Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
Kvikmyndir
Stjömubíó: Með lausa skrúfu * lA
Björn Páll Angantýsson, sigurvegari í karlariðli, ekur brautina.
Ökuleikni í Kópavogi:
Okuleikni og reið-
hjólaskoðun í
Kópavogi
Brynjar M. Valdimarsson, DV-ökuleikiú '90.
Ökuleikni fór fram við Kársnesskóla
að venju. Á staðinn voru mættir lög-
regluþjónar til aö skoða reiðhjól
þeirra sem það vildu. Bömin voru
rnjög ánægð með það fyrirkomulag
og fengu auk skoðunarmiða umsögn
um ástand hjólsins og hvort það
hæfði þeim. Það er til fyrirmyndar
hversu gott samband lögreglan virö-
ist hafa við bömin.
í hjólreiðakeppninni sigraði í eldri
riðh Örn Sævar Hilmarsson með 45
refsistig, annar varð Guðni Tómas-
son með 57 refsistig og þriðji varð
Arnþór Sævarsson með 63 refsistig.
í riðli 9-11 ára sigraði Aðalsteinn
Aðalsteinsson með 57 refsistig, annar
varð Jón Örn Angantýsson með 68
refsistig og þriðji varð Ragnar Níels
Steinsson með 86 refsistig.
Ökuleiknina sigraði í karlariðli
Bjöm Páll Angantýsson með 139
refsistig, annar varð Elvar Halldórs-
son með 224 refsistig og þriðji varð
Hörður Óskarsson með 248 refsistig.
í kvennariðli sigraði Bryndís
Óskarsdóttir með 231 refsistig, önnur
varð Laufey Agnarsdóttir með 262
refsistig og þriðja varð Sigrún Gísla-
dóttir meö 278 refsistig. I riðli byij-
enda varð Sævar Guðni Sævarsson
með 281 refsistig.
Smurstöðin við Engihjalla gaf
verölaunin.
Áskirkju fimmtudaginn 9. ágúst kl.
13.30.
Jóhann Valdimarsson, sem lést þann
27. júlí á Hrafnistu í Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Valný Ðenediktsdóttir, Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfiarðarkirkju fimmtudaginn
9. ágúst kl. 13.30.
Soffia Theodórsdóttir, Freyjugötu 8b,
sem lést í Landakotsspítala 31. júlí,
verður jarðsungin frá Nýju kapell-
unni í Fossvogi í dag kl. 15.
Sigurður P. Guðmundsson frá Stóra-
Nýjabæ í Krísuvík, til heimfiis á
Tjamargötu 10, Innri-Njarðvík, verð-
ur jarðsunginn frá Innri-Njarðvíkur-
kirkju í dag, miðvikudaginn 8. ágúst,
kl. 14.
Útför Emils Gunnars Péturssonar
vélstjóra, Dalbraut 20, Reykjavík, fer
fram frá Dómkirkjunni fimmtudag-
inn 9. ágúst kl. 13.30.
Útför Olafar Jörgensen Devaney,
Suöurvöllum 2, Keflavík, fer fram frá
Kristskirkju, Landakoti, í dag, miö-
vikudaginn 8. ágúst, kl. 15.
Tapað fundið
Köttur fannst í Álftamýri
Svart fress með hvitar loppur og trýni
og með svartan díl undir trýni fannst í
Álftamýri 22. Kötturinn er ca 8 mánaða.
Upplýsingar í síma 84059.
Læða fannst á Kleppsvegi
Falleg brúnbröndótt læða (kettlingur),
greinilega heimilisköttur, fannst á
Kleppsvegi 52. Upplýsingar í síma 678681.
Tilkyimingar
Jarðfræðikort af
Miðsuðurlandi
Út er komin þriðja útgáfa af jarðfræði-
korti af Miðsuðurlandi í mælikvarða 1:
250.000. Fyrsta útgáfa þessa korts kom
út árið 1962. Árið 1982 kom út önnur út-
gáfa þess og var það endurteiknað frá
grunni og sáu jarðfræðingamir Haukur
Jóhannesson, Sveinn P. Jakobsson og
Kristján Sæmundsson um þá útgáfu.
Þriðja útgáfan er nokkuð breytt frá ann-
arri útgáfu en höfundar eru þeir sömu.
Kortið hefur verið endurbætt verulega
til samræmis við aukna þekkingu á jarð-
fræði landsins. Það er prentað í 10 litum.
Jarðlögum er skipt 1 19 einingar eftir
berggerð og aldri. Auk þess eru sýnd
sprungukerii, gömul og ný, mislægi í
jarðlagastafla, gigar og gossprungur,
Löggulæti
Andlát
Þrúður Guðmundsdóttir andaðist á
öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, Hátúni lOb, þriöjudaginn 7.
ágúst.
Magnús Dalmann Hjartarson bif-
reiðastjóri, Skúlagötu 72, lést aö
heimih sínu aðfaranótt sunnudags-
ins 5. ágúst.
Aldís Ósk Sveinsdóttir, áöur tfi heim-
fiis á Hringbraut 111, Reykjavík, ánd-
aðist á elliheimilinu Grund aðfara-
nótt 7. ágúst.
Sigríður Einarsdóttir, Sctfamýri 65,
Reykjavík, andaðist í Landspítalan-
um 6. ágúst.
Magnús B. Pálsson glerskurðar-
meistari, Skipholti 9, lést 6. ágúst.
Þorsteinn Halldór Þorsteinsson full-
trúi, Hólabraut 5, Hafnarfirði, andað-
ist í Borgarspítalanum sunnudaginn
5. ágúst
Jón Gestur Benediktsson hár-
greiðslumeistari, Víghólastíg 12,
Kópavogi, andaðist á heimfii sínu
laugardaginn 4. ágúst.
Kristján Ebenezer Kristjánsson for-
maður, lést á sjúkrahúsinu í Bolung-
arvík þann 6. ágúst.
Jarðarfarir
Útför Jóns Bekk Ágústssonar, Skipa-
sundi 80, sem andaðist 30. júlí, fer
fram frá Langholtskirkju í dag, mið-
vikudaginn 8. ágúst, kl. 15.
Útför Kristjáns Sveinssonar fyrrum
bónda, Geirakoti í Flóa, fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 10. ágúst
kl. 14.
Viktor Þórðarson, vistmaður á
Hrafnistu, veröur jarðsunginn frá
Fjölmiðlar
laugar og hverir, ýmsar jökulmenjar og
fl. A kortinu eru sýnd öll hraun sem
runnið hafa eftir að ísaldarjökla leysti
og þau greind eftir aldri og sést þvi vel
hvaða hraun hafa runnið eftir að land
byggðist. Jarðfræðikort þetta gefur allná-
kvæmt yfirlit um jarðfræði Miðsuður-
lands og er ómissandi ferðafélagi leið-
sögumanna jafnt sem óbreyttra ferða-
manna sem vilja kynna sér náttúru
landsins. Náttúrufræðistofnun íslands og
Landmællngar íslands standa að útgáf-
unni. Kortið var prentað í prentsmiðj-
unni Odda. Það er til sölu í kortaverslun
Landmælinga íslands að Laugavegi 178
og í bókaverslunum.
Opið hús í Norræna húsinu
Fimmtudaginn 9. ágúst heldur Ari
Trausti Guðmimdsson jarðeðlisfræðing-
ur fyrirlestur um jarðfræði íslands, eld-
fjöU og heita hveri í Opnu húsi í Norræna
húsinu. Fyrirlesturinn er fluttur á
norsku og hefst kl. 20.30. Að loknu kaffi-
hléi verður sýnd kvikmynd Ósvaldar
Knudsens, Surtur fer sunnan, og er hún
með norsku tali. Bókasafnið er opið til
kl. 22 eins og venja er á flmmtudögum í
sumar meðan „Opið hús“ er á dagskrá.
í bókasafninu liggja frammi bækur um
ísland og þýðingar íslenskra bókmennta
á öðrum norrænum málum. Kaffistofa
hússins er einnig opin til kl. 22 á fimmtu-
dagskvöldum. Aðgangur er ókeypis og
ailir eru velkomnir í Norræna húsið.
Sýningar
„Frumleg mynd sem með djarfri persónusköpun
varpar nýju ljósi á gamalkunnugt kvikmyndaform"
eru ekki orð sem eiga vel við hér. Nei, hér er bara á
ferðinni enn ein löggufélagamyndin.
Félagarnir eru lífsreynda löggan með allt á hreinu
(Hackman) og klár en bfiuð lögga sem skiptir um per-
sónluleika oftar en sokka (Aykroyd). Myndin byriar
ágætlega, en nýjabrumið springur fljótlega út í gamlar
klisjur. Máliö, sem félagarnir eru flæktir í, er æriö
ílókið og tengist fyrrverandi nasistum og kynsvalli
með Hitler en er of losaralegt til að halda athyglinni.
Þeir ljósu punktar, sem glittir í, eru oft á tíðum fleyg-
ar linur og Aykroyd snargeggjaður sem fær að herma
eftir ótal kvikmynda-, sjónvarps- og teiknimyndaper-
sónum í furðulegum flogaköstum.
Þær skrúfur, sem þyrfti að herða eilítið, eru allar í
hausum hæfileikamannanna sem stóðu að þessu
óþarfa stykki.
Gísii Einarsson
Loose Cannons. Bandarisk 1989.
Handrit Richard C. Matheson, Richard Matheson og Bob Clark.
Leikstjórn: Bob Clark (From the Hip, Murder By Decree).
Leikarar: Gene Hackman, Dan Aykroyd, Dom DeLuise, Ronny
Cox (Robocop, Total Recall), Nancy Travis (Intornal Affairs).
Dan Aykroyd, Gene Hackman og Dom DeLouise
virðast skemmta sér í allri vitleysunni.
Málverkasýning í
Þrastarlundi
Þórhallur Filippusson sýnir 13 olímnál-
verk í Þrastalundi, smá og stór, unnin á
þessu ári. Sýningin stendur til 12. ágúst.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd'
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi. Sumarsýningin í safni Ás-
gríms Jónssonar stendur til ágústloka og
er opin alla daga nema mánudaga kl.
13.30 til 16.
Sýningar Ferðaleikhússins
á Light Night eru í Tjarnarbíói við Tiöm-
ina í Reykjavik (Tjamargötu 10E). Sýn-
ingarkvöld em fjögur í viku, fimmtu-
dags-, fostudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Sýningar hefjast kl. 21 og lýk-
ur kl. 23. Light Night sýningamar em
sérstaklega færðar upp til skemmtunar
og fróðleiks enskumælandi ferðamönn-
um. Efnið er allt íslenskt en flutt á ensku.
Meðal efnis má nefna: Þjóðsögur af
huldufólki, tröllum og draugum, gamlar
gamanfrásagnir og einnig er atriði úr
Egilssögu sviðsett. Þetta er 21. sumarið
sem Ferðaleikhúsið stendur fyrir sýning-
um á Light Nights í Reylgavik.
Hjónanna í Seljanesi
minnst í Árneskirkju
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Hundrað ára ártíðar Sólveigar Stef-
aníu Benjamínsdóttur frá Seljanesi
hér í Árneshreppi var minnst við
messu sl. sunnudag, svo og manns
hennar, Jóns Guömundssonar. 105
ár eru frá fæðingu hans í ár. Sólveig
fæddist 29. maí 1890. Eftir kirkjuat-
höfnina voru settir kransar á leiði
þeirra í kirkjugarðinum í Ámesi.
Margir afkomenda Seljaneshjón-
anna voru viðstaddir athöfnina.
Þetta voru mikil heiðurshjón, Ust-
ræn vel, sem allir elskuðu og virtu,
spiluðu á orgel og fleiri hljóðfæri.
Þau eignuðust átta börn og em sjö á
lífi, manngæskufólk sem hefur látið
gott af sér leiða. Það hefur erft hljóm-
listargáfur foreldranna, svo og niðjar
þeirra. Enn búa nokkur böm Selja-
neshjónanna í hreppnum en ekkert
af barnabarnabömunum.
Tvær systur Sólveigar Stefaníu
bjuggju einnig hér í Árneshreppi og
átti önnur 10 börn en hin 12 og skipta
afkomendur systranna þriggja mörg-
um hundmðum.
Fréttaskýríngar Þóris Guö-
mundssonar frá Austur-Evrópu em
oft mjög góðar, eina slíka flutti hann
í gær frá Litháen og var sjónvarpsá-
horfendum gerð skýr grein fyrir
ástandi máia þar. Það er mikili
munur á því að hafa íslenska frétta-
menn að störfum þar sem eitthvað
er að gerast í stað þess að treysta
alfarið á erlendar fréttastofur sem
oftar en ekki senda niðursoðnar
fréttirafatburöum.
Vandaraálið er hins vegar það að
ísienskir fiölmiðlar telja sig ekki
hafa efni á að hafa starfandi frétta-
menn í útlöndum þrátt fyrir aö það
sé viöurkennd staðreynd að frétta-
menn sem flytja fréttir beint af vett-
vangi flytja í flestum tiivikum betri
og vandaðri fréttir en fást í gegnum
erlendar fréttastofur, auk þess sem
þeir matreiða fréttirnar á þann hátt
sem íslendingar skiija best.
Ríkisútvarpið er með starfandi
fréttamann í Ðanmörku, flestir aðr-
ir, sem flytja fregnir að utan á veg-
um stofhunarinnar í útvarp eöa
sjónvarp, eru staddir á staðnum
vegna
andi landi. Fréttamennskan er i
öröu sæti og hún hlýtur aö gjalda
þess því þrátt fyrir að þetta fóik sé
allt af vilja gert er óvíst að þaö geti
hlaupið upp til handa og fóta þó s vo
eitthvað fréttnæmt sé að gerast enda
fer oft sithvaö markvert fy rir ofan
garð og neðan hjá þessu fólki.
Það er umhugsunarefni nú þegar
bullar og kraumar fyrir botni Persa-
flóa af hveiju ekki er að minnsta
kosti einn íréttamaður sendur á
vegum ríkisfiölmiðlanna til að fylgj-
ast meö atburðum þar í stað þess
að treysta nær alfarið á eriendar
fréttastofur og niðursuðufrétta-
mennsku þeirra. Allténd eru þetta
sennfiega einu starfandi fréttastofur
landsins fyrir utan Morgunblaöið
sem ættu að hafa efni á slíkum
ferðalögum. En ríkiskerfið er oft
seint að átta sig og bákniö alit of
stórt tfi að hægt sé að taka skjótar
ákvaröanir.
-Jóhanna Margrét