vilhelms-
borg var heimsmeistarmót stærri
hesta í hestaíþróttum haldið í Stokk-
hólmi. Áhugi Svía á heimsmeistara-
mótinu var mikill sem sést á útsend-
ingum sænska sjónvarpsins, en þar
var meiri hluti dagskrárinnar undir-
lagður af hestaíþróttum því 120
klukkustundum var eytt í heims-
meistarakeppnina.
Heimsmeistaramótið er kallað
World Equistrian Games og er haldið
á fjögurra ára fresti. 700 knapar með
800 hesta taka þátt í mótinu og rúm-
lega ein miUjón áhorfenda kemur til
Stokkhólms á meðan á mótinu stend-
ur. Þetta er í þriðja skipti sem mótið
er Háldið í Stokkhólmi. Fyrsta mótið
var haldið þar árið 1912, aftur 1966
og svo nú árið 1990.
Þess má einnig geta að Evrópumót
í hestaíþróttum yngri knapa á-stærri
hestum var haldið í Vilhelmsborg
dagana 19. til 22 júlí síðastliðinn.
arfulltrúa í öllum greinum nema í
250 metra skeiði.
Smámunasemi dómaranna þótti
með ólíkindum. Fjöldi knapa var
dæmdur úr leik vegna smáyflrsjóna.
Einum knapa var vísað úr keppni
vegna þess að pískurinn hans var
þremur sentímetrum of langur, öðr-
um var vísað úr keppni af því að
hann kom þremur sekúndum of seint
inn í keppnishringinn, þeim þriðja
var vísað úr keppni vegna þess að
hlífin, sem átti að vera 300 grömm,
var 302 grömm og þeim fjórða var
vísað af velli vegna þess að hesturinn
hans hopaði ögn vegna hræðslu við
auglýsingaskilti sem glampaði á.
Þeim fimmta var vísað af velli vegna
þess að hesturinn hans tók nokkur
brokkspor milli keppnisatriða.
Hitabylgja gekk yfir Danmörku í
síöustu viku og var hitinn mestur 33
gráður í skugga. Það virtist þó ekki
há klárunum að ráði.
Það var einkennilegt hve einkunn-
ir voru lágar í forkeppninni. Meðal-
einkunnir voru frá 4,5 til 6,5, en hæst
er gefið 10,0. Þegar dómarar dæmdu
sömu knapa með sömu hesta í úrslit-
um hækkuðu einkunnirnar allt upp
aö 8,5.
-E.J.